Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 40
r Síminná QQAQQ afgretöslunni er OOUOO Jltorgmtblafetb ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 Göngur og réttir hafnar Göngur og réttir standa nú yfir víðast hvar á landinu. Þessa réttarmvnd tók Ragnar Axelsson Ijósmyndari Mbl. í hinni skemmtilegu rétt þeirra Reykdæla og Hálssveitunga, Fljótstungurétt í Borgarfirði, um helgina. Blaða- maður og Ijósmyndari Mbl. fóru í Fljótstungurétt og eru viðtöl og myndir á bls. 46 í blaðinu í dag. Mynd Mbl. KÖE Markakótigar ÞEIR Sigurlás Þorleifsson, ÍBV, og Heimir Karlsson, Víkingi, urðu markakóngar í 1. deild í sumar, en Islandsmótinu lauk um helgina með sigri Víkings. Hvor um sig skoraði 10 mörk. Þetta er í þriðja sinn sem Nigurlás verður markakóngur, en Heimir hreppti titilinn í fyrsta sinn. Ný verkefni bíða þeirra félaga — þátttaka í Evrópumótum. Eyja- menn leika í kvöld á Kópavogsvelli við pólska liðið Lech Posnan í Evrópukeppni bikarhafa, en íslandsmeistarar Víkings mæta spönsku meisturunum Real Sociedad í Evrópukeppni meistaraiiða á Laugar- dalsvelli annað kvöld. Sjá allt um íþróttaviðburði helgarinnar á íþróttasíðum. Verkfall á Tungnaár- svæðinu á miðnætti? STARFSMENN á Tungnaársvæðinu og viðsemjendur þeirra funduðu í gær hjá ríkissáttasemjara og var m.a. rætt um fyrirkomulag á bónus- greiðslum og vinnufyrirkomulag. Fundinum lauk í gærkvöldi kl. 22.30 án árangurs og er annar fund- ur boðaður kl. 14 í dag. Guðmundur Vignir Jósefsson, vararíkissátta- semjari, sagði í samtali við Mbl. í lok fundarins að hann vildi engu spá um hvenær samningar næðust. Sagði Guðmundur að ekki sæi fyrir endann á viðræðunum. Nokkur fé- lög hafa boðað verkfall sem hefst á miðnætti i kvöld, náist samningar ekki. Fundurinn, sem lauk án árang- urs í gaer, hófst hjá ríkissátta- semjara klukkan 13.30 í gær. Sagði Guðmundur Vignir að þau félög sem hafa boðað verkfall frá og með 15. september, fyrir hönd starfsmanna sinna á Tungnaár- svæðinu, væru Verkalýðsfélagið Rangæingur, Rafiðnaðarsamband Islands og Sveinafélag málmiðn- aðarmanna í Rangárvallasýslu, en Iðnaðarmannafélag Rangæinga hefur verið í verkfalli frá 7. sept- ember. FISKISKIPIN stöðvast nú hvert af öðru samkvæmt ákvörðun stjórnar og trúnaðarráðs LÍÚ og búizt er við því að flotinn hafi allur stöðvast um miðja næstu viku verði ekki þá fundin lausn á vanda útgerðarinn- ar, sem fulltrúar hennar geta sætt um Togarar BÚH reknir með 5 milljóna tapi fyrstu 6 mánuðina: Frestað ákvörðun á vanda útgerðarinnar lausn sig við. Ríkisstjórnin hefur enn ekki tekið endanlega ákvörðun um það hvaða lausn verður boðin út- gerðarmönnnum. Til stóð að sú ákvörðun yrði tekin á ríkisstjórn- arfundi í dag, en honum hefur verið frestað til fimmtudags. Sem dæmi um vanda útgerðarinnar má nefna, að formaður útgerðarráðs BÚH seg- ir i samtali við blaðið, að eins og rckstrargrundvöllur útgerðarinnar sé nú, gangi dæmið alls ekki upp og því sé ekki um annað að ræða en að stöðva skipin þar til rekstrargrund- völlurinn fæst leiðréttur. „Ég stefni að því að ljúka til- lögugerð til lausnar vanda útgerð- arinnar sem fyrst og útfærsla á þeim hugmyndum, sem ég hef lagt fram, mun liggja fyrir á fundi rík- isstjórnarinnar á fimmtudag og ég býzt við því að þá verði tekin af- staða til þeirra," sagði sjávarút- vegsráðherra, Steingrímur Her- mannsson, er Morgunblaðið spurði hann hvenær þess væri að vænta, að tekin yrði ákvörðun um lausn á vanda útgerðarinnar. Ekki vildi Steingrímur tjá sig um það í hverju hugmyndir sjáv- arútvegsráðuneytisins væru fólgn- ar, en staðfesti að meðal þeirra væri lækkun olíuverðs og er hann var spurður álits á þeirri yfirlýs- ingu Kristjáns Ragnarssonar að olíuverðslækkun og verðtryggt lán leysti engan vanda, svaraði hann: „Kristján er enginn útgerðarmað- ur, hann er formaður félagsins og það eru fleiri útgerðarmenn og ætli útgerðin í heild hljóti ekki að fjalla um hugmyndir til lausnar vandanum. Við göngum eins langt og ríkisvaldið getur að mínu mati og svo er það útgerðarmanna, ekki bara Kristjáns Ragnarssonar, að ákveða hvort þeir halda til veiða eða ekki. Staðreyndin er náttúrlega sú, að margir útgerðarmenn hafa reist sér hurðarás um öxl með allt of glæfralegri fjárfestingu, sem þeir ráða svo ekki við og það þýðir ekki að koma ætíð til ríkisvaldsins og heimta hjálp, þegar í óefni er komið. Ég held að menn verði að fara að gera sér grein fyrir því. Þá verður maður að gera sér grein fyrir því, að í þessum hallarekstri, sem fram kemur að mati Þjóð- hagsstofnunar, er handfylli af skipum, sem eru langt um verr stödd en önnur og slíkt skekkir allt dæmið stórlega og það getur verið að það þurfi að leysa vanda slíkra útgerða sérstaklega og þá af byggðaástæðum, ef menn vilja, út- gerðarmenn verða einnig að líta í eigin barrn." „Afkoma BÚH fyrstu 6 mánuði þessa árs er þannig, að útgerðin er rekin með verulegum halla. Fyrir utan fjármagnskostnað og af- skriftir má ætla að skip útgerðar- innar séu rekin með 4 til 5 millj- óna króna halla samtals þetta tímabil. Þá er fiskverkunin rekin á núlli og skilar engu, hvorki upp í afskriftir né fjármagnskostnað. Þannig að afkoma fyrstu 6 mánuði þessa árs er alveg gjörbreytt til hins verra frá því sem verið hefur og dæmið gengur því hreinlega alls ekki upp. Vegna þessa hafa skuldir hlaðist upp hjá Bæjarút- gerðinni og sem dæmi um það má nefna, að bæjarsjóður hefur nú orðið að hlaupa þar undir bagga og greiða rúmlega einnar milljón- ar króna skuld við Útvegsbankann fyrir bæjarútgerðina. Þá munu vaxtagreiðslur útgerðarinnar á þessu tímabili nema um 9 milljón- um króna, olíukostnaður er um 7,5 milljónir, en aflaverðmæti þennan tíma um 21 mílljón króna. Þá á eftir að reikna afskriftir inn í dæmið svo það er anzi lítið eftir. Eins og þetta lítur út er þetta nán- ast búið. Það er vonlaust að gera út á núverandi grundvelli og því er ekkert annað að gera en að stoppa þar til vandinn hefur verið leyst- ur. Það þarf bæði að leysa núver- andi vanda útgerðarinnar og leið- rétta rekstrargrundvöll fyrir framtíðina," sagði Sigurður Þórð arson, formaður útgerðarráðs BÚH í samtali við Morgunblaðið í gær. Leitt að Arnarflug falli frá Ziirich-fluginu — segir Steingrímur Hermannsson „ÚT AF fyrir sig harma ég það, að Arnarflug skuli ekki geta haldið uppi vetrarflugi til Ziirich, en það var aldrei ætlunin að fljúga að vetrinum til Diisseldorf. Mér er hins vegar alveg Ijóst að það óhapp, sem félagið varð fyrir, er tæring kom upp í einni véla þess vegur ákaflega þungt á metunum," sagði Steingrímur Her- mannsson, samgönguráðherra, er Morgunblaðið innti hann álits á því að Arnarflug skuli falla frá vetrar- flugi til Ziirich. „Vegna þessa óhapps verf Arnarflug að taka vél á leigu og þess að leysa þetta og til þess að næga sætanýtingu rúmi Ziirich-flugið ekki inni í áætl þeirra í vetur. Þessu hafa þeir gi mér grein fyrir og ég geri en athugasemd við það, fyrst svona fór. Tæringin í vélinni því ástæðan til þess að Arnarfl getur ekki staðið við gerðar áæ anir og það er vissuleg mjög leit sagði Steingrímur. Opnast Laxá í Döl- um íslendingum? Litlar líkur á áframhaldandi leigu Pepsi-Cola LÍKIIR eru taldar á því að Donald M. Kendell, stjórnarformaður l’epsi-Gola fyrirtækisins í Bandaríkj- unum sem verið hefur með Laxá í Dölum á leigu siðastliðin 10 ár, leigi ána áfram. Að sögn Jóhanns Næ- mundssonar í Asi, formanns veiðifé- lags Laxdæla, hafa staðið yfir samn- ingaviðræður á milli landeigenda og fulltrúa Kendells að undanfórnu en ekki hefur enn samist. Veiðiréttar- cigendur gerðu síðast tilboð um 25% hækkun leigunnar og tók lögfræð- ingur Kendels, sem hér var staddur á Hmmtudag, sér viku til 10 daga frest til að svara tilboðinu. Jóhann taldi litlar líkur á að Pepsi-Cola menn féllust á tilboðið. Skv. upplýsingum Mbl. hefur Stangaveiðifélag Reykjavíkur lýst áhuga sínum á að taka Laxá í Döl- um á leigu. Áin hefur gefið um 400 laxa árlega, en veitt er á 7 stangir í henni. Skv. heimildum Mbl. var leigan sem greidd var fyrir ána sumarið 1982, 110 þúsund dollarar, en það jafngildir tæplega 1,6 milljónum ísl. króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.