Morgunblaðið - 19.01.1983, Page 40

Morgunblaðið - 19.01.1983, Page 40
■ '■ ........ 'I ,/\skriftar- síminn er 830 33 ^Apglýsinga- síminn er 2 24 80 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983 Hafís nú meiri en í meðallagi ÍSINN fyrir norðan landið er meiri en í meðallagi og er hann um 50 sjómílur norðvestan af Kögri og er ísjaðarinn um 4/io—6/1# a* þéttleika. Beint norður af Horni er ísinn í um 30—35 sjómílna fjarlægð, sam- kvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Þór Jakobssyni veður- fræðingi í gær. Sé ísinn skoðaður enn norðar, nálægt miðlínunni á milli Græn- lands og íslands, þá er hann 7/io—8Ao að þéttleika. Enn norðar virðist ísinn hins vegar vera minni en í meðallagi og á það við um svæðið við 79. breiddargráðu, en við Jan Mayen virðist ísinn vera minni en í meðallagi, en fer vax- andi. Beint vestur af Látrabjargi er ísinn í um 70 sjómílna fjarlægð og liggur þaðan í vestur frá landinu. Víkingur AK: Lægsta til- boðið í breyt- ingar íslenzkt ÞRETTÁN tilboð bárust í breytingar á Víkingi AK, þar af þrjú frá íslenzkum skipa- smíðastöðvum og var tilboð Slippstöðvarinnar á Akureyri lægsta tilboðið. Tilboð Siippstöðvarinnar hljóð- aði upp á 22 milljónir og 598 þús- und krónur. Næstlægst var tilboð Brattvik skipsindretninger í Nor- egi; 23 milljónir og 439 þúsund krónur, síðan kom tilboð Stálvíkur hf. í Garðabæ upp á 24.784 þús. krónur, þá tilboð frá Flekkefjord í Noregi upp á 25.013 þús kr., tilboð frá Þorgeiri & Ellerti Akranesi hljóðaði upp á 26.099 þús. kr., frá Fiskestrand Verft í Noregi barst tilboð upp á 27.650 þúsund krónur, frá Georg Eide í Noregi upp á 28.173 þús kr., frá Einar Nilsen í Noregi upp á 28.686 þús kr., frá Vlaardingen Oost, Hollandi upp á 29.954 þús kr., frá Hauganes í Nor- egi upp á 30.742 þús. kr., frá Globe Engeneering í Englandi upp á 34.036 þús. kr., frá Miltzelfeldt í V-Þýzkalandi barst tilboð upp á 35 milljónir og 186 þúsund krónur og hæsta tilboðið var frá Dannebrog Værft í Danmörku; 38 milljónir og 920 þúsund krónur. „Forvitni er þetta um mín einkamál“ gæti hann verið að hugsa rostungurinn i Rifshöfn, þvi hreifunum hélt hann þétt að kvið sér, er aðkomumenn munduðu Ijósmyndavélar í návígi við hann á Norðurgarðinum í fyrramorgun í þeim tilgangi m.a. að upplýsa hvort Valli eða Vallý sé réttari nafngift. Sólmundur Einarsson fiskifræð- ingur sagði, eftir að hafa skoðað myndirnar i gær, að ekki væri hægt að fullyrða af þeim um kynferðið, þar sem rostungurinn héldi i öllum myndunum hreifunum fast að þeim hluta skrokksins sem þyrfti að sji til að skera úr um þetta. Þess mi þó geta að það heyrir, að sögn Sólmundar, til undantekninga að kvendýr séu svo víðfórul og ein i báti, enda eru rostungar hjarðdýr. — Ljósm. Mbl. Ólafur Rögnvaldæon. Innlánsstofnanir janúar-nóvember 1982: Útlán jukust um 73,2% en innlánin um liðlega 33% ÚTLÁN innlánsslofnana jukust um lið- lega 73,2% frá áramótum til nóvem- berloka á síðasta ári, eða úr 6.095 milljónum króna um áramót i 10.559 milljónir króna í nóvemberlok. A sama tima jukust innlán hins vegar aðeins um liðlega 33%, eða úr 6.796 milljón- um króna i 9.045 milljónir króna. Þess- ar upplýsingar koma fram i Hagtölum mánaðarins fyrir janúar 1983. Verðbólgan, metin á kvarða lánskjaravísitölu var á þessu um- rædda tímabili tæplega 55%, en lánskjaravísitala hækkaði úr 304 stigum í 471 stig. Utlán til fyrirtækja eru stærsti þátturinn, en þau jukust á umræddu tímabili um liðlega 83,2%, úr 4.263 milljónum króna í 7.810 milljónir króna. Aukningin hjá einstökum greinum var nokkuð svipuð. Útlán til sjávar- útvegs jukust á tímabilinu um 96,9%, úr 1.421 milljón króna í 2.798 milljónir króna. Útlán til iðnaðar jukust á tímabil- inu um 93,4%, úr 682 milljónum króna í 1.319 milljónir króna. Útlán til verzlunar jukust úr 962 milljónum króna í 1.877 milljónir króna á umræddu tímabili, eða um liðlega 95,1%. Af einstökum grein- um verzlunar vekja athygli útlán til olíuverzlunar, en þau jukust á um- ræddu tímabili um 195,2%, úr 167 milljónum króna í 493 milljónir króna. Útlán til einstaklinga jukust um liðlega 55,3% á umræddu tímabili, eða úr 1.341 milljón króna í 2.083 milljónir króna. Þá má geta þess, að útlán til íbúðabygginga jukust um tæplega 50% á timabilinu, eða úr 781 milljón króna í 1.169 milljónir króna. Sjá ennfremur ummæli Jónasar H. Haralz, bankastjóra á bls. 3. Lán Byggðasjóðs ekki afgreidd fyrr en framlagið kemur úr ríkissjóði — segir Guðmundur Ólafsson forstöðumaður lánadeildar Byggðasjóðs STJÓRN Framkvæmdastofnunar rikisins samþykkti á fundi sínum síð- astliðinn mánudag að veita Bæjarút- gerð Hafnarfjarðar og Fiskvinnslunni á Seyðisfirði lán úr Byggðasjóði að upphæð 4 og 3 milljónir. BÚH hafði óskað eftir 10 milljón króna láni og Fiskvinnslan 7 milljóna. Lánveitingin var háð þvi skilyrði, að ríkisstjórnin ábyrgðist, að i stað þessara lánveitinga kæmi fjármagn úr rikissjóði í Byggða- sjóð. Á fundi sínum í gær samþykkti ríkisstjórnin að ábyrgjast lánin, en samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins verða þau ekki greidd út fyrr en framlag ríkissjóðs verður komið í Byggðasjóð. Guðmundur Ólafsson, forstöðu- Lárus Jónsson um bráðabirgðalögin: Miklu fórnað fyrir lítinn árangur ÞRÁTT fyrir samtals 17% verðbóta- skerðingu launa 1982, samkvæmt Ólafslögum og bráðabirgðalögum rík- isstjórnarinnar frá ágúst, og þrátt fyrir niðurgreiðslu vísitölu um 6% á fyrri hluta ársins, varð verðbólga frá árs- byrjun til ársloka 1982 62% miðað við framfærsluvísitölu og 65% miðað við byggingarvísitölu, sagði Lárus Jónsson á Alþingi í gær, en hann var aðaltals- maður Sjálfstæðisflokksins við um- ræðu í efri deild, er bráðabirgðalögin vóru afgreidd til neðri deildar. Þar verða þau til umfjöllunar í vikunni. „Það má því með sanni segja að miklu hafi vcrið fórnað fyrir lítinn árangur," sagði Lárus ennfremur. Og þrátt fyrir bráðabirgðalögin, sem sett vóru að sögn til að koma skikkan á efnahags- og atvinnumál þjóðarinnar, blasa hættuboðar hvarvetna við í þjóðarbúskapnum: 1) viðskiptahallinn virðist viðloð- andi, 2) erlend lán aukast 1983, 3) heildarsparnaður hefur minnkað svo nálgast hrun, 4) fjárfesting og framleiðni í atvinnurekstri hefur dregizt saman, 5) taprekstur og skuldasöfnun undurstöðuatvinnu- vega heldur áfram, 6) ríkisútgjöld og skattheimta vaxa sífellt, 7) þjóð- arframleiðsla, þjóðartekjur og lífskjör dragast saman 8) peninga- kerfi þjóðarinnar er í rúst og fjár- skortur atvinnuvega stendur þeim fyrir þrifum og 9) verðbólgan vex meira en nokkru sinni. Þetta vóru kjarnaatriði úr ræðu Lárusar Jónssonar, er hann mælti gegn bráðabirgðalögum ríkisstjórn- arinnar á Alþingi í gær. Hann taldi stjórnarstefnuna bjóða heim hættu á fjöldaatvinnuleysi, en í þeim efn- um mætti víða um land greina ískyggilega hættuboða. Stjórnarandstæðingar kröfðust upplýsinga um framkvæmd lág- launagreiðslna, sem þeir töldu víta- verða, og um breytingartillögu við bráðabirgðalögin, sem sjávar- útvegsráðherra hafði boðað í sjón- varpsviðtali. Sjá nánar á þingsíðu maður lánadeildar, sagði í samtali við Morgunblaðið, að rétt væri að lánin yrðu ekki afgreidd fyrr en framlag úr ríkissjóði jafnt láns- upphæðinni kæmi í Byggðasjóð. Sagði hann Byggðasjóð ekki ráða við þessar lánveitingar án þess, en taldi að þó lánin yrðu ekki afgreidd strax, gætu fyrirtækin notið fyrir- greiðslu hjá viðskiptabönkum sín- um, þar sem lánsloforð lægi fyrir, þannig að ekki ætti að skipta miklu máli þó afgreiðsla þeirra drægist. Eigandi Fiskvinnslunnar, Ólafur M. ðlafsson, sagði í samtali við Morgunblaðið, að óskað hefði verið eftir 7 milljónum króna og svona smá plástrar læknuðu ekki jafnstórt mein og í raun væri og farið hefði sívaxandi síðan 1979. Togarar Fisk- vinnslunnar héldu til veiða í síðustu viku og vonir standa til að vinna í landi geti hafizt í lok þessarar viku, ef sæmilega aflast. Ólafur sagði ennfremur, að ekki þýddi að leggja árar í bát, þó þessi lánveiting dygði skammt. Han*1 vndi því halda áfram útgerði \n um sinn að minnsta kosti. Sjá nánar > irffal við formann út- gerðarráðs BÚH á bls. 2 í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.