Morgunblaðið - 21.09.1982, Side 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
Júlíus Jónsson
Minningarorð
Júlíus Jónsson var fæddur 19.
júlí 1908 á Klukkulandi á Ingj-
aldssandi, sonur hjónanna Guð-
rúnar Sigurðardóttur og Jóns Ein-
arssonar bónda þar. Þrír voru þeir
bræður: Sigurgeir, Júlíus og Þor-
kell, og virðast þau Guðrún og Jón
hafa búið þar góðu búi en fluttu
þaðan fljótt og settust að í Leyni-
mýri sunnan Reykjavíkur, og
stunduðu þar búskap, og ólust þar
upp synir þeirra þrír. Júlíus lézt
13. þ.m.
Júlíus var hraustur í æsku og
traustur til allra verka, ötull og
verklaginn. Hann réðst ungur til
Mjólkurfélags Reykjavíkur sem
bílstjóri, en ekki stóð það starf
lengi, því stuttu síðar varð hann
sérleyfishafi á leiðinni Reykjavík,
Kjalarnes, Kjós og stundaði það
með sama hætti svo að aldrei bar
neitt það til sem síður skyldi. Og
liðu svo rúmlega tuttugu ár, en
þegar því var lokið gerðist hann
leigubílstjóri hjá Bæjarleiðum.
Júlíus giftist ungur Guðríði
Hansdóttur austanpósts Hannes-
sonar. Brúðkaupið stóð 6. desem-
ber 1930 og áttu þau fyrst heimili
á Grettisgötu en síðar í húsi
Kristínar, móður Guðríðar,
Leifsgötu 25, og fæddust þar börn
þeirra fjögur: Hans, Jón Gunnar,
Birna og Kristín. Eru þau öll gift
og búsett hérna í borginni, nema
Hans og Anna kona hans. Þau eru
ráðsmenn við Héraðsskólann á
Reykjanesi við ísafjarðardjúp.
Síðar byggðu þau Júlíus og Guð-
ríður sér hús á Laugateig 42 og
átti hún þar heima til æviloka.
Kristín móðir Guðríðar var
Hjálmsdóttir, bónda í Þingnesi
Jónssonar, og Guðríðar Jónsdótt-
ur frá Deildartungu, og bjuggu
þau stórbúi í Þingnesi. Guðríður
rækti vel húsmóðurhlutverk sitt,
var glaðlynd og bjartsýn, góð
eiginkona og móðir. Sátu við syst-
urnar þar stundum dýrindis veisl-
ur sem ég ætla að Guðríður hafi
Afmælis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að aímælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. I minn-
ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð
og með góðu línubili.
útbúið sjálf, og ég minnist þess
hve Júlíus var hlýlegur og við-
mótsgóður þó við værum annars
ekki mikið kunnug að máli.
Og er nú þetta góða heimili
þeirra horfið og það sem einu
sinni hverfur kemur aldrei aftur.
Horfið er Hanshús, aðeins einn
maður eftir af þeim sem þar
bjuggu, horfin Kristín, hin bók-
vísa kona, horfinn Hans, hið
vammlausa prúðmenni, hinn ötuli,
trausti og natni yfirmaður ferða
póstvagnanna um austursýslurn-
ar, sem aldrei hlekktist á. Og svo
ég víki lengra aftur í tímann: horf-
ið er heimili afa og ömmu Guðríð-
ar Hansdóttur, Þingnesheimilið,
hið gestrisna og hjálpfúsa fólk.
Það er horfið þaðan, og horfin
systkin Guðríðar, nema Óskar.
Önnur kona Júlíusar var Ásta
Magnúsdóttir, prests á Mosfelli,
og lifir hún hann. Nýjar kynslóðir
komnar fram.
Frú Ástu, börnum Júlíusar og
barnabörnum og öðrum nánum
ættingjum og vinum votta ég sam-
úð við fráfall hans.
Málfríður Einarsdóttir
+
DR. KRISTJÁN ELDJÁRN,
fyrrverandi forseti fslands,
sem lést 14. september sl., verður jarösunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík fimmtudaginn 23. september, kl. 14.00.
Rlkisatjórn fslands.
+
Eiginkona mín, móöir okkar og dóttir,
SIGRÚN GUÐBJARNARDÓTTIR,
lést í Landakotsspítala 18. september.
Gunnar Pétursson,
Sigríöur Gunnarsdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir,
Sigríöur Bjarnadóttir.
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
HALLGRÍMUR ÞÓRHALLSSON,
Vogum, Mývatnssveit,
andaöist laugardaginn 18. september.
Anna Skarphóöinsdóttir og börn.
+
Faöir minn, tengdafaöir og afi,
JÓN BERGMANN STEFÁNSSON,
Grettisgötu 94,
lést í Borgarspítalanum laugardaginn 18. september.
Stefán Jónsson, Oddrún Gunnarsdóttir,
Svandís Ósk Stefánsdóttir, Gunnar Stefénsson.
★
★
★
★
★
í fyrra sigraði Fram írska liöiö Dundalk. Hvaö gerist núna?
Fyrstu áhorfendur fá glæsilegt Frarri-plakat.
Merki fyrir knattspyrnuþrautir K.S.Í. afhent í leikhléi.
Eini raunhæfi möguleikinn á íslenzkum sigri í ár.
Johnny Giles stjórnar írska liöinu.
UEFA-keppnin 1982/1983
AÐALLEIKVANGUR LAUGARDA
miðvikudaginn 22. september kl. 17.30:
SHAMROCK
ROVERS FC <t
FRÁ DUBLIN A IRLANDI