Morgunblaðið - 19.01.1983, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983
27
Samtök grásleppuhrognaframleiðenda:
Skulda Landsbankanum
rúmar 4 milljónir króna
Frá framhaldsaðalfundi samtaka grásleppuhrognaframleiðenda. Við púltið
stendur Rögnvaldur Rinarsson frá Akranesi en í bókinni blaðar Guðmundur
Lýðsson, framkvæmdastjóri samtakanna, en uppsagnarbréf hans var lesið á
fundinum. Morgunblaðift/RAX
10 félagsmenn í
sjálfskuldaábyrgð
SAMTÖK grásleppuhrognaframleið-
enda héldu framhaldsaðalfund sinn
á sunnudag, og kom þar fram, að við
síðastliðin áramót skulduðu samtök-
in rúmar fjórar milljónir króna, sem
er talsvert umfram eignir, sam-
kvæmt upplýsingum Rögnvalds Rin-
arssonar á Akranesi, eins stjórnar-
manna. A fundinum var lesið upp
uppsagnarbréf frá framkvæmda-
stjóra samtakanna, Guömundi Lýðs-
syni, og tekur ný stjórn væntanlega
afstöðu til uppsagnarinnar nú í vik-
unni, en Rögnvaldur tjáði Morgun-
blaðinu, að miðaö við fjárhagsstöðu
samtakanna væri það sín skoðun að
eðlilegast væri aö Guðmundur yrði
ekki endurráðinn.
„Skuldir samtakanna nema
samtals 4.008.589,70 krónum, en
það er rangt að eignir samtakanna
séu sáralitlar eða engar. Ég álít að
þær séu um 2,5 milljónir króna,“
sagði Rögnvaldur. Hann sagði til
eigna teljast bíl upp á 200 þúsund
krónur, tunnubirgðir upp á eina
milljón og óinnheimt útflutn-
ingsgjöld af grásleppuafurðum,
þ.á m. af lagmeti, að upphæð um
ein milljón króna. Einnig sagði
hann óhætt að meta hlut samtak-
anna í fransk-íslenzka kavíarfyr-
irtækinu Icelump á allt að hálfa
milljón króna, en kostnaður sem
samtökin hefðu lagt í vegna þess
fyrirtækis væri um 300 þúsund
krónur. „Af þessum sökum tel ég
eiginfjárstöðuna neikvæða um 1,5
til 1,8 milljónir króna," sagði
Rögnvaldur.
„Það er ekki rétt að erlendu
tunnulánin séu ógreidd, Lands-
bankinn er búinn að greiða þau
upp, en í staðinn skulda samtökin
Landsbankanum. Alls hafa 10
stjórnarmenn tekið á sig sjálf-
skuldarábyrgðir í þessu sambandi,
og eru þau lán að upphæð þrjár
milljónir króna.
Það hefur ekki verið greitt af
þessum lánum, en bankinn hefur
óskað eftir samningum við okkur
um greiðslu lánanna eða áætlun
um hvernig við hugsum okkur að
borga af þeim.
Bankinn tók tekjur okkar 1981
upp í þá fyrirgreiðslu sem hann
hafði veitt okkur til að reka félag-
ið. Þá var ekkert eftir til að borga
erlendu lánin, sem við vildum
losna við, og var því óskað að þau
yrðu greidd og það fært okkur til
skuldar.
Við erum búnir að fá ákveðin
loforð um fyrirgreiðslu frá hinu
opinbera vegna fjárhagsstöðu
samtakanna, einkum til að losa
ýmsa félagsmenn undan persónu-
legum ábyrgðum sem þeir hafa
gengið í vegna skulda samtak-
anna,“ sagði Rögnvaldur. Rögn-
valdur sagði að erfiðleikar sam-
takanna hefðu í raun byrjað 1981
þegar eiginfjárstaða þeirra varð
neikvæð um 1,2 milljónir. Grá-
sleppuhrognin hefðu ekki selst, og
síðan hefðu tekjustofnar brugðist
1982 vegna aflahruns og helmings
minnkunar tekna af útflutn-
ingsgjöldum af grásleppuhrogna-
afurðum.
GEÐHJÁLP, félag geðsjúkra, að-
standenda þeirra og velunnara
gengst í vetur fyrir fyrirlestrum
um geðheilbrigðismál og skyld
efni. Fyrirlestrarnir verða haldnir
á geðdeild Landspitalans, í
kennslustofu á 3. hæð. Þeir verða
allir á fimmtudögum og hefjast kl.
20. Fyrirlestrarnir eru fyrir fé-
Á fundinum á sunnudag var
kosin ný stjórn samtakanna, en
hana skipa: Björn Guðjónsson
Reykjavík, Rögnvaldur Einarsson
Akranesi, Hannes Guðmundsson
Flatey, Sævar Gestsson ísafirði,
Guðjón Guðmundsson Ströndum,
Jón Heiðar Steinþórsson Tjörnesi
og Guðni Sigurðsson Vopnafirði.
Stjórnin kýs sér formann á fyrsta
fundi sínum. Jafnframt verður þá
væntanlega tekin afstaða til upp-
sagnar framkvæmdastjórans, sem
sagði upp með sex mánaða upp-
sagnarfresti frá 1. janúar sl. að
telja.
lagsmenn og alla aðra, sem áhuga
kynnu að hafa. Aðgangur er
ókeypis. Fyrirspurnir og umræður
verða eftir fyrirlestrana.
Þann 20. júní 1983 heldur Eirík-
ur Örn Arnarson, sálfræðingur,
fyrirlestur um fælni (fóbiur) og
helstu meðferðarform.
Fyrirlestrar um
geðheilbrigðismál
Notaðir
í sérf lokki
Skoda 120 GLS árg ’80. Toppvagn
á nýjum nagladekkjum.
Chrysler LE Baron T/C árg. ’79.
Kemur á götu 1981. Leðurklædd-
ur með helling af tökkum.
Alfa Romeo Alfetta 2,0 árg. '77.
Hreinræktaður gæðingur. Vetr-
ardekk á felgum fylgja.
(lF-« 1
3 I ©
-VUNADb 4BYRGÐ v . [chkysler]
SK®DA
crrzccr
Subaru fjórdrifinn skutvagn árg.
’80. Er á góðu verði miðað við
snögga sölu.
Skoda 120 L árg. ’79. Flösku-
grænn. Vetrardekk fylgja.
JÖFUR HF.
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600