Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 41 félk í fréttum COSPER + Priscílla Prestley hefur loks- ins fengið gamlan draum sinn uppfylltan, þ.e. að leika t kvikmynd. Hún er lögð af staö til Thailands þar sem hún leik- ur í mynd Michael Landons um ástralska blaðamanninn John Everingham. Hann kvað hafa unnið þaö sér helst til frægðar að smygla vinkonu sinni frá La- os með því aö synda meö hana í kafi þvert yfir ána Mekong ... ©pi tWlW 906Z Hvað varstu að segja? Dætur Ingrid Bergman á gangi í London (frá vinstri): tvíburarnir Isabella og Isotta ásamt Piu. Dætur Ingrid Bergman í London + Ingrid Bergman sem lést fyrir skömmu lætur börnum sínum fjórum eftir 128 milljónir króna í skartgripum, verðbréfum, eyju með sumarhúsi í skerjagarðinum fyrir utan Gautaborg og íbúðum í London, Róm og Normandi. Mynd þessi sýnir dætur hennar þrjár er þær komu til London til að vera viðstaddar minningarat- höfn um móður þeirra, sem lést á 67. afmælisdegi sínum. Við hlið hennar var fyrsti eiginmaður hennar, Lars Schmidt, en um samband þeirra segir Pia, dóttir þeirra, aö þaö hafi orðiö nánara meö hverju árinu og hafi þau nú síöast eytt saman sumarleyfi í heimalandi þeirra, Svíþjóö. David Niven í Svíþjóð + David Niven er eins og hvert annaö unglamb þó hann sé nú á 72. aldursári og sést jafnoft á hvíta tjaldinu og áöur. Hann er kvæntur sænskri konu, Hjördísi, og er þessi mynd tekin er þau komu í heimsókn til Svíþjóöar í síöustu viku, en þangaö segjast þau koma eins oft og þau mögu- lega sjá sér fært. Kvöldnámskeið og síðdegisnámskeið fyrir fullorðna Enska, þýzka, franska, spánska, danska, norska, sænska, íslenzka fyrir útlendinga. Málaskólinn Mímir, 16 Sími 10004 — 11109 kl. 1—5 e.h. T Bleian Veitiö ungbarninu loft meö réttri bleiutegund. Allar bleiur meö plasti utan um eru eins og gróðurhús. T-bleian er einungis meö plasti aö neðan, en ekki á hliðum og meö henni notist laglegu t-buxurnar, sem eru úr taui og veita því lofti um barnið. Eingöngu t-bleiurnar veita barninu nóg loft. Barnarassar þurfa á miklu lofti að halda til aö líða vel. Tölvunámskeið Byrjendanámskeið Námskeiðin standa yfir í 2 vikur. Kennt er 2 stundir á dag virka daga, kl. 17.30—19.30 eða 20.00—22.00. Við kennsluna eru notaðar míkrótölvur af algengustu gerð. Námsefniö er allt á íslensku og ætlaö byrjend- um sem ekki hafa komiö nálægt tölvum áöur. Á námskeiðunum er kennt m.a.: Grundvallaratriöi forritunarmálsins BASIC. Fjallaö er um uppbyggingu, notkunarsvið og eiginleika hinna ýmsu geröa tölva. Kynning á tölvukerfum, hugbúnaöi og vélbúnaöi, sem notuö eru viö rekstur fyrirtækja. TQLVUSKÚLINN Skipholti l. Simi 2 5400 TÖLVUNÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN 9—16 ÁRA Námskeiðið er hvort tveggja í senn nám og leikur. Á daginn læra börnin grundvallaratriöi forritunar- málsins BASIC og geta aö loknu námskeiöi skrifaö einföld forrit. Meö aöstoö litskyggna er þeim kynnt bygging og eiginleikar tölva og tölvukerfa. Á kvöldin eru leik- og æfingatímar. Börnin fá viðurkenningarskjal aö loknu námskeiöi. Námskeiðið stendur yfir í 2 vikur, annan hvern dag, 2 tíma í senn, auk frjálsra tíma aö kvöldinu. Viö kennsluna eru notaðar vandaöar einkatölvur frá ATARI meö lit og hljóöi. TDLVUSKÚLINN Skipholti 1. Simi 2 5400

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.