Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 39 ursystur sína, Þuríði, sem gekk henni að verulegu leyti í móður- stað. Eftir fermingu fór Guðríður að vinna fyrir sér, m.a. sem kaupa- kona, aðallega í Landsveitinni, en þar voru sum systkini hennar og annað skyldfólk. Um tvítugt fór hún til Reykjavíkur, settist í Sam- vinnuskólann, og lauk þaðan prófi eftir tvo vetur. Árið 1931 giftist Guðríður Guð- mundi Guðmundssyni, kaup- manni, og hófu þau búskap í Hafnarfirði. Þau eignuðust eina dóttur, er skírð var í höfuð móður- ömmu sinnar, Sigríður Theódóra. Guðríður og Guðmundur slitu samvistum eftir fárra ára hjóna- band. Þá flutti hún til Reykjavíkur, og stundaði þau störf, er fengust á erfiðum kreppuárum, en lengst vann hún í Kexverksmiðjunni Esju, og þar stóðu henni opnar all- ar dyr langt fram á efri ár, hve- nær sem hana langaði til að vinna eitthvað utan heimilis. Guðríður giftist á ný árið 1947 Þorsteini Jóhannessyni, bifreiðar- stjóra, en hann hafði misst fyrri konu sína frá tveim börnum þeirra árið áður. Guðríður og Þorsteinn bjuggu allan sinn bú- skap, tæp 35 ár, að Mjóuhlíð 14, en Þorsteinn andaðist 13. nóvember sl., eftir 7 ára veikindi. Þeim varð ekki barna auðið. Skömmu eftir lát Þorsteins kemur í ljós, að Guðríður hefur tekið það mein, sem ekki verður ráðið við. Hún fékk þó að njóta þess að dvelja á heimili dóttur sinnar og njóta umhyggju hennar allan þann tíma, sem eftir var, lengst af við all-góða líðan, þótt seinasta vikan væri dálítið þung. Þær mæðgur voru samrýndar svo að fátítt er. Sá, sem þetta ritar, á því láni að fagna, að hafa átt Guðríði fyrir tengdamóður. Strax við fyrstu sýn komu í ljós þeir góðu eiginleikar, sem hún var búin, og entust henni og uxu til æviloka. Góðvild, fórn- fýsi og hljóðlátur kærleikur streymdi frá henni og umvafði alla, en jafnframt var hún laus við afskiptasemi af gerðum annarra. Hún var einlæg móðir dóttur sinn- ar, amma barnabarna og barna- barnabarna, og vinur vina sinna, allt í jafnríkum mæli, en krafðist einskis á móti. Ekkert kynslóðabil fannst í þessari fjölskyldu. Þau Guðríður og Þorsteinn áttu ýms sameiginleg áhugamál, sem þau sinntu og nutu, ýmist tvö saman, eða með góðum vinum, auk okkar í fjölskyldunni. Þau stund- uðu stangarveiði í áratugi, bæði lax- og silungsveiði, ferðalög um byggðir og óbyggðir, ágætir bridge-spilarar voru þau bæði, og spiluðu oft og reglulega við áhuga- sama vini, auk allra þeirra spila- keppna, sem þau tóku þátt í, allt fram á allra seinustu ár, er heilsa Þorsteins var orðin lítil. Þau voru góðir ferða- og veiðifélgar, og glöddust ekki síður yfir velgengni félaga sinna en eigin. Auk þessara áhugamála hafði hún unun af útsaumi. Margir eru þeir stólarnir, sem hún hefur saumað hárnákvæm áklæði á, auk klukkustrengja og ýmissa annarra hluta. Þolinmæðin var ekki skorin við nögl, og gleðin að loknu verki, þegar stóllinn var tilbúinn, var næg laun, sérstaklega væri hann gjöf. Við brottför náins vinar mynd- ast tóm, sem vandfyllt er. Einu gildir, þótt augljóst sé, að hverju stefnir. Mér er efst í huga þakk- læti til góðrar tengdamóður, móð- ur konu minnar, ömmu og lang- ömmu barna okkar og barnabarna fyrir allt það, sem hún gaf okkur í hógværð sinni og kærleika, sem ekki verður borin mælistika á. Æðruleysi hennar í veikindunum, fyrst eiginmannsins, svo sínum eigin, brást aldrei, og vonin lifði. „Ætli ég verði ekki betri á morg- un,“ voru venjulega seinustu orð hennar á kvöldin, er hún lagðist til svefns. Og svo varð hún „betri á morgun". Tímaglasið tæmt. Verk- efninu lokið, og heimferðin hafin. „Sclir eru hreinhjarUðir því þeir munu (>ud sjá.“ Sigurður Gunnarsson í dag er gerð útför Guðríðar Sæmundsdóttur, Dúu, eins og við frændfólkið og vinir kölluðum hana. Dúa var fædd á Lækjarbotnum í Landsveit 14. ágúst 1906 ein af sjö systkinum þeirra hjóna er upp komust, Sigríðar Pálsdóttur frá Reynifelli og Sæmundar Sæ- mundssonar frá Lækjarbotnum. Forfeður Dúu voru því af Suður- landi meðal annars Víkingslækj- arætt. í byrjun þessarar aldar þegar fjölskyldan á Lækjarbotn- um er að vaxa úr grasi eru ýmsir erfiðleikar sem steðja að svo sem víðar var á þeim tímum, en fjöl- skyldan orðin stór, börnin sjö og heimilisfaðirinn veikist og fellur frá. Við þær aðstæður þurfti að leysa upp heimilið og koma börn- um fyrir, en þau fóru til frænd- fólks og vina. Það kom í hlut Dúu að fara til móðurbróður síns Árna á Hurðarbaki í Flóa, en þar ólst hún upp í góðu yfirlæti í stórum systkinahóp, og minntist hún oft fóstursystkina sinna með mikilli hlýju. Þó systkinin frá Lækjar- botnum þyrftu að skilja um tíma rofnaði ekki samband þeirra í milli og móður þeirra. Fór hún til Reykjavíkur og munu börn hennar hafa haft samband við hana þar, og hefur ávallt verið mikil sam- heldni með þeim systkinum, og mun Dúa ekki hvað síst hafa átt stóran hlut þar að. Eftir að Dúa kom til Reykjavík- ur til móður sinnar hóf hún skóla- nám, fór meðal annars í Sam- vinnuskólann og lauk þar námi, síðan mun hún hafa unnið ýms störf er til féllu. Ung að árum giftist Dúa Guð- mundi Guðmundssyni verslun- armanni úr Hafnarfirði. Þau áttu eina dóttur, Sigríði Theódóru. Þau Guðmundur slitu samvistum eftir skamma sambúð. Um þetta leyti hóf Dúa störf í verksmiðjunni Esju og var þar um árabil og undi sér vel, enda gott samband með henni og húsbændum þar. Um þessar mundir bjó Dúa með móður sinni og dóttur að Njálsgötu 48 og þar þótti mönnum, bæði ungum og öldnum, gott að koma og eiga margar góðar endurminningar frá þeim tíma, og einnig eftir að flutt var í Mjóuhlíð 14. Þar var oft gestkvæmt og vil ég sérstaklega þakka fyrir mig og mitt skyldulið. Síðar á lífsleiðinni giftist Dúa Þorsteini Jóhannessyni bifreiðar- stjóra, hann var ekkjumaður með tvö stálpuð börn. Hófu þau búskap í Mjóuhlíð 14 og bjuggu þar síðan, en Þorsteinn andaðist á síðasta ári. Þannig er í stórum dráttum lífshlaup þessarar hugljúfu frænku minnar. En þetta er að- eins hinn ytri rammi. Dúa var sér- staklega vel gerð manneskja, vel greind, skapgerðin ljúf, var mjög vel á sig komin og kom sér vel við alia er hún umgekkst, aldrei var sagt hnjóðsyrði um nokkurn mann heldur allt fært til betri vegar, það var hennar lífsstíll. Dúa var í raun sem kallað er heimskona, hafði gaman af að taka þátt í gleðskap og skartbúast enda fór það henni vel, hún átti til að renna fyrir lax ef því var að skipta og hafði af því mikla ánægju, og bridgespilamennska lét henni vel, enda voru þau Þor- steinn samhent í þessu meðan heilsa og aðstæður leyfðu. Ferða- lög um landið var eitt af áhuga- málum þeirra Þorsteins og fóru þau margar ferðir um landið þeg- ar færi gafst. Nú þegar leiðir skiljast og við kveðjum Dúu, eru okkur efst i huga þakkir fyrir samfylgdina og allt það sem hún gerði fyrir okkur. Ég hygg að hún skilji sátt við þennan heim, kraftarnir á þrotum og því hvíldin vel þegin. Á heimili dótturinnar Sigríðar Theódóru og Sigurðar Gunnars- sonar, framkvæmdastjóra, að Hellulandi 8, og barnabarnanna, sem létu sér mjög annt um hana, var hún til síðustu stundar, fóst- urbörnin og þeirra fjölskyldur svo og frændfólk hafði einnig mjög náið samband við hana þar til yfir lauk. Við óskum henni góðrar ferðar um óþekkt tilverustig. Blessuð sé minning hennar. Sæmundur Jónsson Þórhildur Valdimars- dóttir — Minning Þórhildur Valdimarsdóttir var fædd 16. september 1915 í Gunn- ólfsvík á Langanesströnd. Foreldrar hennar voru hjónin Valdimar Jónatansson og Sigríður Jónasdóttir ljósmóðir. Auk Þór- hildar áttu þau einn son, Signar. Hann kvæntist Önnu Jónasdóttur og bjuggu þau í Reykjavík. Signar dó á besta aldri. Þórhildur giftist ung sveitunga sínum Oddgeiri Péturssyni. Hann er sonur Péturs Metúsalemssonar og Sigríðar Friðriksdóttur sem bjuggu í Höfn- um og víðar. Þórhildur og Oddgeir byrjuðu sinn búskap á Þórshöfn og bjuggu þar í nokkur ár, en fluttu til Keflavíkur 1947 og keyptu húsið Garðaveg 13. Þar bjuggu þau síðan. Þórhildur og Oddgeir eignuðust 5 börn. Þau eru: Garðar, búsettur í Keflavík, kvæntur Helgu Gunn- laugsdóttur og eiga þau 2 börn. Næst var dóttir sem lést á fyrsta ári. Þá er Eva, búsett í Keflavík, gift Elíasi Guðmundssyni, þau eiga fjögur börn. Næst er Nína, búsett í Los Angeles í Bandaríkj- unum. Yngstur er Viðar, búsettur í Keflavík, kona hans er Edda Ein- arsdóttir og eiga þau eitt barn. Oddgeir vann lengi ýmis störf tengd sjávarútvegi en hefur seinni árin unnið sjálfstætt við fram- leiðslu véla sem hann hefur hann- að sjálfur. Tóta, en svo var Þór- hildur kölluð af kunningjum, var heima og gætti bús og barna, en þegar þau uxu úr grasi fór hún að vinna utan heimilisins lengst af á Sjúkrahúsinu í Keflavík í eldhús- inu. Vann hún þar í mörg ár eða allt þar til heilsan bilaði. í annað ár var Tóta meira eða minna veik og dvaldist á sjúkrahúsum. Hún andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur 6. september og verður jarðsungin í dag, 14. september, frá Keflavík- urkirkju. Tóta var myndarkona í sjón og raun. Dugmikil, stjórnsöm og glaðsinna. Ætíð var hún hress í bragði og góð heim að sækja. Ættingjar, vinir og nágrannar voru alltaf velkomnir og nutu þar frábærrar gestrisni beggja hjón- anna. Tóta var fyrsta konan sem ég kynntist þegar ég flutti til Kefla- víkur fyrir réttum þrjátíu árum. Áður hafði eiginmaður minn leigt herbergi á heimili þeirra hjóna. Það má segja að Tóta hafi strax tekið mig undir sinn verndarvæng. Hún kynnti mig fyrir vinkonum sínum og kom mér í saumaklúbb, en það taldi hún bráðnauðsynlegt fyrir unga og nýgifta konu. Alla tíð síðan hefir verið góður vin- skapur milli heimila okkar. Börn- um okkar hjónanna sýndi hún ávallt mikinn áhuga, velvild og tryggð. Eins og góðra vina er hátt- ur var Tóta alltaf nálæg okkur á gleðistundum en einnig þegar sorgin sótti okkur heim. Þá var komið eða hringt dag eftir dag til þess að spyrja hvernig liði, reyna að hughreysta og til þess að bjóða hjálp ef eitthvað væri hægt að gera. Á slíkum stundum finnur maður best hverjir eru raunveru- legir vinir manns. Tóta var ákaflega gjafmild og veit ég að margir ungir sem gaml- ir gætu tekið undir það. Mér er minnisstætt er ég heimsótti hana á sjúkrahúsið í fylgd tveggja barnabarna minna. Hún var sár- þjáð og mátti sig vart hræra en samt teygði hún sig eftir veskinu sínu til þess að leggja pening í litl- ar hendur. Nú er dauft yfir Garðavegi 13 þegar húsmóðirin er fallin í val- inn. Raunar hefur heimilið orðið að vera án hennar siðustu misser- in. En það er Oddgeir huggun harmi gegn að hann á góð börn, tengdabörn og barnabörn, sem munu fylkja sér um hann og gera honum lífið léttara. Við hjónin sendum Oddgeiri og fjölskyldu hans innilegar samúð- arkveðjur. Hinni látnu vinkonu okkar þökkum við áralanga vin- áttu og tryggð og biðjum henni guðs blessunar í nýjum heimkynn- um. Fjóla Sigurbjörnsdóttir t Móöir mín, AGNES GÍSLADÓTTIR, Vatnsstíg 12, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 15. septem ber. Guörún Ásbjörg Magnúsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför INGIBJARGAR E.B. BJÖRNSDÓTTUR, fyrrv. aöalféhiröis. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 2B Landakotsspítala, fyrir góöa ummönnun i veikindum hennar. Rulh Barker, Guörún Ruth Viöarsdóltir. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför EINARS GUDJÓNSSONAR mjólkurbílstjóra, Selfossi. Brynhild Stefánsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. SHAMPOO Fyrir allar hártegundir NÚ GETUR ÞÚ ÞURRKAÐ HÁRID MEÐ HÁR- ÞURRKU ÁN ÞESS AÐ ÞAÐ OFÞORNI. REYNIÐ BLOW. Ganilir sem nýir... allir þurfa ljósastillingu Veriö tilbúin vetrarakstri meö vel stillt Ijós, þaö getur gert gæfumuninn. Sjáum einnig um allar viðgeröir á Ijósum. Höfum til luktargler, spegla, samlokur o.fl. I flestar geröir bifreiöa. BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820 ÞAKSTÁL • Plötulengdir eftir óskum kaupenda • Vatnsþétt sam- , skeyti á hliöum plötunnar • Viö klippum og beygjum slétt ? efni í sama lit á kanta í þak- rennur, skotrennur o.fl. • Viðurkennd varanleg acrylat- húö i lit • Hagkvæmt verö • Afgreiöslutími 1—2 mán. • Framleitt í Noregi BREIÐFJÖRÐS BLIKKSMIÐJA HF Leitid nénari upplýsinga adStgtuni 7 Simn29022

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.