Morgunblaðið - 21.09.1982, Síða 42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
Kappakstur:
Arnoux sigraði í Monza
— írinn Watsson og Finninn Keke Rosberg
berjast nú um heimsmeistaratitilinn
FRANSKI kappaksturskappinn
Rene Arnoux sigraöi í ítölsku
Grand Príx-kappaksturskeppn-
inni í Monza. Arnoux ekur Ren-
ault-bifreið, en hefur ákveöið aö
ganga til liös viö Ferrariflokkinn á
næsta ári.
í ööru sæti varö annar Frans-
maöur, Patrick Tambay, sem ek-
ur í Ferrari. Þriöji varö svo gamla
kempan Mario Andretti Banda-
ríkjunum á Ferrari, fjóröi írinn
John Watson á MacLaren-bifreiö
og ítalinn Michele Alboreto
fimmti á Tyrrel-bifreið.
Arnoux ók hringina 52 á
Monza-brautinni, en vegalengdin
er samtals 302,6 km, á einni klukk-
ustund 22:25,73 mínútum. Tambay
kom í mark 14,06 sekúndum síöar
og Andretti var 48,45 sek. á eftir
Arnoux.
Nú er aöeins eftir ein Grand
Prix-keppni á árinu og getur að-
eins (rinn Watson komist upp fyrir
Keke Rosberg Finnlandi í stiga-
keppninni um heimsmeistaratitil-
inn í kappakstri. Til þess þarf
Watson aö sigra í síðustu keppn-
inni og Rosberg aö vera stigalaus,
en ótrúlegt þykir aö svo fari.
Þess vegna stefnir allt í þaö aö
Finnar eignist sinn fyrsta heims-
meistara í kappakstri í formula
1-flokki. Rosberg hefur hlotið 42
stig, í ööru sæti er Frakkinn Didier
Pironi, sem slasaöist á miöju sumri
og keppir ekki meira, meö 39 stig
og Watson er þriöji meö 33 stig.
Frakkinn Alain Prost er með 31
stig og gamli jaxlinn Niki Lauda
fimmti meö 30 stig. Rene Arnoux
er í sjötta sæti meö 28 stig og
landi hans Patrick Tambay sjöundi
meö 25 stig. Frakkar eiga góöa
kappakstursmenn eins og sjá má
af þessu.
• Didier Pironi átti góöa möguleika á heimameiataratitlinum í „For-
mula 1“-kappakstri þegar hann varö fyrir slysi. Á myndinni má sjá hvar
veriö er aö bjarga Pironi út úr bíl hans.
Örn Eiösson:
„Það er mikils virði að
senda íþróttafólk á stórmót“
ÞRETTÁNDA Evrópumeistara-
mótiö í frjálsum íþróttum heyrir
nú sögunni til. Mótiö fór fram i
Aþenu dagana 6. til 12. septem-
ber sl. á nýjum og stórglæsi-
legum leikvangi. Bygging hans
stóö yfir í 30 mánuöi og kostnaö-
ur var rúmlega 80 millj. Banda-
ríkjadala. Leikvangurinn er ákaf-
lega fallegur og rúmar alls um 80
þúsund áhorfendur í sæti. Hann
var fullsetinn nær alla dagana
sem mótiö stóö yfir, alls munu
því rúmlega hálf milljón áhorf-
enda hafa fylgst meö keppninni,
auk hundruö milljóna í beinni út-
sendingu sjónvarps. Árangur var
frábær í flestum greinum og
nokkur heimsmet voru sett.
Fimm íslendingar voru skráöir til
keppni, en einn þeirra og sá sem
mestar vonir haföi um að blanda
sér í baráttu þeirra fremstu, Óskar
Jakobsson, boöaöi forföll vegna
meiösla í hendi. Óskar sagöi í bréfi
til undirritaös, aö hann haföi tekið
þessa ákvöröun í samráöi við þjálf-
ara sinn og lækni viö háskólann í
Austin í Texas, þar sem hann
stundar nám í vetur. Hann sagöi
einnig, aö hann heföi ekki áhuga á
aö keppa á stórmóti eins og EM
nema í góöri æfingu og viö 100%
heilsu. Þetta tel ég rétta og skyn-
samlega ákvöröun.
Eftirtaldir fjórir íslendingar tóku
því þátt í mótinu: Oddur Sigurös-
son, sem keppti í 400 m hlaupi,
Jón Diöriksson, í tveimur greinum,
800 og 1500 m hlaupi, Þórdís
Gísladóttir í hástökki og Einar
Vilhjálmsson í spjótkasti. Árangur
okkar fólks á mótinu var sem hér
segir:
Oddur Sigurösson hljóp í 4. riöli
undanrásanna í 400 metra hlaupi
ásamt 7 öörum hlaupurum og
meöal margra frægra keppinauta
(Frjaisar Itrúlllr)
hans var olympíumeistarinn Mark-
in frá Sovétríkjunum. Oddur hljóp
geysivel fyrstu 350 metrana og var
þá í ööru sæti, m.a. á undan Mark-
in. Hann varö þó aö gefa aöeins
eftir í lokin og lenti í 4. sæti á nýju
íslensku meti, 46,63 sek. Til marks
um þaö hvaö hlaupiö var jafnt, má
geta þess, aö munurinn á Oddi og
þeim sem sigraöi í riölinum var
13/100 úr sekúndu. Þrír fyrstu úr
hverjum riöli komust í undanúrslit
og einnig þeir fjórir, sem bestan
tíma hlutu af þeim, sem ekki voru
meöal þriggja bestu i hverjum riöli.
Oddur var einn af þeim og jafn-
framt meö 12. besta tímann af 30
keppendum, sem þátt tóku í 400
metra hlaupinu. Keppendur Finna
og Svía voru úr leik, en Daninn
Smedegaard mætti ekki. Oddi
tókst ekki aö komast í úrslit, en
frammistaða hans var til sóma. Viö
íslendingarnir vorum ekki einir um
þaö álit, heldur fulltrúar ýmissa
þjóöa, sem færöu það í tal viö
okkur.
Jón Diðriksson keppti bæöi í
800 og 1500 metra hlaupi. Honum
tókst ekki að komast áfram í und-
anúrslit, en stóö sig mjög þokka-
lega. Hann varö 23. af 29 kepp-
endum í 800 metra hlaupinu á
1:50,30 mín. og 22. af 30 keppend-
um í 1500 m hlaupinu á 3:44,07
mín. Hann sigraði m.a. annars
sænska meistarann Nissen í 800 m
og nokkra þekkta 1500 m hlaup-
ara.
Þórdís Gísladóttir stökk 1,80 m í
hástökki og átti mjög góöar til-
raunir viö 1,85 m. Hún varö 18. í
rööinni af 19 keppendum, sigraöi
gríska meistarann.
Einar Vilhjálmsson keppti í
spjótkasti og kastaöi 72,26 metra.
Hann varö 16. af 21 keppanda, og
sigraöi m.a. nýbakaöan danskan
methafa, Jelström, og hinn heims-
þekkta Finna, Sinersaari, sem
kastaö hefur vel yfir 90 metra.
Þetta var fyrsta stórmótiö, sem
Einar tekur þátt í.
Þó aö enginn íslendingur hafi
hlotiö verölaun frekar en keppend-
ur frá helmingi þeirra þjóöa sem
kepptu á EM, né komist í lokaúr-
slit, tel ég frammistööuna vel við-
unandi. Eins og allir vita, sem eitt-
hvaö fylgjast meö alþjóölegum
keppnisíþróttum, er ekkert til
sparaö af stórþjóöunum til aö
komast á efsta þrep heiðursins,
þ.e.a.s. verðlaunapallinn. Fjöldi
sérfræöinga fylgist meö afreks-
mönnunum, þeir þurfa ekkert aö
vinna, en hafa samt gnægö fjár.
Allar aöstæöur eru fyrsta flokks og
sé veöur slæmt í heimalandinu, þá
er fariö þangaö sem betur viörar í
æfingabúöir. Þetta eru margend-
urteknar staöreyndir, sem gjarnan
má benda á endrum og eins.
Veðráttan í Aþenu, þegar mótiö
stóö yfir, var góö, þó e.t.v. væri
fullheitt fyrir íslendinga. Þegar
keppnin fór fram var yfirleitt
33—35 stiga hiti. Skipulag sjálfrar
keppninnar var frábært, en nokk-
urrar taugaveiklunar gætti viö
komu íþróttafólksins, er leysa
þurfti hin fjölmörgu vandamál, sem
upp komu, en allt fór vel aö lokum.
Skylt er aö skýra frá því, aö þau
íslensku ungmenni, sem þátt tóku
í Evrópumeistaramótinu í Aþenu,
voru til sóma, jafnt innan sem utan
íþróttavallar. Þaö er líka mikils
virði, þegar íþróttafólk er sent á
stórmót eins og Evrópumeistara-
mótið svo sannarlega er.
örn Eiðason
• Kappakstursbifreiö Pironis, eftir aö hafa lent í árekstri á brautinni.
Hann mitti teljast heppinn aö komast lífs af. En hann ekur ekki
framar. Margir kunnir kappakstursmenn hafa látið lífiö í ár á kappakst-
ursbrautunum í heimsmeistarakeppninni. Það er ekki aö ástæöulausu
sem „Formula 1“-kappaksturinn er kallaður leikurinn viö dauöann.
, Fimm sinnum
íslandsmeistari
á þremur árum
• Heimir Karlsson fimm sinnum
islandsmeistari á þremur árum,
þaö er vel aö verki vorið.
• Þeir eru margir íþróttamenn-
irnir sem aldrei ná því eftirsótta
takmarki aö veröa íslandsmeist-
arar í þeim greinum sem þeir
stunda, þrátt fyrir að hafa verið í
íþróttum um árabil. En þaö á ekki
viö alla. Áreiðanlega er þaö eins-
dæmi aö íþróttamaður verði
fimm sinnum íslandsmeistari í
boltaíþróttum meö félagi sínu á
þremur árum. En það hefur Vík-
ingurinn Heimir Karlsson afrek-
aö. Hann hefur þrívegis veriö ís-
landsmeistari meö meistaraflokki
í handknattleik og tvívegis ís-
landsmeistari meö fólagi sínu í
knattspyrnu. Heimir varð jafn-
framt markakóngur íslandsmóts-
ins í knattspyrnu í ár ásamt Eyja-
manninum Sigurlási Þorleifssyni.
— Ég er ekki nægllega ánægö-
ur meö frammistöðu mina í
knattspyrnunni í sumar, og stefni
aö því aö gera enn betur, sagöi
Heimir þegar Mbl. spjallaöi viö
hann um íslandsmótið í knatt-
spyrnu sem var aö líöa.
— Ég er alls enginn miöherji.
Ég er eiginlega í þessari stööu til
bráöabirgöa. Þaö á betur viö mig
aö leika á miöjunni. Mótiö í heiid
var erfitt fyrir okkur í Víking. Viö
lékum um of undir pressu og þaö
var ekki mikill frjáls bolti hjá okkur.
Þetta var vegna þess aö allir leggja
höfuðáhersluna á aö sigra (s-
landsmeistarana. Þaö er alltaf erf-
itt aö verja titilinn. En sem betur
fer tókst okkur þaö. Erfiðustu mót-
herjar okkar í mótinu voru Skaga-
menn aö mínum dómi. í heild ein-
kenndist (slandsmótiö af mikilli
baráttu enda hvert stig dýrmætt í
svona jöfnu móti sem var aö Ijúka,
sagði Heimir.
Heimir fær ekki mikla hvíld þó
svo aö knattspyrnuvertíöinni sé aö
Ijúka. Hann fer af fullum krafti í
handboltann í vetur og er því eins
og fleiri á fullri ferö áriö um kring í
keppnisíþróttunum.
— ÞR
Magnús
seldur á
50 þús. mörk
EINS og skýrt hefur veriö frá var
Magnús Bergs seldur nýlega til
Tongaren í Belgíu frá Borussia
Dortmund. Aö sögn þýskra blaöa
var söluverö Magnúsar 50 þús-
und þýsk mörk. Sjá úrklippu hér
aö neöan.
— ÞR.