Morgunblaðið - 21.09.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
verkefni og vaknar þá sú spurning
hvort gagnrýnin eigi ekki stutt
eftir í að verða stofnanatengt
þægindi, með hagsmuni stofnun-
arinnar að markmiði, líkt því sem
á sér stað í hljómplötu-, kvik-
mynda- og skemmtiiðnaðinum
víða um heim og blaðamannafélög
hafa barist gegn. Við slikar að-
stæður þarf ekki að spyrja: Fyrir
hvern?
Eigi gagnrýni að vera frjáls er
það gagnrýnandans að ákveða
fyrir hvern hann ritar gagnrýni
sína og fylgi hann sannfæringu
sinni, geta þeir sem velja að lesa
gagnrýni hans, verið vissir um
heiðarleik hans, hvernig svo sem
honum annars tekst til. Ef þeir
sem kaupa gagnrýni hans til
endursölu, geta ekki sætt sig við
framsetningu hans og skoðanir, er
þeim aðeins ein leið fær og það er
að segja gagnrýnandanum upp og
ráða annan mann til starfans. Slík
aðferð er heiðarleg. Að þvinga
gagnrýnandann til að skrifa gegn
sannfæringu sinni er nokkuð sem
ekki ætti að eiga sér stað. Endur-
sölu á gagnrýni fylgir áhætta
vegna þess að óánægðir kaupend-
ur, sem eiga bágt með að sætta sig
við niðurstöður gagnrýninnar,
reyna oft, og þá beinlínis með
þvingunum, að knýja fram aðgerð-
ir gegn gagnrýnandanum. Upp-
sögn vegna þrýstings utan stofn-
unarinnar er annars eðlis og al-
varlegri, en sé hún tilkomin vegna
ósamkomulags innan hennar, þó í
báðum tilfellum sé verið að koma í
veg fyrir frjálsa gagnrýni. Það
getur sem sé verið skaðlegt fyrir
gagnrýni sé lögð áhersla á það
„Fyrir hvern?" hún er rituð, því
þar með er gagnrýnandinn heftur
í starfi sínu.
Gagnrýni á að vera óbundin af
slíkum hömlum. Hún er ritsmíð
gagnrýnandans, rituð á ábyrgð
hans og fyrir lesendur, sem
treysta honum til að hafa það
hugrekki sem þarf til að segja satt
um hvað honum finnst og hann best
veit.
Hvernig?
Það má vel vera hægt að búa til
eitthvert „módel" fyrir gagnrýn-
endur að fara eftir, eins konar
„rammasamning", þar sem krossa
má við staðlaðar fyrirspurnir.
Hætt er við að slíkt tiltæki þætti
leiðinlegt til lengdar. Gagnrýn-
andi sem á að fjalla um þetta eða
hitt, vera sanngjarn, leiðbeina,
fræða, vera jákvæður, sanngjarn
og muna eftir öllum er upptekinn
við þjónustustörf. Ef gagnrýnand-
inn fjallar ekki um einhverja
þætti, getur það einfaldlega þýtt
að þeir skipti gagnrýnandann
engu. í þögninni er fólgin niður-
staða, sem ekki verður misskilin,
nema til komi einfaldlega
gleymska. Gagnrýnandinn verður
að hafa rétt til að gleyma, eins og
hver annar, þó sá sem gleymdist
geti illa sætt sig við orðinn hlut.
Þegar listamenn telja upp þau
atriði, sem þeir telja rétt að komi
fram í gagnrýni, eru þeir aðeins að
útfæra væntingar sínar. Þessar
væntingar koma greinilega í ljós,
er þeir taka til að nefna dæmi um
misheppnaða gagnrýni, sem allir
hafa fyrir löngu gleymt nema þeir
sjálfir. Þessi sífellda upprifjun
getur blátt áfram verið skaðleg,
sérstaklega þegar hún nær marki
þráhyggjunnar.
Það verður, því miður, aldrei
hægt að segja til um hvernig
gagnrýni eigi að vera. Hún er verk
gagnrýnandans og í þessu verki
hans birtist menntun hans, bæði
fagleg og almenn, hugmyndafræði
er hann hefur tileinkað eða kynnt
sér og þessu öllu beitir hann í rýni
sinni. Sé hann lélegur gagnrýn-
andi, situr hann (og þeir sem lesa
hann) uppi með það eins og þeir
listamenn sem skammdrægir eru
og verður því aldrei krafinn um
meira en að vera hann sjálfur,
hversu svo sem aðrir vilja þar um
bæta.
P.S.: Því hefur verið fleygt, að
gagnrýni sé marklaus sem dómur,
en sem umsögn verði hún mark-
tæk í réttu hlutfalli við þá viður-
kenningu sem gagnrýnandinn hef-
ur aflað sér. Slíka viðurkenningu
fær hann ekki með því að rita
„kunningjakrítik", eða fyrir önnur
þjónustustörf í þágu listamanna,
heldur fyrir miskunnarlausa
hreinskilni, án tillits til þess hvað
slík hreinskilni getur kostað hann
sem þegn í samfélagi með þeim er
sífellt þurfa að þola gagnrýni
hans.
J.Á.
1^1
Egilsstaðir:
Bygging
verkamanna-
bústaða
Kgilsstöðum, 15. september.
SNEMMA í vor var boðinn úr
byrjunaráfangi bygginga verka-
mannabústaða á Egilsstöðum.
Hér er um tvö parhús að ræða
með fjórum íbúðum og auk þess
grunnar að tveim öðrum parhús-
um, sem rísa eiga á ásnum milli
Utgarðs og Miðgarðs.
Tilboð voru opnuð í júní síð-
astliðnum og var tilboði Þorkels
Sigurbjörnssonar, Egilsstöðum,
tekið, sem var lægst og naum-
lega yfir kostnaðaráætlun Hús-
næðismálastjórnar ríkisins.
Framkvæmdum hefur miðað
það vel að grunnarnir fjórir eru
þegar risnir og verður brátt
hafist handa við að steypa upp
parhúsin tvö.
Að sögn Helga Halldórsson-
ar, hreppsnefndarmanns á
Egilsstöðum, sem á sæti í stjórn
verkamannabústaðanna að
hálfu BSRB, hefur íbúðunum
fjórum þegar verið úthlutað.
Umsækjendur voru 13 talsins.
Gert er ráð fyrir því að íbúð-
irnar verði fullbúnar á miðju
sumri 1983 og hver íbúð kosti
um 700.000 kr. skv. verðlagi í
júní síðastliðnum.
Formaður stjórnar verka-
mannabústaða á Egilsstöðum er
Astráður Magnússon.
— Ólafur
JSíáamatkadutinn
^■laitisqötu 12-18
Fíat Ritmo 1981
Brúndrapp, ekinn 17 þús. Út-
varp, segulband. Verð: 100
þús. (Skipti ath. á ódýrari).
Toyota Hilux 1981
Hvítur, ekinn 18 þús.
Verð: 140 þús. Skipti á nýleg-
um fólksbíl.
Mazda 929 Coupé 1982
Grænsans. Ekinn 4 þús.
Sjálfskiptur, aflstýri, raf-
magn í rúðum o.fl. Skipti.
Ath.: Verð: 200 þús.
Blazer Diesel 1970
Gulur, ekinn 30 þús. á vél. Vél
Hanomac f-65. Túrbó, 5 gíra,
splittað drif (framan og aft-
an). Monster dekk.
Verð: 140 þús.
Colt 1981
Rauður, ekinn 7 þús., sem nýr
bíll. Verð: 115 þús.
Volvo Lapplander 1981
Rauður, ekinn 26 þús. Út-
varp, segulband, sérsmíðar-
hús, lengdur 8 manna. Jeppi i
sérflokki. Verð: 240 þús.
Citroen GSA Pallas 1982
Brúnsanz, ekinn 9 þús.
C-Matik, skipting. Ýmsir
aukahlutir. Verð: 148 þús.
Range Rover 1978
Gulur, ekinn 114 þús. Útvarp,
segulband. Bíll í toppstandi.
Verð: 260 þús.
Volvo 244 GL 1982
Gullsans, ekinn 16 þús.
Sjálfskiptur, aflstýri, útvarp,
segulband, snjó- og sumar-
dekk. Verð: 250 þús.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
M
M
\l (.I.VSIR I M M.I.T I.AM) l»K(. \R
U U.YSIR I MORi.I \BI. \D1M
Enginn efast umgæðin fra General Electric
Toppklassa, kæli- og frystiskápar, pvottavélar og
þurrkarar fyrirliggjandl.
Það besta verður ávallt ódýrast, þegar til lengdar
lætur.
•a
HEIMILISTÆKI
STÓR OC SMÁ