Morgunblaðið - 22.01.1983, Qupperneq 1
48 SÍÐUR
17. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
FARIÐ UM BORÐ
Mvndin að ofan sýnir FBI-mann klifra inn um glugga flugstjórnarklefans á Boeing 727-þotu Northwest
Orient-flugfélagsins á flugvellinum í Portland í Oregon-ríki. Flugræninginn var ráðinn af dögum og allir
farþegarnir, 41 að tölu, sluppu ómeiddir. Sjá nánar um flugránið á bls. 23
Hlerunarmálið veldur hræringum innan Fianna Fail:
Fyrrum ráðherr-
ar segja af sér
Dyflini, 21. janúar. AF.
RAYMOND McSharry, fyrrum aðstoðarforsætisráðherra írlands, og Sean
Doherty, fyrrum dómsmálaráðherra landsins, sögðu í dag báðir af sér trúnað-
arstöðum, sem þeir gegndu innan stjórnarandstöðuflokksins Fianna Fail
vegna símhlerunarmáls, sem upp hefur komist um í tíð Charles Haughey,
fyrrum forsætisráðherra. Aður höfðu tveir æðstu menn lögreglunnar sagt af
sér af sömu ástæðu.
McSharry viðurkenndi í skrif-
legri yfirlýsingu í dag, að hafa
tekið upp á segulband í október
samtal sitt við Martin O’Donohue,
sem þá gegndi stöðu menntamála-
ráðherra og var um leið helsti for-
vígismaður þess arms innan
Fianna Fail, sem vildi velta
Haughey af valdastóli.
„Eg iðrast gerða minna alls
ekki,“ sagði McSharry. „Ég mun
verja persónu og mannorð mitt og
fjölskyldu minnar til dauðadags."
McSharry sagði, að honum hefði
verið tjáð, að O’Donohue ætlaði að
raeða við sig um „fjárhagsmál",
sem gætu haft áhrif á persónu
hans og virðingu. Hann skýrði
ekki frá í hverju „fjárhagsmálin"
hefðu falist, en sagðist hafa tekið
samtalið upp á segulband til þess
að verja sig ef með þyrfti. Segul-
bandið fékk hann hjá lögreglunni.
Auðkýfingurinn og leiðtogi
Fianna Fail-flokksins, Charles
Haughey, hefur verið einn um-
deildasti stjórnmálamaður á Ir-
landi undanfarinn áratug. Hann
neitar staðfastlega, að hann viti
nokkuð um þetta mál. Haughey
Stuðningsmenn Brezhnevs fjúka einn af öðrum:
Fjórir háttsettir embættis-
menn settir af á einni viku
hefur staðið af sér tvær tilraunir
til að velta honum úr leiðtogastóli
innan flokks síns á undanförnum
tveimur árum, en efasemdir um
pólitíska framtíð hans voru látnar
í ljósi í írskum blöðum í dag í
kjölfar þessarar afhjúpunar.
Moskvu, 21. janúar. AP.
NÝR innanlandsviðskiptaráðherra
var í dag skipaður i Sovétríkjunum.
Grigory I. Vaschenko, 63 ára gamall
og hefur átt sæti i miðstjórn sovéska
kommúnistaflokksins undanfarin 16
ár, tekur við embætti af Alexander I.
Struyev, sem verið hefur viðskipta-
ráðherra frá því 1965. Hann er nú 76
ára.
Svo virðist því, sem stuðnings-
menn Brezhnevs séu mjög á und-
anhaldi í æðstu röðum embætt-
ismanna ríkisins, eftir að Yuri
Andropov komst til valda. Skipan
Vaschenkos í embætti viðskipta-
ráðherra er fjórða breytingin í
Minnsta verð-
bólga í 13 ár
bundúnum, 21. janúar. AP.
„I»ETTA eru góðar fréttir fyrir
alla,“ sagði Margareth Thatcher,
forsætisráðherra Breta, er henni
var tjáð, að verðbólga í Bretlandi
hefði í síðasta mánuði reynst
minni en dæmi eru til þar í landi
undanfarin 13 ár, eða 5,4% á árs-
grundvelli.
Lækkun verðbólgu hefur
verið inntakið í efnahagsað-
gerðum ríkisstjórnar Margar-
eth Thatcher. Verðbólgan náði
hámarki í Bretlandi í maí 1980
er hún var 21,9%, en í árslok
1981 var hún komin niður í
12%.
röðum háttsettra embættismanna
þarlendis á aðeins einni viku.
Vaschenko er tæknifræðingur
að mennt og hefur starfað í ýms-
um vélaverksmiðjum. Hann var
gerður að aðalritara kommúnista-
flokksins í Kharkov 1958 og varð
aðstoðarforsætisráðherra Ukra-
ínu 1972. Þá hefur hann átt sæti í
fjárhags- og áætlunarnefnd æðsta
ráðsins frá árinu 1974.
Tilkynningin um hinn nýja
viðskiptaráðherra kom í kjölfar
fréttar í Pravda, málgagni sov-
éska kommúnistaflokksins, um að
Valentin N. Makeyev, aðstoðarfor-
sætisráðherra, hefði verið leystur
frá störfum og fengin staða aðal-
ritara landssamtaka sovéskra
verkalýðsfélaga. Arftaki hans var
ekki nafngreindur. Makeyev tók
við embætti 1980 og bjó yfir sér-
hæfðri þekkingu á léttum iðnaði.
Þá var í gær skýrt frá því, að
Valentin Falin, háttsettur áróð-
ursstjóri og fyrrum sendiherra,
hefði misst stöðu sína í Kreml og
gerður að fréttaskýranda við Izv-
estia, málgagn stjórnarinnar. Fal-
in hefur verið varaformaður al-
þjóðaupplýsingadeildar mið-
stjórnar kommúnistaflokksins frá
árinu 1978 er hann sneri aftur til
Moskvu eftir 7 ára starf, sem
sendiherra Sovétríkjanna í
V-Þýskalandi.
Ákvörðun þessi hefur komið
vestrænum fréttaskýrendum mjög
á óvart. Talið var, að Falin myndi
beita sérþekkingu sinni á Vestur-
Þýskalandi og góðum samskiptum
sínum við sósíaldemókrata þar í
landi til þess að reyna að fá ráða-
menn í Bonn ofan af þeirri
ákvörðun sinni að koma fyrir nýj-
um eldflaugum Bandaríkjamanna
í landinu.
Fjórða breytingin á skipan hátt-
settra embættismanna í Sovét-
ríkjunum á þessari einu viku var
gerð þegar Sergei Pavlov formað-
ur íþróttanefndar ríkisins var vik-
ið úr embætti. Stöðu hans tók
Marat Gramov, fyrrum varafor-
maður í áróðursnefnd miðstjórnar
kommúnistaflokksins.
Slæmt ástand innan EBE:
Mesta atvinnu-
leysi frá lok-
um stríðsins
Bríissel, 21. janúar. AP.
ATVINNULEYSIÐ í aðildarríkjum
Efnahagsbandalagsins hefur í fyrsta
skipti frá lokum síðari heimsstyrj-
aldarinnar rofið 12 milljóna múrinn.
Þessi uggvænlega niðurstaða fékkst
i lok nýliðins árs þegar tölur at-
vinnuleysingja í EBE-löndunum tíu
voru lagðar saman.
Samtals voru því 10,5% allra
vinnufærra manna í þessum lönd-
um atvinnulaus í lok síðasta árs.
Aðeins mánuði áður hafði talan
verið 10,3%. Fjölgun atvinnu-
lausra á þessum eina mánuði var
227.000. Desember var áttundi
mánuðurinn í röð, sem atvinnu-
leysið jókst yfir heildina í EBE-
löndunum. Áðeins í Frakklandi
varð breyting til batnaðar í síð-
asta mánuði ársins. Þar fækkaði
atvinnulausum um 0,1% á því
tímabili.
Atvinnuleysið hefur aukist
hröðum skrefum innan landa
Efnahagsbandalagsins og á síð-
asta ári bættust 2,3 milljónir af-
tan við biðraðir þeirra, sem þiggja
atvinnuleysisbætur. Verst er
ástandið orðið í Belgíu. Þar eru
15% vinnufærra manna atvinnu-
laus. Á írlandi er talan 14,7% og
12% í Bretlandi og í Hollandi.
Lausn í fiskveiðideilunni innan EBE í sjónmáli:
Danir gefa grænt ljós á
málamiðlunartillöguna
Kaupmannahofn, 21. januar. AP.
VIÐSKII*TANEFND danska þingins hefur gefið dönsku ríkisstjórninni grænt
Ijós á málamiðlunartillögu þá, sem kom frá EBE til lausnar fiskveiðideilunni,
sem I)anir hafa átt í við önnur aðildarriki bandalagsins frá áramótum. Deilan
verður tekin fyrir á fundi hjá EBE á ný í næstu viku.
Uffe Elleman-Jensen, utanrík- ist réttur danskra sjómanna til að
isráðherra Dana, hefur undanfarn-
ar tvær vikur setið á fundum með
Gaston Thorn, forseta stjórnar-
nefndar EBE, og Hans-Dietrich
Genscher, utanríkisráðherra
V-Þýskalands, sem jafnframt er
formaður ráðherranefndar banda-
lagsins.
Ekki hefur enn verið skýrt frá
einstökum efnisatriðum málamiðl-
unartillögunnar opinberlega. Emb-
ættismenn, sem gerst þekkja til,
telja á hinn bóginn, að í henni fel-
veiða upp í kvóta sinn innan lög-
sögu aðildarríkja bandalagsins,
eigi þeir ekki aðgang að öðrum
miðum.
Þá er einnig talið, að í tillögunni
felist leyfi stjórnarnefndar EBE til
að deila út veiðikvótum til annarra
þjóða séu þeir ekki fullnýttir af
hlutaðeigandi aðildarríkjum. Þar
með eiga Danir, sem og aðrar þjóð-
ir, möguleika á að auka leyfilegan
ársafla sinn. Til þessa hafa Danir
veitt 25% þess fisks, sem leyft hef-
ur verið innan EBE.
Talið er víst að öll aðildarríkin
samþykki málamiðlunartillöguna
á fundinum í næstu viku, nema ef
vera skyldi Bretar. Sjávarútvegs-
ráðherra Breta hefur lýst því yfir,
að þeir muni hafna öllum breyting-
artillögum, sem fela í sér afla-
aukningu til handa Dönum.
Þá sagði Douglas Hurd, aðstoð-
arutanríkisráðherra Breta, sem nú
er í stuttri heimsókn í Danmörku,
að í málamiðlunartillögunni væru
ýmis atriði, sem „þyrfti að skýra
betur“ áður en hægt væri að sam-
þykkja hana. Hann var þó þeirrar
skoðunar, að hægt ætti að vera að
ná samkomulagi á fundinum.