Morgunblaðið - 19.01.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.01.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983 17 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir DAVID MASON Skoðanaágreiningur Pym og Thatcher fer vaxandi Ýmis teikn virðast á lofti þess efnis, að ágreiningur fari vaxandi á milli Margareth Thatcher, forsætisráðherra Breta, og Francis Pym, utanríkis- ráðherra landsins. Heimildarmenn segja ágreininginn fyrst og fremst snúast um viðhorf til griðatillagna Yuri Andropovs, hins nýja leiðtoga Sovétmanna. Þótt aðstoðarmenn beggja hristi höfuðið yfir fregnum um þetta, sem birst hafa i breskum blöðum undir fyrirsögnum á borð við „Stríðsástand" og „Hver er það sem ræður?“, viðurkenna þeir þó í einrúmi, að ekki sé allt eins og það ætti að vera. Táknrænt er fyrir allt umtal- ið, að hvorki Thatcher né Pym, hafa gefið út neina yfirlýs- ingu um þann ágreining, sem sagður er ríkja þeirra í millum. Þessi þögn þeirra hefur leitt til þess, að embættismönnum ráðu- neyta þeirra tveggja í Lundún- um stendur hreint ekki lengur orðið á sama. Francis Pym tók við embætti utanríkisráðherra fyrir 9 mán- uðum af Carrington lávarði, sem þá sagði af sér, þrátt fyrir ítrek- aðar beiðnir af hálfu Thatcher um að hann sæti áfram. Ástæð- an fyrir afsögn Carringtons láv- arðar var fyrst og fremst reiði almennings á Bretlandseyjum yfir því að Bretar skyldu ekki geta komið í veg fyrir innrás Argentínumanna á Falklands- eyjar. Hugur fylgdi ekki máli Stjórnmálaskýrendur sögðu þegar Carrington lávarður sagði af sér og Thatcher tók þá ákvörð- un að skipa Francis Pym í emb- ætti utanríkisráðherra, að hugur hefði ekki fylgt máli. Margir úr röðum þeirra voru þeirrar skoð- unar þá, og eru jafnvel enn, að embættisskipun þessi hafi ein- ungis þjónað þeim tilgangi að treysta böndin í breska íhalds- flokknum fyrir Falklandseyja- deiluna, sem þegar í upphafi var vitað að gæti orðið langvinn. Andropov lagði griðatillögur sínar fram þann 21. desember sl. Tillögurnar fólu m.a. í sér, að Sovétmenn fækkuðu meðaldræg- um eldflaugum sínum að því marki, að þeir réðu yfir jafn- mörgum slíkum og Bretar og Frakkar til samans. Thatcher ýtti þeim strax til hliðar á þeim forsendum að hér væri rétt eina ferðina gamalt vín á nýjum belgjum. Sama dag og Thatcher lýsti því yfir, að hún sæi enga ástæðu til þess að fara nánar ofan í saumana á tillögum Andropovs, lýsti Pym því yfir að hann teldi margt athygli vert í tillögunum og að hann myndi „íhuga þær af miklum áhuga“. Taldi Pym einn- ig, að tillögurnar væru alltént skref í rétta átt. Pym áhugasamastur Síðan gerðist það þann 7. janúar, daginn eftir að Varsjár- bandalagsríkin lýstu því yfir eft- ir fund sinn í Prag, að þörf væri á samkomulagi við aðildarríki Atlantshafsbandalagsins um að beita ekki vopnum og umtals- verða fækkun herafla, að Pym sýndi yfirlýsingunni meiri áhuga en nokkur annar háttsettur embættismaður í Vestur- Evrópu, svo vitað er til. Sagði hann yfirlýsinguna „stórmerkilega" og að hana bæri að íhuga af ýtrustu nákvæmni. Margaret Thatcher ósamimála Pvm. Francis Pym ósammála Thatcher. Pym sagði einnig, að ef tillaga Vesturveldanna, „valkostur núll“, fengi ekki samþykki yrði að minnsta kosti að íhuga næstbestu tillöguna. Thatcher hefur til þessa verið þögul sem gröfin um niðurstöður fundar Varsjárbandalagsríkj- anna í ársbyrjun og ekki sýnt, að hún sé reiðubúin til að sættast á næstbesta kostinn í þessu tilviki fremur en öðrum. Hún er ein- dregið fylgjandi „valkosti núll" og hvikar ekki frá þeirri skoðun sinni. Rétt eins og Carrington láv- arður er Pym því fylgjandi, að Bretar leiki stærra hlutverk í til- raunum til að koma á varanleg- um friði í Miðausturlöndum. Hann hafði reyndar ráðgert kurteisisheimsókn til Saudi- Arabíu og annarra ríkja við Persaflóa í þessari viku, en henni var frestað af Thatcher í kjölfar þeirrar ákvörðunar hennar að neita að taka á móti sendinefnd frá Arababandalag- inu til að ræða um friðartillögur. í þeirri sendinefnd var m.a. full- trúi frá PLO. Pym er sagður undirbúa aðra för á þessar slóð- ir. Mitt í öllu þessu þjarki til- nefndi Thatcher Sir Anthony Parsons, fyrrum sendiherra Breta hjá Sameinuðu þjóðunum, sem sérlegan fulltrúa sinn í utanríkismálefnum. Hún hafði áður haft beint samband við hann í nokkrum tilvikum meðan á Falklandseyjadeilunni stóð. Aðstoðarmenn ráðherranna telja ekki, að ráðning Parsons sé gerð til þess að veikja stöðu Pyms gagnvart Thatcher, en enn hefur engin skýring verið gefin á því hvers vegna hún þarf skyndi- lega á ráðgjafa í utanríkismál- efnum að halda í Downing- stræti 10, þegar vart er tæprar mínútu gangur yfir í ráðuneyti Pyms. Að stefnuágreiningi þeirra og hinni velþekktu staðreynd, að Thatcher virðist ætíð hafa verið óþolinmóð í garð utanríkisráðu- neytisins, slepptum telja heim- ildarmenn að rótina að ágrein- ingi þeirra megi rekja til árekstra þeirra innan Whitehall, stjórnarráðs þeirra Breta. Pym á traustum fótum Áður en Thatcher varð forsæt- isráðherra gegndi Pym embætti talsmanns Ihaldsflokksins í utanríkismálum. Thatcher komst til valda í maí 1979 og undir eðlilegum kringumstæðum hefði Pym átt að hljóta embætti utanríkisráðherra, sem hann hafði augastað á. Þess í stað var hann skipaður í stöðu varnar- málaráðherra. Hann lenti fljótt í útistöðum við fjármálaráðuneyt- ið er hann mótmælti niðurskurði til varnarmála á fjárlögum og storkaði Thatcher með því að lýsa því yfir, að efnahagshorf- urnar væru ekki nándar nærri eins bjartar og forsætisráðherr- ann vildi vera láta. Að sögn þeirra, sem best þekkja til, var Pym að því kom- inn að segja af sér þegar hann var færður úr embætti varnar- málaráðherra og gerður að for- seta neðri málstofu breska þingsins. Þeirri stöðu gegndi hann þar til Falklandseyjadeilan hófst. Pym studdi Thatcher ekki í kjöri til formanns íhaldsflokks- ins. Hann hefur iðulega verið nefndur sem líklegur arftaki hennar verði þörf á slíku á næst- unni. Hann er Thatcher hliðholl- ur, a.m.k. í þeim málum er snúa beint að almenningi, en fleiri telja, að hann setji hag íhalds- flokksins skör ofar en stuðning við forsætisráðherrann. Stjórn- málaskýrendur eru á einu máli um að Pym eigi sér svo öfluga stuðningsmenn innan íhalds- flokksins, að Thatcher geti ekki varpað honum fyrir borð af stjórnarskútunni, a.m.k. ekki fyrr en að kosningum loknum, sem ekki verða síðar en í maí á næsta ári. (Heimild AP, þýð. — SSv.) Seltjarnarnes — Vesturbær d Mánudaginn 24. janúar hefst á vegum skólans kvöldtímar í léttum æfingum fyrir konur á öllum aldri. Innritun og upplýsingar í síma 15359 e.h. \ Ballettskóli Guöbjargar Björgvins, íþróttahúsinu Seltjarnarnesi, Litla sal. 6 vikna námskeið aö hefjast. Einkum fyrir heimavinn- andi húsmæöur. Holl og góö hreyfing. Morguntímar, dagtímar. Leiðbeinandi Garöar Alfonsson. Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur, Gnoöarvogí 1. Aöur en allt hækkar ! i Tvíhneppt föt vlö öll tækifæri Verö 3.360.- P ¥ « K§! fi S> Austurstræti l(r fsiini: 272 ll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.