Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.09.1982, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 © AF ERLENDUM VETTVANGI eftir Sigurö Sverrisson Helmut Schmidt kanslari neitar að gefast upp í KJÖLFAR aukinnar spennu í þýskum stjórnmálum undanfarna daga og vikur hafa fréttaskýrendur velt því mjög fyrir sér hvort haustdagar séu í nánd á stjórnmálaferli Helmut Schmidt, kansl- ara V-Þýskalands. Jafnaðarmannaflokkur hans, SPD, á minnkandi fylgi að fagna, upplýsingar sem lekið hafa út úr óbirtri skoðanakönnun herma að stjórnin njóti aðeins fylgis 36% kjósenda og Hans Dietrich Genscher, utanríkisráðherra, hefur rétt eina ferðina hótað að draga flokk sinn, frjálsa demókrata, FDP, út úr samsteypustjórn- inni. Margir fréttaskýrenda eru meira að segja á þeirri skoðun að samsteypustjórnin, sem hefur átt undir högg að sækja allt frá því hún tók við völdum fyrir tveimur árum, væri fyrir löngu fallin ef ekki nyti hins mikla persónufylgis Helmut Schmidt. „Menn hlaupast ekki undan ábyrgð þegar illa gengur" sagði Schmidt kanslari í ein- hverri harðorðustu ræðu sinni í v-þýska þinginu á fimmtu- dag. Veittist hann mjög harka- lega að Helmut Kohl, leiðtoga kristilegra demókrata, og ásakaði hann um órökstudda gagnrýni og úrræðaleysi. Þrátt fyrir hótanir Genscher tók Schmidt ekki í mál að segja af sér þegar þess var krafist í heitum umræðum í þinginu á fimmtudag, né held- ur ljéði hann máls á því að breyta efnahagsstefnu stjórn- arinnar til samræmis við breyttar kröfur frjálsra demó- krata. Hann þvertók einnig fyrir að gengið yrði til at- kvæða um traustsyfirlýsingu við stjórnina og að efnt yrði til almennra kosninga eins og kristilegir demókratar hafa krafist, tveimur árum áður en kjörtímabil hans rennur út. Schmidt ýtti til hliðar öllum ásökunum stjórnarandstöð- unnar um getuleysi stjórn- valda. Sagði hann að nýr meirihluti undir stjórn Helm- ut Kohl, leiðtoga kristilegra demókrata, CDU, væri á engan hátt hæfari til að bæta um betur. Skipti þá engu hvort um væri að ræða málefni er snertu varnir landsins, efnahag, iðnað eða félagsmál. Það hefur hingað til verið sterkasta tromp kanslarans, að Kohl hefur ekki getað komið fram með neinar áþreifanlegar og sannfærandi tillögur til lausn- ar þeim vanda sem steðjar að v-þýsku þjóðlífi. Virtist koma mjög á Kohl eftir hina leiftrandi ræðu kanslarans. Sagði hann að réttast væri nú að allir flokkar biðu úrslitanna í ríkiskosning- unum í Hessen og Bæjaralandi í þessum mánuði. Talið er víst að frjálsir demókratar, sem hafa lykil- stöðu í þýskum stjórnmálum, noti kosningarnar í Hessen sem mælistiku á stöðu sína og hvort þeir eigi að styðja stjórnina áfram eða ganga til liðs við kristilega demókrata í stjórnarandstöðunni. Það er einkum tvennt mik- ilvægt sem kosningarnar í Hesse þann 26. september leiða í ljós. Vinni kristilegir demókratar allsherjar sigur þar hafa þeir náð meirihluta að tveimur þriðju innan Bund- esrat, efri deildar þýska þings- ins. Þar með eru þeir komnir í þá aðstöðu að geta stöðvað all- ar lagasetningar stjórnarinn- ar. Þar sem frjálsir demókrat- ar segjast nú heldur vilja eiga aðild að stjórn undir forystu kristilegra demókrata í stað sósíaldemókrata, SPD, í Hess- en geta kosningarnar gefið til kynna hvort þeir geti einnig átt von á fylgisaukningu með því að færa stuðning sinn einnig á milli í Bonn. Takist frjálsum demókröt- um vel upp í kosningunum í Hessen og ákveði þeir í kjölfar þess að segja skilið við stjórn Helmut Schmidt væri æskilegt að efna til kosninga þó ekki væri til annars en þess að gefa hinum almenna kjósanda kost á að styðja eða hafna stjórn- arbreytingum á miðju kjör- tímabili. Þegar hér er komið sögu eru hins vegar ýmis ljón í vegin- um. Aðeins einu sinni í sögu lýðveldisins hefur verið efnt til kosninga á miðju kjörtímabili, 1972. Vestur-þýska stjórn- arskráin var samin með það fyrir augum að halda pólitísku jafnvægi í landinu. Hún kveð- ur á um að ekki sé hægt að efna til kosninga á kjörtíma- bilinu nema kanslarinn fari sjálfur fram á að gengi verði til atkvæða um traustsyfirlýs- ingu við stjórnina. Hana þarf síðan að fella í þinginu áður en hægt er að efna til almennra kosninga. Atkvæðagreiðsla að tilhlutan stjórnarandstöðunn- ar nægir ekki. Þegar Willy Brandt, þáver- andi kanslari V-Þýskalands, vildi knýja fram kosningar 1972 áður en kjörtímabilið var á enda, sátu stuðningsmenn stjórnar hans viljandi hjá í at- kvæðagreiðslunni til þess að tryggja að vantraustsyfirlýs- ingin yrði samþykkt. A hinn bóginn getur þingið einnig rekið kanslarann með því að samþykkja vantrausts- yfirlýsingu að undirlagi stjórnarandstöðunnar svo fremi sem meirihlutasam- komulag liggur fyrir um arf- taka. Með þessum hætti er möguleiki á að Kohl taki við, en til þess að svo geti orðið þurfa frjálsir demókratar að styðja hann. Schmidt virðist aftur á móti vera staðráðinn í því að berj- ast áfram. Hann heldur því fram sér og stjórn sinni til málsbóta, að hún hafi verið kjörin með 45 þingsæta meiri- hluta fyrir tveimur árum og engin ástæða sé fyrir hana að fara frá völdum. Augljóst þyk- ir, að Schmidt vonast einlæg- lega eftir því að frjálsum demókrötum vegni illa í kosn- ingunum í Hessen og þeir ákveði að veita samsteypu- stjórninni stuðning sinn áfram. Innst inni efast þó eng- inn um að Schmidt geri sér grein fyrir því að erfiðleikar stjórnarinnar verði ekki leyst- ir í bráð. (Heimildir: (.uardian, The Economist, London Times og The Obnerver.) Melmut Schmidt, kanslari V-Þýskalands, í ræðustól á þinginu á fimmtu- dag í síðustu viku. Sinfóníuhljómsveit íslands á SauÖárkróki: „Hjörtu Skagfirðinga rýmri en húsakynnin“ Aðrir tónleikar Sinfóníu- voru haldnir á Sauðárkróki hljómsveitar íslands í hringferð fimmtudagskvöldið 9. septem- hljómsveitarinnar um landið ber. Var komið á Krókinn um Sigurður Bjömsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands (t.h.), býður Eyþór Stefánsson, tónskáld, og konu hans, Sigríði Stefánsdóttur, velkomin á tónleikana í Bifröst. Spennandi keppni í moto-krossi og sand- spyrnu á Akureyri Helgina 28.—29. ágúst stóð Rílaklúbbur Akureyrar fvrir fslandsmeistaramót- inu í sandspyrnu í Hrafnagili og moto-cross-keppni í gryfjunum fyrir ofan Akur- eyri, en sú keppni var liður í keppninni um Islandsmeistaratitilinn. Þetta er fyrsta skiptið sem norðanmenn haída moto-cross-keppni enda nýbúnir að leggja braut á þessu svæði sem bg jarvfirvöld á Akureyri hafa úthlutaö þeim undir akstursíþróttir. Moto-cross-keppnin fór fram á laugardeginum í besta veðri. Það er mál manna að brautin sé ein sú skemmtilegasta sem lögð hefur ver- ið hér og jafnframt ein sú erfiðasta. Þrátt fyrir að Akureyringarnir væru að halda þessi keppni í fyrsta sinn var framkvæmd öíl til fyrir- myndar. Til leiks mættu 12 keppendur af Stór-Reykjavíkursvæðinu og 3 frá Akureyri. Keppnin var ákaflega spennandi og skemmtileg á að horfa, en þrír menn skáru sig þó fljótlega úr. Það voru þeir Heimir Barðason á Maico 490, Þorkell Ág- ústsson á Kawasaki 250 og ís- landsmeistarinn frá því í fyrra, Þorvarður Björgúlfsson. Þessir menn hafa einmitt keppt um efstu sætin í moto-crossi á síöustu árum. Sú staða kom upp í þessari keppni að beir Heimir og Þorkell hlutu jafnmörg stig út úr keppninni sam- anlagt, en keppnin fer þannig fram að haldin eru tvo moto með hálftíma hléi á milli. Heimir vann fyrra mót- ið og Þorkell varð annar. Þorkell vann seinna mótið en Heimir varð annar. Þegar svona staða kemur upp er sá úrskurðaður sigurvegari sem var fremri í seinna mótinu því það er talið erfiðara. Þriðji varð Þorvarður Björgúlfsson. Norðan- menn áttu ekki svar við frammi- stöðu Sunnlendinganna og lauk að- eins einn þeirra keppni, en þeir eru aðeins nýkomnir með braut og sýndu það þó að mikils er af þeim að vænta í framtíðinni. Þorkell Ágústsson hefur nú gott sem tryggt sér íslandsmeistaratitil- inn, en þess er að geta að Þorvarður, íslandsmeistarinn frá í fyrra, hefur þurft að sleppa nokkrum keppnum úr í sumar vegna meiðsla. Jón Eyjólfsson á Pontiac 428 sigraði bæði í flokki sérútbúinna fólksbifreiða og opna flokknum, en þar hafði hann bætt við sig einu setti af skófludekkjum undir hílinn. Jón setti nv Islandsmet f báðum flokkunum. Hér eru þeir Heimir Barðason og Þorkell Ágústsson (fremri) á fullri ferð, en þeir urðu einmitt í tveimur efstu sætunum í moto-crossinu. Ljósm.: KAE.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.