Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 29 iesota. George Bush, varaforseti Bandaríkjanna flutti ræðu auk fulltrúa frá öllum íl.jonniTndir Mbl. ÓI.K.M.) \a í Minnesota þætti leitt að hafa ekki haft tækifæri til að hitta fleiri íslend- inga í Minneapolis og ekkert get- að skoðað borgina. „Eg hef stigið inn og út úr bílum," sagði Vigdís forseti, „og varla vitað hvar ég var.“ Dagskrá hennar í Minnea- polis var mjög ströng en undir- búningur allur hafði verið unn- inn vel og nákvæmlega, þótt eitthvað hlyti að fara úr skorð- um. Hún átti að ganga af hóteli sínu yfir í Dayton-stórverslunina á laugardag, þar sem sendiherra- hjón Islands buðu til móttöku á efstu hæð fyrir hönd íslenskra viðskiptaaðila. Ekki gafst Vigdísi forseta tími til að ganga þetta, en var ekið til móttökunnar. Oánægjuraddir heyrðust meðal þeirra sem höfðu komið gagngert til að sjá forsetann í versluninni, en allir virtust hafa heyrt hversu glæsileg hún er. Göngugata fyrir utan verslun- ina líktist einna helst Austur- stræti á 17. júní. Þar voru ís- lenskir fánar, íslenskar vörur og kynningarbæklingar og konur klæddar í upphluti og peysuföt. Á öðrum stöðum í borginni mátti finna svipaðar götur með brag hinna Norðurlandaþjóðanna. Fánar landanna voru hylltir á 5 stöðum í borginni á laugardag og Vigdís forseti var viðstödd hyll- ingu íslenska fánans áður en hún sat hádegisverð samtaka ýmissa kvenna og talaði um sjálfboða- störf á íslandi. Ýmsar sýningar í sambandi við Scandinavia Today voru opnaðar í Minneapolis, og var Vigdís forseti viðstödd opnun ljósmyndasýningarinnar í Walk- er Art Center á laugardag, Bertil Svíaprins opnaði hana. Þá um kvöldið voru miklir hljómleikar haldnir í hljómleikahöll Minnea- polis. Vigdís forseti var þar í skautbúningi og gestir voru skreyttir orðum og dýrindis djásnum. Birgit Nilsson, Hákon Folkegaard, karlakórinn Fóst- bræður, Viktor Borge og fleiri komu þar fram og verður tón- leikunum sjónvarpað síðar. Vigdís forseti sagði í opnun- arræðu sinni í Guthrie Theatre á föstudag, að hún ætlaði ekki að gróðursetja þrjú tré í Minnesota eins og hún er vön á ferðum sín- um. Borgarstjórn Minneapolis fékk hana þó til þess, og í rign- ingu á sunnudagsmorgun mokaði hún mold á rætur þriggja trjáa og bað trén sín þrjú vel að lifa í Minnesota. Á sunnudagskvöld hélt forseti íslands til New York. dinnesota, herrahjón- liptaaðila í Geil Magnússon (tv.) sýndi myndir sem hún málaði á íslandi 1950—55 og Ethyl Furgeson sat og prjónaði og sýndi íslenskar prjónavörur á göngugötu í Minneapolis. Gengið á rauðum dreglum í New York New York 13. september. Frá Önnu Bjarnadóltur fréítaritara Mbl. EDWARD I. Koch, borgarstjóri New York lýsti þessa viku í New York, viku Scandinavia Today, við opnun Norrænu menningar- kynningarinnar í Alice Tully Hall í Lincoln Center í dag, mánudag. Hann bauð gesti vel- komna til borgarinnar á tungu- málum allra landanna og sagði síðar: „Vertu velkomin.“ Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands flutti opnunarræðu og the Nord- ic Trio flutti verk Þorkels Sigur- björnssonar Faces of Pantom- ime. Þorkell samdi verkið sér- staklega fyrir tríóið til heiðurs opnunar Scandinavia Today á vegum Nomus, samtaka nor- rænna tónlistarmanna, og var hann viðstaddur flutning verks- ins í Lincoln Center. Patricia McFate forseti Am- erican Scandinavian Founda- tion bauð gesti velkomna og sagði eilítið frá undirbúningi Scandinavia Today. Hún sagði að menningarkynningin væri hin mesta sinnar tegundar í Bandaríkjunum. McFate sagði að kynningin myndi færa þjóð- irnar saman og vitnaði í kvæði eftir Matthías Johannessen: „I have had a land for a friend", sem á íslenzku hljóðar: „Ég hef átt land að vini“ — (úr Sálm- um á atómöld í Fagur er dal- ur). Pher Gyllenhammer for- stjóri Volvo og Else Hetem- áki-Olander tóku einnig til máls. Vigdís forseti talaði um frelsisstyttu Bandaríkja- manna, sem stendur í New York-höfn og innflytjendur til Bandaríkjanna sigldu framhjá og kallaði hana „áhrifamikla konu með blys“. Sjálf sagðist Vigdís forseti ekki vera áhrifa- mikil kona með blys, heldur aðeins kona með blys, „kona með blys friðar og vinsemdar í heiminum, kona með blys um- hyggju — umhyggjunnar, sem stuðlar að friði — og nú með blys Scandinavia Today“. Forseti íslands talaði um samstarf Norðurlandanna og menningu þeirra. Hún sagði menningu auka skilning á líf- inu sjálfu og án hennar gæti samstarf, friður og umhyggja aldrei náðst. Hún lýsti síðan menningarkynninguna í New York opna. Þrjár sýningar Scandinavia Today verða t opnaðar á þremur söfnum við Fimmtu tröð í kvöld og munu fulltrúar Norðurlandanna og gestir ganga á rauðum dregl- um milli safnanna. Símamynd MorgunbSaóið / ÓI.K.M. Patricia McFate og Edward I. Koch, borgarstjóri New York, afhenda forseta fslands, Vigdísi Finnbogadóttur, yfirlýsingu New York-borgar um Scandin- avia Today-vikuna. Vorum ánægð með hvernig til tókst með flutning verks Karólínu — segir Ingvar Gíslason menntamálaráðherra New York, 13. æptember. Frá Önnu Bjarnadóttur, Tréttaritara Mbl. „ÞAÐ var sameiginlegt verk- efni allra Norðurlandanna að undirbúa Scandinavia Today og sáu sérstakar nefndir um val á efni á menningar- kynninguna“, sagði Ingvar Gíslason menntamálaráðherra í stuttu samtali sem Mbl. átti við hann í Minneapolis á sunnudag. Karólína Eiríksdótt- ir tónskáld sagði á dögunum að hún hefði frétt á skotspónum að verk hennar, Sonans, hefði verið valið til flutnings við opnunarhátíð á Scandinavia Today í vísindaakademíunni í Washington. „Reynt var að velja verk frá öllum Norður- löndunum," sagði mennta- málaráðherra, „ég get ekki sagt hvernig nákvæmlega var staðið að því. Nefndunum var veitt úrslitavald um hvað valið yrði. Það kom ekki í hlut ráð- herra sem slíks. En ég vil segja að við sem vorum viðstödd flutning verks Karólínu vorum mjög ánægð með hvernig til tókst.“ Menntamálaráðherra sagði að ráðuneytið hefði reynt að halda kostnaði í sambandi við Scandinavia Today niðri og ekki haft peninga til að bjóða einstökum lista- mönnum út. Þorkell Sigur- björnsson, sem var viðstadd- ur flutning verks síns við opnunarhátíðina í Kennedy Center, var þar á eigin veg- um. Menntamálaráðherra, Birgir Thorlacius ráðuneytis- stjóri og Kristinn Hallsson og konur þeirra eru í Bandar- íkjunum til að vera viðstödd opnunarhátíðir á menningar- kynningu Norðurlandanna. Kona ráðherra kom ekki til landsins fyrr en á föstudag. Hún er hér á kostnað ráðu- neytisins eins og reglur um ferðir ráðherra leyfa en hin- ar frúrnar eru á eigin kostn- að. Menntamálaráðherra verð- ur með hádegisverðarboð á fimmtudag fyrir fræðimenn í íslensku í Bandaríkjunum, í sambandi við íslensku forn- ritasýninguna á* Pierpont Morgan-bókasafninu á mið- vikudag. Hann hefur verið viðstaddur opnun fjölda sýn- inga í sambandi við Scand- inavia Today í Washington, Minneapolis og New York ásamt menningarmálaráð- herra Finna, menntamála- ráðherra Norðmanna og dómsmálaráðherra Svía, en danski menntamálaráð- herrann varð að fara heim frá Washington vegna stjórnarskiptanna í Dan- mörku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.