Morgunblaðið - 14.09.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
19
Malaga, 13. seplember. Al*.
BANDARÍKJAMAÐUR, sem komst lífs af úr flugslysinu í Malaga, sagði
að sér hefði virst, sem þotuna hefði skort afl til að lyfta sér til flugs.
„Ég giska á að flugtaksbrunið hafi verið orðið um 45 sekúndna langt,
þegar mér fannst þotan vera komin á næga ferð til að reyna að hefja
flugið. Trjóna þotunnar tók að lyftast, en þá er sem flugmönnunum hafi
orðið Ijóst að flugvélin færi ekki í loftið.
Þeir lækkuðu nefið aftur og
sprakk þá á nefhjólunum. Flug-
mennirnir reyndu síðan að
stöðva þotuna, en hún rann fram
af flugbrautinni, yfir hraðbraut,
sem var við brautarendann, og
staðnæmdist á bersvæði eitt-
hundrað metra frá brautarend-
anum,“ sagði maðurinn, sem
ekki vildi láta nafns síns getið.
Maðurinn, sem býr í New
York, sagði að mikil skelfing
hefði gripið um sig í flugvélinni
en flugfreyjurnar hefðu verið
skjótar til og opnað neyðarút-
ganga. Stélið hefði verið í ljósum
logum þegar þotan loks stað-
næmdist.
„Ég hafði á tilfinningunni að
þotuna skorti afl til að hefja sig
til flugs, eða hún hafi verið
ofhlaðin," sagði Angel Fernand-
ez frá Malaga, sem komst lífs af
úr slysinu.
Fernandez sagði að þotan
hefði verið sneisafull af fólki.
„Það hljóta einhverjir að hafa
dáið,“ sagði hann við blaðamenn
og sýndi þeim blóði drifna
skyrtu sína. Hann sagði að at-
burðarásin hefði verið það hröð
að tæpast hefði verið hægt að
átta sig á því hvað gerðist.
Meðan reynt var að bjarga út
þeim sem lokuðust inni í flugvél-
inni, stóðu ítalskir foreldrar
mitt á meðal slökkviliðsmanna
og björgunarmanna og hrópuðu
til þeirra í sífellu með grátstaf-
inn í kverkunum og báðu þá að
bjarga börnum þeirra tveimur,
sem voru inni í þotunni, að sögn
EFE-fréttastofunnar.
Enn er óljóst hvað gerðist,
þegar DC-10-þota Spantax-
flugfélagsins fórst í gærmorgun.
Þotan var að leggja upp í flug til
New York, og munu flestallir
farþeganna 380 hafa verið
bandariskir og kanadískir ferða-
menn á heimleið úr sumarleyfi á
Spáni. Um 130 farþeganna stigu
um borð í Madrid, en hinir í Mal-
aga.
Svo virðist hins vegar af frá-
sögnum sjónarvotta og þeirra
sem komust lífs af, að flugmenn-
irnir hafi orðið að hætta við
flugtak. Talsmenn Spantax-
flugfélagsins sögðu aðeins, að
„tæknilegir örðugleikar" hefðu
valdið slysinu, og flugmönnun-
um var bannað að ræða við
fréttamenn, en þeir lifðu af og
eru því til frásagnar um hvað
gerðist.
Titringur
Að sögn starfsmanna í flug-
turninum í Malaga sögðu flug-
mennirnir að mikill titringur
væri í flugvélinni þegar hún var
um það bil að hefja flugið. I
fyrstu var talið að hægri væng-
hreyfillinn hefði brotnað af þot-
unni, líkt og í Chicago-slysinu
1979, þar sem hann fannst tals-
vert frá þotunni. Sögðu sérfræð-
ingar, að þetta væri einn mögu-
leiki, en aðrir að hann hefði get-
að brotnað af eftir að flugmenn-
irnir hættu við flugtak.
Sjónarvottar sögðu að þotan
hefði hlunkast niður á flug-
brautina þegar hún hefði verið
að reyna flugtak. Eldur hefði
komið upp aftast í henni þegar
hún hlammaðist út af flugbraut-
inni, en flestir þeir sem fórust
sátu aftast í þotunni. Talið er að
eldurinn, hitinn og reykurinn
Frá slysstað í Malaga. Slökkviliðsmenn sprauta nugrélarflakið kvoðu-
efni. Eins og sjá má er lítið eftir af skrokk vélarinnar, en rúmlega 200
farþegar gátu gengið frá borði hjálparlaust eftir að þotan brotnaði og
hafnaði utan brautar eftir misheppnaða flugtakstilraun. Símamynd-AP
Slökkviliðsmenn slökkva eldinn í flaki IX'/-10 þotu Spantax-fluglelagsins
í gær. Eldurinn kom upp aftast í þotunni, virtist lítill í fyrstu að sögn
sjónarvotta, en magnaðist síðan og ágerðist Hér sést hluti flugvélarstéls-
>"S. Sfmamynd-AP.
hafi yfirbugað þá áður en þeim
tókst að brjótast út. Meðal
þeirra sem enn er saknað eru
þrjár flugfreyjur.
Eitt versta flugslys sögunnar
varð í Chicago í maí 1979 þegar
vinstri vænghreyfill DC-10-þotu
American Airlines rifnaði af í
flugtaki. Við það rifnuðu í sund-
ur þrýstivökvaslöngur og stjórn-
tæki þotunnar, einkum halla-
stýri, fóru úr sambandi. Misstu
flugmennirnir allt vald á þot-
unni.
Öruggar þotur
Eftir slysið voru allar þotur af
gerðinni DC-10 kyrrsettar og fór
fram á þeim ýtarleg rannsókn.
Að henni lokinni lýstu bandarísk
flugmálayfirvöld yfir því, að
DC-10 væri jafn örugg og aðrar
flugvélar. Kom í ljós sprunga í
bolta, sem hélt hreyflinum uppi í
þotu American, en ljóst væri að
bresturinn hafi komið í boltann
vegna rangra viðhaldsaðferða
flugfélagsins, þar sem viðhald á
hreyflunum hafði verið fram-
kvæmt á annan veg en McDonn-
ell Douglas-verksmiðjurnar
höfðu fyrir lagt.
Flugslysið í Malaga:
„Það hljóta
einhverjir
að hafa dáið“
Yoko Ono.
Milljón dollara
handleggsbrot
New York, 11. september. AP.
YOKO Ono, ekkja John Lennons, á
nú yfir höfði sér málshöfðun og
skaðabótakröfu upp á rúmlega eina
milljón dollara. Málsatvik eru þau,
að sjö ára gömul stúlka varð fyrir því
ólani að handleggsbrotna þegar hún
var að leik með félögum sínum og
svo „vel“ vildi til, að atburðurinn
átti sér stað á landareign Lennons
heitins á Löngueyju í New York-ríki.
Litla stúlkan, Caitlin Hair að
nafni, var ásamt bróður sínum í
leik með Sean Lennon, sex ára
gömlum syni Ono og Lennons, og
nokkrum krökkum öðrum þegar
níu ára gömul dótturdóttir fóstru
Seans réðist á hana og meiddi, af
því hún vildi bara vera í boltaleik.
Ekki kom þó í ljós, að Caitlin var
handleggsbrotin fyrr en nokkrum
dögum síðar.
Ekki er vitað til, að nokkur full-
orðinn hafi orðið vitni að atburð-
inum en lögfræðingar Caitlin litlu
segja, að fóstra Seans hafi neitað
henni um læknisaðstoð. Þess
vegna sækja þeir Yoko Ono til
saka og fara fram á eina milljón
dollara fyrir „varanlegan miska“
og 50.000 dollara fyrir læknisað-
stoð. í kærunni segir, að Yoko Ono
hafi gerst sek um vítavert kæru-
leysi og sé ábyrg fyrir því að barn-
ið hafi verið í höndum „óhæfra,
óábyrgra og samviskulausra líf-
varða, fóstra, fulltrúa, þjóna og
starfsfólks".
Genf:
Italskur
flóttamaður
handtekinn
(ienf, 13. september. AP.
LÓGREGLAN handtók í dag Liceo
Gelli, einn helsta manninn úr
banka-hneykslinu á Ítalíu, sem hef-
ur verið á flótta undanfariö, er hann
var að leysa fé út úr banka í Genf í
dag.
Lögreglan í Genf segir, að það
hafi vakið grunsemdir starfsfólks
í bankanum hafi verið vegabréf
Gelli, en er hann hafði framvísað
því var hann handtekinn, en ítölsk
yfirvöld höfðu gefið út handtöku-
heimild á hendur honum.
Gull og dollar:
Frankinn
verst í vök
London, 13. september. AP.
GULL féll mikið í verði í dag í Evr-
ópu, rúmlega 20 dollarar únsan, en
dollarinn hækkaði hins vegar mjög
gagnvart franska frankanum og ít-
ölsku lirunni.
Gullverð var skráð á 434,75 doll-
ara í London í dag en var 456,50
þegar viðskiptum lauk á föstudag.
Hækkun dollarans er sögð standa
í sambandi við væntanlegar frétt-
ir um aukið peningaframboð í
Bandaríkjunum, en það veit yfir-
leitt á hærri vexti þar í landi.
Þrátt fyrir mikinn þrýsting á
gengi frankans var það haft eftir
embættismanni frönsku stjórnar-
innar, að ekki yrði gripið til geng-
isfellingar frankans öðru sinni á
þessu ári.
Anna prinsessa með manni
sínum, Mark Phillips.
„Keisarinn skipar karskri drótt:“
Mark Phillips á að rækja
eiginmannsskyldurnar
I»ndon, 13. ueptember. AP.
ELÍSABET Englandsdrottning hefur skipað tengdasyni sínum, Mark
Phillips, að sinna Önnu prinsessu, konu sinni, betur og fara t.d. með
henni í opinbera heimsókn til Afriku í næsta mánuði að því er sagði í dag
i dagblaðinu The Sun. í Bretlandi hefur lengi verið kvittur um að ekki sé
allt með felldu í hjónabandsmálum þeirra Marks og Önnu.
Að því er The Sun segir, hafði Bandaríkjunum í átta daga og í
fyrr verið gert ráð fyrir að Anna
færi ein til Afríku, en nú hefði
sem sagt verið ákveðið að Mark
færi með henni og sýndi það
„vaxandi áhyggjur drottningar
af samkomulaginu milli þeirra".
í júní sl. var Anna ein á ferð í
tvær vikur í Kanada og í fyrri
mánuði var hún ein með börnum
sínum á sveitasetri þeirra hjóna
í Balmoral í Skotlandi.
Mark svaraði því til, þegar
fréttamenn spurðu hann út í fá-
leikana með þeim önnu, að hann
væri svo önnum kafinn við bú-
skapinn, að hann gæti ekki með
neinu móti fylgt henni eftir á
öllum hennar ferðalögum. Hann
neitaði því einnig eindregið, að
ekki væri allt í sómanum með
þeim.
Anna prinsessa, einkadóttir
drottningar, er 32ja ára að aldri,
en Mark, maður hennar, verður
34ra 22. þ.m. Þau voru gefin
saman árið 1973 og eiga tvö
börn.