Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 17 Úr poppinu í klassíkina Meðal tónleikagesta í Bifröst voni Óskar Stefánsson, beykir, en hann er afí Óskars Jónssonar, læknis. Meó þeim á myndinni er læknisfrúin, Aöalheiður Arnórsdóttir, bæjarfulltrúi. klukkan 18.00 frá Varmahlíð þar sem hópurinn gisti. Eftir stutta æfíngu var borðað í boði bæjar- stjórnar Sauðárkróks. Magnús Sigurjónsson, for- seti bæjarstjórnar, bauð gesti velkomna. Magnús sagði, að því miður væri tónleikasalur- inn í Bifröst, helsta sam- kvæmishús þeirra Sauðkræk- inga, í smærra lagi, en bað menn að hafa það hugfast, að þótt húsakynnin væru þröng þá fengi Sinfónían nægt rými í hjörtum Skagfirðinga. Það voru orð að sönnu: troðfullt út úr dyrum, eða um 300 manns, og geysileg stemmning allan tímann. Texti og myndir: Guömundur Póll Arnarsson — Spjallað við Þorkel Jóelsson, skógarhorns- þeytara og nýliða í Sinfóníuhljómsveit íslands Einn nýliðanna í Sinfóníunni er Þorkell Jóelsson. Hann er 28 ára gamall Mosfellingur og leikur á horn. — Þorkell, þú ert gamall popp- ari, er það ekki? „Jú, svo mun vera. Ég var á tímabili trommuleikari í popp- sveit sem kölluð var Gaddavír. Eitthvað lék ég með Logum í Vest- mannaeyjum líka. Ég hætti í þess- um bransa ’75 en þá hafði ég í nokkurn tíma verið við nám í hornblæstri í Tónlistarskólanum í Reykjavík." — Þú skiptir bæði um hljóðfæri og tónlistarform. Hvers vegna? „Það er ekki alls kostar rétt að ég hafi skipt algerlega um hljóð- færi. Ég hef blásið í trompet frá því ég var ellefu ára gamall, og trompet er jú blásturshljóðfæri eins og horn. Hvað því viðkemur að ég hafi Þorkell Jóelsson skipt yfir í klassíkina, þá eru kannski margar ástæður til þess. Ég ætlaði mér alltaf að verða tón- listarmaður að atvinnu og ég kærði mig ekki um að vera ein- hvers konar skallapoppari alla tíð. Svo er líka ólíkt skemmtilegra að spila í Sinfóníunni en popphljóm- sveit, og gerir miklu meiri kröfur til manns. Þetta er mjög vanda- samt.“ — Hvernig var háttað náms- ferli þínum á hornið? „Viðar Alfreðsson kenndi mér í Tónlistarskólanum hér, en ’77 fer ég til Lundúna til náms i Guild- hall School of Music and Drama. Þar hafði ég þrjá kennara, allt fræga hornista. Þeir heita Antony Hallsted, Jeffrey Briant og David Cripps. Ég kláraði ekki námið í einni lotu, kom heim veturinn ’80—’81 og spilaði þá í Sinfóniunni. Ég fór svo utan aftur í fyrra og lauk námi nú í sumar." — Hvað starfar þú með því að spila í Sinfóníunni? „Ég kenni svolítið og svo verð ég með í hljómkviðusveit sem er að komast á laggirnar núna og Guð- mundur Emilsson er forsprakki fyrir. Og kannski spilar maður eitthvað í Óperunni eða Þjóðleik- húsinu." íslandsmótið í sandspyrnu fór síð- an fram á sunnudeginum í Hrafna- gili eins og áður sagði. Keppt var í 5 flokkum bifreiða, en síðan var hald- in keppni í opnum flokki í lokin. Keppt var á hundrað metra braut og voru áhorfendur hátt á annað þús- und. I flokki sérútbúinna fólksbíla sigraði Jón Eyjólfsson á Pontiac 428 með tímann 4,68 sek., sem er jafn- framt nýtt Islandsmet. Annar varð Valur Vífilsson á Barracuda 440 með tímann 4,92 sek. Þriðji var Snorri Jóhannsson á Challanger 426 Hemi á 5,11 sekúndum. Þess er að geta að gamla íslandsmetið í þess- um flokki var 5,52 sek., en eins og sjá má náðu þessir þrír betri tíma. í flokki sérútbúinna jeppa sigraði Halldór Jóhannessoná Willys AMC 401 á tímanum 5,54 sek. í öðru sæti varð Árni Antonsson á Willys 350 með tímann 5,94 og þriðji Guð- mundur Gunnarsson á Willys 340 með tímann 6,05 sekúndur. í standard jeppaflokki sigraði Magnús Bergson á Willys 8 cyl. á. tímanum 6,59, í öðru sæti varð Flosi Jónsson á Willys 8 cyl. með tímann 6,61 sek. og þriðji Sigurgeir Guð- mundsson á Rússajeppa 8 cyl. með tímann 7,33 sek. í standard fólksbílaflokki sigraði Þórður Valdimarsson á Volkswagen 4 cyl. á tímanum 7,5 sek. Annar varð Einar Birgisson á Capri 8 cyl. með tímann 8,09 og þriðji Kristján Vernharðsson á Nova 8 cyl. á tíman- um 8,48 sek. Þess má geta að Þórður er nú þegar einnig búinn að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í rally- crossi, jafnvel þótt mótinu sé ekki lokið og er þetta því íslandsmeist- aratitill númer tvö. í mótorhjólaflokki mættu moto- cross kapparnir, sem keppt höfðu í moto-crossinu daginn áður, til leiks og spreyttu sig við götuhjólin við góðan árangur. Ragnar I. Stefáns- son á Jamaha 490 (moto-cross-hjól) sigraði á tímanum 5,36 sek. Annar varð Heimir Barðason á Maico 490 (moto-cross-hjól á tímanum 5.60 sek. Þriðji varð Steingrímur As- grímsson á Kawasaki 750 (götuhjól) með tímann 5,69. Moto-cross-hjólin eru aldrei yfir 500 kúbik að vélar- stærð. í lokin var síðan keppt í opnum flokki, þar sem keppendur mættu til leiks úr öllum framangreindum flokkum. Það setti nokkuð svip sinn á opna flokkinn, að margir af sprækustu „fákunum" þjófstörtuðu og voru dæmdir úr leik. Sigurvegari varð Jón Eyjólfsson á Pontiac 428, sem sigraði í sérútbúna fólksbíla- flokknum. Jón mætti hér til leiks með tvöföld skófludekk og setti nýtt íslandsmet 4,63 sek. Valur Vífilsson varð annar á Barracudunni á tíman- um 4,87. Snorri Jóhannsson varð þriðji þrátt fyrir að hann hafi sett hláturgas (nítrat) á vélina, en það getur aukið kraft vélarinnar um allt að 200 hestöfl segja gárungarnir. Þetta kænskubragð dugði þó ekki sem skyldi og varð Snorri að sætta sig við þriðja sætið. Ef þú málar með STEINAKRÝLI fní Málningu hf þarftu ekki að bíða eftir málningarveðri! Frábærar niðurstöður íslenskra sértræðinga. Efnaverkfraeðingar MALNINGAR h/f hafa staðið fyrir vlðtækum prófunum á STEINAKRÝLII rúmlega þrjú ár. Niðurstöður þeina eru m.a. þær, að STEINAKRÝL er hægt að nota á flestum árstímum og STEINAKRÝL er endingargóð útimálning. STEINAKRÝL er þvl einstaklega hæf fyrir islenskar aðstæður. Duftsmitandi fletlr valda ekkl lengur erfiðleikum. Með STEINAKRÝLI geturðu málað beint á duftsmitandi fleti án þess að eiga á hættu flögnun málningar, sem er óhugsandi með hefðbundinni plastmálningu. Rigningarskúr er ekkert vandamál. STEINAKRÝL er terpentlnuþynnanleg málning, sem er óvenjulega hæf fyrir islenskar aðstæður STEIN- AKRÝL endist. Rigningarskúr skiptir litlu máli, þú færð þér bara kaffisopa á meðan rigningin gengur yfir - og heldur svo áfram að mála; STEINAKRÝL þolir rigningu fljótlega eftir málun. Nú geturðu málað I frosti. Yfirburðakostur nýju útimálningarinnar frá MÁLNINGU h/f er einfaidlega sá, að þú þarft ekki lengur að hafa áhyggjur af veðrinu. STEINAKRÝL er akrýlbundin útimálning með sléttri áferð. Þú getur málað með STEINAKRÝLI við mjög lágt hitastig. Jafnvel 110 gráðu frosti (celcius) ef þú endist til að mála I svo miklum kulda. STEINAKRÝL ENDIST! STEINAKRÝL - málningín sem andar málninghlf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.