Morgunblaðið - 27.11.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA
28. og 29. nóv. 1982
Skrifstofa stuöningsmanna
Jónasar Elíassonar, prófessors
Suöurlandsbraut 12, 3. hæö.
Símar 84003 og 84367.
Bílaþjónusta á kjördag.
Sjálfstæðismenn
eftir Úlfar
Þórðarson lœkni
Birgir ísleifur Gunnarsson
gefur kost á sér til aþingismanns
fyrir Reykvíkinga. Ekki veit ég
hvort almennt hefur verið tekið
eftir því, að hann hefur ekki
viðhaft nein þau viðbrögð, sem
yfirleitt er að finna í dagblöðum
og áróðursritlingum frá hinum
ýmsu og vafalaust vel hæfu
frambjóðendum til prófkjörs
sjálfstæðismanna.
Það er þó örugglega víst, að
frambjóðendur verða að hafa
sem mesta þekkingu á málum
Reykjavíkurþorgar og viðskipt-
um borgarinnar við ríkisvaldið.
Sem borgarstjóri okkar stóð
Birgir ísleifur fremstur í þeirri
víglínu á tímum, sem oft voru
erfiðir hvað snerti tilhneigingu
ríkisvaldsins til að (neita) mis-
muna Reykvíkingum um jafnan
rétt við aðra landsmenn. Hin
dauða hönd ríkisvaldsins seildist
þá sem nú til óþurftar reykvísk-
um hagsmunum.
Slíkan mann, sem bæði gat og
vildi berjast fyrír okkur gegn
þessari áráttu valdsins, þurfum
við að hafa í fyrirsvari fyrir
okkur á Alþingi.
Því miður er það svo, að aldrei
er þörfin meiri en nú, þegar
kreppir að með fé og borgin
heldur uppi stórum greiðslum,
sem ríkið dregur og dregur að
greiða.
Munið þetta Reykvíkingar!
FARSÆLL
FORYSTUMAÐUR
Birgir ísleifur Gunnarsson hefur um árabil reynst
Reykvíkingum farsæll forystumaöur.
Fyrst í störfum sínum að borgarmálum, síðar á Alþingi.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík verða að standa vörð um
hagsmuni Reykvíkinga og tryggja einörðum
talsmanni sínum og sjálfstæðisstefnunnar öruggt sæti á
Alþingi, því úrslit kosninga veit enginn fyrirfram.
Fylkjum okkur um farsælan forystumann,
Birgi ísle'if Gunnarsson.
Stuðningsmenn.
Prófkjör sjálfstœðismanna í Reykjavík
vinnum að
stefnufestu í
stjómmálum
kjósum______
Ragnhildi
á þing/
Ath. að til þess að
kjörseðill sé gildttr
þarf að krossa við
a.m.k. 8 nöfn, en mest 10.
Stuðningsmenn