Morgunblaðið - 21.09.1982, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
7
Plasteinangrun
ARMAPLAST
Glerull — Steinull
Armúla 16 sími 38640
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
qítqrskóli
'^OLAFS GAUKS
SIMI27015 KL. 2
Innritun í skólanum, Stórholti 16, daglega kl.
2—7 síðdegis, sími 27015.
Upplýsingar á öðrum tímum í síma 85752.
TÖLVUNÁMSKEIÐ
FYRIR BÖRN 9—16 ÁRA
Námskeiðiö er hvort tveggja í senn nám
og leikur.
Á daginn læra börnin grundvallaratriði forritunar-
málsins BASIC og geta aö loknu námskeiöi skrifaö
einföld forrit. Meö aðstoð litskyggna er þeim kynnt
hygging og eiginleikar tölva og tölvukerfa.
Á kvöldin eru leik- og æfingatímar.
Börnin fá viöurkenningarskjal að loknu námskeiði.
Námskeiöið stendur yfir í 2 vikur, annan hvern dag, 2
tíma í senn, auk frjálsra tíma aö kvöldinu.
Viö kennsluna eru notaöar vandaðar einkatölvur frá
ATARI með lit og hljóöi.
TÖLVUSKÚLINN
SMphottil. Simi 25400
Brjálað
ROKK
Bjóöum sér tíma f rokk 'n’ roll fyrir
þá sem unna rokkdansinum.
Dans er
skemmtílegt
tómstunda-
gaman fyrir fólk
á öllum aldri.
Kennslustaðir:
Reykjavík
Brautarholt 4
Drafnarfell 4
Tónabær
Ársel
Bústaðir
Seltjarnarnes
Félagsheimilið
Kópavogur
Hamraborg 1
Kársnesskóli
Hafnarfjöröur
Gúttó
INNRITUN OG UPPLYS-
INGAR KL. 10—12 OG
13—19 SÍMAR:
20345
38126
24959
74444
0^0
BRnssnöu
STWHIDSSDBBl
MW l9TO mA?. rn*r. m.kr. m.kr.
1. Loðottxfuröir 2. BoUtTtAaf- t Afirir iíívat**- 610 2.730 535 710 2.896 640
4. StmUb 19T7- . SS35 4245
100 108
790
675 675
845 1020
815
200 10
4.720 S-480
765 166
1S4 186. „ 1» 108
Hvarflar ekki að mér
að nefna útflutnmgsbaim
TJSSSÍSÍÍSfe
Skoðið tölurnar þar sem fram koma spárnar fyrir 1982 og afkoman
1978 og berið saman við málsvörn Guömundar J. Guðmundsson-
ar, en fyrirsögn hennar birtist hér einnig.
Málsvöm
Guðmundar J.
Eftir að hafnarverka-
menn og aörír höfðu skor-
að skriflega í Guðmund J.
Guömundsson, formann
Verkamannasamhand.s f»
lands og Dagsbrúnar og
þingmann Alþýðubanda-
Íagsins, að standa gegn
framgangi nýsettra bráða-
birgðalaga ríkisstjórnar-
innar á Alþingi eins og
hann barðist gegn lögum
ríkisstjórnar Geirs
Hallgrímssonar um svipað
efni vorið 1978, efndi Guð-
mundur J. til fundar með
verkamönnum hjá Hafskip
7. september og hélt uppi
vörnum fyrir því, að hann
fvlgdi annarri stefnu nú en
1978. Hann leitaðist við að
bregða sér úr gervi þing-
mannsins og líta á stöðu
mála frá „faglegu" sjón-
armiði verkalýðsrekand-
ans, en eins og kunnugt er,
telja alþýðubandalags-
menn þann kost sér hag-
kvæmastan að skipta um
skyrtu áður en þeir ganga
á fund verkafólks.
Þjóðviljinn birti máls-
vörn Guðmundar J. Guð-
mundssonar orðrétta í for-
ystugrein 8. september.
Hann sagði m.a.:
„1978 voru þjóðartekjur
á upplcið, þjóðarframleiðsl
an jókst og verðlag var
hækkandi á helstu útfhitn-
ingsmörkuðum okkar.
Verkalýðshreyfingin var að
verja samningana frá 1977
þar sem hún hafði náð
fram kaupmáttaraukningu
eftir mjög mikla lægð í
kaupmætti 1975, 1976 og
fram á mitt ár 1977. Út-
flutningsbann var mjög
áhrifarík aðgerð vegna
þess að það var slegist um
að kaupa fiskinn af okkur
1978.
Nú eru þjóðartekjur á
niðurleið, þjóðarfram-
leiðsla dregst saman og
verðlækkanir eru á fisk-
mörkuðum og hjá stóriðju.
Fjárfestingarsukkið sem
viðgengist hefur hér um
langt árabil gerir það að
verkum að ef ekki verður
stungið við fótum fer allt á
bnlakaf í skuldir.
Mér dettur ekki í hug að
við leggjum til nú að stoppa
skreiðarsöluna. Hvaða
gagn er í því meðan enginn
kaupir skreiðina? Mér
dettur ekki i hug að við
stöðvum saltfisksölur. Ég
er viss um að við fengjum
ekki eitt einasta verkalýðs-
félag úti á landi með í þá
aðgerð, þegar verð á salt-
fiski hefur nýlega lækkað
um 7% og Norðmenn eru
með sífelld undirboð. 1978
höfðum við ekki undan að
framleiða á Ameríkumark-
að, en ef við stoppuðum
frystinguna núna þá væru
Kanadamenn búnir að
leggja undir sig markaðinn
á svipstundu, enda bjóða
þeir fiskinn nú á 24%
íægra verði en íslend-
ingar."
Villa Guð-
mundar J.
Meginkjarninn í máls-
vörn Guðmundar J. Guð-
mundssonar er sá, að það
hafi veríð meinlaust að
grípa til útflutningsbanns í
april 1978, af þvi að þá hafi
verið slegist um íslenskan
fisk á crlendum mörkuð-
um. Þessi málsvörn er
byggð á villu, þvi varla er
Guðmundi J. ætlandi að
fara beinlínis með rangt
mál á fundi með verka-
mönnum. í greinargerð frá
Þjóðhagsstofnun, sem
dagseft er 30. júní 1978,
segir, að samkvæmt tölum
Hagstofu íslands hafi orðið
halli á vöruskiptum við út-
lönd sem nam fyrstu fimm
mánuði ársins 1978 8,9
milljörðum g.kr. sé útflutn-
ingur reiknaður á fob-verði
en innflutningur á cif-verði.
Þá segir einnig í þessari
skýrslu frá 1978: „Að
viðskiptum álversins
slepptum hefur vöruskipta-
jöfnuðurinn farið úr 550
m.kr. afgangi janúar-maí i
fyrra (1977 innsk. Mbl.) i
6,7 milljarða króna halla í
ár (1978 innsk. Mbl.).
Astæðan er bæði minni
sjávarafurðaframleiðsla en
i fyrra og töhiverð aukning
útfiutningsvörubirgða, m.a.
vegna áhrifa útflutnings-
bannsins (sem hófst um
miðjan apríl 1978 innsk.
MbL).“
Guðmundur J. Guð-
mundsson sleppti því alveg
á fundinum með verka-
mönnunum um daginn að
minnast á þær dökku horf-
ur sem voru fyrri hluta árs
1978 vegna minni sjávar-
afurðaframleiðslu auk þess
sem það er alrangt hjá
honum, þegar hann gefur
til kynna að 1978 hafi út-
fiutningsbann svo sem
ekki skipt neinu fýrir af-
komu þjóðarbúsins —
þvert á móti dró það úr
mögulcikum þess að unnt
værí að bæta kjör launþega
með raunhæfum hætti, en
á þann mikilvæga þátt
minnast verkalýðsrekend-
ur sjaldan þegar þeir reyna
að afsaka gerðir sínar.
Það var ekki fyrr en síð-
arí hluta árs 1978 sem fisk-
veiðar jukust og sjávar-
afurðaframleiðsla þar með,
en um þá þróun vissi Guð-
mundur J. Guðmundsson
ekkert þegar hann hvatti
til útflutningsbannsins í
kosningabaráttunni 1978.
Verðlag á sjávarafurðum er
ekki lakara nú en 1978 og
samkvæmt hagstæðari spá
Þjóðhagsstofnunar um af-
komuna í ár ætti verðmæti
sjávarafurðaframleiðslu í
ár að vera meira en 1978
og samkvæmt lakari spá
Þjóðhagsstofnunar ætti
verðmætið í ár að vera hið
sama og 1978. Auðvitað gat
Guðmundur J. Guðmunds-
son ekki um þessa stað-
reynd, þegar hann ræddi
við verkamenn. Hefði
hann gert það, hefði hann
jafnframt þurft að viður-
kenna, að síðan 1978 hefur
allt farið á verri veg vegna
þrásetu ráðherra Alþýðu-
bandalagsins í ríkisstjórn.
Þá hefði hann orðið að fara
úr faglegu skyrtunni i þá
pólitísku og það gera sann-
ir verkalýðsrekendur ekki
á verkamannafundum!
Tímar í
samkvæmisdönsum
Ad sjálfsögðu
bjóðum viö
tíma
í hinum
sígildu
samkvæmisdönsum
Ballroom dansar: enskur vals,
vínarvals, tangó, quickstep,
foxtrot. Suður-amerískir dans-
ar: rúmba, samba, jive, paso
doble, cha cha cha, freestyle-
dansar (diskótek-dansar),
gömlu dansarnir og partýdans-
ar.
INNRITUN OG UPPLÝSINGAR
KL. 10—12 OG 13—19
Símar
20345, 24959,
38126, 74444.
■IIIISSNfill
KENNSLUSTAÐIR
Reykjavík
Brautarholti 4,
Drafnarfell 4,
Tónabær
Ársel (Árbæ)
Bústaöir
Kópavogur
Hamraborg 1,
Kársnesskóli
Hafnarfjöður
Gúttó
Seltjarnarnes
Félagsheimiliö