Morgunblaðið - 14.09.1982, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 14.09.1982, Qupperneq 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982 f FljótstungurétL Faerra fé var réttað að þetani sinni. Baendur hafa dregit saman og terri reka á fjall og auk þess hefur fért gengið fyrr niður vegna veðurfars. (Ljím. Mbi. rax.) / Fljótstungurétt með Reykdælum og Hálssveitungum Leitir gengu vel þrátt fyrir slæmt veður segja leitakóngarnir KEYKDÆLIR og Hálssveitungar réttuðu fé sitt í Fljótstungurétt í Borgarfirði i gsr og fyrradag. Fyrstu leitarmcnn fóru af stað heiman frá sér á þriðjudag og fóru upp snemma á miðvikudagsmorg- un, en aðrir á fbstudags- og laug- ardagsmorgun. I*eir komu niður með safnið um miðjan dag á sunnudag og voru þeir því 5 daga í leitinni sem lengst fóru. Reykdslir og Hálssveitungar eiga afrétt á Arnarvatnsheiði og leita þeir mest á hestum, enda geysilegt land- flsmi að leita. Leitakóngunum bar saman um það, að vel hefði gengið að þessu sinni þrátt fyrir fremur leiðinlegt veður og að fátt fé hefði verið inná afrétti. Gunnar Bjarnasonn, bóndi á Hurðarbaki, var leitarkóngur í lengstu leitinni, svokallaðri Fljótsdragaleit. Hann er 28 ára gamall og hefur oft farið í leitir, en ekki fyrr sem leitarkóngur. Þeir voru 9 daga í Fljótsdraga- leit og leituðu m.a. Fljótsdrög, Jökulskrók og upp á Þrístapa- felli. Gunnar sagði í samtali við Mbl. að leitin hefði gengið vel þrátt fyrir slyddu og afleitt skyggni frameftir degi á laug- ardag. Hann sagði einnig, að fátt fé hefði verið þarna innfrá núna. Þórður Einarsson, bóndi á Kletti, var leitarkóngur í svo- kallaðri Heiðaleit og jafnframt aðalleitarkóngur þegar safnið kom saman. Þórður sagði í sam- tali við Mbl. að þeir hefðu farið 8 saman upp á föstudagsmorgun og bærilega hefði gengið þrátt fyrir vont skyggni á laugardag og snjókomu frameftir degi. Mjög fátt fé hefði verið inná heiði, við Arnarvatn stóra hefði t.d. verið ákaflega fátt. Þórður sagðist hafa farið í leitir í 27 ár, eða síðan hann var 14 ára gam- all, en leitarkóngur hefði hann verið síðan 1978. Vigfús Pétursson, bóndi í Hægindi, var leitarkóngur í svokallaðri Lambártunguleit og fóru þeir 6 saman upp á laugar- dagsmorgun. Hann sagði í sam- tali við Mbl. að veðrið hefði verið leiðinlegt en þó hefði sjaldan gengið eins vel og nú. Vigfús sagði að sér sýndist lömbin vera frekar í lakara lagi en það væri víst allt í stakasta lagi miðað við ástandið í dag. Snorri Jóhannesson, bóndi og refaskytta á Augastöðum, var leitarkóngur í Geitlandsleit. Hann sagði í samtali við Mbl. að þeir hefðu farið 7 saman upp á laugardagsmorgun og allt hefði Þórður í Kletti, leitarkóngur. Vigfujs í Hægindi, leitarkóngur. gengið vel þrátt fyrir leiðinda- veður. Skafrenningur hefði verið á laugardag og hefði þá einn leit- armaðurinn týnst, en fundist fljótlega heill á húfi. Heimasætan á Refsstöðum, Ágústa Gunnarsdóttir, 23 ára gömul, lét sig ekki muna um það að fara í lengstu leitina. Ágústa sagði í samtali við Mbl. að hún væri fyrsti kvenmaðurinn sem hefði farið í Fljótsdragaleit, aðr- ar stúlkur hefðu að vísu farið í 2. leit, en hún væri sú fyrsta í 1. leit. Ágústa sagði að þetta hefði ekkert verið erfitt og sér hefði bara fundist gaman. í Fljótstungurétt voru að þessu sinni réttuð um 7.000 fjár að sögn réttarstjórans, Árna Þorsteinssonar, bónda í Fljóts- tungu, sem er minna en oftast áður, venjulega hafa verið réttuð 10—12 þús. fjár. Byrjað var að rétta á sunnudag þegar leitar- menn komu niður með safnið og réttað fram í myrkur og byrjað aftur snemma í gærmorgun og þá var lokið við að rétta. Gunnar í Hurðarbaki, leitarkóngur. Réttarstjórinn Árni í Fljótstungu. Ágústa, heimaaæta ó RefantMum, fór I lengstu leitina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.