Morgunblaðið - 27.11.1982, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
Ríkið lánaði
eftir Jón Magnússon,
fyrrv. formann SUS
Maður sem byggir sér þak yfir
höfuðið þarf að greiða um þriðj-
ung húsbyggingarkostnaðar til
ríkisins. Þetta gerir húsbyggjand-
inn með því að greiða 23,5% sölu-
skatt af flestu sem keypt er í húsið
auk þess sem hann þarf að sjálf-
sögðu að greiða tolla, vörugjöld af
innfluttum hlutum, svo ekki sé
minnst á tekjuskatta og tekju-
útsvar. Ríkið hirðir því með einum
eða öðrum hætti mun hærri fjár-
hæð af húsbyggjandanum en þá,
sem lánuð er af opinberu fé til
húsbygginga.
Vissulega er hér ekki um einu
fjárfestingu fólks að ræða sem
svipað er ástatt um. Þetta dæmi
sýnir hins vegar vel, hversu tak-
markalaus skattheimta ríkisins er
og hve hún hamlar allri fram-
kvæmdaviðleitni og möguleikum
einstaklingsins. Besta aðstoðin
sem hægt væri að veita þeim sem
eru að byggja sér þak yfir höfuðið
sýnist því vera að iétta skattbyrð-
ina frekar en auka lánin. Það er
vafasöm stefna að aðstoða með
hægri hendinni en taka svo allt til
baka og meira til með þeirri
vinstri.
Sjálfstæðismenn hafa haldið því
fram að gera ætti sem flesta að
eignafólki. í því skyni er hvatt til
einkaeignar á íbúðarhúsnæði og
bygginga einstaklinga. Þessi
stefna er rétt. Hún veitir fólki
vissa tryggingu, hún leysir úr læð-
ingi vinnu sem annars væri ekki
Próflyör
Sjálfstæöisflokksins
í Reykjavík 28. og 29. nóv. 1982.
þjóöfélagsfræöingur,
er frambjóöandi í prófkjöri Sjálfstæöismanna
í Reykjavík 28. og 29. nóvember 1982.
Esther hefur gengt ýmsum
ábyrgðarstöðum m.a. verið
— starfsmaöur Kvennaársnefndar
— skólastjóri Bréfaskólans
— framkvæmdastjóri Samstarfsnefndar
um reykingavarnir
—og er nú formaöur Kvenréttinda -
félags íslands.
Meö því aö Kjósa Esther getur
þú haft áhrif á aðfleiri
hæfar konur komistá Alþing.
Kjósum hæfar konur á þing.
^Esther Guðmundsdóttir
Stuöningsmenn
og ríkið tók
„Besta aðstoðin sem
hægt væri að veita þeim
sem eru að byggja sér
þak yfir höfuðið sýnist
því vera að létta skatt-
byrðina frekar en auka
lánin. Það er vafasöm
stefna að aðstoða með
hægri hendinni en taka
svo allt til baka og
meira til með þeirri
vinstri.“
innt af hendi, þannig að verð-
mætasköpunin verður meiri en
ella. í okkar þjóðfélagi eru hús-
byggingar samt slíkt átak, að
meðan á þeim stendur og skuldir
standa eftir, valda þær verulegum
erfiðleikum í lífi fólksins, sem
leggur út í þær. Þetta stafar af
takmarkaðri lánafyrirgreiðslu,
stuttum lánstíma og fjárskorti
byggingaraðila, iðnaðar- og þjón-
ustufyrirtækja í byggingariðnaði.
Sú krafa er sett fram, að auka
verði lán til húsbygginga. Ég er
því sammála. Slík lán verður að
auka. En það er ástæða til að
benda á aðrar leiðir til að auð-
velda ungu fólki að koma sér upp
húsnæði.
Mér finnst óhæfa að skattleggja
vinnu við eigið húsnæði þegar
byggt er í fyrsta sinn. Miklu frek-
ar ætti að veita þeim sem standa í
slíku skattaívilnanir meðan á
byggingu stendur. Þá má einnig
fella niður tolla og vörugjöld af
lón Magnússon
þeim hlutum sem þarf í bygg-
ingar.
Með þessum hætti yrði bygg-
ingarkostnaður minni og sömu-
leiðis fjármagnsþörfin. Auðveld-
ara væri fyrir ungt fólk að byggja
eða festa kaup á húsnæði. Það
sýnir sig því viða, að óhófleg
skattheimta veldur slíkum erfið-
leikum að framkvæmdamöguleik-
ar einstaklinga eru eyðilagðir eða
takmarkaðir, úr því er síðar reynt
að bæta með lausnum, sem þyrftu
ekki að koma til ef annarri stefnu
væri fylgt.
Skipan húsnæðismála á íslandi
er eitt skýrasta dæmi þess úrelta
kerfis, sem við búum við á mörg-
um sviðum. Það er líka skýrt
dæmi um, hve víðtækar afleið-
ingar röng stefna getur haft á líf
alls almennings. Miklar fram-
kvæmdir ungs fólks við húsbygg-
ingar á síðustu árum er líka skýrt
dæmi um þann framkvæmdavilja
og bjartsýni, sem þjóðin býr yfir.
Og enn eru húsnæðismálin gott
dæmi um, hvernig með nýju hug-
arfari má leysa á einfaldan hátt
vandamál, sem er að sliga stóran
hóp fólks í þjóðfélaginu.
Eins og þessum málum er nú
háttað virðist það nánast óyfir-
stíganlegur hjalli fyrir þorra ungs
fólks að eignast eigið húsnæði. Þó
hefur verið sýnt fram á, að það er
unnt að hækka stórlega löng lán
til húsbyggjenda án þess að til
komi verulega aukin framlög hins
opinbera. Þetta er hægt að gera
með samvinnu hins opinbera hús-
næðislánakerfis, lífeyrissjóða og
banka og með því að draga úr
þeirri stórkostlegu sóun á fjár-
magni og mismunun, sem á sér
stað með miklum framkvæmdum
við verkamannabústaði. Um leið
hefur verið sýnt fram á, að lækka
má byggingarkostnað stórlega
með lækkun á opinberum gjöldum
af byggingarefni, en það mundi að
verulegu leyti skila sér til baka
með auknum framkvæmdum og
bættum hag húsbyggjenda. Þess-
um málum er hægt að koma í það
horf, sem tíðkast í mörgum nálæg-
um löndum með skynsamlegum
vinnubrögðum. Þessu er líkt farið
og með mörg þeirra vandamála,
sem við stöndum frammi fyrir.
Bjartsýnin og framkvæmdaviljinn
er fyrir hendi hjá þeirri kynslóð
sem er að taka við þjóðfélaginu.
Þau öfl þarf að leysa úr læðingi
með því að velja leiðir frelsisins til
lausnar á vandanum.
Jón Magnússon,
fyrrv. form. SUS.
Gallerí Lækjartorg:
Páll ísaksson opnar málverkasýningu
í DAG, laugardaginn 27. nóvem-
ber, opnar Páll ísaksson mál-
verkasýningu í Gallerí Lækjar-
torgi. Páll sýnir 34 pastelmyndir
sem hann hefur lakkað yfir með
plasthúð til að fá fram bindingu
„og losna við glerið“, eins og hann
orðaði það.
Myndirnar eru málaðar á síð-
ustu 2 árum og allar til sölu. Sú
nýbreytni er á þessari sýningu
að ein myndanna er sýnd í vatni:
þ.e.a.s. hún hangir ekki á vegg,
heldur stendur í vatnskeri. Sagði
Páll að plastefnið sem hann not-
ar væri svo sterkt að myrtdin
þyldi vætuna vel.
Þetta er þriðja einkasýning
Páls, en hann býr á Selfossi og
starfar sem trésmiður. Sýningin
stendur til 5. desember og er
opin á milli kl. 14.00 og 21.00
daglega.
I
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
Um leiö og ég hvet sem flest
sjálfstæöisfólk í Reykjavík til
þess aö taka þátt í prófkjörinu
dagana 28. og 29. nóv. vil ég
nota tækifærið til þess aö þakka
þeim sem sjá sér fært aö veita
mér stuðning sinn.
ÞÓRARINN E. SVEINSSON,
LÆKNIR