Morgunblaðið - 21.09.1982, Qupperneq 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
Manchester Utd. eitt í efsta sætinu
■ _ ■ ______ »>_____•__r.j Jbj %
— Ipswich rekur lestina - eina liðið í 1. deild án sigurs
— meistarar Liverpool sýndu sínar bestu hliðar í Swansea
þessar mundir, en liðið átti þó oft
undir högg aö sækja gegn City.
Garry Shaw skoraði sigurmark
Villa á 38. mínútu, skoraöi af stuttu
færi eftir að Peter Withe haföi snú-
iö á vörn City og sent knöttinn til
hans.
Watford gaf lítiö eitt eftir í
toppbaráttunni á laugardaginn.
Liöiö sótti Nottingham Forest heim
og er Forest jafnan erfitt liö heim
að sækja. Watford fékk líka aö
reyna þaö, hiö unga liö Forest náði
sér vel á strik og vann minni sigur
en efni stóöu til. Hinn ungi og efni-
legi Colin Walsh skoraöi fyrra
mark Forest meö glæsilegu lang-
skoti á 25. mínútu, en Garry Birtles
bætti ööru viö í síöari hálfleik,
fyrsta mark hans fyrir Forest síöan
hann gekk til liös viö félagið á ný.
Besta færi Watford var vítaspyrna
sem Luther Blissett tók í fyrri hálf-
leik, en hinn hollenski markvörður
Forest, Hans Van Breukelen, varöi
snilldarlega.
Þetta var góöur dagur fyrir
Lundúnaliöin, öll þrjú unnu leiki
sína, var þó um erfiöa útileiki aö
ræöa hjá Tottenham og West
Ham. Tottenham sótti Sunderland
heim og þurfti oft aö nauöverjast
gegn ungu og frísku liöi Sunder-
land. En leikmenn Tottenham
náöu mörgum efnilegum skyndi-
sóknum og úr einni kom sigurmark
leiksins. Markiö skoraöi Garry
Brooke á 25. mínútu, hann skoraöi
eftir aö hafa fengiö glæsilega
sendingu frá Ricardo Villa. West
Ham skoraði tvívegis á fyrstu átta
mínútunum gegn WBA. Sandy
MANCHESTER Utd. snaraði sór í efsta sæti 1. deíldarínnar ensku á
laugardaginn, er liðið sigraði Southampton 1—0 á útivelli. Sigurmark
United skoraði enginn annar en gamla kempan Lou Macarí, en hann
kom inn á í fyrri hálfleik sem varamaður og skoraöi sigurmarkiö meö
skalla snemma í síöari hálfleik. Macari kom inn á fyrir Steve Coppell,
sem meíddist illa á hné. „Þetta eru sömu meiðlin sem Steve varð fyirr
í landsleiknum gegn Ungverjalandi á síðasta keppnistímabili. Hann
missti þá úr margar vikur vegna þeirra. Hann lenti í samstuöi við
einhvern hjá Southampton og meiöslin tóku sig upp. „Viö vitum ekki
hvenær hann getur leikið meö á ný, þetta er mikiö áfall fyrir liðið,“
sagöi Ron Atkinson í samtali við AP á sunnudaginn. Leikur liðanna var
jafn og tvísýnn lengst af, en heimaliöið fékk ákjósanlegt tækifæri til aö
ná forystunni í fyrri hálfleik, er því bauðst vítaspyrna. Alan Ball spreytti
sig, en brenndi af. Mörgum þykir fróðlegt aö renna augunum yfir neðri
hluta 1. deildarínnar, en þar eru nú nokkur lið sem flestir höfðu spáð
allt öðru hlutskipti og betra. Nægir að nefna Southampton og Ipswich.
Lítum á úrslit leikja:
Arsenal — N. County 2—0
Birmingham — Coventry 1—0
Everton — Norwich 1 — 1
Ipswich — Stoke 2—3
Luton — Brighton 5—0
Man. City — Aston Villa 0—1
Nott. Forest — Watford 2—0
Southampton — Man. Utd. 0—1
Sunderland — Tottenham 0—1
Swansea — Liverpool 0—3
WBA — West Ham 1—2
Liverpool sótti Swansea heim
og vann eins og sjá má hér aö ofan
stórsigur. Liverpool reyndist leik-
mönnum Swansea íviö erfiöari biti
aö kyngja en Möltuliöiö Slieme
Wanderers sem Swansea burstaöi
12—0 í Evrópukeppni bikarhafa
nokkrum dögum áður. Liö
Swansea viröist langt frá því eins
sterkt og á síöasta keppnistímabili
og Liverpool lék heimaliöiö lengst
af sundur og saman. Markakóng-
urinn lan Rush skoraöi tvö falleg
mörk í fyrri hálfleik, nánar tiltekiö á
tuttugu fyrstu mínútunum. Náöi
Swansea sér aldrei á strik eftir þaö
og Craig Johnstone bætti þriöja
markinu viö sex mínútum fyrir
leikslok.
Manchester City, sem var í efsta
sætinu áöur en sjötta umferöin
hófst, sat ekki lengi í hásætinu.
Liöiö fékk Aston Villa í heimsókn
og vann Villa þar sinn fyrsta útisig-
ur á tímabilinu, City tapaöi þar
meö sínum fyrsta heimaleik. Villa
viröist vera t töluveröri sókn um
• Við miklu var að búast af liðí Southampton á þassu kappnistímabiii, en þær vonir manna hafa brugöist.
Annar frá vinstri er Alan Ball, en hann brenndi af víti á laugardaginn.
sér í mjúkinn hjá Robson meö því
aö skora glæsilegt mark á 20. mín-
útu. John Hollins bætti síöara
markinu viö á síöustu mínútu leiks-
ins, er hann sendi vítaspyrnu rétta
boöleiö.
Mörgum þykir Ipswich mega
muna sinn fífil fegri og má þaö til
sanns vegar færa. Liðið hefur ekki
unniö leik til þessa í 1. deild, eina
liö deildarinnar sem þaö hefur ekki
gert, auk þess sem liöið er komiö
hálfa leið út úr UEFA-keppninni
eftir 0—3 skell gegn Roma í síö-
ustu viku. Stoke er hins vegar eitt
þeirra liöa sem komiö hafa mjög á
óvart í haust og liðiö vann mjög
athyglisveröan sigur gegn Ipswich.
Micky Thomas skoraöi fyrsta
markiö fyrir Stoke og Paul
Maguire bætti ööru viö áöur en
þeir Alan Brazil og John Wark
náðu aö jafna metin fyrir Ipswich
áöur en blásiö var til leikhlés.
Maguire skoraöi sigurmark Stoke
úr vítaspyrnu á þriöju mínútu síöari
hálfleiks.
Birmingham vann sinn fyrsta
sigur á haustinu, jafnframt því sem
liöið lék sinn fyrsta leik án þess aö
fá á sig mark. Þaö var í raun meiri
framför en ætla mætti í fyrstu, því
liöiö haföi fengiö á sig 17 mörk í
fimm fyrstu leikjunum, sem er milli
3 og 4 mörk aö meöaltali í leik.
Coventry varö fyrir baröinu á
Birmingham og þó aö um spenn-
andi leik nágrannaliöa hafi veriö
aö ræöa voru áhorfendur aöeins
rúmlega 10.000 talsins. Tony Ev-
ans skoraöi sigurmark Birming-
ham með skalla eftir fyrirgjöf Kevin
Dillons á 44. mínútu. Fleiri færi
fékk liöiö sem ekki nýttust og hin
slaka vörn liösins opnaöist nokkr-
um sinnum eins og viö var aö bú-
ast. Framherjar Coventry náöu
hins vegar ekki aö nýta sér færin.
Luton var þaö lið sem flest
mörkin skoraöi á laugardaginn og
var þaö hiö slaka liö Brighton sem
skellinn fékk. Suöur-Afríkumaöur-
Inn Brian Stein var hetja dagsins,
hann skoraöi þrjú glæsileg mörk.
Hin mörkin tvö skoruðu þeir
Wayne Turner og David Moss.
Ungur miövöröur hjá Norwich,
Paul Haylock, skoraöi sitt fyrsta
mark í 1. deild, er hann skoraöi
fyrir Norwich á 58. mínútu eftir
fyrirgjöf Mark Barhams. Fjórum
mínútum áöur haföi Alan Irwine
skoraði fyrir Everton, en fleiri mörk
voru ekki skoruö í þessum fremur
leiöinlega leik aö sögn AP. AP gat
þess einnig aö fjörlegasta atvik
laugardagsins hafi átt sér staö á
City Ground í Nottingham þar sem
Forest og Watford áttust við. Þar
varöi hinn hollenski markvöröur
Forest vítaspyrnu í fyrri hálfleik, en
hann var varla risinn á fætur, er
áhorfandi klæddur sem trúöur
hljóp inn á völlinn og þeysti fram
og til baka meö lögguna á hælun-
um. Hvorki gekk né rak fyrr en
sjálfur Brian Clough, foringi For-
est, skarst í leikinn, hann náöi
trúönum og hugöist snúa hann
niöur meö fantalegu hálstakl.
Trúöurinn tók vel á móti sem von-
legt var og uröu af talsverðar
stympingar áöur en löggan skarst í
leikinn og leiddi trúöinn burt í járn-
um.
Lítum nú á úrslit og fleira varö-
andi 2. deild:
Barnsley 3 (Glavin 2, Parker) —
Burnley O
Blackburn 3 (Garner, Bell, Barton)
— Leicester 1 (Smith)
Bolton 0 — Wolverhampton 1 (Liv-
ingstone)
Carlisle 4 (Poskett 4) — Cr. Palace
1 (Hinzelwood)
Charlton 0 — Grimsby 1 (Kil-
moore)
Chelsea 2 (Speedie 2) — Oldham
0
Leeds 2 (F.Grey, Worthington) —
Derby 1 (Brolly)
Middlesbrough 1 (Sheerer) —
Fulham 4 (Davies 2, Lewington,
Houghton)
QPR 0 — Sheffield Wed. 2
(McCulioch, Bannister)
Rotherham 2 (Fern 2) — Cam-
bridge 0
Shrewsbury 2 (Bates, Brown) —
Newcastle 1 (Varadi)
Clarke skoraöi strax á 3. mínútu
og Belgíumaðurinn Van Der Elst
bætti síðara markinu viö fimm
mínútum síöar. WBA sótti í sig
veðriö og Peter Eastoe minnkaöi
muninn á 41. mínútu. Liöin sóttu á
báöa bóga i síöari hálfleik, en
fréttaskeyti voru á því aö West
Ham hafi veröskuldað sigurinn. Þá
er aö geta Arsenal, þriöja Lund-
únaliösins í 1. deild. Liöiö fékk
Notts County í heimsókn og náöi
gestrisnin ekki út á leikvanginn.
Enski landsliöseinvaldurinn Bobby
Robson var mættur til aö fylgjast
meö Graham Rix og Ken Sansom
og báöir kunnu því vel, léku frá-
bærlega. Einkum þó Rix, sem kom
miðherji hjé Luton. Stein skoraði
þrennu fyrir liöið gegn Brighton.
I 1. DEILD
Manche8ter lltd. 6 5 0 1 13 5 15
Liverpool 6 4 2 0 14 6 14
Watford 6 4 0 2 II 5 12
Stoke 6 4 0 2 13 9 12
Manchester City 6 4 0 2 6 4 12
West llam 631211 5 10
Tottenham 6 3 1 2 13 8 10
west Bromwich 6 3 0 3 12 8 9
NoUhingham For. 6 3 0 3 12 12 9
A.ston Villa 6 3 0 3 10 11 9
Luton 6 2 2 2 16 14 8
Notts ('ounty 6 2 2 2 6 8 8
Kverton 6 2 1 3 10 7 7
Sunderland 6 2 1 3 7 7 7
Arsenal 6 2 1 3 6 6 7
Swansea 6213 8 10 7
Coventry 6 2 1 3 4 6 7
Brighton 6213 5 17 7
Norwich 6132 9 10 6
Southampton 6114 3 13 4
Birmingham 6114 3 17 4
Ipuwich 6033 711 3
2. DEILD
Wolverhampton 6 4 2 0 10 1 14
Grimsby 5 4 1 0 12 3 13
Shefrield Wed. 5 4 0 1 13 5 12
Fulham 532011 3 11
Leeds United 5 3 2 0 7 4 11
Queen’s Park 6 3 1 2 8 6 10
('helsea 6 2 3 1 5 3 9
Kotherham 6 2 3 1 9 8 9
Crystal Palace 5 2 2 1 8 8 8
Newcastle (Jtd. 6 2 2 2 7 8 8
Leicester 6 2 1 3 12 8 7
Burnley 5 2 1 2 9 7 7
Barnsley 5 13 1 6 5 6
(arlisle 5 2 0 3 10 14 6
Blacburn R. 6204 8 13 6
Oldham 5 1 2 2 3 5 5
( ambridge 6114 6 11 4
Bolton 5 113 4 9 4
Derby 5113 4 10 4
Shrewsbury 5 1 0 4 3 7 3
(harlton 5104 4 13 3
Middlesborugh 5023 5 13 2
'Qi