Morgunblaðið - 22.01.1983, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 22.01.1983, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983 9 jtta&ftrnáíl Umsjónarmaður Gísli Jónsson 179. þáttur Sífelldar aöfinnslur verða mönnum síst til uppörvunar. Umsjónarmaður minnist þess að hafa einhvern tíma búið til þessa upphafssetningu, þegar hann kenndi stafsetningu und- ir landspróf. Reyndar er efni setningarinnar árangur langr- ar kennarareynslu. Því er þetta rifjað upp hér, að umsjónarmanni þykir sem þættir þessi beri löngum meiri blæ sífelldra umvandana og hneykslunartals, heldur en jákvæðrar fræðslu og uppörv- unar, þar sem skírskotað væri til fagurra fyrirmynda. Þættir um íslenskt mál mega ekki verða að nöldursdálkum, þótt sjálfsagt sé að vekja athygli á ýmsu sem miður fer. Um það bil sem þessi orð eru skrifuð, er umsjónarmaður að lesa bók sem skráð er, að hans smekk, á fágætlega fallegu og auðugu máli. Þetta er bókin Misskipt er manna láni eftir Hannes Pétursson skáld. Auð- vitað sætir það engum tíðind- um, þótt Hannes Pétursson skrifi góða bók. Hitt væru miklar fréttir, ef hann gerði það ekki. En sé nú svo, að ein- hverjir hafi ekki lesið ritverk Hannesar Péturssonar, þá leyfi ég mér að ráða þeim til þess. Ekki eru þeir margir sem fara í fötin hans um þessar mundir. Og því læra börnin málið, að það er fyrir þeim haft. í þáttum þessum hef ég stundum brugðið mér aðeins út fyrir landsteinanna, mál okkar er meira en lítið snortið af öðrum tungum fyrr og síðar. í 177. þætti gerði ég líka útúr- dúr í sambandi við orðið róða. Það hefur orðið góðum manni, sem um sinn æskir nafnleynd- ar, efni til þess að skrifa mér fróðlegt bréf. Hluti þess mun reynast erfiður í prentun, þar sem vitnað er í grísku, en sjá- um til. Bréfritari segir m.a.: „I N R I er algengasta yfir- skriftin á róðukrossum. Sam- kvæmt listhefð er I H S gjarna notað sem einskonar „fanga- mark“ (monogram) fyrir nafn- ið Jesús. Það er ef til vill al- gengast (auk þessa) með myndum af Guðslambinu (Agnus Dei). Þrír fyrstu staf- irnir í grisku í nafninu Jesús eru I H £ ... Ef prentsmiðj- an á ekki til sigma (53), má lýsa þessu sem M á hliðinni. Gríska var kirkjumál í Róm í allnokkurn tíma. Þegar latín- an fór að mega sín meir, þurfti latneska skýringu. H-hljóðið (íslenska) á sér ekki tákn í grísku ... Úr I H 13 varð I H S og útlagðist Jesus hominum salvator (Jesús mannanna frelsari). Því er þetta síðari tíma vel meint útskýring. „Corpus" mætti kallast að hafi aðalmerkinguna skipulag og lífræn heild, e.t.v. lífsheild. Með því er t.d. talað um kirkj- una sem líkama Krists, en með þessu er ég aðeins að gera grein fyrir nokkrum hluta af hugtakinu. Corpus merkti áður ýmsar aðrar heildir líka, svo sem fylkingu o.fl. Að taka ein- hvern inn í heild eða í félags- skap gat verið að taka hann í „corpus“ (corpus er hvorug- kyns). Mér dettur busavígsla í hug í þessu sambandi og fleira sem merkir „initiatio" (byrj- un). Til er líka corpus juris, bæði sem hugtak og sýnilegur hlutur (lagasafn). Höfuðlaus her er corpus sine capite. Mig minnir að til sé niðrandi merking, a.m.k. í skáldskap: corpus = pungur. Fjölmargt annað mætti tína til og er ég heppinn að vera bókarvana í bili. Menn eru að glíma við robot með orðum eins og vélmenni o.fl. Skepnan gæti kannski heitir greipnir (af greip eða af grípa). Vilji menn kenna robot til manns, þá heiti hann Greipnir. En hvar er jafnrétti kynjanna? Kannski þarf orðð Gripla að koma til mála? Þú notar svo það úr þessu bréfi sem þér þykir nýtast og styttir eftir hentisemi. Mér er nafnleynd að skapi, nema þegar þarf að halda á lofti málstað í sókn og vörn.“ Að slepptum þakkar- og kveðjuorðum er þá lokið þessu fróðlega bréfi. Ég nota heimild höfundar til styttingar, eink- um þar sem letur veldur vanda, og auðkenni ég þá úr- fellinguna með punktum. Eins hef ég á stöku stað sett þýð- ingar erlendra orða í sviga, eftir því sem kunnátta mín hefur hrokkið til. Þótt það komi íslensku máli ekki við, er ég mjög þakklátur bréfritara fyrir upplýsingar hans um skammstöfunina I H S, úr því að ég fór á annað borð á hana að minnast. Hitt skiptir meira máli að fá hér enn skýringartilraun á orðasambandinu að taka ein- hvern í karphúsið. Er orðið laust um það mál. Fyrr í þessum þáttum hef ég minnst á orðið robot. Svo segja lærðar bækur að það sé tékkn- esk ummyndun úr þýska orð- inu arbeit = vinna. Ekki er sjaldgæft að r-hljóð færist til i orðum (hljóðavíxl, stafavíxl). Minna má á, í því sambandi, íslensku orðin hart og hratt, braut, brott, burt, argur, ragur, svo og enska orðið ars = ísl.rass. Ég held því að robot sé vinnu- maður, kannski þræll. Bréfritari átti við mig sím- tal og benti mér á, að í frétta- klausu hér í blaðinu var talað um hvolpafylltar læður. Báðum okkur kemur þetta skringilega fyrir augu. Dauðar gæsir og rjúpur eru fylltar í matreiðslu, en mér er tamt að tala um að tíkur og læður séu hvolpafullar og bleyður kettlingafullar. Endum svo þennan þátt á hinni gömlu lærdómsvísu um meðgöngutíma ýmissa kven- dýra. kötturinn átta, tíkin tíu, tuttugu ærin. Kjöritíu konan ojj kýrin, t*n kapallinn drogur lengstan vírinn. Kannski gleymist mönnum þá ekki kapall = hryssa, meri og viti þá hvað er kaplamjólk og hvers vegna talað er um svo og svo marga kapla af heyi. Nú leggja menn helst kapal í tvö- földum skilningi. i: usava FLÓKAGÖTU1 SÍMI24647 Jörðin Háreksstaðir í Borgarfiröi er til sölu. Laxveiöi í Noröurá, sil- ungsveiöi í vötnum. Bújörð Til sölu í Flóanum 100 hektara. Góö garölönd, laxveiöi, sil- ungsveiöi, selveiði. Smábýli Til sölu skammt frá Selfossi. Nýlegt íbúðarhús 160 fm. 5 til 6 herbergja. Býlinu fylgir 2 ha eignarland ræktaö. Fjárjarðir Til sölu á Austurlandi. Helgi Ólfasson, löggiltur fasteignasali. Kvöldsími 21155. Fróöleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! Jörö—Laxveiði—Eignaskipti Hef í einkasölu 600 hektara góöa bújörö í Húna- vatnssýslu. Tún 30 hektarar. Nýtt íbúöarhús 5 herb. 130 fm. Fjós fyrir 30 kýr. Fjárhús fyrir 200 kindur. Hlaöa 1200 rúmmetrar. Hlunnindi: laxveiöi í Víöi- dalsá. Ðústofn og vélar fylgja. Æskileg skipti á fast- eign í Reykjavík eöa nágrenni. usaval FLÓKAGÖTU1 SÍMI24647 Húsaval, Flókagötu 1, sími 21155. Helgi Ólafsson, löggildur fasteignasali. Freyjugata Einbýlishús Var aö fá í einkasölu einbýlishús (steinhús) viö Freyjugötu. Á neðri hæð er: 2 stofur, stórt eldhús, snyrting, forstofur, þvottahús o.fl. Á efri hæö er: 4 svefnherb., baö o.fl. í risi er góö geymsla. Húsiö var standsett vel fyrir nokkrum árum og er því í góöu ástandi. Teikning af stækkun er fyrir hendi. Möguleiki aö taka ca. 130 fm sér hæö upp í kaupin. Upplýsingar um helgina í síma: 34231. Árni Stefánsson hrl. Málflutningur. Fasteignasala. Suöurgötu 4. Sími: 14314. Vantar eignir Vegna aukinnar eftirspurnar vantar okkur nauösynlega: 2ja herb. raðhús og 3ja herb. einbýlishús. 4ra—6 herb. Seljendur hafiö samband við okkur. Við verömetum, tökum eignír upp á video og síðast og ekki sízt seljum við eignirnar á hagstæðan hátt fyrir ykkur. Gjörið svo vel og hafið sam- band. # OPIÐ 1—3 í DAG ■■■V Sími 2-92-77 — tl/ Eignaval Laugavegi 18, 6. hæö. (Hús Máls og menningar.) ÞimOLl' Fasteignasala — Bankastræti Símar 29455 — 29680 — 4 línur ■ Opiö í dag ■ Vesturbær Ca. 250 fm einbýlishús á tveimur hæðum auk garðshúss. Til afh. 5 fokhelt nú þegar. ^ Kambasel Ca. 235 fm raöhús á þremur hæðum ásamt bílskúr. Góöar innrétt- ■ ■ ingar. Verö 2,3 millj. R Sævangur Ca. 220 fm glæsilegt einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bíl- i skúr. Mjög vandaö hús. Verö 3,3— 3,5 millj. Selvogsgata Hf. Mikið endurnýjað ca. 120 fm járnvariö timburhús auk steypst kjall- ■ ■ ara. Góður garður. Verö 1,4 millj. Skipti æskileg á 4ra herb. hæð í ■ ■ Hafnarfirði. í', Bugðulækur Ca. 130 fm efri sér hæö ásamt góöum bílskúr. Mjög góð íbúð. Skipti æskileg á raöhúsi eöa einbýlishúsi. Flúöasel Góð 4ra herb. ca. 107 fm á 3. hæö. Verö 1300—1350 þús. Álfheimar f.‘» 4ra herb. ca. 120 fm á 4. hæð ásamt 60 fm manngengu risi. Verð Í 1>4 millj. s Hjarðarhagi ííí 4ra—5 herb. ca. 125 fm á 1. hæð ásamt bílskúr. Suð-vestursvalir. ■ ■ Ákv. sala. Verð 1600 þús. Möguleiki er aö taka 2ja herb. íbúö uppí. ■ Hjallarbraut Hf. 4ra—5 herb. ca. 117 fm á 2. hæö. Eldhús meö búri og þvottahúsi J w innaf. Ákv. sala. Verð 1,3 millj. 3; Safamýri ■ Góð 4ra herb. ca. 96 fm á jaröhæö. Sér inngangur. Ákv. sala. Verö ■ ■ 1300—1350 þús. ■ Boöagrandi Z Góö 3ja herb. ca. 85 fm á 4. hæö. Tvö herb. m/skápum. Eldhús “ með góöum innréttingum. Suö-vestursvalir. Verð 1200—1300 þús. g Þverbrekka ■ 3ja herb. ca. 100 fm íbúö. Allt nýtt í íbúöinni. Sér inngangur. Verö ■ ■ 1150—1200 þús. ft Klapparstígur " 3ja herb. ca. 73 fm á 2. hæö. Fullfrágengin aö utan. Frágengin 2 ^ sameign. Fokheld aö innan. Ákv. sala. Verð 750—800 þús. g Álfaskeiö ■ Góð 65 fm á jarðhæö. Verö 780 þús. ■ Njálsgata 3J Ca. 65 fm 2ja herb. í kjallara. Verö 650 þús. Dalaland ■ Góð 55 fm íbúð á jarðhæö, stofa, herb. m/skáp, flisalagt bað. ■ Eldhús meö góöum innréttingum. Sér lóö. Verð 800 þús. Arnarnes ® 1671 fm lóö. Verö 300 þús. Tjarnarból ■ 4ra—5 herb. á 2. hæð ásamt bílskúr. Fæst í skiptum fyrir íbúð með ■ 4 svefnherb. á svipuðum slóöum. Kaplaskjólsvegur _ Ca. 110 fm 4ra herb. íbúö eingöngu i skiptum fyrir minni eign á jg 2 Seltjarnarnesi. » Höfum kaupanda ■ að 2ja—3ja herb. íbúð helst í Fossvogi eöa nágr. Greiösla viö ■ undirritun kaupsamning, getur veriö 400—500 þús. ® Friðrik Stefánsson viðskiptafr. &

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.