Morgunblaðið - 27.11.1982, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
13
Veitum Bessí Jóhanns-
dóttur brautargengi...
eftir Ardísi
Þórðardóttur,
rekstrarhagfræðing
Um þessa helgi lýkur próf-
kjörsbaráttu sjálfstæðismanna í
Reykjavík. Baráttan hefur verið
drengileg og vonandi raðast á
lista flokksins hæfar konur og
karlar. Flokkurinn getur þannig
gengið sterkur til kosninga. Þá
verður mögulegt að nýta þann
byr, sem ég tel okkur sjálfstæð-
ismenn hafa nú.
Bessí Jóhannsdóttir, formaður
Hvatar, er einn af hinum yngri
og glæsilegri frambjóðendum í
prófkjörinu. Ég hef þekkt Bessí
Jóhannsdóttur lengi. Fyrst
kynntumst við í Vöku, félagi lýð-
ræðissinnaðra stúdenta. Þar var
þróttmikið starf eins og oft er
meðal ungs fólks. Það var ákaf-
lega gaman að vinna með þessu
kjarnmikla fólki í Vöku. Ég
nefni Bessí Jóhannsdóttur, Dav-
íð Oddsson, Hannes Hólmstein
Gissurarson, Ingu Jónu Þórðar-
dóttur og Kjartan Gunnarsson,
sem öll urðu virk í Sjálfstæðis-
flokknum að námi loknu. Bessí
var áberandi baráttumaður
hægri manna í skólanum. Þegar
hún náði kjöri sem fulltrúi nem-
enda í deildarráði hinnar mjög
svo vinstri sinnuðu heimspeki-
deildar, urðum við steinhissa —
ásamt mörgum öðrum að ég
hygg. Bessí naut þarna mann-
kosta sinna. Hún er dugleg,
hreinskiptin, sjálfstæð, skelegg,
og ákaflega lagin við að vinna
málstað sínum fylgi.
Bessí Jóhannsdóttir hefur síð-
an gegnt fjölmörgum trúnað-
arstörfum fyrir SUS, Hvöt og
Sjálfstæðisflokkinn. í þau hefur
hún valist vegna þess trausts,
sem hún nýtur meðal hins al-
menna flokksmanns. Bessí er nú
í forsvari fyrir Hvöt og stýrir
félaginu af röggsemi og festu.
Vekur það athygli að Hvöt, félag
sjálfstæðiskvenna, er sífellt að
verða sjáanlegra og virkara póli-
tískt afl í flokknum, og í þjóð-
málabaráttunni.
Framboð Bessíar Jóhanns-
dóttur fékk strax mikinn og góð-
an hljómgrunn meðal sjálfstæð-
isfólks, enda á foringi sjálfstæð-
iskvenna í Reykjavík einmitt er-
indi á lista sjálfstæðismanna.
Þannig styrkist framboðslistinn
verulega.
Ég hef, eins og aðrir, mikla trú
á reynslu Bessíar Jóhannsdóttur
og hæfni hennar í stjórnmála-
baráttunni. Því hvet ég alla
sjálfstæðismenn til að kjósa
Bessí Jóhannsdóttur í prófkjör-
inu. Það yrði Sjálfstæðisflokkn-
Um mikill styrkur í komandi al-
þingiskosningum.
Ardís Þórðardóttir
Prófkjör sjálfstæöismanna
28. og 29. nóvember
Ragnhildur
Helgadóttir
Skrifstofa stuöningsmanna er í Skip-
holti 19, 3. hæð, horni Nóatúns og Skip-
holts.
Opiö laugardag og sunnudag kl.
14—22. Símar 19055 og 19011.
______________________J
Við minnum á
Elínu Pálmadóttur
í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
Við viljum Elínu á þing:
• Vegna beinna kynna hennar af borgar-
búum og málefnum þeirra sem borgar-
fulltrúi um árabil og blaöamaöur á ferö í
tvo áratugi. Hún hefur sýnt aö hún tekur
mannlega á málum.
• Hún hefur hugkvæmni, kjark og dugnaö til
aö nýta sína reynslu af málefnum Reykja-
víkur og þekkingu til að koma málum fram.
• Rétta þarf hlut kvenna í þingliöi Sjálfstæö-
isflokksins
Studningsmenn
Þeir sem eru sama sinnis og viö, hafi samband viö okkur í Dugguvogi 10 (Sigurplast)
eftir kl. 5 og um helgina. Símar 35590 og 32330.
Flokkur okkar stendur á vegamótum.
Skammt er til Alþingiskosninga og prófkjör vegna þeirra verður í
Reykjavík 28. og 29. nóv. n.k.
Nú þegar stundarágreiningur er að baki, er taekifæri til þess að sameina
kraftana og sækja fram sem órofa heild.
Með hag flokksins í huga í prófkjörinu höfum við möguleika á að stilla
upp sterkum lista í Reykjavík.
Sá listi, og það afl sem að baki býr, mun veita Sjálfstæðisflokknum
brautargengi til forystu í íslenskum stjómmálum á ný.
Við sem tökum þátt í prófkjörinu - gerum það í þágu Sjálfstæðisflokksins
og þjóðarinnar allrar. '
Það sem máli skiptir nú, er sterkur samhentur Sjálfstæðisflokkur.
Þess vegna tek ég þátt í komandi prófkjöri.