Morgunblaðið - 27.11.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
7
Prófkjör
Alþýðuflokksins
Kosningaskrifstofa
Bjarna
Guðnasonar
er aö Langholtsvegi 115, símar
81066 — 82023.
Opiö laugardag og sunnudag.
Bjarni í 1. sæti
Stuðningsmenn
Vinahjálp
Jólabazar Vinahjálpar veröur að
Hótel Sögu, á morgun sunnudaginn
28. nóvember kl. 2 e.h. Fallegar
jólaskreytingar. Handavinna og
sælgæti. Ávísanir leystar út eftir
mánaðamót.
Hefur verið reyndur á ís-
landi í öllum veðráttum og
virkað óaðfinnanlega.
Hentar vel í nýbyggingar,
sumarbústaði og eldri
hús. Hitar útiloftiö áður en
þaö fer út í herbergið, og
virkar þá bæði sem loft-
ræstikerfi og hitunartæki.
Fæst í mismunandi út-
færslum. Þremur stærð-
um. í horn eöa á vegg.
Þér klæðið arininn að eig-
in ósk. Viö leiöbeinum
meö val og veitum allar
upplýsingar.
Góðar leiðbeiningar um
uppsetningu fylgja. Sam-
þykktur af Brunamála-
stofnun íslands. Hringið
og við sendum upplýs-
ingar.
P. O. BOX 330 - 202 KÓPAVOGI - ICELAND
Kvöld- og helgarsími 46100.
SUPERFIRE
ARINNINN
í glerhúsi?
Einstæður kostur
Blaðamenn búa við þann einstæða kost í störfum sínum, að
þeir leggja verk sín daglega undir dóm lesenda. i þessu felst
í senn aðhald og styrkur. Enginn blaðamaöur sem vill láta
taka mark á sér fer vísvitandi með rangt mál. Þeir, sem
halda því fram, að blaðamenn misfari með staðreyndir, geta
gert það meö því að vísa til þess sem birst hefur, en þeir
verða jafnframt að færa rök fyrir máli sínu. í Staksteinum í
dag eru birtar tvær setningar úr málsvörn Helga H. Jónsson-
ar, fréttamanns, sem vildi láta loka framsóknarþinginu fyrir
blaðamönnum. Þar dylgjar hann um fréttir Morgunblaðsins
af þessu þingi og tilgang blaðsins með því að hafa þar
blaðamann. Helgi H. Jónsson færir engin rök fyrir máli sínu.
Skrifar hann sem framsóknarmaður eða fréttamaöur?
Helgi H. Jónsson, frétta-
maöur hjá útvarpinu. hefur
sent öllum dagblöðunum
grein, þar sem hann heldur
uppi vömum fyrir þá af-
stöðu sína á flokksþingi
framsóknarmanna á dög-
unum, að þinginu bæri að
loka fyrir blaöamönnum.
Af þessu tilefni ályktaði
stjórn Blaöamannafélags-
ins gegn sjónarmiðum
Helga. Telur hann þaö
mikla bíræfni hjá stjórn-
inni að samþykkja slíka
ályktun án þess að leita
fyrst til sín (Helga H. Jóns-
sonar, fréttamanns) og fá
hjá honum þau rök, sem
hann hefur uppi lokunar-
máli sínu til stuðnings. í
þessari grein, sem nú hefur
birst meðal annars hér í
blaðinu, færir Helgi svo
fram sín rök. Þar er meðal
annars að finna þessar
setningan
„Hitt er annað mál, þótt
einhverjir stjórnarmanna
Bl (Blaðamannafélags ís-
lands, innsk. Staksteinar)
kjósi kannski að láta sem
þeir viti það ekki, að sum-
um íslensku blaöanna
hættir á stundum til þess
að sjá atburöi í gegnum
pólitiskt sjóngler — ég tala
nú ekki um atburði á borö
við flokksþing annarra
flokka en þess sem við-
komandi blað styður...
Og tæpast fer hjá því, að
einhverjum detti í hug, að
áhugi Morgunblaðsins á
umræðum pólitískra and-
stæðinga eigi sér hugsan-
lega fleiri orsakir en þá
eina að flytja af þeim hlut-
lausar og málefnalegar
fréttir. Eða hvað?“
Eins og kunnugt er láta
fréttamenn útvarps jafnan
eins og þeir standi utan og
ofan við þjóðlífið þegar
þeir birtast á öldum Ijós-
vakans, síst af öllu lúti þeir
svo lágt að draga taum eins
fiokks, einstaklings eða
stefnu fram yfir aðra. En
menn hljóta að spyrja eftir
framgöngu Helga H. Jóns-
sonar, fréttamanns, í lok-
unarmálinu á flokksþingi
framsóknarmanna, þar
sem hann var meðal full-
trúa, enda einn af áhrifa-
mönnum flokksins og
varaþingmaður, hvort hann
sem fréttamaður sjái aldrei
„atburði í gegnum pólitískt
sjóngler"? Kemur fram-
sóknarandinn aðeins yfir
hann á þingum framsókn-
armanna? Hvort skrifar
Helgi H. Jónsson grein
sína sem framsóknarmaö-
ur eða fréttamaður? Eða er
hún kannski skrifuö í gler-
húsi?
„Rjóminn af
róttæklingum“
þingar
Lítið hefur verið sagt frá
svokallaðri landsráðstefnu
Samtaka herstöðvaand-
stæðinga, sem efnt var til
9.—10. október sl. I nýj-
asta tölublaöi Verkalýðs-
blaðsins, setn dagsett er
22. nóvember, segir ÞOA
loksins fréttir af þessari
landsráðstefnu. Hann seg-
ir, að hún hafi verið með
„fámennasta og daufasta
móti" og ba'tir við: „Fyrstu
ráðstefnur samtakanna
voru æði stormasamar, en
nú virðist lognmollan vera
búin að ná yfirhöndinni."
Segir ÞOÁ, að innan
Samtaka herstöðvaand-
stæðinga skorti menn
„sjálfsrýni, sjálfsmat og |
sjálfsaga" og þar ríki jafn- I
framt „virðingarleysi fyrir j
skoðunum annarra". I !
samtökunum sé ekki vægt
að segja „hug sinn allan"
eða leggja fram „efasemd-
ir sínar" án þess „að verða
sér til skammar". Þá segir
ÞÖÁ:
„Æðsta forysta Alþýðu-
bandalagsins skrópaði að
þessu sinni og var það útaf
fyrir sig ágætt.
Enginn þingmaður trufi-
aði ráðstefnuna, en ýmsir
urðu til að senda þeim tón-
inn. Æskulýðsnefnd AB
(Alþýðubandalagsins,
innsk. Staksteina) fékk
einnig harðar ákúrur fyrir
að stinga af með gróða af
veitingasölu á Miklatúns-
fundinum, en sú ágæta
nefnd var sömuleiðis ijar-
verandi á ráðstefnunni.
Engar bjartsýnisraddir
heyrðust um að hermálið
muni vinnast í þingsölum í
bráð."
Enn segir ÞÖÁ: „Það
má furðu sæta, að á ráð-
stefnu þessari, þar sem
ætla má að rjóminn af rótt-
æklingum iandsins sé sam-
an kominn, skyldi ekki
vera minnst á heimskrepp-
una og þátt efnahagsást-
ands og hagkerfa í mögnun
ófriðar, heldur. fyrst og
fremst einblint á vopn og
hernaðarmannvirki. Orðið
heimsvaldastefna er nú
máð út úr orðabók samtak-
anna nema sem innantómt
skammaryrði gegn Banda-
ríkjunum einum í munni
einstakra Trotski-aðdá-
enda."
Og að síðustu er rétt að
birta þexsa klausu úr fund-
argerð I>ÖÁ: „Að venju var
afar lítið fjallað um þátt
Sovétríkjanna í að kynda
ófriðarbálið. l>ó fer í vöxt
að heina spjótunum ekki
einungis að Bandaríkjun-
um og NATO, heldur einn-
ig að stórveldunum og
jafnvel risaveldununi báð-
um. Enginn vogaði sér þó
að minnast að ráði á her-
námið og útrýmingarstriðið
í Afganistan. slikt hefði
getað spillt hinu frálsam-
lega andrúmslofti á ráð-
stefnunni."
Bók sem ætti að vera
til á hverju heimili
• Áfengisvandamálið hefur oft verið nefnt mesta
mein 20. aldarinnar.
• í þessari bók er fjallað á raunsæjan og fordóma-
lausan hátt um áfengisböliö og hvernig berjast
megi gegn því.
• Höfundur bókarinnar er Joseph Pirro, yfirmaður
meðferðardeildar Freeport-sjúkrahússins í Banda-
ríkjunum.
• Þúsundir íslendinga hafa farið í meðferð vegna
alkoholisma á síðustu árum, og sá árangur sem
hér hefur náðst hefur vakiö heimsathygli. Free-
port-ferðirnar og síðan stofnun SÁÁ mörkuðu
upphaf þessarar baráttu.
.p
KHÍ^HR
JoMph P. Pirro
MESTA
M6IH
Joseph P. Ptrro raeötr u
sjáltsrækt og alkohólisma
Barónsstíg 18,101 Reykjavík. Símar: 18830 og 77556.