Morgunblaðið - 22.12.1982, Side 14

Morgunblaðið - 22.12.1982, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1982 Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: GOOLE: Arnarfell ....... 1/3 Arnarfell ....... 17/1 Arnarfell ....... 31/1 Arnarfell ....... 14/2 ROTTERDAM: Amarfell ......... 5/1 Arnarfell ....... 19/1 Arnarfell ........ 2/2 Arnarfell ....... 16/2 ANTWERPEN: Arnarfell ........ 6/1 Arnarfell ....... 20/1 Arnarfell ........ 3/2 Arnarfell ....... 17/2 HAMBORG: Helgafell ....... 12/1 Helgafell ........ 7/2 HELSINKI: Dísarfell ....... 31/1 LARVIK: Hvassafell ....... 3/1 Hvassafell ...... 17/1 Hvassafell ...... 31/1 Hvassafell ...... 14/3 GAUTABORG: Hvassafell ....... 4/1 Hvassafell ...... 18/1 Hvassafell ....... 1/2 Hvassafell ...... 15/2 KAUPMANNAHÖFN: Helgafell ....... 22/12 Hvassafell ........ 5/1 Hvassafell ....... 19/1 Hvassafell ........ 2/2 Hvassafell ....... 16/2 SVENDBORG: Dísarfell ....... 27/12 Hvassafell ........ 6/1 Helgafell ........ 14/1 Hvassafell ...... 20/1 Hvassafell ........ 3/2 AARHUS: Helgafell ....... 16/1 Helgafell ....... 11/2 GLOUCESTER MASS.: Jökulfell ....... 28/1 HALIFAX, KANADA: Jökulfell ........ 30/12 Jökulfell ....... 31/1 m. SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101 ^Afglýsinga- síminn er 2 24 80 Innkaupabíll kóngsins KONIJNGUR Saudi Arabíu, Fahd, keypti fyrir skömmu veglega rútu fyrir sjálfan sig og eiginkonurnar, eða þegar svo ber undir; ráöherra og aðra samstarfsmenn. Eins og sjá má af meðfylgjandi mynd er ekki um neina tík að ræða. í vagninum eru 8 hreyfanleg sæti af þægilegustu gerð og á kóngur sjálfur það neðsta hægra megin. Hinu megin við dyrnar sem þjónninn er að ganga um, er eld- hús búið öllum nauðsynjum, í rút- unni er einnig að finna litasjón- vörp, hljómflutningstæki af dýr- ustu gerð og nokkrir símaklefar. Þýska fyrirtækið Neoplan hannaði lúxusvagninn og eins og sjá má kostaði það Fahd karlinn engan smápening, 600.000 þýsk mðrk, en það gerir 4 milljónir islenskar. QPEC-fundurinn í Vín: íranir vega ad forystu- hlutverki Saudi Arabíu \ ínarboru, 21. desember. AP. RÁÐHERRAR OPEC-landanna hafa náð samkomulagi um að draga úr olíuframlciðslu og að stöðva verðhækkanir, en þeim mistókst þó að koma sér saman um veigamikið mál, sem er hvern- ig skipta eigi framleiðsluminnk- uninni á milli framleiðendanna. Afgreiðsla þessa máls bendir til þess að einingin innan OPEC sé allt önnur og minni en í eina tíð. Spilar þar einkum inn í harðvítug- ur ágreiningur á flestum sviðum milli Saudi-Arabíu og írans, einnig hið tveggja ára stríð írans og ír- aks. Saudi-Arabía og íran eru mestu olíuframleiðsluríki OPEC og til þessa hefur fyrrnefnda land- ið haft töglin og hagldirnar innan samtakanna. Ráðherrarnir samþykktu að framleiða ekki meira en 18,5 milljón tunnur á dag á næsta ári, en það sem af er þessu ári hefur framleiðslan verið 19,5 milljón tunnur dag hvern. Ósamþykkt er enn hverjir eigi að draga saman seglin og ír- anski fulltrúinn Mohammad Gharazi tók sérstaklega fram að ekki kæmi til greina að íran dragi úr framleiðslu sinni, 3 milljón tunnur á dag, og fleiri fulltrúar tóku í sama streng. Framkvæmdastjóri OPEC, Marc Nan Nguema, var þó bjartsýnn og sagði að þegar að eftirspurn- in eftir olíu myndi minnka eftir veturinn myndu framleiðslurík- in öll óhjákvæmilega draga saman seglin. Ýmislegt sem fram kom á fundi ráðherranna benti til þess að leiðtogastaða Saudi-Arabíu væri veikari en áður. Einkum hversu margir fulltrúar voru fljótir að samþykkja allt sem ír- anir stungu upp á og fylgja þeim að málum. Iraninn Gharazi sagði: „Saudi-Arabíumenn vilja ekki draga úr eigin olíufram- leiðslu vegna þess að þeir eru beittir þrýstingi af Bandaríkja- mönnum. Þeir voru til mikils trafala á fundinum að þessu sinni og komu einir í veg fyrir samkomulag um hvernig dreifa bæri framleiðsluminnkuninni sem allir voru sammála um að væri nauðsyn. Ráðherrarnir eru smám saman að átta sig á því, að ef þessi samtök eiga að virka sem slík verða ákvarðanir að- eins teknar sameiginlega, en ekki af Saudi-Aröbum einum". Arthur Rubinstein látinn í hárri elli (ienf, 21. deaember. Al*. I’íanósnillingurinn Arthur Rub- instein lést að heimili sínu í Genf síðastliðinn mánudag eftir skammvinn veikindi, að því að haft er eftir nánum vinum fjölskyldunn- ar. Hann hefði orðið 96 ára gamall 28. janúar næstkomandi hefði hon- um enst aldur. Annabelie Whitestone, bresk sambýliskona hans undanfarin þrjú ár, sagði að hann hefði látist árla á mánudagsmorgun og hefði ættingjum og vinum í Bandaríkj- unum þegar verið gert viðvart. Hann öðlaðist heimsfrægð fyrir tilfinningaríkan leik og snilii á fyrstu áratugum aldar- innar og þótti snilli hans jafnan njóta sín best í flutningi á verk- um landa hans, Frederic Chopin. Einnig þótti hann meistari í túlk- un á verkum eftir Brahms, Schu- mann, Schubert, Beethoven, Liszt, Ravel og Debussy. Arthur Rubinstein fæddist þann 28. janúar 1887 í Lodz í Pól- landi, þar sem faðir hans rak verksmiðju. Hann var yngstur sjö systkina, en var kostaðnr til tón- Píanósnillingurinn Arthur Rubin- stein. listarnáms af foreldrum, sem snemma gerðu sér grein fyrir hæfileikum sonarins. Ellefu ára gamall var hann val- inn til Bandaríkjafarar, en þar- lendir voru ekki á einu máli um hæfni hans og var ferðin algjör- iega misheppnuð. Sjálfur sagði hann síðar: „Bandaríkjamenn höfðu rétt fyrir sér. f Evrópu komst ég upp með hvað sem var, en í Bandaríkjunum vildi fólk fá eitthvað fyrir peningana sína.“ í æviminningum sínum sagði Rubinstein að hann hafi ekki náð listrænum þroska í leik sínum fyrr en hann var um fimmtugt og hann bætti við: „Ég gat ekki hugsað mér að að láta börn mín vaxa úr grasi með hugsun um annars flokks píanista sem föður eða föður sem var og hét.“ Hann settist síðan að í Frakklandi í nokkurn tíma og æfði sig mikinn hluta sólarhringsins í einangrun. Eftir mikla sigurför um Banda- ríkin 1937 settist hann þar að og gerðist síðar bandarískur ríkis- borgari. Hann hélt tónleika reglulega í Bandaríkjunum og Evrópu allt til ársins 1976, en þá tók sjón hans að hraka og fing- urnir fóru að stirðna. Fyrrverandi eiginkona hans, býr nú í París, en þau slitu sam- vistum árið 1980 eftir 48 ára hjónaband. Þeim varð fjögurra barna auðið, sem öll búa í Banda- ríkjunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.