Morgunblaðið - 21.09.1982, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
29
Almennur félagsfundur hjá iðnrekendum:
Mótmælir harðlega hug-
myndum um styrkja-
og millifærslukerfi
„IÐNREKENDUM er ljóst að
rekstrarvandi útgerðarinnar er gíf-
urlegur. Þann vanda þarf að leysa á
raunhæfan og varanlega hátt en
ekki með millifærslum og uppbótum
sem bitna á öðrum atvinnugreinum
og skerða samkeppnisaðstöðu
þeirra," sagði Viglundur Þorsteins-
son, formaður Félags íslenskra iðn-
rekenda, í samtali við Mbl. í gær
vegna ályktunar sem samþykkt var
á almennum félagsfundi Félags ís-
lenskra iðnrekenda, sem sérstak-
lega var boðað til í gær vegna fram-
kominna hugmynda til lausnar
vanda útgerðarinnar. í ályktuninni
er hugmyndum um að innleitt verði
styrkja- og millifærslukerfi til lausn-
ar alvarlegum rekstrarvanda sjávar-
útvegsins harðlega mótmælt og
skorað á stjórnvöld að gripa til var-
anlegra og raunhæfra aðgerða til
lausnar vandans.
Víglundur sagði einnig: „Per-
sónulega verð ég að láta í ljós þá
skoðun að ég undrast hve þjóðin er
sinnulaus um þróun mála. Út-
vegsmenn hafa gripið til neyðar-
ráðstafana til þess að stöðva
gengdarlausan taprekstur. Sjáv-
arútvegsráðherra virðist leggja
ofurkapp á að brjóta niður sam-
stöðu þeirra og mér virðist þjóðin
fylgjast með því eins og kappleik
hvort honum tekst það eða hvort
samstaða útvegsmanna heldur. í
Víglundur Þorsteinsson
slíkum átökum verða engir sigur-
vegarar en þjóðin öll mun tapa,
nema að ríkisstjórnin grípi til
raunhæfra lausna á vandamálinu
hið bráðasta.“
Ályktun félagsfundar Félags ís-
lenskra iðnrekenda frá því í gær,
fer hér á eftir eins og hún var
samþykkt:
„Almennur félagsfundur í Fé-
lagi íslenskra iðnrekenda haldinn
20. september 1982 mótmælir
harðlega hugmyndum um að inn-
leitt verði styrkja- og millifærslu-
kerfi til lausnar alvarlegum
rekstrarvanda sjávarútvegsins.
Fundurinn telur slíkar aðgerðir
stórhættulegar þar sem þær
ganga í berhögg við þær efna-
hagslegu forsendur, sem þátttaka
okkar í fríverslun byggist á og all-
ir stjórnmálaflokkar viðurkenndu
að yrði að vera til staðar við inn-
göngu íslands í EFTA.
Þá bendir fundurinn á, að
styrkja- og millifærsluaðgerðir
muni viðhalda þeirri röngu geng-
isskráningu, sem á sl. 20 mánuð-
um hefur stórlega skert rekstr-
argrundvöll íslenskra samkeppn-
isatvinnuvega og útflutningsiðn-
aðar.
Með því að leysa vanda útgerðar
með styrkjum og millifærslum eru
stjórnvöld vísvitandi að flytja
fyrirliggjandi hættu á atvinnu-
leysi og gjaldþrotum í sjávarút-
vegi yfir á íslenskan iðnað. Slík
lausn er skammgóður vermir og
hrein ógnun við þá 28 þúsund ís-
lendinga, sem starfa í iðnaði.
Fundurinn skorar því á stjórn-
völd að grípa til varanlegra og
raunhæfra aðgerða til lausnar
rekstrarvanda útgerðarinnar."
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis:
Hvetur til markvissari iðn-
hönnunar með samkeppni
um íslenska iðnhönnun
Sigurður Þorsteinsson viðskiptafræóingur og Baldvin Tryggvason sparisjóós-
stjóri á hlaöamannafundinum í gær. Þar kom meóal annars fram aó sam-
keppnin um iónhönnunina hefur vakið mikla athygli hönnuóa og hafa fjölda-
margar fyrirspurnir borist frá hinum fjölbreytilegustu greinum.
íga tekin
„Þessi rétt er myndarlegt mann-
virki, alveg til fyrirmyndar," sögðu
tveir heiðursbændur sem voru í al-
menningnum að huga að fénu sínu.
Þetta voru þeir Magnús Ingvarsson
á Minna-Hofi og Ólafur Gíslason á
Hjarðarbrekku en báðir hafa þeir
verið fjallkóngar, Magnús í ein 16
ár. Þeir sögðu í samtali við Mbl. að
mikil þörf hefði verið á að byggja
nýja rétt. Á réttinni væri einn sá
besti frágangur sem þeir hefðu séð á
rétt og væri hún einnig mjög
skemmtilega staðsett. Þeir sögðust
ekkert sjá eftir gömlu réttinni, þó
í notkun
þeir ættu auðvitað margar góðar
minningar þaðan eftir að hafa kom-
ið þangað á hverju ári í hálfa öld,
enda gamla réttin orðin ónýt. Þeir
félagar sögðu að einhverjum hefði
dottið það í hug að byggja nýju rétt-
ina úr torfi og grjóti en það hefði
verið hin mesta vitleysa að þeirra
dómi, menn mættu ekki vera svo
fastir í gamla tímanum að þeir við-
urkenndu ekki breytta tima. Það
dytti t.d. engum manni í hug nú til
dags að byggja fjárhús úr torfi og
grjóti, sama ætti að gilda um rétta-
byggingar.
SKILAFRESTUR í samkeppni Spari-
sjóðs Reykjavíkur og nágrennis um
sérstaka iðnhönnun í tilefni hálfrar
aldar afmælis Sparisjóósins, rennur út
hinn 15. október næstkomandi. Dóm-
nefnd i samkeppninni skipa þrír
menn, þeir Hjalti Geir Kristjánsson,
fulltrúi Sparisjóósins, Þráinn Þor-
valdsson, fulltrúi Útflutningsmiðstöðv-
ar iðnaðarins, og danski hönnuðurinn
Jarob Jensen, sem meðal annars er
kunnur fyrir störf sin hjá Bang &
Olufsen.
Á blaðamannafundi sem efnt var
til í gær, sögðu þeir Baldvin
Tryggvason sparisjóðsstjóri og Sig-
urður Þorsteinsson viðskiptafræð-
ingur hjá sparisjóðnum, að tilgangur
samkeppninnar væri fyrst og fremst
sá að örva þann þátt íslensks iðnað-
ar, sem hvað mest hefði skort á að
sinnt væri í iðnaðaruppbyggingu
hérlendis. Með markvissri iðnhönn-
un nýtist sú þekking sem til sé í
iðngreinunum og um leið eigi að geta
opnast nýir markaðir fyrir íslenskan
iðnvarning, jafnt innanlands sem
utan. Góð islensk iðnhönnun geti
þannig stuðlað að því að iðnaðurinn
verði sá vaxtarbroddur í atvinnu-
uppbyggingu landsmanna sem von-
ast hafi verið til. Ljóst sé enda að
hvorki sjávarútvegur né landbúnað-
ur muni taka við því vinnuafli er á
næstu árum muni koma út á vinnu-
markaðinn. — Baldvin Tryggvason
sagði, að í þessum efnum væri eink-
um um tvennt að ræða, annars vegar
nýtingu raforkunnar, og hins vegar
íslenskt hugvit sem hagnýta mætti í
þágu iðnaðarins.
í samkeppninni verða veitt þrenn
verðlaun að upphæð 50, 25 og 10 þús-
und krónur. Þá verður þeim aðilum
er að verðlaunatillögunum standa
einnig eftir mati stjórnar
Sparisjóðsins gefinn kostur á fjár-
hagslegri aðstoð í formi lána eða
styrkja, enda sé þá komin á sam-
vinna framleiðanda og viðkomandi
hönnuðar um framleiðslu.
í tengslum við samkeppnina hefur
hönnuðurinn Jacob Jensen fallist á
að koma hingað til lands og flytja
hér fyrirlestur um samstarf iðnaðar
og iðnhönnuða í Danmörku. Jensen
er sem fyrr segir mjög kunnur hönn-
uður víða um heim og af mörgum
talinn einn fremsti hönnuður verald-
ar. Hefur hann meðal annars áunnið
sér frægð fyrir útlitshönnun á
hljómtækjum, svo sem hjá Bang &
Olufsen, nýrri gerð símtækja, hús-
gagna og fleiri hluta. Verk Jacobs
Jensens hafa verið sýnd víða um
heim, meðal annars í Museum of
Modern Art í New York. — Fyrir-
lestur Jensens verður haldinn hinn
15. október, sama dag og skilafrestur
í samkeppninni rennur út, en hér á
landi mun hann dveljast í hálfan
mánuð.
Magnús Ingvarsson, bóndi á Minna-Hofi.