Morgunblaðið - 19.01.1983, Síða 22

Morgunblaðið - 19.01.1983, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983 Bráðabirgðalögin vóru kákaðgerð: Stefiiir í fjöldaatvinnuleysi Lárus innar er stefnt í hættu og að óbreyttu er boðið upp á fjöldaat- vinnuleysi, en atvinnuleysi er í dag meira en verið hefur um langt árabil. Bráðabirgðalögin frá í ágúst hafa engan vanda leyst. Þau eru þvert á móti vitnisburður um kákið. sagði Lárus Jónsson á Alþingi í gær Frumvarp til laga um efnahagsráðstafanir (bráðabirgðalög ríkis- stjórnar frá í ágústmánuði sl.) vóru afgreidd frá efri til neðri deildar Alþingis í gær, eftir harðar umræður. Stjórnarandstæðingar greiddu atkvæði gegn fyrstu grein frumvarpsins um verðbótaskerðingu launa, til að undirstrika andstöðu sína við heildarstefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, og gegn 7. grein (um sérstakt timabundið vörugjald), en aðrar greinar vóru samþykktar með 9 gegn 2 atkvæðum. Stjórnarandstæðingar kröfðust upplýsinga um framkvæmd „láglauna- bóta“ og efnisinnihald breytingartillögu, sem sjávarútvegsráðherra hafði boðað í sjónvarpsviðtali, en fengu lítil svör önnur en þau að þessi mál yrðu frekar skýrð í meðferð neðri deildar. 17% verðbóta- skerding launa 1982 Samtals veröbóta- skerding um 17% Lárus Jónsson (S) sagði tvennt felast í þessum bráðabirgðalögum: 7,71% verðbótaskerðingu 1/12. sl. og þriðjungshækkun á vörugjaldi frá ágúst sl. til febrúarloka þ.á. Þegar saman væru dregnar verð- bótaskerðingar Ólafslaga 1. marz, 1. júní, 1. september, 1. desember sl. og bráðabirgðalaganna næmi samanlögð skerðing verðbóta á laun á sl. ári 17%. Þrátt fyrir þessa verðbótaskerðingu og þrátt fyrir að vísitala hafi verið greidd niður um 6% hafi verðbólga frá upphafi til loka liðins ár vprið 62%. Það mætti því með sanni segja að miklu hafi verið fórnað fyrir lítinn árangur. . Þrátt fyrir þessi bráðabirgða- lög, sem túlkuð vóru sem bjargráð í atvinnu- og efnahagsmálum, væri skollið á upplausnar- og hættuástand í þjóðarbúskapnum. • Fyrsta og alvarlegasta einkenni þessa hættuástands er, hve lítið dregur úr ískyggilegum viðskipta- halla, sem var á sl. 2 árum 5000 m.kr., og greiðslubyrði erlendra lána, sem enn muni aukast á þessu ári. • Annað einkenni hættuástands- ins er langvarandi taprekstur og skuldasöfnun undirstöðuatvinnu- vega, sem þegar segi til sín í auknu atvinnuleysi. • Þriðja einkennið er að heild- arsparnaður hefur minnkað svo mikið undanfarið að nálgast hrun. • Fjórði hættuboðinn er að fjár- festing í atvinnuvegum hefur dregizt saman og framleiðni at- vinnuveganna minnkað. • Fimmta dæmið felst í gífurlegri þenslu ríkisútgjalda og stórauk- inni beinni og óbeinni skatt- heimtu. • Sjötta viðvörunin er stöðnun þjóðarframleiðslunnar í gengnum góðærum og samdráttur þjóðar- tekna sem segir til sín í lakari lífskjörum. • Sjöunda og síðasta einkenni hættuástandsins í íslenzkum þjóð- arbúskap er svo verðbólgan, sem ekki er komin niður í 6% vöxt 1982, eins og stjórnarsáttmálinn stóð til, heldur stefnir að óbreyttu í meiri hæðir en nokkru sinni. Já, verðbólgan er komin lang- leiðina í 70%, greiðslubyrði er- lendra lána er vaxandi, viðskipta- hallinn vex, undirstöðuatvinnu- vegum er haldið gangandi með er- lendum lántökum og peningakerfi þjóðarinnar er í rúst og fjárskort- ur atvinnuveganna stendur þeim fyrir þrifum. Þetta eru ávextir stjórnarstefnunnar. Fjárhagslegu sjálfstæði þjóðar- Kjartan Gjörbreyta þarf um stefnu Kjartan Jóhannsson (A) minnti á þau markmið, sem rikisstjórnin taldi sig stefna að með efna- hagsstefnu sinni og bráða- birgðalögum. Verðbólgumarkmið- ið væri víðs fjarri. Viðvarandi verðbólga í dag væri milli 70—80% á ársgrundvelli. Við- skiptahallinn fer vaxandi á þessu ári. Atvinnuöryggi er síður en svo tryggt, þvert á móti er meira at- vinnuleysi hérlendis á líðandi stund en dæmi eru um á sl. áratug. Láglaunabæturnar, sem réttlæta hafi átt verðbótaskerðingu launa, töluðu og máli, sem ekki þyrfti að skýra frekar. Hverfa þarf til gjör- breyttrar efnahagsstefnu, sagði Kjartan, eins og stefnumörkun Alþýðuflokksins gerir ráð fyrir. Fleiri tóku til máls þó ekki verði frekar rakið að sinni. Matthías Á. Mathiesen: „Ráðstafanir sem bein- línis kynda verðbólguna“ Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsráðherra, mælti í gær fyrir stjórnarfrumvarpi sem kveður á um: 1) 4% nýtt útflutn- ingsgjald af sjávarafurðum, sem lagt verður á sama stofn og hið almenna 5,5% útflutningsgjald, sem áfram verður lagt á samtím- is því nýja. 2) Hið nýja útflutningsgjald rennur í Olíusjóð, sem greiða skal niður olíu til fiskiskipa um 35%, en slík niðurgreiðsla er talin kosta um 400 m.kr. 1983. 3) Olíusjóðurinn skal hafa heimild til að taka 100 m.kr. lán 1983, ef hið nýja útflutnings- gjald hrekkur ekki til niðurgreiðslunnar. 4) 7% olíugjald, sem gekk úr gildi um sl. áramót, skal lögfest að nýju og gilda út árið 1983. Olíugjaldið leggst á fiskverð utan skipta. 5) Heimilt skal að fella niður eða endurgreiða stimpilgjald af allt að 500 m.kr. skuldbreytingarlánum sem útgerðinni hafa verið veitt. Stuðningur við sjávarútveginn Steingrímur Hermannsson (F) sagði rekstrarstöðu útgerðar hafa verið þessa fyrir og eftir 14% fisk- verðshækkun um áramótin: Báta- flotinn mínus 14,1% fyrir en mín- us 4% eftir. Minni togarar mínus 13,8% fyrir en mínus 1,5% eftir. Stærri togarar mínus 14,7% fyrir en mínus 3% nú. Meðaltalsstaða mínus 14,7% fyrir en mínus 3% í dag. Veiðibrestur á loðnu, aflasam- dráttur þorsks og hækkandi til- kostnaður, innfluttur og innlend- ur, valda þessum vanda, sem við er að glíma, sagði ráðherrann. Fisk- verðshækkun var því óumflýjan- leg. Frumvarp þetta felur í sér ráðstafanir, sem heitið var í fram- haldi af fiskverðsákvörðun. Útflutningsgjaldið, olíugjaldið og niðurgreiðslurnar eru viðleitni til að mæta að mestu annars fyrir- sjáanlegum hallarekstri í fiskveið- um, sem gat leitt til stöðvunar og atvinnuleysis ella. Afleiðing rangrar efnahagsstefnu Matthías Á. Mathiesen (S) sagði vandamál í sjávarútvegi mestan- part afleiðingu rangrar efnahags- stefnu ríkisstjórna frá 1978. Þrátt fyrir útfærslu í 200 mílur og eigin forsjá í fiskveiðum á Is- landsmiðum hafi málefnum sjáv- arútvegs verið stefnt í tvísýnu. Veiðisókn hefur ekki verið löguð að veiðþoli. Innlend verðlagsþróun hefur nánast stefnt rekstri undir- stöðuatvinnuvega í strand. Þrátt fyrir bráðabirgðalög, sem vand- ann áttu að leysa, og snoturlega orðaðar yfirlýsingar ráðherra, hefur sífellt sigið á ógæfuhliðina. Fyrirhyggjuleysi ríkisstjórnarinn- ar segir til sín í öllum þáttum þjóðarbúskaparins. Matthías sagði sjálfstæðismenn andvíga upptöku sjóðakerfis og millifærsluleiðar, sem tekizt hafi að afnema fyrir nokkrum árum. Allir, sem hlut eiga að sjávarút- vegi, hafa svipaða afstöðu. Matthías vitnaði til formanns Sjómannasambandsins („Við er- um orðnir langþreyttir á þessum afskiptum"), formanns LÍÚ („Þá vil ég taka fram að við hefðum kosið aðra aðferð .. “), framkvæmdastjóra Samb. ísl. fiskframleiðenda („Þetta gengur gegn allri skynsemi") og fram- kvæmdastjóra Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna („Við eru and- vígir hækkun útflutnings- gjalds.. “). Hin betri leiðin sniðgengin Loks vitnaði Matthías til erindis frá Útvegsmannafélagi Suður- nesja, sem taldi „eðlilegra að af- nema 7% olíugjald og taka upp í staðinn 17% kostnaðarhlutdeild, eins og meiri hluti verðlagsráðs hefði getað sætt sig við“. Sú leið kom útgerðinni í heild að sama gagni en hefði auk þess verið hvati til olíusparnaðar. Matthías vék að tekjuöflun frumvarpsins. Tollur væri lagður á frysta fiskinn, skreiðina og saltfiskinn. Stór hluti skreiðar- framleiðslunnar væri enn í land- inu. Astæða væri til að létta undir með þessari framleiðslu fremur en að íþyngja henni með upptöku gengismunar og útflutningstolli. Steingrímur Matthías Sighvatur Vilmundur Karvel * A kostnað sjómanna- stéttar Sighvatur Björgvinsson (A) sagði frumvarpið fela í sér upptöku millifærsluleiðar, sem kostað hafi ærna fyrirhöfn og fórnir að fá af- numda. Allir viðkomendur, útveg- ur, fiskvinnsla og sjómenn, eru andvígir þessari leið. Hún leysir upp hlutaskiptasamninga útvegs og sjómanna og tekur verulega fjármuni fram hjá skiptum. Þetta er vandræðalausn á kostnað sjó- manna. En ábyrgðin er ríkis- stjórnarinnar. Eg mun bjarga með hjásetu, ef með þarf Vilmundur Gylfason (BJ) tók undir gagnrýni á millifærsluleiðir. En ekki dygði hinsvegar að taka þetta mál eitt út úr öllu milli- færslukerfinu. Hækkun fiskverðs sem fylgt er eftir með gengislækk- un er millifærsla. En þetta frum- varp felur í sér hluti, sem heitið var samhliða fiskverði. Ríkis- stjórnin hefur meirihluta á Al- þingi en ekki í neðri deild. Ef með þarf mun ég tryggja það að þetta samkomulag nái fram að ganga með hjásetu, þó ég sé andvígur millifærslukerfinu. Vilmundur áréttaði í máli sínu að ákvörðunarkerfi fiskverðs væri eitt allsherjar millifærslukrull í þágu manna, sem oft væru óhæfir til viðkomandi rekstrar. Vilmundur þarf frest vegna BJ Karvel Pálmason (A) gagnrýndi harðlega að hér væri gengið á hlut sjómanna. Vilmundur talaði gegn millifærslunni en ætlaði þó að styðja hana. Ástæðan væri sú ein að hann þyrfti frest til að ganga frá framboðsmálum Bandalags jafnaðarmanna. Þessvegna hlypi hann undir bagga með ríkisstjórn- inni. Karvel veittist og harðlega að meintum ólýðræðislegum starfsháttum BJ. Fleiri töluðu en hér verður ekki frekar rakin umræðan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.