Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 j) StanclicS upp, a.Uir þe\r, sem boráu&u s\j’mc\kótel^tto»'r>ar Ker.1 ZOVC 25... ö ^iAa) ... að koma þeg- ar hún kallar. TM Rag U.S Pat Ott all rights resírved • 196? Los Angetes Times Syndicate Með morgunkaffínu llitler — Stalín — Napó- leon ... ? „Eina sómasamlega athvarfið fyrir allt þetta unga fólk er íþróttasvæói KR, sem félagið hefur byggt upp af miklum myndarskap. Þar iðar lika allt af lífi fri morgni til kvölds. En þegar haustar að, fýkur í flest skjól fyrir fjöldann, sem ekki hefur áhuga á sjoppuhangsi eða skátastörfum." Vesturbærinn: Eina borgarhverfið þar sem unglingar hafa ekki aðgang að félagsmiðstöð Baldur skrifar: „Kæri Velvakandi! Löngum heur okkur Vestur- bæingum þótt við vera afskiptir í sambandi við félagslegar fram- kvæmdir á vegum borgarinnar. Þetta rótgrónasta hverfi borgar- innar hefur hvað eftir annað mátt sæta því að vera sett hjá við frágang gatna og gangstétta, opinna svæða o.s.frv. Hvað varðar aðstöðu fyrir börn og unglinga hefur viðkvæð- ið jafnan verið það, að í Vestur- bænum búi eintóm gamalmenni og okkar félagsaðstaða sé því bundin við Hótel Sögu, tvær kirkjur og kirkjugarð (næstum því bein tilvitnun í borgar- fulltrúa eins flokksins). En nú duga svona útúrsnún- ingar ekki lengur. A Eiðis- grandasvæðinu er nú að rísa mörg þúsund manna byggð og börnum fjölgar óðfluga í Vestur- bænum. Eina sómasamlega at- hvarfið fyrir allt þetta unga fólk er íþróttasvæði KR, sem félagið hefur byggt upp af miklum myndarskap. Þar iðar líka allt af lífi frá morgni til kvölds. En þegar haustar að, fýkur í flest skjól fyrir fjöldann, sem ekki hefur áhuga á sjoppuhangsi eða skátastörfum. Vesturbærinn er eina borg- arhverfið þar sem unglingar hafa ekki aðgang að félagsmið- stöð. Ég innti nokkra foreldra eftir því um daginn, hvort ekki hefði verið farið fram á það við borgaryfirvöld að ráðin yrði bót á þessu. Ein hjón sögðust hafa heyrt það að KR hefði boðið borginni samstarf um byggingu félagsmiðstöðvar sem rekin yrði á svipaðan hátt og Þróttheimar. Þessu hefði borgin alfarið hafn- að þó svo að KR hefði haft tölu- vert fé handbært til að leggja í bygginguna. Sé þetta rétt vildi ég gjarnan heyra á hvaða forsendum borgin hafnaði þessu boði, því að þarna sýnist mér að hefði gefist kjörið tækifæri á farsælli lausn vanda- máls, sem að mínu mati þolir enga bið að leyst verði. Félagsmiðstöð í Vesturbæinn er margfalt meira áríðandi en bygging nýs barnaskóla við Hringbrautina, eina mestu um- ferðargötu borgarinnar." Skrýtið hjartalag Aldamótamaður hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég er að velta fyrir mér því einkennilega hjartalagi sem um þessar mundir birtist hjá okkur í ýmsum myndum. Við söfnuðum á sínum tíma handa hungruðum heimi, en nú er tekin ákvörðun um það að skera niður bústofn- inn og minnka framleiðsluna, vegna þess að þetta fólk, sem sveltur heilu hungri, getur ekki keypt hana fyrir það okurverð, sem við þykjumst þurfa að fá fyrir vörurnar. Finnst þér þetta ekki flott hjartalag? Finnst þér það ekki samræmast vel boð- skapnum á bak við söfnun handa hungruðum heimi? Svo erum við að selja þessar vörur vellríkum þjóðum eins og Norðmönnum og Færeyingum og borgum stórfé með þeim, á meðan hungrað og deyjandi fólkið fær ekkert, af því að það hefur ekki peningana. Mér finnst þetta a.m.k. skrýtið hjartalag. Besta svarið Guðmundur Gíslason, Kópa- vogi, hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Hinn 31. ágúst birtist í þætti þínum fyrirspurn frá mér til Ólafs G. Einarssonar, varð- andi það, hvort Gunnar, Friðjón og Pálmi mundu greiða atkvæði á móta bráðabirgðalögunum. Til- efni spurningarinnar var það, að Ólafur hafði látið hafa það eftir sér aðspurður í útvarpsviðtali, að allir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins mundu greiða atkvæði á móti bráðabirgðalögunum. Svarið sem borist hefur við þess- ari fyrirspurn er þögnin, og kannski er hún besta svarið. Ég þakka fyrir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.