Morgunblaðið - 21.09.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
Akureyri:
Sá reyk og fór
inn og bjarg-
aði ungri konu
„ÞETTA var um níuleytið á sunnudagsmorguninn, að ég var á gangi í
Hafnarstræti með dóttur minni, er ég sá reyk liðast út úr húsi við
götuna; ég fór þar inn og þá var þar all mikill reykur út úr húsi við
götuna; ung kona sofandi, sem mér tókst að vekja og koma út, og kalla
til lögreglu og slökkvilið," sagði Sigurður Bjarklind, menntaskólakenn-
ari á Akureyri, í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gærkveldi.
Sigurður sagði ennfremur, að
svo hefði virst sem eldur eða glóð
hefði fallið í sófa í stofunni og
mikill reykur hefði komið úr
svampi í stólnum. í stofunni hefði
eriginn verið, en í aftjölduðu
herbergi innaf fann hann ungu
konuna, og bjargaði henni sem
fyrr segir. Hún var flutt á sjúkra-
hús, og hafði fengið snert af reyk-
eitrun.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri var það um klukkan 9.07 sem
tilkynning barst um eld og reyk í
húsinu Hafnarstraeti 86A, og
hefðu lögregla og slökkvilið farið
á staðinn. Skemmdir hefðu litlar
orðið af eldi, en nokkrar af reyk.
Síldarverð enn óákveðið:
Talsvert ber á milli
kaupenda og seljenda
ENN hefur síldarverð vegna
haustvertíðarinnar ekki verið
ákveðið. Yfirnefnd Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins kom
saman til fundar í gær, en sá
fundur var árangurslaus og
verður annar fundur í dag.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins mun mikið bera á
milli kaupenda og seljenda.
hefur útgerðarkostnaður
vaxið verulega á tímabilinu
og því þurfa seljendur tals-
verða verðhækkun. Vegna
þessa gengur fulltrúum
kaupenda og seljenda erfið-
lega að ákveða verðið.
SÍS fékk ekki leyfi til
Ljóamynd Abbi
Síldarstemmning á Húsavík
Þeir eru glaðhlakkalegir Húsvíkingarnir er silfur hafsins streymir inn í
fiskverkunarhús þeirra. Síldarsöltun hófst á Húsavík fyrir skömmu og
keppast menn nú við að ná sem mestu af henni áður en hún hverfur
austur og suður með landinu. Síldin er veidd í lagnet.
að dreifa stundaskrá í skólum:
„Hér og nú“, nýr
þáttur í sjónvarpi:
Áslaug Ragnars
og Friörik
Páll Jónsson
umsjónarmenn
ÚTVARPSRÁÐ hefur sam-
þykkt að í vetur verði nýr þátt-
ur, sem bera mun nafnið „Hér
og nú“, fluttur á sunnudags-
kvöldum vikulega, samkvæmt
upplýsingum sem Mbl. fékk
hjá Markúsi Erni Antonssyni,
fulltrúa í útvarpsráði.
Sagði Markús að efni þátt-
arins ætti að vera sem mest
tengt líðandi stund og fjalla
um það sem markverðast
þætti á listasviðinu hverju
sinni, en þátturinn á að vera
40 mínútur að lengd og send-
ur út að loknum sjónvarps-
fréttum. Einnig er gert ráð
fyrir að þar verði flutt
skemmtiefni og efni sem of-
arlega er á baugi. Ætlast er
til að þessi þáttur komi í
stað Vöku, sem verið hefur í
sjónvarpi um árabil.
Umsjónarmenn þáttarins
„Hér og nú“ hafa verið ráðn-
ir til reynslu fram að ára-
mótum, en þeir eru Friðrik
Páll Jónsson, fréttamaður
hjá útvarpinu, og Áslaug
Ragnars, blaðamaður á
Morgunblaðinu. Andrés Ind-
riðason hefur umsjón með
tæknihlið þáttarins.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins hefur fisk-
verð hækkað um 62,5% síð-
an síldarverð var ákveðið
síðast. Ljóst þykir nú, vegna
verðlækkana á síld erlendis,
og mikillar hækkunar á
vinnslukostnaði hér heima,
að kaupendur hafi ekki
bolmagn til að taka á sig
nema minna en helming al-
mennrar fiskverðshækkunar
á tímabilinu. Á hinn bóginn
Almennur áróður fyrir
samvinnuhreyfinguna
— segir Markús Orn Antonsson
INNLENT
FRÆÐSLURAÐ hafnaði á
fundi sínum fyrir nokkru
óskum frá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga annars vegar
og Frjálsu framtaki hinsvegar,
um kynningu og dreifingu á
efni í skólum. SIS fór fram á
leyfi til að dreifa stundaskrám
í skólum, en Frjálst framtak
óskaði eftir leyfi til kynningar
á Barnablaðinu ABC. í bókum
Útför dr. Kristjáns
gerö á fimmtudag
ÚTFÖR dr. Kristjáns Eldjárns,
fyrrverandi forseta íslands, fer
fram á vegum ríkisins. Akveðið
hefur verið, að útforin verði gerð
frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
23. september nk., kl. 14.00. Út-
varpað verður frá athöfninni, segir
í frétt frá rikisstjórninni.
Vandamenn hins látna hafa
óskað þess, að þeir, sem vildu
minnast hans láti menningar- og
líknarstofnanir njóta þess.
Vegna útfarar dr. Kristjáns
Eldjárns, fyrrverandi forseta ís-
lands, verður Stjórnarráðið lok-
að frá hádegi fimmtudaginn 23.
september nk.
Jafnframt er mælst til þess, að
aðrar opinberar stofnanir verði
einnig lokaðar, þar sem því verð-
ur við komið.
frá fræðsluráði, þar sem erind-
um þessum var hafnað, er vís-
að til samþykktar ráðsins frá
26. október 1981, þar sem
mörkuð var sú stefna að hafna
umsóknum af þessu tagi, sam-
kvæmt upplýsingum sem Mb).
fékk hjá Markúsi Erni Antons-
syni formanni fræðsluráðs.
Sagði Markús að fjórir full-
trúar Sjálfstæðisflokks og einn
fulltrúi Alþýðubandlags hefðu
greitt þessari afgreiöslu at-
kvæði, en fulltrúar Framsókn-
arflokks og Alþýðuflokks sátu
hjá.
Markús sagði í tilefni grein-
ar sem birtist í Tímanum um
þetta mál, þar sem kom fram
að á fundinum hefðu fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins auk
Markúsar verið þau Sigurjón
Fjeldsted, Ragnar Júlíusson og
Bessí Jóhannsdóttir, að hvorki
Sigurjón né Ragnar hefðu ver-
ið á fundinum. Voru birtar
myndir af þeim í Tímanum
vegna málsins. Sagði Markús
að greinin og myndbirtingarn-
ar „væru út í hött, eins og er-
indi Sambandsins."
Markús sagði að stundaskrá
sú sem Sambandið hefði óskað
eftir að fá að dreifa, væri að
lang minnstum hluta stund-
askrá, heldur væri um almenn-
an áróður fyrir samvinnu-
hreyfinguna að ræða. Rætt
væri um markmið hennar og
ágæti hennar væri tíundað í
hvívetna. „Samvinnuhreyfing-
in er mjög umdeild félagsmá-
lahreyfing og meirihluti
fræðsluráðs lagðist gegn því að
þessu yrði dreift í barnaskól-
um , enda vöruðu kennaraf-
ulltrúar sem sæti áttu á fund-
inum, mjög eindregið við þess-
ari þróun,“ sagði Markús.
Markús sagði að samþykktin
frá árinu 1981, sem gerð var í
formennskutíð Kristjáns
Benediktssonar, borgar-
fulltrúa Framsóknarflokksins,
hefði verið gerð vegna sívax-
andi ásóknar félagasamtaka
og fyrirtækja sem hefðu viljað
kynna þjónustu sína í skólum
borgarinnar.
Mynd Mbl. Júlíus.
Hardur árekstur
HARÐUR árekstur varó á gatnamótum Réttarholtsvegar og Miklubrautar
klukkan 18.35 á sunnudag. Þar rákust saman Honda Accord og Mazda-
bifreið með þeim afleiðingum, að Hondan lenti á umferðaljósum og valt.
Báðar bifreiðirnar stórskemmdust, en enginn slasaðist.
| i----------------------