Morgunblaðið - 14.09.1982, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1982
47
Norrænir atvinnu-
hollustufræð-
ingar þinga hér
DAGANA 13.—15. september verft-
ur haldið að Hótel Loftleiðum 31.
þing norrænna atvinnuhollustufræð-
inga (31. nordiska yrkeshygieniska
mötet) en þetta er í fyrsta sinn sem
það fer fram á íslandi.
Á þingum þessum er fjallað um
niðurstöður rannsókna á sviði
vinnuverndar þ.e. um tíðni og út-
breiðslu atvinnusjúkdóma, um eit-
urhrif einstakra efnasambanda,
um mengunarmælingar og úrbæt-
ur á vinnustöðum og auk þess er
farið yfir ýmis norræn samstarfs-
verkefni á þessu sviði.
Þingið sitja um 160 þátttakend-
ur og þar af eru íslenskir þátttak-
endur um 25. Fluttir verða 92
fyrirlestrar og sýnd 26 veggspjöld.
Meðal þeirra efna sem sérstak-
lega verður fjallað um má nefna
heymæði og skylda sjúkdóma.
Heymæði er ofnæmisbólga í lung-
um sem orsakast af innöndun líf-
rænna efna, þar á meðal myglu í
heyi. Gestafyrirlesari þingsins er
J.H. Edwards sem starfar við
lungnasjúkdómadeild breska
rannsóknaráðsins á sviði læknis-
fræði.
Hann mun í fyrirlestri sínum
fjalla um tilraunir til að hafa
áhrif á ofnæmissvörun líkamans
og á þann hátt koma í veg fyrir
sjúkdóminn.
Irma Ástrand frá Svíþjóð flytur
fyrirlestur sem nefnist: „Fiskveið-
ar. Eitt erfiðasta starf sem til er.“
Flutt verður erindi um leysiefna-
mengun í prentiðnaði í 30 ár.
Flutt verða erindi um tengsl
vinnuumhverfis og ýmissa teg-
unda krabbameins, áhrif leysiefna
á miðtaugakerfi, kynkirtlastarf og
fóstur, tíðni krabbameins hjá
starfsmönnum sem unnið hafa í
asbestmenguðu andrúmslofti og
fjallað verður um samverkandi
áhrif áhættuþátta í vinnuum-
hverfi og daglegu lífi.
Mývatnssveit:
Leiðin í Herðubreið-
arlindir stikumerkt
Mývatnssveií, 13. september.
Göngur eru nú hafnar um sum
afréttarsvæði hér. Um miðja síð-
ustu viku var farið í Grafarlönd og
Herðubreiðarlindir. Þar fundust
50 kindur sera komið var með til
byggða. Flestar voru þær úr Mý-
Fyrirlestur um
réttarstöðu
Grænlands
GUÐMUNDUR Alfreðsson, þjóð-
réttarfræðingur, flytur fyrirlestur
á vegum lagadeildar Háskóla ís-
lands, Lögmannafélags íslands og
Dómarafélags Reykjavíkur sem ber
heitið: Réttarstaða Grænlands,
þriðjudaginn 14. september 1982, kl.
17.15.
Fyrirlesturinn fer fram í Lög-
bergi, Háskóla íslands, í stofu 101.
Öllum er heimill aðgangur.
vatnssveit, þó voru nokkrar utan
sveitar, þar af þrjár austan af Jök-
uldal.
Laugardaginn 11. september sl.
var farið í göngur í Suðurafrétt. í
Austurafrétt verður hins vegar
ekki farið fyrr en 18. september og
réttað í Reykjahlíðarrétt 20. sept-
ember. í gær fóru nokkrir menn
úr Björgunarsveitinni Stefáni suð-
ur með Jökulsá að vestanverðu og
merktu leiðina í Herðubreiðar-
lindir með stikum, þar sem verst
er að sjá veginn í snjó og dimm-
viðri. Þeir sáu fimm kindur í lind-
unum og nágrenni, en höfðu ekki
aðstöðu til að handsama þær og
mun það bíða betri tíma.
— Kristján.
Morgunblaðið/Kristján.
Nokkrir bátanna sem þátt tóku í keppninni lóna undan Skúlagötu, Esjan
í baksýn. Alls tóku tólf bátar þátt í keppninni, og samtals voru um borð
milli 50 og 60 manns.
Islandsmeistaramót á kjölbátum:
Ari Bergmann Einarsson
á Össu varð sigurvegari
íslandsmeistaramót á kjölbát-
um fór fram fyrir nokkru í
Reykjavík, og varð sigurvegari
Ari Bergmann Einarsson á báti
sínum, Ossu. í öðru sæti varð Við-
ar Olsen á Sædísi, og í þriðja sæti
hafnaði Gunnlaugur Jónasson á
Húni — Ari er í siglingaklúbbn-
um Brokey, en þeir Gunnlaugur
og Viðar eru báðir í Ými í Kópa-
vogi.
Keppnin stóð í þrjá daga,
föstudag, laugardag og sunnu-
dag, og var keppt í fjórum sigl-
ingum. Fyrsta daginn var farið
úr Fossvogi, inn fyrir Engey og
á Reykjavíkurhöfn, daginn eft-
ir var svo siglt frá Engey út á
Flóann, og loks var siglt um-
hverfis Engey og síðast inn um
Sundin og síðan á Fossvog.
Veður til keppninnar var mjög
gott, bæði góður vindur og logn,
svo talsvert reyndi á hæfni
keppenda.
Milli 50 og 60 manns tóku
þátt í keppninni, á 12 bátum.
Menn um borð í hverjum báti
eða skútu eru 3 til 5, og bátarn-
ir eru af stærðinni 18 til 30 fet.
Sýnir í
Djúpinu
Laugardaginn 11. september
opnaði Agnar Agnarsson, myndlist-
arsýningu í Iljúpinu, Hafnarstræti
15, Reykjavík. Á sýningunni eru um
20 verk, collage, túss og aquerell.
Þetta er fjórða sýning Agnars.
Sýningin er opin á sama tíma og
Veitingastaðurinn Hornið, að-
gangur er ókeypis. Sýningin er til
19. september.
Stjörnubíó
frumsýnir
„Stribes“
STJÖRNUBÍÓ hefur frumsýnt
kvikmyndina Stribes með Bill
Murray, Harold Ramis og Warren
Oates í aðalhlutverkum. Er hér um
að ræða bandariska gamanmvnd.
Söguþráðurinn er þessi:
„John er hrakfallabálkur. Á ein-
um degi missir hann bíl sinn, at-
vinnu og kærustu. John og besti
vinur hans, Russell, ákveða að
venda sínu kvæði í kross og ganga
í Bandaríkjaher.
Er í æfingabúðir kemur, tekur
Hulka liðþjálfi við nýliðahópnum.
Hulka er hið mesta hörkutól og er
ákveðinn í að gera menn úr græn-
ingjunum. John og félagar hans
eru þó á öðru máli og reyna af
alefli á þolrifin í Hulka.“
Guðmundur Alfreðsson
Tónleikar í
Norræna húsinu
í KVÖLD klukkan 20.30 kynnir
bandaríska tónskáldið Philip
Corner verk sín í Norræna húsinu.
Philip Corner hefur nokkrum
sinnum áður komið hingað til
lands.
Komnar teinamöppur fyrir
eftirfarandi tímarit:
Gcstgjaíinn KtíeacaMM] ÖGYÍuDCDQD 1 IIMAHII |IM MA'I sKKRITl'knjOI^KVUH NAtH.MEIMIUD Ve\í^ sKt
burdo ÆEsteOD ópongar V
^Sonur gög w ■ Iffnrrí ■ r
1HRZANS &GOKKE JCBI fjj.
Fást í öllum bókaverslunum Ui Sími: 53948