Morgunblaðið - 14.09.1982, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
35
Hafnarfjörður:
Fegrunarnefnd út-
hlutar viðurkenningum
FEGRUNARNEFND Hafnarfjarðar úthlutaði eftirtöldum aðilum
viðurkenningu fyrir fagra garða fyrir skemmstu: Þórdísi Kristins-
dóttur og Benedikt Sveinssyni, Þrúðvangi 20, fyrir fallegan garð við
einbýlishús, Þorbjörgu Bernhard og Sigurjóni Gunnarssyni og
Svanhildi Guðmundsdóttur og Ólafi Ingólfssyni, Arnarhrauni 48,
fyrir garð við tvíbýlishús.
Irmu Karlsdóttur og Kjartani Jóhannssyni og Sigríði Jóhannes-
dóttur og Sigurði Jónssyni fyrir Jófríðarstaðavegi 11 og 13,
nágrannalóðir, en að dómi fegrunarnefndar báru þær samvinnu og
smekkvísi vitni.
Kaupfélagi Hafnfirðinga, Miðvangi 41, fyrir snyrtimennsku við
verzlunarhúsnæði.
Sigríði Magnúsdóttur og Páli Hjörleifssyni, Hverfisgötu 46, fyrir
sérstaka snyrtimennsku og viðhald á gömlu húsi.
Stjörnugata Hafnarfjarðar var valin Heiðvangur. í tilkynningu
fegrunarnefndar segir að gatan sé svolítið nýtískuleg og skiptist hún
í fimm botnlanga. Þar séu allir garðar komnir í fallegt form og
snyrtimennska sé til fyrirmyndar bæði frá hendi húseigandanna og
bæjaryfirvalda.
Myndin er af verzluninni Miðvangi.
við verzlunarhúsnæði.
Hún var valin af fegrunarnefnd Hafnarfjarðar fyrir snyrtimennsku
Heiðvangur, stjörnugata Hafnarfjarðar 1982.
Þrúðvangur 20, en garðurinn var koainn sá fallegasti við einbýlishús í Hafnarfirði.
Hverfisgata 46. íbúarnir fengu viðurkenningu fyrir sérstaka snyrti-
mennsku og viðhald á gömlu húsi.
Myndin er af Rafþjónustu Sigurdórs i Akranesi.
Vantar hlýiu
ísumar-
bústaðinn I
Eða í vinnuskúrínn í vetur I
S5S SAMSUNG HITARAR
HAGSTÆTT VERÐ
- MIKILLHITl
LÁR REKSTURS-
KOSTNAÐUR
Samsung hitarar, henta
allstaðar vel þar sem þörf
er fyrir mikinn hita á
skömmum tíma. Samsung
hitarar brenna hreinsaðri
Ijósaolíu, algerlega lyktar-
laust. Þeir nýta olíuna vel
við brennslu. Þeir eru
búnir öryggistanki, sem
sýnir ávallt hversu mikið
magn olíu er eftir og sjálf-
virkum slökkvara, sem
slekkur á ofninum ef hann
veltur.