Morgunblaðið - 22.12.1982, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1982
15
Jól án áfengis í Betlehem
Betlehem, vesturhakkinn, 21. desember. Al\
BORGARRÁÐIÐ í Betlehem hefur
komið því til leiðar, að áfengissölur
verði lokaðar og leitað verði á öllum
þeim sem ætla sér að taka þátt í hinni
árlegu útiveislu á Jötutorginu á jðla-
nóttina.
Síðustu árin hafa hátíðahöld
þessi, sem haldin eru til að minnast
fæðingar Jesú Krists, boðið upp á
vaxandi drykkjuskap þátttökuaðila
að mati borgaryfirvalda og borgar-
stjórinn Elias Freij lét hafa eftir
sér, „við viljum ekkert brennivín
lengur á þessari hátíð. Torgið hefur
litið út eins og Time Square í New
York eftir nýársnóttina, varla gang-
andi um götur fyrir brotnum vín-
flöskum og tómum bjórdósum." „Við
viljum að hátíðarhöldin verði eins
virðuleg og framast er kostur," lét
ferðamálaleiðtogi einn hafa eftir sér
í þessu sambandi. Lögreglan í Betle-
hem hefur og gert það ljóst, að að-
gerðir verði harðar, leitað verður á
fólki við sérstaka vegatálma og
drukkið fólk verður umsvifalaust
gripið og því stungið í svarthol.
Oldurhúsaeigendur við Jötutorgið
eru á öndverðum meiði við ákvörðun
borgaryfirvaldanna. Einn þeirra
sagði: „Þetta er voðalegt, þetta er
eina kvöld ársins sem Betlehem
vaknar til lífsins. Þeir koma ekki í
veg fyrir drykkjuskapinn með svona
aðferðum." Annar sagði hins vegar:
„Ég er sammála þessu, á hverju að-
fangadagskvöldi geri ég ekki annað
en að varpa drukknum ólátabelgjum
út úr bjórkjallara mínum. Fjár-
hagslega snertir þetta mig varla.“
En á meðan að þrefað er um málið
er undibúningur hátíðarinnar í full-
um gangi, en þrátt fyrir öll boð og
bönn er reiknað með því að þúsundir
manns muni troða sér inn á torgið og
olnbogarými verði með minnsta
móti. Hápunktur kvöldsins verður
messa í Santa Catarina kirkjunni
þar sem færri komast að en vilja.
öðrum gefst kostur á að hlýða á
messuna um mikið hátalarkerfi og
sjá hana að auki á risavöxnum
sjónvarpsskermum sem komið hefur
verið fyrir á torginu. Eigi færri en
tíu kórar munu syngja jólalög linnu-
laust allt kvöldið og 500 lögregiu-
menn verða á þönum hafi skæruliðar
áform á prjónunum að fremja
hryðjuverk.
• Nýleg mynd af Jerry Lewis.
Jerry Lewis í
hjartauppskurði
Ijls Vejjan, Nevada, 21. desember. AP.
BANDARÍSKI gamanleikarinn
Jerry Lewis gekkst undir hjartaupp-
skurð árla í morgun í sjúkrahúsi Las
Vegas-borgar og var líðan hans eftir
atvikum, samkvæmt upplýsingum
frá talsmanni sjúkrahússins.
Talsmaðurinn sagði að hinn 56
ára gamli leikari hefði góða mögu-
leika á að ná fullum bata að nýju,
en hann neitaði að tjá sig um
hvers konar aðgerð hefði verið að
ræða.
Jerry kom á sjúkrahúsið síðast-
liðinn mánudag vegna brjóst-
verkjar og samkvæmt upplýsing-
um frá fjölskyldu hans ákváðu
læknar þegar í stað að gera á hon-
um aðgerð.
Tilræðið við páfa:
„Ítalía leiksvið svæsn-
ustu njósnastarf-
semi kommúnista“
Kómarborg 21. desember. AP.
FJÓRIR ítalskir ráðherrar, þ.á m.
dómsmálaráðherrann, ('lelio Darida,
greindu frá því í ræðum sínum á italska
þinginu á mánudaginn, að sannanir
lægju fyrir um aðild búlgörsku leyni-
þjónustunnar að tilræðinu við Jóhannes
Pál páfa á Péturstorginu á síðasta ári.
Þetta er í fyrsta skipti sem stjórnin
italska greinir frá þessu formlega og
viðbrögð á Ítalíu hafa verið afar sterk.
Leiðarahöfundar flestra helstu
dagblaða Italíu gerðu tilræðismálinu
skil í kjölfarið á umræðunum og
ræðuhöldunum á þinginu á mánudag-
inn. Helsta blað íhaldsmanna, II
Giornale Nuovo, sagði að „gangur
þessa máls benti eindregið til þess að
Italía hefði einum of lengi verið
leiksvið fyrir svæsnustu njósnastarf-
semi kommúnistaríkjanna". Stórblað-
ið Corriera Dela Sera sagði að ef
sannanir lægju fyrir um aðild Búlgar-
anna að tilræðinu, yrði ítalska stjórn-
in að beita sér fyrir mótaðgerðum sem
ekki aðeins væru í þágu Vesturlanda
allra, heldur einnig framkvæmd með
stuðningi þeirra og vitund.
Nokkur blöð gerðu að leiðarakjarna
sínum orð varnarmálaráðherrans,
Lelio Lagorio, „að tilræðið við páfa
væri næstum stríðsyfirlýsing á frið-
artímum".
Málflutningur ráðherranna á
mánudaginn kallaði fram viðbrögð af
hálfu Búlgara og voru þau á sama veg
og fyrri daginn, ásakanirnar væru
með öllu rakalausar og fáránlegar og
einungis með þann tilgang að leiðar-
Ijósi að sverta Búlgaríu og önnur
Austur-Evrópulönd í augum heimsins.
ítalska utanríkisráðuneytið hefur
tilkynnt að eftirlit með útlendingum
og þá einkum Búlgörum og Austur-
Evrópumönnum verði hert og mjög
takmarkað hversu margir slíkir fá að-
gang inn í landið. Þá hefur ráðuneytið
> hyggju að fækka starfsmönnum í
búlgarska sendiráðinu í Róm, en þar
er mun fjölmennara starfslið heldur
en í ítalska sendiráðið í Sofíu.
Guatemala:
Vilja sleppa
forseta-
dótturinni
(.ualemalaborj;, 21. desember. AP.
RÆNINGJAR hinnar 33 ára gömlu
dóttur forseta Honduras hafa heitið
því að sleppa henni óskaddaðri verði
fallist á að birta mikla pólitíska til-
kynningu i helstu dagblöðum Mið-
Ameríku. Tilkynning þessi er í meg-
indráttum stjórnmálaskoðanir
mannræningjanna. Neiti stjórnvöld
hins- vegar að birta tilkynninguna
mun líf Judith Xiomara Suaza Estr-
ada vera i hættu, að þvi er bófarnir
hóta.
Stjórn Guatemala er sögð hafa
áhuga á þessari málamiðlun, en
hefur í hyggju að ganga aðeins að
henni ef Judith verði sleppt áður.
Muni stjórnin þá birta tilkynn-
ingu ræningjanna sem auglýsingu
sem stjórnvöld myndu greiða.
Fjölskylda konunnar hefur fengið
sönnun fyrir því, að Judith hafi
ekki verið líflátin og sé vel haldin,
en ekki er vitað hverjar sannan-
irnar eru.
„Ghandi“ Attenboroughs
besta kvikmyndin ’82
New York, 21. desember. AP.
SAMTÖK kvikmyndagagnrýnenda
í New York kjósa ár hvert bestu
kvikmyndir, leikara og fleira. f
gær settust þeir á rökstóla og báru
saman bækur sínar. Kvikmynd
Richards Attenboroughs um ævi
indverska leiðtogans Mohatma
Ghandi var þar kjörin besta kvik-
mynd ársins 1982. Kvikmyndin
„Tootsie," með Dustin Hoffman í
aðalhlutverki fékk einnig ríku-
legar viðurkenningar.
Besti leikari ársins var kjör-
inn Ben Kingsley fyrir hlutverk
sitt sem Ghandi í mynd Atten-
borough, en Meryl Streep var
kjörin besta leikkonana fyrir
hlutverk sitt sem pólskur flótta-
maður í myndinni „Sophies
Choice", en hún fjallar um líf
Sophie meðan á gyðingaeyðing-
um nasista stóð. Besti leikstjór-
inn var kjörinn Sydney Pollack
sem ieikstýrði „Tootsie" og sú
kvikmynd átti einnig bestu
leikkonuna í aukahlutverki, en
það var Jessica Lange. Besti
• Dustin Iloffman .. besti leikar-
inn.
karlleikari í aukahlutverki var
að dómi gagnrýnendanna John
Lithgow, sem fór með hlutverk
kynferðislega afbrigðilegs fót-
boltaleikara í myndinni „The
World According To Garp“.
Besta erlenda kvikmyndin var
valin „Time Stands Still", eftir
Ungverjann Peter Gothar.
I filmunni okkar voru engir leikarar,
enginn söguþráöur og enginn leikstjóri.
samt fékk hún ÓSKARSVERÐLAUN.
Árið 1982 er merkisár hjá okkur, í marsmánuði fengu
FUJI-filmur Óskarsverðlaun fyrir filmugæði.
Um svipað leyti staðfesti verðkönnun Verðlagsstofnunar
að FUJI filmuverðið er langlægst af öllum filmum
á markaði hérlendis.
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu á Spáni valdi
FUJI filmur til varðveislu þess atburðar. Aðrar
filmur komu hvergi nærri.
Þegar fara saman frábær gæði og lágt verð, er ekki
nema von að FUJI filmurnar njóti mikilla vinsælda.
Nú flytjum við í nýtt og glæsilegt húsnæði að
Skipholti 31, Reykjavík. Þar munum við geta veitt
viðskiptavinum okkar betri þjónustu og meira úrval
af FUJI vörum.
SKIPHOLTI 31
Umboðsmenn um allt land
Frá FUJI bjóðum við: Ljósmynda- og kvikmyndatökuvélar
í öllum verðflokkum, Ijósmynda- og kvikmyndafilmur,
hljóðkassettur, myndbandaspólur í VHS og Beta kerfin
og fjöldan allan af skyldum vörum.