Morgunblaðið - 19.01.1983, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 19.01.1983, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983 „Aðeins kona með kvndil“ eftir Inffibjörgu Þorgeirsdóttur Fyrir rúmum tveim árum skeði sá söjíulejíi atburður að kona — Vifí«Iís Finnboiíadóttir — var sett í forsetastól íslands. Vakti hann ekki einungis athygli og umtal hér heima okkar á meðal heldur einn- ig meðfram úti í hinum stóra heimi, þar sem hinn nýi forseti var fyrsta konan, er þvílíkt emb- ætti hafði hlotnast við lýðræðis- lega kosningu. Eins og að líkum lætur var leið- in upp í stólinn engin eggslétt og gljáandi skautabraut. í svona keppni getur margt orðið til þess að varpa steinum í götur fram- bjóðenda. Mörgum fannst m.a. ein- stæð kona hafa lítið að gera með að þreyta kapphlaup á þessum vettvangi við þrjá þjóðkunna, ágæta karla, og alla ágætlega kvænta að auki. Var ýmsum, ekki _ síst konum, það í fyrstunni veru- legur þyrnir í augum. Þegar nær dró endasprettinum fjölgaði þeim, sem þóttust sjá að konan í þessu kapphlaupi væri svo að manngerð og menntun að óhætt myndi að trúa henni fyrir þessu veglega embætti. Auk þess fannst sumum kynsystrum hennar hér um ein- stætt tækifæri að ræða, sem kon- ur mættu ekki varpa á glæ, svo mikilvægt sem það gæti orðið til eflingar þeirra eigin jafnréttis- málum og menningarsókn. Tæki- færi, sem tæplega byðist aftur á þessari öld, ef þær vörpuðu því nú fyrir borð. Allir vita hvernig fór, og skýr- asta sönnun þess, hversu til hefur tekist, er sú staðreynd að nú, þeg- ar kjörtímabil forsetans okkar er rúmlega hálfnað, munu fáir finn- ast okkar á meðal — karlar eða konur — að ekki láti sér vel líka kosningaúrslitin sumarið 1980, hvernig sem þeirra eigin atkvæði hafa fallið sjálfan kosningadag- inn. Til þessa liggja margar orsak- ir og atburðir, sem full ástæða er fyrir okkur að rifja upp, gleðjast yfir og þakka. Mér er sönn ánægja að játa að ég var ein af þeim, sem vildi ekki varpa burt tækifærinu og hafði engar áhyggjur út af „makaleys- inu“. Auk þess ól ég með mér sjálfri — mjög svo óljósar þó — vonir eða drauma, sem ég í hreinskilni sagt fyrst lengi vogaði ekki að hafa orð á við nokkurn mann. Svo barnalegt og uppi í skýjunum bjóst ég við að öilu skynsömu og raunsæju fólki myndi finnast slíkt hugarfóstur. En síðan sumarið 1980 leið hefur mikið vatn til sjávar runnið og ýmsir atburðir gerst í kringum forsetann okkar, sem engan óraði þá fyrir. Þess vegna er ef til vill nú öllu tímabærra en þá að minnast lítillega á sínar gömlu, sólroðnu skýjaborgir, sér og öðrum til gam- ans. Sú frásögn gæti þá hljóðað eitthvað á þessa leið: Með því að kjósa konu til for- seta höfum við átt frumkvæði að því að losa heiminn við eina virðu- legustu og sterkustu hefð „karla- ríkisins“ og með því stigið drjúgt spor í áttina til jafnréttis kynj- anna. Þessi kosning var því ekki Leiðrétting í KYNNINGU á frambjóðendum á prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra sl. laugardag voru missagnir er snerta einn frambjóðenda, Sverri Leósson, Akureyri. Hið rétta er, að hann átti sæti í stjórn LÍÚ í sex ár. Hann var formaður Varðar, FUS, Akureyri 1973—1975 Og for- maður Félags Sjálfstæðismanna á Akureyri 1977—1981. Þetta leið- réttist hér með. aðeins sögulegur atburður fyrir okkur heldur einnig allar aðrar lýðræðissinnaðar þjóðir, enda fljótlega þannig á hana litið, að því er virtist af frænd- og ná- grannaþjóðunum, sem samfögn- uðu okkur af heilum hug og létu ekki standa á heimboðunum. Og hver gat búist við meiru? Otrúlegt en satt, mínar skýja- horgir náðu samt enn lengra og hærra, og áður ég vissi af hafði ég sveiflað mér upp á einn hæsta út- sýnisturninn þar, því aðeins þaðan var mögulegt að sjá vítt of veröld alla. Og einmitt þaðan þóttist ég greina mynd Vigdísar, forsetans okkar, ekki einhvers staðar stand- andi einmanalega, einstæöa konu heldur í og meðal þúsundanna og jafnframt gnæfa þar yfir og upp úr fjöldanum og tala máli skiln- ings, jafnréttis, bræðralags og friðar til fólksins á einni af heims- tungum veraldarinnar. Auðvitað stóð þessi skýjaferð ekki lengi. Hin svonefnda heilbrigða skyn- semi kippti óðar en varði í spott- ann og kom skýjaglópnum aftur niður á gangstéttina heima hjá sér. Öllu öruggara að halda sér bara við dyrahellu hversdagsleik- ans en hanga þarna uppi á ein- hverjum stólpalausum gullskýja- svölum. Og tíminn leið, vikur eða mán- uðir, ég man það ekki, þegar út barst fregnin um hina væntanlegu „Vesturheimsför" forsetans okkar og annarra þjóðhöfðingja af Norð- urlöndum. Þóttu það allmikil tíð- indi, en í upphafi datt víst fáum í hug að forsjónin myndi leggja spil- in á þann veg, er raun varð á síðar. Hver var svo spámannlega vaxinn sumarið 1980 að hann sæi fyrir þennan mikla og margþætta at- burð? Eins og aðrir, er heima sátu, fylgdist ég með þessari einstæðu för gegnum fjölmiðlana, útvarp, sjónvarp og blöð, af lifandi áhuga og eftirvæntingu og svolitlum kvíða í byrjun, er hvarf þó fljót- lega sem dögg fyrir sólu eftir að fyrstu fréttir höfðu borist. Og nú er ég hvortveggja stolt og glöð og þakklát fyrir hönd forsetans okkar, fyrir hönd okkar eigin þjóðar og einnig allra hinna, sem sýndu okkar nýja forseta og litlu þjóð það traust og þann heiður að fela honum svo að segja að vera fulltrúi fulltrúanna á aðalopnun- arhátíðum þessa einstæða menn- ingarleiðangurs. Þó er mér ef til vill efst í huga auðmýkt og þakk- læti gagnvart sjálfri forsjóninni. En forsjónin er eins og flestir vita eitt af þeim táknrænu nöfnum, sem íslensk alþýða hefur valið hinum „Hæsta", sem við flest þeg- ar allt kemur til alls skynjum, vonum og trúum að standi á bak við stýrið, ekki aðeins á okkar litla þjóðarfleyi heldur einnig á hinum stóra sameiginlega knerri, er við köllum jörð. Eg ætla ekki að endurtaka hér öll þau lofsamlegu orð og ummæli sem Vigdísi forseta féllu í skaut í þessari merkilegu för, eða greina náið, hvernig henni tókst á ein- faldan en snjallan hátt að opna dyrnar og gefa innsýn inn í fornan og nýjan menningarheim smá- þjóða norðursins, fullvalda ríkj- anna fimm, sem áður fyrr „eltu oft grátt silfur" sín á milli, en nú starfa saman á ótal sviðum og þráfaldlega koma fram sem ein heild á alþjóða þingum og stefnu- mótum og vísa sannarlega öðrum þjóðum veginn í þessum efnum. Og nú taka þær höndum saman um að kynna öðrum þjóðum heims á áhrifaríkan hátt menningu sína og afrek. Það er nýjasta dæmið um samheldni þeirra og samstarf. Það var sannarlega athyglis- og aðdáunarvert, hversu vel forseta okkar tókst að leysa af hendi og koma til skila sínu stóra og ein- stæða hlutverki. Svo vel vil ég segja, að flestum fannst sem eng- Ingibjörg Þorgeirsdóttir „Nú þegar konurnar eru sem óðast að vakna til vitundar um sína eig- in getu og mátt til stórra hluta, einnig á vettvangi heimsmálanna, ættum við að minnast þess að engan stærri og dýrð- legri hlut gætu þær þá kosið sér en þann að ávinna heiminum af- vopnun og frið.“ inn hefði betur verð til þess kjör- inn eða frá því geta komist á glæsilegri og betur viðeigandi hátt. Augljóst er að ýmsar ytri að- stæður réðu einnig nokkru um að forsetinn okkar var valinn til að vera sameiningartákn og fánaberi í þessari menningarför bræðra- þjóðanna. I því sambandi má með- al annars benda á að aðstaða hans sjálfs var nokkuð sérstæð. Og vert er að athuga að þar sem hann var lýðræðiskjörinn forseti, en póli- tískt séð algjörlega óháður og að auki fyrsti kvenforsetinn, sem um er getið þannig kjörinn, er engin fjarstæða að ætla að þetta hafi í sameiningu gefið honum öllu pieiri möguleika til frjálsari tján- ingar- og túlkunarmáta en mátti vænta af konungbornum og hefð- bundnum þjóðhöfðingjum. Það er einkenni snjallra ræðu- manna að nota stuttar sagnir, ævintýri, ljóðaperlur eða hnyttin orðtök til að varpa ljósi inn í meg- inmálið, sem skýra og dýpka drætti þess. Slíka aðferð notaði Vigdís forseti af skemmtilegum hagleik og hlaut óskipta athygli fólksins að launum. Þannig hóf hún ræðu sína við opnun hátíðar- innar í Wasington með yndislega ævintýrinu um óskasteininn, gullbikarinn og jarðirnar þrjár. Sannarlega fagurt blóm úr gam- algrónum menningarakri hennar eigin þjóðar, en jafnframt tákn- ræn mynd þeirra gullnu þráða, sem sérhver þjóðmenning er að HINN 20. október síðastliðinn varði Hafsteinn Pálsson dokt- orsritgerð sína í byggingarverk- fræði við Georgia Institute of Technology, Atlanta, Georgia, USA. Heiti ritgerðarinnar er: „Influence of Nonstructural Cladding on Dynamic Prop- erties and Performance of Highrise Buldings." Þar gerir hann athugun á áhrifum útveggjaeininga, sem ekki eru taldar berandi við hönnun, á sveiflufræðilega eiginleika háhýsa og hegðun þeirra undir jarðskjálftaálagi. Hafsteinn lauk stúdents- verulegu leyti ofin úr og hverri þjóð er nauðsyn að varðveita ófúna. Því að þar liggja einmitt þeir þræðir, er seinna verða meðal uppistöðuþráðanna í hinni sam- eiginlegu heimsmenningu og gæða hana lífsins óendanlegu litbrigð- um. — (Hér á ég auðvitað við sanna, jákvæða menningu, — orð samst. mennsku, — gagnstætt orð- inu ómenning, ómennska. En því miður er þessum andstæðu orðum og hugtökum í reynd stundum ruglað saman.) Að menningunni í víðri merkingu þess orðs vék Vigdís for- seti hvað eftir annað. Gerði því efni í fáum orðum oft eftirminni- leg skil. Benti m.a. á nauðsyn og gildi þekkingar og kynningar þjóða á milli í vopnum væddri ver- öld nútímans. í ræðu sinni í Lin- coln Center sagði hún: Eining er ekki sama og að allir séu eins, og ég vona fyrir mitt leyti að aldrei komi til þess. Það er aðeins af margbreytileika, af skilningi á sérkennum hvers og eins að hægt er að reisa einingu." Og við opnun- arhátíðina fyrrnefndu í Wasing- ton segir hún: „Það hefur árum saman verið sannfæring mín og keppikefli, að við (þ.e. Norður- landabúar) ættum eins og aðrar þjóðir að leitast við að flytja út menningu okkar ekki síður en varning, og við ættum að kynna menningu meðal annarra þjóða, sem lifa á annan hátt. Ég hefi ekki getað þagað yfir þessari skoðun minni í viðræðum við starfsfélaga og vini, þegar menningarmál hafa verið til um- ræðu á Norðurlöndum. Lykillinn að gagnkvæmum skilningi er að kunna að meta gildi menningar annarra þjóða í víðasta skilningi þessa orðs. Um leið og skilningi hefur verið komið á þjóða í millum myndast vinátta. Þannig byggjast brýr milli þjóða. Þá læra menn- irnir að skilja hverja aðra, hve langt sem kann að vera á milli hér á hnettinum. Slík vinátta hlýtur að stuðla að heimsfriði. Og þá erum við komin að kjarna málsins. I allri ferðinni hvar sem Vigdís forseti kom virtist ekkert standa nær hug hennar og hjarta en hugsjónin og orðið friður — heimsfriður. Það var beint eða óbeint rauði þráðurinn í ræðum hennar, hlýjan í þéttu handtaki hennar og ljóminn í brosi hennar og augum. Hún sagði líka í viðtali við eitt dagblaðanna hér eftir að hún var komin heim úr förinni: „Þegar talað er um frið byrjar fólk strax að hlusta. Það vissu allir hvað ég var að tala um. Við vitum öll að við verðum að halda friðinn í heiminum. Við erum bara ekki sammála um hvernig best er að gera það. Já, sannarlega fór Vig- dís forseti nærri um, hvaða mál þjóðum Ameríku eru efst í huga nú. Þar eru flestum friðarmálin mál allra mála, málefnið, sem varðar líf og heill þeirra og allra þjóða heims, hvernig leyst verður í náinni framtíð. Og svo, sem þegar hefur verið bent á, var hún og all- ur hennar málflutningur eins og lifandi vitnisburður þess, hve henni sjálfri var þetta mikið hjart- ans mál. Og manni verður einnig á prófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1972. Stundaði hann síðan nám í byggingar- verkfræði við Háskóla Islands og útskrifaðist þaðan vorið 1976. Sama ár hóf hann nám við Georgia Institute of Technology. Jafnhliða náminu kenndi hann við háskólann þar. Hafsteinn er fæddur 7. sept- ember 1952, sonur hjónanna Guðrúnar Hafsteinsdóttur og Páls Aðalsteinssonar, Bjark- arholti 1, Mosfellssveit. Hann er kvæntur Láru Torfadóttur og eiga þau eina dóttur, Guð- rúnu Ernu. Varði doktorsritgerð í byggingaverkfræði að spyrja: Skyldi nokkrum öðrum en forsetanum okkar hafa tekist að tala svo oft og mikið fyrir jafn stórum hópi hlustenda — og les- enda (áætlaðir um 90 millj.) um viðkvæmt alþjóðastórmál án þess að fingrafara nokkurs pólitísks áróðurs verði þar vart? Samt voru allar hans ræður gegnsýrðar sterkum áróðri, áróðri fyrir frelsi, mannréttindum, mannúð, skilningi, vináttu og friöi, sem var hinn eðlilegi, dýrðlegi ávöxtur alls hins. Og málflytjand- inn var kona, fyrsta lýðræðis- kjörna kona heimsins í forseta- embætti, hjá minnsta og elsta lýð- ræðisríkinu er sögur fara af. Skemmtilega merkileg tilviljun. En sleppir dauðinn tökum á lif- andi líkama, þótt þíddur sé á ann- arri hlið, ef hann heldur áfram að vera helfrosinn við grjótvegg á hinni? Verður ekki algjör helför endirinn? Bíða ekki þvílík örlög hinum lifandi líkama lífsins á jörðinni, sem við öll erum hluti af, ef hinn sólhlýi blær vináttu, skiln- ings og friðar verður áfram heftur á sama hátt og nú á för sinni yfir lendur hennar af margskonar múrum og grindum vanþekkingar, misskilnings, andúðar og ótta. Og hver fær sprengt þá múra og brot- ið þær grindur? Já, hver nema við sjálf? Eða höfum við enn ekki nægilegt vit, þekkingu, góðvild og vilja til þess? Hvað segið þið kon- ur? Þið hafið þegar sumstaðar hafist handa. En fyrir alla muni látið ekki þar við sitja. Allur heimurinn verður að koma með. Gefist ekki upp. Verið vakandi. Ef til vill í dag eða á morgun gefst skarð eða rauf í múr eða rimla, sem veitir ykkur tækifæri til að takast í hendur við systur ykkar hinumegin við þá. Verið þá sterkar og samtaka allar — í vestri, austri, norðri og suðri — og fáið bræður ykkar með ykkur. Blindir valdhafar bundnir á klafa úreltra kerfa og einræðis frelsa aldrei heiminn. Það getur aðeins sameig- inlegur vilji og skilningur fólksins sjálfs. Og nú þegar konurnar eru sem óðast að vakna til vitundar um sína eigin getu og mátt, einnig á vettvangi heimsmálanna, ættum við að minnast þess, að engan stærri og dýrðlegri hlut gætu þær þá kosið sér en þann að ávinna heiminum afvopnun og frið. Á því sviði hafa þær líka þegar eignast ófáa hugdjarfa og göfuga blys- bera. Þeirra á meðal okkar eigin forseta, Vigdísi Finnbogadóttur. Henni er frelsisstyttan mikla og fræga á Manhattan fyrst og fremst minnisstæð fyrir „meiri- háttar skjal um mannúð og með mannúð“, er hún las letrað á fót- stalli hennar. Og sjálfri sér til handa átti hún Vigdís okkar þá ósk besta að vera „aðeins kona með kyndil, kona með kyndil frið- ar og vináttu heiminum til handa, kona með kyndil samúðar, þeirrar samhygðar, sem greiðir götu frið- ar“. Megi forsjónin gefa henni sem flest tækifærin til að bera þann kyndii fram fyrir heiminn. í nóvember 1982. Ingibjörg Þorgeirsdóttir. I)r. Hafsteinn Pálsson Hann starfar nú í Sviss hjá Sviss Federal Institute for Re- actor Research.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.