Morgunblaðið - 27.11.1982, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 27.11.1982, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1982 • íþróttamaður órsina í Svíþjóð, Mats Wilander, ásamt unnustu sinni. Hann var yfir sig ánægöur þegar hann fékk aö heyra um útnefninguna. „Ég átti von á því að knattspyrnufélagiö IFK-Gautaborg fengi titilinn fyrir frábæra frammistöðu sína í UEFA-keppninni í knattspyrnu,“ sagói Wilander við fréttamenn. Wilander kjörinn sá besti í Svíþjóð TENNISLEIKARINN ungi, Mats Wilander, hefur verið kjörinn íþróttamaður ársins í Svíþjóö. Aðalástæðan fyrir vali hans var „hinn óvænti sigur hans á Opna franska meistaramótinu'* eins og segir í skeyti frá AP. Wilander, sem var nær óþekktur fyrir mót- ið, sigraði heimsfræga tennisleik- ara eins og Ivan Lendl, Jose-Luis Clerc og Guillermo Vilas á leiö sinni til sigurs. Einnig var tekin með í reikning- inn við útnefninguna íþrótta- mennska Wilanders, en í undan- úrslitunum gegn Clerc baö hann um aö uppgjöf yrði endurtekin, þar sem aö hans dómi haföi honum ranglega verið dæmt stig. Aöalkeppinautar Mats um titil- inn iþróttamaöur ársins voru knattspyrnuliðiö IFK Gautaborg, sem sigraði í UEFA-keppninni, og Evrópumeistarinn á skautum, Tomas Gustavsson. KR-stelpurnar taplausar TVEIR leikir voru á fimmtu- dagskvöldið í 1. deild kvenna. KR vann sannfærandi sigur á ÍS 67—44, eftir aö 8 stig höfðu skiliö liðin að í hálfleik, 32—26 fyrir KR. KR-stelpurnar hafa ekki tapað leik í vetur og virðist ekkert lið um þessar mundir geta komið í veg fyrir að þær verji íslands- meistaratitilinn. í liöi KR voru þær bestar Linda Jónsdóttir með 34 stig, Emilía Sig- urðardóttir 16 og Kristjana Hrafn- kelsdóttir 8. í jöfnu liöi ÍS voru þær bestar Þórdís Kristjánsdóttir 10 stig, Þor- geröur Sigurðardóttir 8, Kolbrún Jónsdóttir 6, Hanna Birgisdóttir 6 og Margrét Eiríksdóttir 6 stig. ÍR-dömurnar unnu Hauka 51—36, fyrri hálfleikur var jafn en IR haföi 5 stiga forystu í hálfleik 18—13. i seinni hálfleik stungu ÍR- stelpurnar Hauka af og náöu á tímabili 17 stiga forystu en lokatöl- ■ur urðu 51—36. ÍR virðist vera eina liöiö sem hugsanlega gæti veitt KR einhverja keppni í vetur. Dooley þjálfari þeirra er greinilega á réttri leiö meö liðiö. Liö Hauka er skipað óreyndum stúlkum og mættu pær fá meiri trú á sjálfar sig. Stigin fyrir ÍR skoruöu Þóra Steffensen 17, Þóra Gunnarsdóttir 15, Gíslína 5, Elínborg 4, Anna Sig- ríöur 4, Þóra 4 og Sóley 2. Stig Hauka skoruöu Sóley 11, Ragnheiöur 10, Svanhildur 7, Sól- veig 6 og Kristín 2. — IHÞ. Islendingar sigruöu í trimmkeppni fatlaðra á Norðurlöndum EINS og kunnugt er fór fram sl. ár norræn trimmkeppni á Noröurlönd- unum fyrir fatlaða. Keppnin stóð yfir í einn mánuö í hverju landi og fór þannig fram aö þátttakendur máttu ganga, hlaupa, synda, hjóla, aka um í hjólastól eða fara í kajakróður. Skilyrði var þó sett að hvert trimm þyrfti að standa yfir í a.m.k. 30 mín. Keppnin var haldin hér á landi í maímánuði og var þátttaka mjög góð. Alls tóku þátt 1053 einstaklingar frá 31 stað á landinu. Af ýmsum ástæðum hefur dregist að tilkynna úrslit keppninnar en fyrir stuttu voru þau birt og voru þau sem hér segir (þess má geta að stigafjöldi er reiknaður eftir höfðatölu hvers lands): ísland 722.296,64 stig. Færeyjar 372.842,75 stig. Noregur 69.808,80 stig. Finnland 36.978,76 stig. Svíþjóö 22.865,00 stig. Það þarf ekki að taka það fram að sigur þessi er ÍF mikil hvatning og sannar svo ekki verður um villst að íþróttir fatlaðra eru í míkilli sókn hér á landi. í tilefni af hinum glæsilega sigri kom hingað til lands Norðmaöurinn Arve Mangset, en hann er í stjórn íþróttasambands fatlaöra á Norðurlöndum, og afhenti hann íslendingum sigurverðlaun- in. Efstu lið 1. deildar leika í dag: Tekst KR að sigra FH? ÍSLANDSMÓTID í handknattleik 1. deild hófst aftur í gærkvöldi eftir nokkurt hlé vegna lands- leikja. í dag leika tvö efstu lið deildarinnar, KR og FH. Má búast viö miklum hörkuleik á milli þessara liöa. FH sigraöi reyndar í fyrri leiknum með nokkrum yfir- burðum en hætt er við að KR- ingar hugsi sér gott til glóðarinn- ar og munu án efa hyggja á hefndir í dag. Bæði liðin hafa hlotiö 12 stig í deildinni eftir átta feiki. Á morgun leika Valur og Víking- ur. Valsmönnum hefur ekki gengiö vel aö undanförnu og eru aöeins með sex stig í mótinu eftir átta leiki. Víkingar eru með ellefu. Á sunnudagskvöldið leika svo Stjarnan og Fram og veröur fróö- legt að fylgjast með pví hvort sig- Handknafflelkur urganga Stjörnunnar heldur áfram. Leikir helgarinnar í handknatt- leiknum eru pessir: LAUGARDAGUR— LAUGARDALSHÖLL Kl. 14.00 l.d.ka. KR — FH Kl. 15.15 3.d.ka. Ögri — Þór Ak. Kl. 16.30 l.d.kv. Víkingur — Valur BORGARNES Kl. 14.00 3.d.ka. Skallagr. — Týr HAFNARFJÖRÐUR: Kl. 14.00 2.d.ka. Haukar — Þór Ve. Kl. 15.15 l.d.kv. Haukar — Fram SELFOSS: Kl. 14.00 2.d.kv. Selfoss — Fylkir ÁSGARÐUR Kl. 14.00 2.d.kv. Stjarnan — ÍBV Kl. 15.00 2.d.kv. HK — ÍA — ÞR. iirraTiiirj Körfubolti helgarinnar: KR og IR leika í dag EINN leikur fer fram í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik í dag. KR og ÍR leika í úrvalsdeildinni i Haga- skóla. Spurning er hvort aö IR- ingar með Pétur Guðmundsson í • Daði Harðarson, fyrirliöi meistaraflokks Þróttar í knattspyrnu, var kjörinn knattspyrnumaður félagsins á dögunum. Hér tekur hann (t.v.) við styttu sem nafnbótinni fylgir úr hendi knattspyrnumanns félagsins í fyrra, Yngva Gunnarssyni, en hann var þá fyrirliöi fimmta flokks. Grindvíkingar ráku Sailes GRINDVÍKINGAR hafa nú rekið Bandaríkjamanninn Sailes, sem lék með körfuknattleiksliði þeirra. Er það vegna slæmrar hegðunar hans utan vallar sem innan skv. þeim heimildum sem Mbl. hefur aflað sér. Douglas Kintzinger, sá er lék sem Fram í haust hefur nú veriö ráðinn til Grindvíkinga í staö Sailes, en hann hafði sem kunnugt er hug á að leíka með Borgnesing- um endurgjaldslaust, en nú er hann sem sagt kominn til Grinda- Stjörnugjöfin: Fram: Jóhannes Magnússon ★★ Símon Ólafsson ★★ Guömundur Hallgrimsson ★ Valur: Jón Steingrimsson ★★★ Kristján Ágústsson ★★ Leifur Gústavsson ★★ Torfi Magnússon ★ víkur. Ekki er vitað hvaö Sailes tekur sér fyrir hendur. broddi fylkingar geti ógnað liöi KR. Á mánudag er svo um hörku- leik aö ræða, þá mætast Valur og ÍBK. Síðast er liðin léku tapaði Valur. Hvað skeður nú? Leikir helgarinnar í körfunni eru þessir: L/UIUAKDAUUK: HagaMkóli kl. 14.00 KK — ÍK. úrvalsd. Kársnesskóli kl. 10.00 HK — KKÍ 2.d.ka. SUNNDDAGUR. Hafnarrj. kl. 14.00 llaukar — f.S l.d.ka. Hafnarfj. kl. 15.30 llaukar — Njaróv. l.d.kv. Njaróvík kl. 14.00 Crindav. — Sk|(r. l.d.ka. Selfoss kl. 13.30 Vík — KKÍ 2.d.ka. MÁNUDAGUR: llacaskóli kl. 20.00 Valur — Keflav., úrvalad. Enn er Rossi valinn sá besti AP. London. BRESKA knattspyrnutímaritið World Soccer gengst árlega fyrir útnefningu á knattspyrnumanni ársins. Það lætur fjöldann allan af sérfræðingum greiða atkvæði. Aö þessu sinni var Paolo Rossi kjörinn knattspyrnumaöur ársins 1982. Og bætti hann þar meö enn einu sinni rós í hnappagat sitt. i ööru sæti var Karl Heinz Rummen- igge rétt nokkrum atkvæöum á undan Paolo Falcao frá Brasilíu sem hafnaði í þriöja sæti. italski þjalfarinn Enzo Bearzot var kjörinn knattspyrnuþjálfari árs- ins. Tele Santana frá Brasilíu hafn- aöi í ööru sæti og Michel Hidalgo Frakklandi varö í þriöja sæti. Yfirburóasigur IS í FYRRAKVÖLD sigraöi ÍS — UMFS í 1. deild karla 114—69. Eins og lokatölur benda til haföi ÍS mikla yfirburði í leiknum. UMFS skoraði 2 fyrstu stigin í leiknum en síöan tóku leikmenn ÍS yfirhöndina og komust í 17—8 og 43—19 og höföu yfir í hálfleik, 56—29. Á 13. mínútu fyrri hálf- leiks skeöi þaö að Guömundur Guðmundsson, þjálfari UMFS og styrkasta stoö þeirra í vetur, sneri sig illa á fæti og varð að yfirgefa leikvöllinn og missir sennilega af næsta leik Skalla- gríms. í seinni hálfleik haföi iS algera yfirburði og vann stórsigur, 114—69. Fimm júdókappar á Opna skandinavíska JÚDÓSAMBAND íslands sendir fimm keppendur á Opna skand- inavíska meistaramótið sem fram fer í Ósló um helgina. Þetta er alþjóölegt mót og þátttakendur verða frá mörgum löndum. Þeir sem fara héðan eru Bjarni Friöriksson, (-95 kg. fl.), Kristján Valdimarsson(-86 kg. fl.), Níels Hermannsson (-78 kg. fl.), Halldór Guöbjörnsson (-71 kg.'fl.) og Rún- ar Guöjónsson (-65 kg. fl.). Meö þeim fer þjálfari landsliösins, Yos- hihiko lura. í liði Skallagríms vakti Hafsteinn Þórisson mikla athygli, skoraöi alls 35 stig og tók fjölmörg fráköst. Virtist oft sem hann væri meö gorm í löppunum svo mlkill var stökkkraftur hans. Gekk ÍS-mönn- um illa aö ráöa víö kappann. Hjá ÍS var Gísli Gíslason mjög góöur. Pat Bock var slakur í leikn- um fyrir utan þaö aö hann skemmti áhorfendum meö því aö troöa knettinum oft ansi skemmtilega. Stigin fyrir iS skoruöu: Gísli Gíslason 31, Árni Guðmundsson 18, Þorgeir Jónsson 17, Guð- mundur Jóhannesson 16, Pat Bock 15, Eiríkur Jóhannesson 8, Karl Ólafsson 5, Tryggvi Þor- steinsson 2 og Jón Óskarsson 2 stig. Fyrir UMFS skoruöu stigin: Haf- steinn Þórisson 35, Björn Axelsson 16, Ari Björnsson 6, Guömundur Guömundsson 2, Siguröur P. Jónsson 2, Bjarni Jónsson 2, Ingv- ar Árnason 2, Stefán Daníelsson 2 og Þorsteinn Jensen 2 stig. Ágætir dómarar leiksins voru Kristján Rafnsson og Ingvar Krist- insson. — IHÞ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.