Morgunblaðið - 21.09.1982, Qupperneq 18
l&í MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
Mónakó:
Grace búin hvíla
í dómkirkjunni
Monte Carlo, 20. september. AP.
LÍFII) í Mónakó er aftur að færast í sinn fyrra farveg en ekki er enn
afráðið hvenær Grace furstaynja verður lögð til hinstu hvílu undir gólfi
dómkirkjunnar i Monte Carlo. í fyrstu var talið, að það yrði gert sl.
laugardag en nú er sagt, að það muni verða í dag, mánudag, eða einhvern
næstu daga.
Rainier prins af Mónakó grét við minningarathöfnina um konu sína. Hér
er hann ásamt börnum sínum tveimur, Karólínu og Albert. Stefanía,
dóttir hans, er enn á sjúkrahúsi.
Grace prinsessa lést aðfarar-
nótt miðvikudags í fyrri vika
þegar bifreið, sem hún ók, fór út
af veginum í brattri fjallshlíð
Frakklandsmegin landamær-
anna. Að sögn lækna fékk hún
heilablóðfall undir stýri og
skömmu síðar annað, sem olli
því, að hún var í dái þegar á
sjúkrahúsið kom og hefði, að
sögn læknanna, aldrei komist til
meðvitundar aftur. Þegar fjöl-
skyldu hennar var sagt, að hún
væri í raun læknisfræðilega lát-
in, var ákveðið að notast ekki við
flókinn tækjabúnað til að halda
hjartanu gangandi.
Eftir kveðjuathöfnina á laug-
ardag var kista Grace heitinnar
flutt i einkakapellu fjölskyld-
unnar en síðan verður hún lögð
til hvílu undir gólfi dómkirkj-
unnar í Monte Carlo. Þar er nú
verið að taka henni gröf og er
Hér er Cary Grant ásamt konu
sinni við minningarathöfnina.
gert ráð fyrir, að Rainer prins
muni hvíla þar við hlið henni í
fyllingu tímans.
Yfirmaður suðurflota Argentínu:
Neitar að segja af sér vegna
óstjórnar í Falklandseyjastríðinu
Kucnos Aircs, Argentinu, 20. október. Al*.
YFIRMAÐUR suðurflota Argentinu
neitar að hlýða skipun yfirmanns
síns um að segja af sér og gagnrýnir
hann fyrir stjómun á stríðsrekstrin-
um gegn Bretum i Falklandseyja-
deilunni.
Yfirmaður hersins, Jorge
Anaya, sagði í dag, er hann hafði
heyrt um að Zaratiegui, yfirmaður
suðurflota Argentínu, neitaði að
víkja úr embætti, „að hann væri
þegar leystur frá störfum sökum
agabrots", en áður hafði verið til-
kynnt að hann yrði leystur frá
störfum þann 1. október, eins og
hann sjálfur og 18 aðrir hershöfð-
ingjar sem tóku þátt í stríðinu.
Talsmaður hersins í Buenos
Aires sagði í dag, að ákvörðun
Zaratiegui væri „persónuleg" og
sagði, að hann nyti ekki stuðnings
undirmanna sinna.
Anaya hershöfðingi var yfir-
maður hersins í þessu 74-daga
stríði, en Zaratiegui mun vera
ósammála honum í 16 atriðum er
hann hefur sett skipulega upp og
kynnti á blaðamannafundi
skammt frá Buenos Aires í dag.
Þessi 16 atriði snerta flest
stjórnun hersins meðan á Falk-
landseyjastríðinu stóð og eftirmál
þess.
Danmörk:
Dávaldur dæmdur
fyrir nauðganir
Silkiborg, Danmörku, 20. scplcmber. Al*.
ALI IIAMANN, alkunnur danskur dávaldur og sállæknir, var i dag dæmdur í
fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað eða misnotað kynferðislega tauga-
veiklaðar konur, sem leituðu hjálpar hans.
Indira Gandhi í
Sovétríkjunum
Moskvu, 20. september. AP.
INDIRA Gandhi, forsætisráð-
herra Indlands, er nú í opin-
berri heimsókn í Sovétríkjun-
um. Hefur henni verið tekið
með kostum og kynjum. Ekkert
hefur enn frést af viðræðum
hennar við Leonid Brezhnev, en
áður en hún lagði upp frá Nýju
Delhí sagðist hún myndu leggja
áherslu á að treysta enn frekar
vináttubönd þjóðanna.
Ingrid Bergman
fær verðlaun
IíOs Angelcs, 20. september. AP.
INGRID Bergman hlaut í dag
Emmy-verðlaunin fyrir túlkun
sína á hlutverki Goldu Meir í
sjónvarpsmyndinni „A Woman
Called Golda“. Var skýrt tekið
fram, að atkvæðagreiðsla hefði
farið fram átta dögum fyrir
dauða Bergman, þannig að ekki
væri verið að verðlauna hana
vegna þess að skammt er um
liðið frá dauða hennar. Dóttir
hennar, Pia Lindström, tók á
móti viðurkenningunni.
Neyðarástand
í E1 Salvador
San Saltador, 20. seplember. Al*.
LÝST hefur verið yfir neyðar-
ástandi í E1 Salvador vegna gíf-
urlegra flóða, sem orðið hafa
þar að undanförnu. Meira en
150 manns hafa látið lífið í
þeim og 10.000 manns a.m.k.
hafa misst heimili sín. Sjötíu
manns létu lífið í aurskriðu á
einum stað.
Sprengjuárás á
fjarskiptastöð
('ork, írtandi, 20. september. Al*.
FIMM grímuklæddir menn
sprengdu í dag fjarskiptastöð
ríkisins í Cork. Marxíski þjóð-
frelsisherinn hefur lýst tilræð-
inu á hendur sér. Enginn slas-
aðist. Árásin var gerð til að
mótmæla því að um þessa stöð
fara fjarskipti sem tengjast
NATO.
Rétturinn fann Hamann sekan
um þrjár nauðganir, þrjár tilraunir
til nauðgunar og um 19 tilfelli, sem
snertu óviðkvæmilega tilburði til
kynmaka. Réttarhöldin yfir Ham-
ann hafa vakið mikla athygli í
Danmörku og kynnt undir gömlum
deilum um það hvort dávaldur geti
fengið mann til að hafast eitthvað
það af, sem er andsnúið hans
innstu sannfæringu. Menn hafa
skipst í tvo hópa í afstöðunni til
þessa máls og dómarinn, sem um
mál Hamanns fjallaði, hefur fengið
fjölda hótunarbréfa frá fyrrver-
andi sjúklingum Hamanns.
Hamann, sem er fyrrverandi
bakari, hefur haft til meðferðar
meira en 100.000 manns frá því
hann hóf sállækningar 1951. Við
réttarhöldin viðurkénndi hann, að
sem aðdáandi kenninga Sigmund
Freuds hefði hann notað kynferð-
islega örvun sem hluta lækningar-
innar en neitaði því hins vegar
harðlega að hafa nauðgað eða mis-
notað sér konurnar. Sagði Ham-
ann, að þær hefðu annað hvort lát-
ið ímyndunaraflið hlaupa með sig í
gönur eða snúist gegn honum
ENGIN lausn er í sjónmáli um bygg-
ingu verslunarráðsins í Honduras,
þar sem vinstri sinnaðir skæruliðar
hafa hótað að drepa um 80 gísla er
þeir hafa í haldi, en nú eru fjórir
dagar liðnir frá því þeir réðust þar
inn.
Hópur sérhæfðra manna er
berst gegn hryðjuverkamönnum
var umhverfis bygginguna í dag,
en ekkert var gefið upp hvort
vegna misskilinnar afbrýðissemi
eiginmanna þeirra.
Þetta er í annað sinn nú á dög-
um, sem dávaldur er aðalpersónan
í dönsku sakamáli. Snemma á
sjöunda áratugnum var dávaldur-
inn Björn Schow Nielsen dæmdur
fyrir að hafa valdið því með dá-
leiðslu, að maður nokkur drap tvær
manneskjur í misheppnuðu banka-
ráni í Kaupmannahöfn.
Ýmislegt þykir dálítið skrýtið við
Kosningabandalagið hefur nú
aðeins fylgi 14% kjósenda en
íhaldsflokkur Margaret Thatchers
nýtur hins vegar stuðnings 47%,
aðeins 1% minna en þegar vin-
sældir stjórnarinnar voru hvað
mestar eftir sigurinn á Falklands-
ákvörðun hefði verið tekin um að
ráðast til atlögu.
Samningaviðræður við skæru-
iiðana hófust á laugardag, daginn
eftir að mennirnir 10 réðust til
inngöngu í bygginguna þar sem
105 manns sátu á ráðstefnu og
ræddu viðskiptamál. Einn vörður
lést er skæruliðarnir réðust inn og
tveir gíslar særðust.
Skæruliðarnir hafa hótað að
Dávaldurinn Ali Hamann
mál AIi Hamanns. Til dæmis það,
að engin kvennanna, sem kærðu
hann, 19 talsins, hrópaði á hjálp
þótt eiginmenn þeirra eða aðrir
sjúklingar væru staddir í næsta
herbergi við lækningastofuna.
Hamann, sem var niðurbrotinn
maður þegar dómurinn var kveðinn
upp, kallaði hann „óþverralegt
samsæri" og hefur áfrýjað honum
til hæstaréttar.
eyjum. Verkamannaflokkurinn
kemur honum næstur með 37%. í
aukakosningum að undanförnu
hefur kosningabandalagið fengið
til jafnaðar stuðning 25—35%
kjósenda.
drepa alla gíslana ef ekki verður
farið að kröfum þeirra, en þeir
hafa sett fram kröfur í átta liðum,
þ.á m. kröfu um lausn 80 manna er
þeir segja að séu pólitískir fangar
ríkisstjórnarinnar.
Stjórnvöld í Honduras hafa þrá-
faldlega tilkynnt að ekki sé um að
ræða neina pólitíska fanga í land-
inu.
Umsátrið í Hondúras:
Engin lausn í sjónmáli
San l'edro Sula, IfonduraN, 20. september. Al*.
Kosningabandalagið í Bret-
landi er aðeins með 14% fylgi
l.ondon, 20. september. AP.
FYLGI kosningabandalags jafnaðarmanna og frjálslyndra meðal bresks al-
mennings hefur ekki i annan tima verið minna en nú þegar í niðurstöðum
nýrrar skoðanakönnunar á fylgi bresku stjórnmálaflokkanna.
Olafur Noregskonungur. Myndin
var tekin við opinbera heimsókn
í Kaupmannahöfn fyrir átta ár-
um.
Ólafur
konungur
Noregs
í 25 ár
<>nIó, 20. tteplember. AP.
MARGRÉT Danadrottning
og Henrik prins komu í gær
til Oslóar með konungsskip-
inu „Dannebrog" til að vera
viðstödd hátíðahöld í tilefni
af því, að á morgun, þriðju-
dag, eru liðin 25 ár frá því að
Ólafur konungur tók við ríki
í Noregi. í dag voru væntan-
leg Karl Gústaf Svíakonung-
ur og drottning hans, Silvía,
og Mauno Koivisto, forseti
Finna. Fulltrúi íslendinga
verður Páll Ásgeir Tryggva-
son, sendiherra í Ósló.
I dag, mánudag, verður það
helst til hátíðabrigða, að
fríður herskipafloti mun
sigla inn Víkina, danskt,
sænskt, finnskt, breskt og 23
norsk, og 30 norskar herþot-
ur leika listir sínar í loftinu.
Skipin munu sigla framhjá
norsku konungssnekkjunni,
„Norge", og munu sjóliðarnir
1.600 heilsa Ólafi að her-
mannasið.
A morgun, þriðjudag, mun
Ólafur aka um miðborg
Óslóar í opnum vagni og vera
viðstaddur tvær hersýningar.
Hátíðahöldin fara eingöngu
fram í Ósló, en fyrr í sumar
gerði Ólafur víðreist um Nor-
eg og heilsaði upp á þegna
sína.
Ólafur konungur er 79 ára
að aldri. Hann tók við af föð-
ur sínum, Hákoni VII, þann
21. september árið 1957.