Morgunblaðið - 27.11.1982, Síða 17
Styðjum
eftir Guðmund
Guðmundsson
verkstjóra
Mikið hefur verið rætt og ritað
um prófkjör Sjálfstæðisflokksins
nú síðustu daga, enda líður senn
að því að gengið verði að kjörborð-
inu.
Eitt er það nafn sem sjaldan eða
aldrei er rætt eða ritað um, það er
nafn Sigfúsar J. Johnsen.
Sigfús J. Johnsen er fæddur í
Vestmannaeyjum 25. nóvember
1930. Hann er kvæntur Kristínu
Vlsindaþing
Lífs og lands
VÍSINDAÞING ’82 Lífs og lands
hefst í dag klukkan 10.00 fyrir há-
degi að Kjarvalsstöðum með
ávörpum dr. Jóns Óttars Ragn-
arssonar og dr. Sturlu Friðriks-
sonar. Þingið stendur báða dagana
og byggist á mörgum en mjög
stuttum erindum. Helsta umræðu-
efni þingsins verður með hvaða
hætti sé hægt að beita vísindum
til að sporna gegn yfirvofandi
efnahagskreppu og stuðla að auk-
inni velmegun Islendinga á kom-
andi árum. Erindi þingsins hafa
verið gefin út og eru til sölu á
þingstaðnum.
Kökubasar og
flóamarkaður
KVENFÉLAGIÐ Fjallkonurnar í
Fella- og Hólahverfi efnir laug-
ardaginn 27. nóvember kl. 14 til
kökubasars og flóamarkaðar í
Fellahelli. Verður þar margt
gómsætt meðlæti og mikið úrval
góðra muna á boðstólum. Allur
ágóði rennur til kirkjubyggingar
sóknarinnar.
Víðförli
kominn út
ANNAÐ tölublað Víðförla, mál-
gagns kirkjunnar, er komið út.
Meðal efnis í blaðinu að þessu
sinni er grein eftir Þorvald
Garðar Kristjánsson, alþing-
ismann, sem ber yfirskriftina:
„Má granda lífi?“. Sagt er frá
nýafstöðnu kirkjuþingi og þeim
málum er þar bar hæst, svo og
öldunarstarfi kirkjunnar. Sr.
Valgeir Ástráðsson fjallar um
aðstöðuleysi safnaða í Breið-
holti og dr. Sigurbjörn Einars-
son ritar grein um bænalíf ein-
staklingsins. Þá má nefna
barnaefni og margvíslegar frétt-
ir af því mikla starfi, sem unnið
er innan kirkjunnar.
Leiðara ritar hr. Pétur Sigur-
geirsson, biskup. Víðförli kemur
út mánaðarlega fyrst um sinn.
Höföar til
.fólksí öllum
starfsgreinum!
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
17
Sigfús J. Johnsen
Sigfús J. Johnsen
Þorsteinsdóttur og eiga þau sex
börn.
Sigfús lauk prófi frá Verslun-
arskóla íslands 1950 og kennara-
prófi frá Kennaraskóla íslands
1953.
Sigfús er einn sá hæfasti þeirra
sem á framboðslistanum eru
vegna þeirrar mikilsverðu reynslu,
sem hann hefur í atvinnumálum,
heilbrigðismálum, skólamálum og
málefnum aldraðra og fatlaðra.
Sigfús hefur lagt fram margar
hagnýtar tillögur í málefnum
aldraðra og fatlaðra. Hann hefur
stundað útgerð, frystihúsarekstur,
og haft afskipti af flugmálum.
Undanfarin ár hefur Sigfús stund-
að kennslu og starfað sem félags-
málafulltrúi í Garðabæ.
Þessi reynsla er hverjum manni
mikils virði sem vill helga sína
starfskröftum til úrbóta í þágu
lands og þjóðar. Öll þau verk, sem
Sigfús hefur tekið sér fyrir hend-
ur, hefur hann leyst með einstakri
prýði og óeigingirni. Hann hefur
sérstaklega varið miklu af tíma
sinum í þágu þeirra, sem minna
mega sín í þjóðfélaginu.
Hógværð og óeigingirni Sigfús-
ar sést best á því hversu hljótt er
um þennan mann. Það eru allir
sammála um það, sem Sigfús
þekkja, að hann á heima á Al-
þingi, þar sem hann getur beitt
sér án milligöngu annarra manna,
og þar sem hann getur stuðlað að
bættum lífskjörum okkur til
handa.
Ég hef þá trú að ef við stöndum
öll saman að baki Sigfúsar í því
prófkjöri sem framundan er, að þá
séu bjartari tímar framundan hjá
okkur.
Sumir spyrja: Hver er þessi Sig-
fús? Svarið er: Sigfús er okkar
maður.
Ég skora á alla sanna sjálfstæð-
ismenn að veita Sigfúsi J. Johnsen
þann stuðning sem hann á skilið
að fá frá okkur.
Ljósm.: Kmilia
Á vegum Ártúns, Úrvals og fleiri aðila stendur nú yfir keppni í
dansi og hófst hún um síðustu helgi með yngstu þátttakendun-
um. Keppni þessi mun standa yfir næstu sunnudaga, en úrslit
eiga að ráðast í desember. Myndin er tekin síðastliðinn sunnu-
dag er yngsta kynslóðin tók nokkur spor í Ártúni.
Vegna prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík 28. og 29. nóv. nk.
Ása St.
Atladóttir,
hjúkrunarfræðingur
Kjósum unga
baráttukonu á þing
° Stuðningsmenn
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 28.—29. nóv.
formann Hvatar
á þing
Kosningaskrifstofa aö Suöurlandsbraut 14, 2. hæö.
Sími 38636.
Opið frá kl. 17.00—22.00
alla daga
Kjósandi góöur!
Þitt atkvæöi skiptir máli
— Vertu meö!
Sjálfstæöismenn
V
kjósum
Bessí
Jóhannsdóttur
Stuðningsmenn Bessíar Jóhannsd.