Morgunblaðið - 21.09.1982, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1982
47
„Sigfúsardag-
ur“ á Húsavík
ilúsavík, 20. september
SIGFÚSARDAG má telja sunnudag-
inn 19. september því aö þá var
skemmt með sönglögum eftir Sigfús
Halldórsson og sýning var í Safna-
húsinu á vatnslitamyndum eftir
hann.
I félagsheimilinu söng Frið-
björn G. Jónsson lög eftir Sigfús
við undirleik höfundar og Hlín
Bolladóttir las úr bók hans, sem
kom út í fyrra. í Safnahúsinu
sýndi Sigfús 45 vatnslitamyndir,
allar málaðar á Húsavík. Að þessu
öllu var mikil aðsókn og góður
rómur gerður að verkum Sigfúsar
og flutningi listafólkins.
Fréttaritari.
Nýja Bíó
sýnir Mitchell
NÝJA BÍÓ hefur hafið sýningar á
kvikmyndinni „Mitchell“, sem fjall-
ar um hörkutól, sem ber það nafn.
Þetta er nýleg bandarísk leynilög-
reglumynd, sem kvikmyndahúsið
segir „æsispennandi“.
Aðalhlutverk í myndinni leika
Joe Don Baker, Marin Balsam,
John Saxon og Linda Evans. Leik-
stjóri er Andrew McLagen. Sögu-
þráður myndarinnar er um bar-
áttu við heróinsmyglara og annan
glæpalýð.
Úr kvikmyndinni Mitchell
Samhygð með fundi
í DAG, þriðjudaginn 21. september, Hótel Hekla,
verða árstíðarfundir Samhygðar Rauðarárstíg 18 kl. 20.30
haldnir á eftirtöldum stöðum: Á fundinum verður skemmtun
Djúpið í Hafnarstræti kl. 20.00 og kynning á markmiðum Sam-
Fríkirkjuveg 11 kl. 20.30 hygðar.
Atkvæði talin á skrifstofu BSRB í gær.
Atkvæðagreiðsla um kjarasamninga BSRB:
Ljóst að samningur-
inn verður samþykktur
TALNING atkvæða í atkvæðagreiðslu
BSRB um aðalkjarasamning hófst i
gær og lýkur í dag. Alls hafa verið
talin 7.774 atkvæði, fylgjandi samn-
ingnum eru 5.302, á móti 2.105, en
auðir seðlar og ógildir eru 367.
í gær höfðu skrifstofu BSRB bor-
izt alls 8.311 atkvæði en á kjörskrá
eru 11.423. Á sjötta hundrað at-
kvæða af þeim, sem borizt hafa, eru
enn ótalin og verður þeim blandað
saman við atkvæði, sem eiga eftir að
berast utan af landi í pósti og frá
ýmsum aðildarfélögum og verða tal-
in í dag. Að sögn starfsmanna BSRB
bendir staðan ótvírætt til þess, að
samningurinn verði samþykktur.
Sýning Hauks og
Harðar framlengd
SÝNING Hauks og Haröar, Gallery
Lækjartorgi, verður framlengd til
nk. fimmtudags, 23. september.
Aðsókn að sýningunni hefur
verið góð og hafa nokkur verkanna
selst, m.a. næst dýrasta verkið á
kr. 100.000.-.
Undir lok sýningarinnar ákváðu
listamennirnir að sýna 7 míkró
relíf-þrykkmyndir er hafa ekki áð-
ur verið til sýnis. Er hver mynd
gerð í 3—7 eintökum, en flest
þessara eintaka eru nú þegar seld.
Sýningin er opin daglega frá
14-22.
(Krétutilkjnning.)
/
EROI3*
kr.1250.-
ERO - fyrir alla sem vilja vernda bak sitt
Hzdarstilling á baki
og setu.
Veltibak
ERO DAI5’
kr.I950.
ERO CD15
kr. 2900.-
Hædarstillingr
og setu.
Veltibak
Veltiseta
Hædarstilling á baki
og setu.
Veltibak
Veltiseta
ERO stólarnir veita baki þínu réttan stuðning og koma í veg fyrir
óeðlilega þreytu og spennu í hryggnum.
Þeir hafa alla yfirburði fullkomnustu stóla en eru engu að síður á
einstaklega lágu verði.
%
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
STEINARS HF.
SKEIRJNNI 6 - RVÍK - SÍMAR: 33590, 35110
Stóðst gæðaprófun Teknologisk institut í Noregi.
Kennsla hefst í byrjun október.
Byrjendaflokkar: Tvisvar í viku.
Framhaldsflokkar: Tvisvar—þrisvar í viku.
Opnir flokkar: Einu sinni í viku.
Aöalkennarar: Sigríður Ármann,
Ásta Björnsdóttir.
Innritun í síma: 72154.
BRLLETSKOLI
5IGRÍORR RRmflnn
SKULAGÖTll 32-34 OOO
VANTAR ÞIG VINNU (n)
VANTAR ÞIG FÓLK í
tP
Þl AIGLVSIR l'.M AI.I.T
LAND ÞEGAR Þl Al G-
I.YSIR I MORGUNBI.ADINl