Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 Bergþór Guðjónsson tryggði sér sigur í lokaþrautunum, en hann ók mjög vel og skaut kraftmeiri bílum aftur fyrir sig. Torfærukeppni Stakks: Bergþór Guðjónsson sigraði í spennandi keppni MEÐ SIGRI í torfærukeppni Björgunarsveitarinnar Stakks í Grindavík á sunnudaginn tryggði Bergþór Guðjónsson sér íslands- meistaratitilinn í torfæruakstri. Ók hann að venju Willys-jenpa búnum Volvo B20 Turbo-vél. I öðru sæti varð Bjarni Sigurgarðarsson í Willys og í því þriðja Halldór Jó- hannesson einnig á Willys. Það var óvenju góð þátttaka í torfærukeppninni að þessu sinni. Bjarmi Sigurgarðarsson náði forystu á Willys, en í lokaþraut- unum missti hann af sigrinum. Þá hrifsaði Bergþór Guðjónsson fyrsta sætið með því að aka lag- lega, en hann átti í smávandræð- um í upphafi keppninnar er vatnsinnspýting vélarinnar virk- aði ekki sem skyldi. Halldór Jó- hannesson kom frá Akureyri og nældi í þriðja sætið með því að aka grimmt. Daihatsu-jeppar í keppninni vöktu sérstaka at- hygli fyrir mjög góða frammi- stöðu, en þeir voru með mun kraftminni vélar en keppinaut- arnir. Þeim, sem keppa í torfærukeppni, veitti ekkert af flugprófi. Óneitanlega hafa þessar aðfarir dekkjasparnað f för tmeé aér. UW m * v Jón Kagnarsson á Suzuki varð að Ijúka keppni á tveim jafnfljótum þar sem jeppinn stöðvaðist í einni brekkunni. I jÓMmyndir Mbl. (iunniau^ur R. Það eru engin smádekk undir torfærujeppunum. Bergþór Guðjónsson stendur hér við Willysinn sinn, sem búinn er Volvo B-20 turbo-vél. Pétur Pétursson þulur: Að sveia jólakettinum í september „Nú fáum við stóran samning og góðan í haust," sagði ungur full- trúi er setið hafði þing BSRB og hlýtt á ræður forystumanna og hvatningarorð þeirra um „endur- heimt kaupmáttar". Nú liggur samningurinn fyrir „stór og góður" að mati forvígis- manna. Hvað annað. Þeir hafa alltaf verið að gera góða samn- inga. Það er sérgrein þeirra. Þang- að til líður á samningstímabilið. Þá kemur í ljós að seinasti samn- ingur verður hverju sinni einn hinn versti er gerður hefir verið. Allt komið undir kvið og nástrá kroppað á Sultartanga í samn- ingslok. Þá er efnt til nýrra funda og hvatt til aðgerða. Að vísu er tónninn ekki ævinlega jafn her- skár. Það varð t.d. ljóst hinn 1. maí sl. við hátíðahöld á Lækjar- torgi að harði kjarninn frá dögum útflutningsbanns og verkfalla, var farinn að linast. Þegar Kr. Th. og Asm. Stef., stigu í stólinn og síðan var tilkynnt að söngflokkurinn „Hálft í hvoru“ ætlaði að syngja baráttusöngva þá varð ijóst hver hugur fylgdi máli. Ef svo fer sem horfir má búast við að næsti 3öng- flokkur þeirra félaga verði „Frá- dráttarflokkurinn Kjaraskerð- ing“. Allt frá því er opinberir starfs- menn unnu sigur í þrjúprósent- þrætunni með andófsbaráttu sinni 1979 hafa Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkurinn haft uppi áform um að koma samtökum þeirra á kné og setja undir hús- aga. Verkalýðsforingjar Alþýðu- bandalagsins búa enn að trausti er fyrirrennarar þeirra ýmsir áunnu sér á árum gerðardómslaga vegna vasklegrar framgöngu. íslensk al- þýða er langminnug á velgerðir og tryKglynd í eðli sínu. Var raunar vönust því að heyra bæði hósta og stunu úr röðum forystumanna verkalýðs þá er vegið var í kné- runn hennar. „Ég hósta þegar mér sýnist," sagði Guðmundur J. þá er honum leystist Reykjavíkurhöfn á liðnu sumri. Hóstalaust virðist sá hinn sami Guðmundur ganga und- ir jarðarmen járnblendimanna og fjármálafursta er nú freista þess að velta auðvaldskreppu og afleið- ingum hennar á herðar vinnandi almúga. Ömurlegt má það vera ís- lenskum sósíalistum að heyra for- ystuhópa alþýðunnar vella graut Vinnuveitendasambandsins um minnkandi hagvöxt og samdrátt í auðvaldsþjóðfélagi. „Öðrum fórst, en ekki þér,“ segir máltækið. Hafa sósíalistar gleymt fræðum Karls Marx er sagði af skarp- skyggni fyrir um sífelldar og óhjákvæmilegar kreppur auð- valdsþjóðfélagsins er framleiðir með gróðann einan að takmarki en hirðir hvergi um neyzluþörf né nauðþurftir almennings? Ræður alþýðubandalagsmanna gætu rétt eins verið fluttar af Sveini Pálssyni rakara á Óseyri og forystugreinar Þjóðviljans sem best birst í Kvöldblaðinu. Enda gengur fram af mörgum. Hvað sagði ekki Brynjólfur Bjarnason fyrrum ráðherra um Þjóðviljann. Hann kvíðir fyrir að fá hann. Brynjólfur lýsti þróun mála er verður með undanhaldi forystu- manna í ræðu er hann flutti árið 1958. Það er rétt eins og lýst sé vinnubrögðum Alþýðubandalags- ins þessa dagana: „Eftir að endurskoðunarstefnan varð ofaná ... tóku þeirað miða allt sitt starf við auðvaldsskipu- lagið, takmarka það við hagkerfi þess og stjórnarfar ... Það er þetta sjónarmið, þar sem allt er miðað við að leysa vanda hins kap- ítalíska hagkerfis sem hefir leitt flokkinn inn á þá braut sem hann nú er á, fylgi við gengislækkun, tollahækkanir á neyzluvörum og ráðstafanir til að hefta kjarabar- áttu verkalýðsins. Slíkri stefnu og slíkum verkefn- um hæfir það skipulag, sem trygg- ir fullt „athafnafrelsi" forystuliðs- ins, og sjálfræði þess gagnvart hinum óbreyttu flokksmönnum. Þingflokkurinn verður kjarninn, félög almennra flokksmanna eins- konar kjósendafélög til aðstoðar. Þetta er leiðin til þess að breyta flokknum í samébyrgð hagsmuna- og valdastritara. Af reynslu sósíaldemókrata- flokkanna þekkjum við þetta bezt, ekki sízt hættuna á spillingu í æðstu toppum flokksins. Undir eins og menn taka að gegna áhrif- astöðum með vald á bak við sig, þá sparar borgarastéttin engin ráð til að kaupa menn, og spilla þeim.“ Þannig lýsti Brynjólfur Bjarna- son ferli þeirra er víkja af vegi. Aldarfjórðungur er liðinn síðan þessi orð voru sögð. Þá var átt við Alþýðuflokkinn. Við hvaða flokk eiga þessi ummæli nú? Furðulegur er tvískinnungur á málflutningi forystumanna er ógna nú með atvinnuleysi og kjararýrnun. Annarsvegar er rætt um brýna nauðsyn launalækkunar svo atvinnuvegir rísi undir kaup- gjaldi. Hinsvegar hampað flokka- hækkunum og launabótum er boðnar eru af stjórnvöldum. Virð- ast því forystumenn telja að með því sé launamönnum að fullu bætt tekjuskerðing. Spyrja má: Hvað er þá unnið með vísitöluskerðingu ef launalækkun er bætt með öðrum hætti? Hver verður ávinnnigur ríkissjóðs og sparnaður? Sannleikurinn er sá að með tvískinnungi, undirferli og bak- tjaldamakki er öll viðmiðun og dómgreind rugluð með talnaleikj- um svo enginn veit sitt rjúkandi ráð. Hið sanna er að stjórnvöld bera fé á fulltrúa ýmissa hópa með flokkahækkunum er slævir dómgreind þeirra, en greiða síðan þorra starfsmanna það högg er lengi mun á lendum svíða með helmingsfrádrætti verðbóta í des- ember. Raunar var ljóst að forystumenn margir teljast til jólasveina, en að formaður Verkamannasambands íslands tæki að sér að leika jólaköttinn, það vekur meiri furðu. Við undirskrift samninga var fjármálaráðherra hinn kampakát- asti er hann kvað svokallaðar „launabætur" skila sér allar í rík- issjóð áður langt liði. Ekki var gleði viðskiptaráðherra minni er hann lýsti áformum sínum og full- tingi forystumanna að ráðast enn frekar og af meiri offorsi gegn vísitölubótum á vetri komanda með því að skekkja enn frekar en orðið er undirstöðu og útreikn- inga. Furðulegt er að hlýða á tal þeirra herra um víxlverkanir verðlags og kaupgjalds. Af tali þeirra má ráða hvorum megin hjartað slær. Þeir setja vörur og vexti skör ofar en launavinnu og framlag alþýðu til auðmyndunar. Með sömu rökum og þeir beita mætti eins lýsa áformum um að stöðva víxlverkanir hungurs og máltíða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.