Morgunblaðið - 27.11.1982, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1982
Aðventuhátíð í Neskirkju
SUNNUDAGINN 28. nóvember verður aðventuhátíð í Neskirkju. Kl. 02.00 annast öll fermingarbörnin
ljósamessu. Þorsteinn Stefánsson flytur ávarp, lesin verða nokkur vers úr heilagri ritningu, Guðrún
Björg Birgisdóttir les jólasögu og mikið sungið. Trompetleikari Skarphéðinn Einarsson.
Seinni hluti hátíðarinnar hefst kl. 05.00 þá syngja báðir barnakórar Seltjarnarness, fyrst í sitt hvoru
lagi og svo saman, undir stjórn Hlínar Torfadóttur. Kristján Benediktsson borgarráðsmaður flytur ræðu.
Kirkjukórinn syngur undir stjórn Reynis Jónassonar og sr. Frank M. Halldórsson flytur hugleiðingu.
Kvöldvaka á heilsu-
hælinu í Hveragerði
Mveragerði, 25. nóvember.
FYRIR skömmu var haldin kvöld-
vaka á Heilsuhælinu í Hveragerði í
tilefni af ári aldraðra.
Þarna komu fram þrír Reykvík-
ingar, sem allir eru kunnir fyrir störf
sín í þágu aldraðra.
Sigurður Magnússon frá Rauða
krossi íslands og Þórir Guðbergs-
son, félagsráðgjafi, fluttu erindi, í
senn bráðskemmtileg og hin at-
hyglisverðustu.
Hans Jörgensen, fyrrverandi
skólastjóri, stjórnaði fjöldasöng
með miklum ágætum, undirleik á
píanó annaðist frú Elín Dungal,
læknaritari hælisins.
Kvöldvakan var fjölsótt af dvai-
argestum hælisins og þótti takast
með afbrigðum vel.
Var þremenningunum þakkað
af alhug fyrir komu þeirra um svo
langan veg og skemmtan þá og
fróðleik, sem þeir veittu viðstödd-
um.
Undirbúning kvöldvökunnar
annaðist frú Jóna Kristín Magn-
úsdóttir frá Reykjavík, sem lætur
sig öldrunarmál miklu skipta og
helgar þeim málum mikinn tíma.
— Sigrún.
Sigldi með
síld og kom
með aftur
SKARFUR GK seldi afla í er-
lendri höfn nýverið. Hluti af afla
Skarfs sem hann sigldi með var
síld. Skarfur fékk ekki heimild til
sölu á síldinni erlendis og kom því
með hana til landsins aftur.
Kynna nýstárlegt tafl
FÉLAG eðlis- og stærðfræði-
nema við Háskóla íslands efnir
til Go-námskeiðs í samráði við
íslensk-japanska félagið og
Kínversk-íslenska menningarfé-
lagið. Námskeið fyrir byrjendur
hófst í gær í byggingu Verk-
fræði- og raunvísindadeildar við
Hjarðarhaga. Námskeið fyrir
þá, sem lengra eru komnir, hefst
síðan á sama stað kl. 14 í dag,
laugardag. Kennari verður Jay
d’Arcy, kennari við Háskóla ís-
lands, og mun hann kenna á ís-
lensku.
Go eða Weiqi er eins konar
skák eða tafl, sem tíðkast hefur
um langt skeið í Japan og Kína.
Hróður þessa tafls hefur farið
mjög vaxandi á Vesturlöndum
undanfarna áratugi og má ætla,
að hér verði um kærkomna nýj-
ung fyrir íslendinga að ræða.
(Fréllalilkynning.)
Sýnum fjölbreytt úrval KEMPPI-rafsuöuvéla auk annarra járniðnaðar-
véla helgina 27. og 28. nóv.
Opiö laugardag kl. 9.00—17.00 og sunnudag kl. 10.00—16.00.
Athugið: Vélarnar verða sýndar í vinnslu.
Notiö tækifærið, komið og kynnist nýjungum í suöutækni.
SsQasDsanQ Dníío
Armúla 34
Símar 34060 — 34066
Sameinast Ólafs-
vík og Hellissandur?
Olafsvík, 23. nóvemher.
ÍBIIAR Ólfsvíkur og Hellissands gera því töluvert skóna þessa dagana aö
sameinast undir einu merki stórrar byggðar hér á utanverðu Snæfellsnesi.
er sem sagt mikið rætt manna i
Ennis og Ólafsvík.
Samskipti íbúa þessara byggð-
arlaga hafa aukist töluvert á und-
anförnum árum og munu enn
aukast með öruggari samgöngum
með tilkomu nýs Ennisvegar. Eng-
in ástæða er til annars en að ætla
að hugsanleg sameining megi vel
takast. Benda má á að allmikið er
um að stofnað sé til hjónabanda
fyrir Ennið og tekst yfirleitt með
ágætum. Meðmælendur samein-
ingar segja líka einn stærsta kost-
inn vera þann, að þá verði endan-
lega tekið af skarið með hver sé
stærsta byggð á Snæfellsnesi. Á
því hefur þótt leika nokkur vafi.
Sameiningarmenn eru margir
og umræða þessi fer fram á ýms-
um stöðum, allt frá vigtarskúrum
til fundarsala. Mun vera stutt í
illi, hvort sameina beri Neshrepp utan
það að hreppsnefndarmenn setji
upp sparisvipinn og hefji athugan-
ir á málinu. Þar sem ekki er vitað
til að flokkapólitík spili inn í þessa
umræðu, er nokkuð ljóst að þing-
menn okkar munu standa álengd-
ar við reifun málsins. Hvað sem
því líður, þá er ljóst að fljótlega
verður kannað á hvaða sviðum
byggðirnar geta haft beint sam-
starf, þó sameiningu sé ekki til að
dreifa. Og séu nú einhverjir enn til
af „gamla skólanum", það er að
segja menn sem urðu of sterkir á
mannamótum, hafa þeir sett hnef-
ana djúpt í buxnavasana, til þess
að nágrannakærleikur megi
blómgast sem mest undir Jökli.
Helgi
Agúst Einarsson
Bjarni Guðnason
Emmanúel Morthens
Jóhanna
Sigurðardóttir
Jón Baldvin
Hannibalsson
Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjavík:
Kosið í dag og á morgun
PRÓFKJÖR Alþýðuflokksins í
Reykjavík vegna næstu alþingis-
luwninoa er haldið niina um helcr-
ina, í dag og á morgun, sunnudag.
Frambjóðendur eru fimm, þau
Ágúst Einarsson útgerðarmaður,
Bjarni Guðnason prófessor,
Emmanúel Morthens, fram-
kvæmdastjóri, Jóhanna Sigurð-
ardóttir alþingismaöur og Jón
Baldvin Hannibalsson alþingis-
maður.
Prófkjörið er opið öllum
stuðningsmönnum Alþýðu-
flokksins í Reykjavík, flokks-
bundnum sem óflokksbundnum.
Kjörstaðir eru þessir: Iðnó,
fyrir þá sem búa við Snorra-
braut og vestan hennar, Sigtún,
fyrir þá sem búa milli Snorra-
brautar og Reykjanesbrautar og
Broadway, fyrir þá sem búa í
Árbæ, Breiðholti og Selási.
Kjörfundur stendur yfir frá
klukkan 10 til 18, báða dagana.
Flugmálafélag íslands heldur
landsþing að Hótel Loftleiðum á
sunnudaginn og hefur Flugmálafé-
lagið boðið Ann Welch og Bob
Harrison hingað til lands, en þau
eru bæði heimsþekkt fyrir afrek á
sviði flugiþrótta. Þau halda fyrir-
lestra að loknu þingi Flugmálafé-
lagsins á sunnudaginn.
Landsþing félagsins fer fram
annaðhvert ár og sækja það sér-
stakir fulltrúar kjörnir af 11 að-
ildarfélögum þess, sem starfa á 6
mismunandi sviðum flugsins. en
þau eru: vélflug, svifflug, fall-
hlífastökk, módelflug, drekaflug
og flugsaga.
Stjórn félagsins, liðið starfs-
tímabil, var þannig skipuð: Ás-
björn Magnússon, forseti, Sig-
mundur Andrésson, varaforseti,
Friðrik Pálsson, gjaldkeri, Jón E.
Böðvarsson, ritari, Hörður
Hjálmarsson, meðstjórnandi og
Friðrik Sigfússon, varamaður.
Á þinginu á sunnudaginn fer
fram kjör nýrrar stjórnar fyrir
næsta 2ja ára tímabil.
Ann Welch í boði
Flugmálafélagsins