Morgunblaðið - 27.11.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 27.11.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1982 37 Heimir Hannesson, formadur Ferðamílaráðs íslands, færir Ssemundi Guð- vinssyni Fjölmiðlabikarinn í viðurkenningarskyni fyrir góða umfjöllun um ferðamál í Dagblaðinu og Vísi á árinu 1981. Fjölmiðlabikar Ferðamálaráðs veittur: Ferðamálaráð Islands heiðrar Sæmund Guðvins- son fyrir skrif um ferðamál FERÐAMÁLARÁÐ hefur veitt Sæ- mundi Guðvinssyni, fyrrverandi frétta- stjóra á Vísi og Dagblaðinu & Visi, nú fréttafulltrúa Flugleiða, sérstaka við- urkenningu fyrir umfangsmikla og greinagóða umfjöllun um ferðamál í Vísi og Dagblaðinu & Vísi árið 1981. Heimir Hannesson, formaður Ferðamálaráðs, færði Sæmundi veglegan farandbikar, svonefndan Fjölmiðlabikar Ferðamálaráðs, en auk þess vandað pennasett til eign- ar, „enda vonumst við eftir að Sæm- undur leggi ekki pennann á hilluna þótt hann sé hættur í blaðamennsk- unni“, sagði Heimir. Þetta er í fyrsta skipti sem þessi bikar er veittur, en í framtíðinni verður þessi viðurkenning veitt ár- lega „þeim manni, sem með skrifum sínum eða umfjöllun hefur lagt ís- lenskum ferðamálum mest lið á ár- inu á undan“, eins og segir í tillög- um um reglugerð Ferðamálaráðs um Fjölmiðlabikarinn. Heimir sagði við þetta tækifæri „að flestum þeim, sem að ferðamál- um vinna, væri ljóst að þessi atvinn- ugrein hefur ekki fengið eins mikið umtal í fjölmiðlum og hinar svoköll- uðu „hefðbundnu atvinnugreinar" landsmanna, þrátt fyrir að u.þ.b. 5000 einstaklingar hafi atvinnu við ferðaþjónustuna". Hann sagði að þessi viðurkenning væri hvort tvegga í senn: tilraun til að hvetja fjölmiðla til að sýna ferðamálum aukinn áhuga í framtíðinni og þakklætisvottur til þeirra sem hefðu sýnt þessum málum sérstakan skilning. Sagði Heimir að eins og málum væri nú háttað í okkar þjóðfélagi lægi ljóst fyrir að ferðamálaþjón- usta væri sú starfsgrein sem líkleg- ust væri til að taka við fleira starfs- fóiki í framtíðinni og skapa auknar gjaldeyristekjur. Það væri því öllum landsmönnum í hag að umræða um ferðamál væri aukin til muna. Þrír listamannanna sem i dag opna sýningu á verkum sínum hjá Knúti Bruun í Listmunahúsinu við Lækjargötu: Kristján Guðmundsson, Tryggvi Ólafsson og Jón Gunnar Árnason. Nóvember 1982 Nokkrir Súmarar sýna í Listmunahúsinu í DAG klukkan 14 verður opnuð í Listmunahúsinu sýningin Nóvember 1982, þar sem nokkrir þeirra lista- manna, sem tengdust Súm-félags- skapnum á sínum tíma, sýna verk sín. Knúti Bruun í Listmunahúsinu datt í hug fyrir nokkru að efna til þessarar sýningar, og nú er hún orðin að veru- leika. Þeir sem sýna eru Gylfi Gísla- son, Haukur Dór, Jón Gunnar Árna- son, Kristján Guðmundsson, Magnús Tómasson, Sigurjón Jóhannsson, Tryggvi Olafsson og Vilhjálmur Bergsson. I sýningarskrá segir svo um tilurð sýningarinnar og Súm-hópinn: „Knúti Bruun datt í hug um dag- inn að efna til sýningar á verkum nokkurra manna, sem tengdust Súm-félagsskapnum og Gaiierí Súm á sínum tíma. Er það merki þess að ellin vofi yfir okkur miðaidra ung- um mönnum? Hvað um það, ekki tókst þó að afla verka frá öllum, menn dreifðir um lönd sýnandi hér og hvar um álfur og eða búnir að ráðstafa verkum sínum annað, enda fyrirvarinn í stysta lagi. Hér er því á ferðinni einskonar skyndimynd af starfsemi hinna ýmsu á líðandi stund. Nú eru nokkur ár liðin síðan Súm-félagsskapnum var opinber- lega slitið eftir áratugar fjörlegt og gifturíkt starf að gagnkvæmri menningar- og listamiðlun milli ís- lands og umheimsins. Ekki skal fjöl- yrt hér um áhrif þeirrar starfsemi, enda engan veginn séð fyrir endann á þeirri uppskeru sem sáð var til á blómaskeiði Gallerí Súm.“ fyrirsmæstu og stærstu verkefnin- ogerfiðustu suoumar BOC Migpak 350 MIG — kolsýrurafsuðuvél, 350 A, þ.e. hlífðargassuða með mötun á vír (MIG/MAG). Laus sérbyggður matari auðveldar suður fjarri vélinni. Vélin notar þriggja fasa straum, 380/420 V. Tæknilega mjög fullkomin vél fyrir allar tegundir víra. STALHF Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavlk, slmi: 27222, bein llna: 11711. Kvöld og helgarslmi: 77988. / Laugavegi 116 Sími25171 “WINNY’S“ BORGARI STÓR OG STÆÐILEGUR, í SESAME hamborgarabrauöi fram reiddur meö salatblaði, tómat- sneiöum, lauk, pickles og „ WINNY'S“ hamborgarasósu. Það er líka hægt að fá „ WINNY'S" BORGARA með MARIBO osti. Við eigum%2ja ármafmæli nú um helgina og í tilefni þess bjóðum við í dag og sunnudag hina vinsœlu hamborgara meðfrönskum og pepsi fyrir aðeins 36 kr. 'WlNNÝ'S' FRANSKAR KARTÖFLUR Bráðljúffengar kartöflur. Amerískar fram fyrir fingurgóma. afmælisafsláttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.