Morgunblaðið - 14.09.1982, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
37
„Það er ekki
lýðræði
á íslandi“
eftir Sverri Runólfsson
Fátt er það sem fer jafn mikið í
fínu taugarnar á undirrituðum
eins og þegar ráðamenn þjóðar-
innar reyna að telja fólki trú um
að það sé lýðræði á íslandi, án
þess að taka fram t.d. að hér sé
takmarkað lýðræði eða eins og nú-
verandi forsætisráðherra sagði í
áramótaávarpi sínu, að hér væri
löghelgað lýðræði. Sem sagt,
löggjafinn getur tekið fram fyrir
vilja meirihluta samfélagsþegn-
anna (eins og dæmin sýna) og lát-
ið flokksræðið ráða eða jafnvel
fámenna klíku embættismanna
sem pólitíkusarnir hafa sjálfir
skipað í ævilangt embætti, og sem
fléttast hafa saman vegna hags-
muna.
Nú, þá er skiljanlegt að fólk
spyrji: Hvað er lýðræði? Fullkom-
ið lýðræði er aðeins einn hlutur.
Það er að það sé öruggt að meiri-
hluti kosningabærra manna styðji
bæði mennina sem kosnir eru og
styðji einnig málefnin sem af-
greidd eru. Þetta er það eina sem
kallast getur lýðræði. Hitt er allt
takmarkað lýðræði, sem sagt, full-
trúalýðræði, flokkslýðræði, lög-
helgað lýðræði o.s.frv. Það er því
miður ekki hægt að benda á einn
einasta mann í embætti hér á
landi né eitt einasta mál sem það
er öruggt að meirihluti þjóðarinn-
ar styður. Að mínu áliti er þetta
alvarlegt ástand. Eðlilegt er einn-
ig að fólk spyrji: Er einhversstað-
ar í heiminum fullkomið lýðræði?
Svarið er því miður neitandi.
Hvergi er fullkomið lýðræði að
mínu áliti.
Eins og flestir vita eru málefna-
kosningar mikið notaðar í Sviss og
Bandaríkjamenn hafa tekið það
fyrirkomulag upp að takmörkuðu
leyti. Hjá báðum þessum þjóðum
þarf ekki meirihluti kosninga-
bærra manna að styðja málefni til
að það verði að lögum. Þetta kalla
ég ekki fullkomið lýðræði. Sviss-
lendingar hinsvegar vilja meina
að þeir hafi fullkomið lýðræði, því
kjósendur hafa þrjá mánuði til að
afturkalla mál. Þ.e. þeir líta á
þögnina sem samþykki.
Við íslendingar höfum nú gullið
tækifæri til að koma á fullkomnu
lýðræði. Um leið verður það full-
komnasta lýðræði í heimi og þá
besta samfélag í heimi fyrir alla
en ekki aðeins fyrir fáa útvalda.
Það er áskorun okkar í Valfrelsi
til allra, að láta stjórnarskrármál-
ið til sín taka. Stjórnarskrármálið
er mál allrar þjóðarinnar en ekki
nokkurra flokksbundinna manna.
Meðlimir í hugsjónahreyfingunni
Valfrelsi hafa unnið innan allra
stjórnmálaflokka að aðalmálum
Sverrir Runólfsson
Valfrelsis, þ.e. almennum þjóðar-
atkvæðagreiðslum, málefnakosn-
ingum innan kjördæma og sveit-
arfélaga og einnig að persónu-
bundnum kosningum. Forystu-
menn flokkanna og flokkarnir
hafa allir lýst stuðningi við þessi
málefni og þessvegna er undarlegt
að þau hafi ekki náð fram að
ganga, og þó.
Það er skylda hvers samfélags-
þegns að vinna eins mikið og tími
gefst til að bæta þjóðfélag sitt. Því
miður hefur enginn nema forrétt-
indamennirnir hér tíma afgangs
frá brauðstritinu og þetta vita for-
réttindastéttirnar og vita einnig
að við þeim verður ekki hróflað,
því kerfið sem flokkarnir eru bún-
ir að koma á í gegnum árin gerir
það að verkum, að almenningur er
í fjötrum og aðeins gæðingar
flokkanna njóta ávaxtanna af
striti þjóðarinnar.
Eins og kom fram í grein minni
áður, höfum við nú tækifæri til að
láta í okkur heyra, því loksins lít-
ur út fyrir að stjórnarskrárnefnd
sé byrjuð að vinna fyrir kaupi
sínu. Við megum ekki sætta okkur
við neitt minna en fullkomið lýð-
ræði, þessvegna býður Valfrelsi
því fólki, sem hefur áhuga á að
vinna að bættu lýðræði, að hafa
samband við greinarhöfund (sem
ábyrgðarmann Valfrelsis). Það er
ekki lýðræði á íslandi en að sjálf-
sögðu mun þjóðin fá það fyrr en
síðar. Því fyrr því betra. Flokk-
arnir munu halda í núverandi
kerfi eins lengi og mögulegt er.
Nema við þrýstum á frá öllum
hliðum.
Sverrir Runólfsson,
(ábyrgðarm. Valfrelsis)
Kvisthaga 14, Rvík.
ANATOMIC
dömubindi
Nýja dömubindiö, sem tekur meiri raka til sín.
Bindiö sem þú finnur minna fyrir.
Bindiö sem sést minna.
Bindiö sem er algjörlega lagaö eftir líkamanum.
Anatomic dömubindiö er þykkast, þar sem þörfin er
mest.