Morgunblaðið - 22.01.1983, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983
Fimm tónleikar á veg-
um Myrkra músílkdaga
MYRKIR músíkdagar verða nú
haldnir í fjórða sinn dagana 24. til
30. janúar, en tilgangur með þeim er
að kynna íslenzka tónlist, eldri sem
yngri, og flytja þá músík, er Tón-
skáldafélag íslands telur áhuga-
verða. í fréttatilkynningu frá Tón-
skáldafélaginu segir að ekki sé æti-
unin að Myrkir músíkdagar verði
umfangsmikil tónlistarhátíð.
Vegna þeirra tónleika, sem nú
eru fyrirhugaðir, hafa ýmsir aðil-
ar lagt hönd á plóginn. í fréttatil-
kynningunni frá Tónskáldafélag-
inu er þessi upptalning: Háskóla-
tónleikar, Sinfóníuhljómsveitin,
Tónskóli Sigursveins D. Kristins-
„Frásögn og Ljóð“,
ljóöabók komin út
BÓKAÚTGÁFAN Svart á hvítu hef-
ur sent frá sér Ijóðabók eftir Gunnar
Harðarson og ber hún heitið Frásög-
ur — Ljóð. Þetta er önnur Ijóðabók
höfundar, en árið 1980 gaf hann út
15 smára, Ijóð letruð á spjöld höfð
saman í öskju.
Höfundurinn, Gunnar Harðar-
son, stundaði nám í heimspeki við
Háskóla íslands en hélt síðan til
framhaldsnáms í Svartaskóla þar
sem hann vinnur nú að doktorsrit-
gerð.
Frásögur — Ljóð er prentuð í
300 tölusettum eintökum, og er
henni einungis dreift í hinar
stærri bókaverslanir. Kápu gerði
Eggert Pétursson myndlistarmað-
sonar, Trómet, blásarasveit fram-
haldsskólanna, Ríkisútvarpið,
Hamrahlíðarkórinn og margir
fleiri.
Mánudaginn 24. janúar verða
tónleikar í Laugarneskirkju og
hefjast þeir klukkan 20.30. Þar
verður flutt kirkjutóiilist eftir
Gunnar Reyni Sveinsson.
Þriðjudaginn 25. janúar klukk-
an 20.30 verða tónleikar í Nes-
kirkju þar sem flutt verður tónlist
eftir Jón Ásgeirsson, Snorra Sig-
fús Birgisson, Sigursvein D. Krist-
insson og Hróðmar Sigurbjörns-
son, auk verka eftir Stravinsky og
Béla Bartók.
Fimmtudaginn 27. janúar verða
sinfóníutónleikar í Langholts-
kirkju, sem hefjast klukkan 20.30.
Þar verða flutt tónverk eftir Áskel
Másson, Jón Nordal, Hallgrím
Helgason, Mgnús Blöndal Jó-
hannsson og Leif Þórarinsson.
Föstudaginn 28. janúar verða
háskólatónleikar í Norræna hús-
inu og hefjast þeir klukkan 20.30.
Þar verða flutt verk eftir John
Speight.
Síðustu tónleikarnir, sem
haldnir verða sunnudaginn 30.
janúar í Menntaskólanum í
Hamrahlíð hefjast klukkan 20.30.
Þar flytur Hamrahlíðarkórinn
verk eftir Atla Heimi Sveinsson,
Hauk Tómasson, Jón Ásgeirsson,
Jón Nordal, Robert A. Ottósson og
Þorkel Sigurbjörnsson, auk þess
sem flutt verða verk eftir Strav-
insky og Béla Bartók.
u
Austurbæjarbíó sýn-
ir „Strand á eyðieyju
Þorinn hafinn
ÞORRINN hófst í gær. Nú er liðlega aldarfjórðungur síðan Veitingahúsið
Naustið tók upp þann sið, að bjóða Þorramat og bauð upp á þorratrogin
vinsælu, en það var árið 1956. KÖE, Ijósmyndari Mbl. tók þessa mynd af
þeim Naustsmönnum, f.v. Þorvarður Óskarsson, matreiðslumaður, Sím-
on Sigurjónsson, þjónn, Ómar Hallsson, eigandi Naustsins, Jóhannes
Gunnarsson, þjónn og Jóhann Bragason, matreiðslumaður.
Reglur um
einingahús
samþykktar
BYGGINGARNEFND Reykjavík-
ur hefur samþykkt fyrir sitt leyti
nýjar reglur um einingahús sem
flutt eru til landsins eða framleidd
eru hér. Áður en byggingarleyfi
fæst útgefíð fyrir nýrri gerð inn-
lluttra eða innlendra, skulu hlut-
aðeigandi aðilar uppfylla viss skil-
yrði gagnvart sveitarfélaginu.
Þessi skilyrði eru:
„1.) Með fyrstu byggingarleyfis-
umsókn skal, auk aðalupp-
drátta, fylgja stutt lýsing á hús-
inu, útreikningar og uppdrættir
af burðarvirki og uppdrættir
eða greinargerð af lögnum, sem
fullnægjandi eru að dómi bygg-
ingarfulltrúa.
2.) Allar teikningar séu gerðar
af viðurkenndum innlendum að-
ila og útreikningar einnig yfir-
farnir af slíkum.
Auk þess eru hlutaðeigandi
aðilar minntir á eftirfarandi at-
riði:
1. Framleiðslan (húsin) skulu
uppfylla ákvæði gildandi bygg-
ingarreglugerðar nr. 298/1979.
2. Sérstaklega skal tekið fram
að uppáskriftir iðnmeistara
skulu fara fram á hefðbundinn
hátt.
3. Grein 1.1. leysir hönnuði
og/eða húsbyggjendur á engan
hátt undan þeirri skyldu að
leggja inn sérteikningar af
hverju einstöku húsi, svo sem
almennt gildir."
AUSTURBÆJARBÍÓ hóf í gær sýn-
ingar á kvikmyndinni „Strand á
eyðieyju“, „Shipwreck“, sem að
sögn kvikmyndahússins er skemmti-
leg og spennandi bandarísk litmynd
í Walt Disney-stíl. Kvikmynd fyrir
alla fjölskylduna, eins og segir í
kynningunni.
Myndin er framleidd af Joseph
C. Raffill samkvæmt handriti og
undir leikstjórn Stewarts Raffills.
Myndatökustjóri var Thomas
McHugh, en tónlist í myndinni er
eftir Fred Steiner og fleiri. Aðal-
hlutverk leika Robert Logan,
Mikki Jamison-Olsen, Heather
Rattray og fleiri.
Viðlagatrygging bætir
ekki tjón af yöldum foks
Úr kvikmyndinni
eyju“.
Félagsmálaráðherra svaraði á
þriðjudag fyrirspurn frá Hannesi
Baldvinssyni um bótarétt vegna
eignatjóns og fjárútláta af völdum
náttúruhamfara og veðurofsa.
Þar segir meðal annars:
1. Samkvæmt lögum og reglu-
gerð um viðlagatryggingu íslands
bætir sú trygging tjón á bruna-
tryggðum fasteignum og lausafé,
m.a. af völdum vatnsflóða og sjáv-
-rgangs.
Viðlagatrygging íslands bætir
hins vegar ekki tjón af völdum
I athugun að stofna
pappadiskaverksmiðju
Stofnkostnaður áætlaður átta milljónir króna
Akrancsi, 21. janúar.
UM ÁRABIL hefur atvinnumála-
nefnd Akraness í samvinnu við
iðnráðgjafa Vesturlands unnið að
því að finna verkefni fyrir vernd-
aðan vinnustað á Akranesi. Margt
hefur verið kannað í þessu sam-
bandi, og reynt hefur verið að hafa
að leiðarljósi við leit að verkefn-
um, að rekstur stæði undir sér,
markaður væri fyrir framleiðsluna
og umhverfi starfsmanna væri sem
líkast því sem er á öðrum vinnu-
stöðum.
Athuganir hafa beinst að hag-
kvæmni vélar, sem framleiðir
ýmsar gerðir bakka úr pappír.
Gerðar hafa verið rekstrar- og
kostnaðaráætlanir fyrir fram-
leiðsluna og hafa þær reynst
hagstæðar. Hinn 27. október sl.
lagði atvinnumálanefndin
áfangaskýrslu um framleiðslu á
pappabökkum fyrir bæjarstjórn,
og fékk hún jákvæða umfjöllun
og var atvinnumálanefnd og
iðnráðgjafa falið að vinna áfram
að málinu.
Eins og fram kemur er veru-
legur áhugi á framleiðslu á
bökkum úr úrgangspappír. Allir
slíkir bakkar eru nú innfluttir.
Kostir slíkrar framleiðslu éru
því augljósir, ef gæði og verð eru
samkeppnisfær. Hráefnið sem
til þarf er að mestu leyti af-
gangspappír, dagblöð og kraft-
pappír. Talið er að magn það af
pappír, sem til fellur hjá
prentsmiðjum í landinu og nú er
hent, sé á 3. hundrað tonn á ári.
Er reiknað með að vélasamstæða
sú sem hér um ræðir nýti 120 til
180 tonn árlega, eftir því hvort
hún verði starfrækt 8 eða 10
vinnustundir á dag. Stofnkostn-
aður er áætlaður um átta millj-
ónir króna. Itarleg markaðs-
könnun hefur ekki verið gerð, eu
lausleg athugun gefur ótvírætt
til kynna að markaðshorfur séu
mjög góðar. Ymsar hugmyndir
hafa verið ræddar um rekstrar-
form en talið er að við fram-
leiðsluna þurfi fimm starfsmenn
auk framkvæmdastjóra miðað
við 8 klst. vinnudag, en þrjá að
auki miðað við 10 klst. í könnun
sem gerð hefur verið kemur
fram greinileg þörf fyrir slíkan
vinnustað á Akranesi. Að sögn
Ingimundar Sigurpálssonar bæj-
arstjóra á Akranesi hafa um-
sóknir um lán verið sendar til
Framkvæmdasjóðs öryrkja og
þroskaheftra svo og endurhæf-
ingarráðs, en lögum samkvæmt
er þessum aðilum auk bæjar-
sjóðs ætlað að standa undir
kostnaði við rekstur fyrir-
tækisins. Ingimundur sagði
verulega þörf fyrir slíkan vinnu-
stað á Akranesi og byndu menn
miklar vonir við að fjármagn fá-
ist, og tímabært orðið að aukin
áhersla verði lögð á að koma upp
vernduðum vinnustöðum í ein-
stökum landshlutum, svo
þroskaheftir og öryrkjar fái
störf við hæfi í sinni heima-
byggð. Þess vegna leggjum við
allt okkar traust á það að sjóð-
irnir hafi skilning á þörfum og
veiti okkur sitt liðsinni," sagði
bæjarstjóri að lokum.
— J.G.
óveðurs (vinda) eða foks.
Nefnd sú sem vann að undir-
búningi lagasetningar um viðlaga-
tryggingu Islands, lagðist gegn því
á þeirri forsendu að hægt væri að
afla sér sérstakrar foktryggingar
hjá tryggingarfélögunum auk
heimilis- og húseigendatrygg-
ingar. Þá væri í slíkum tilfellum
sjaldan um að ræða meiriháttar
tjón, sem Viðlagatrygging væri
stofnuð til að mæta, heldur mörg
smærri í sama óveðrinu.
„Reynist það hinsvegar vilji Al-
þingis," segir í nefndarálitinu, „að
stofnunin bæti einnig tjón af völd-
um ofviðra, leggur nefndin til að
sjálfsáhætta hinna tryggðu verði
helmingi hærri þegar um slík tjón
er að ræða. Nefndin telur að eig-
endur húseigna og lausafjár geti í
flestum tilvikum komið í veg fyrir
slík tjón með fyrirbyggjandi að-
gerðum og eðlilegu viðhaldi
eigna."
Samkvæmt lögum um Bjarg-
ráðasjóð er stjórn sjóðsins heimilt
að veita fyrirgreiðslu úr hinni al-
mennu deild sjóðsins vegna tjóns
af náttúruhamförum, sem ekki
falla undir Viðlagatryggingu eða
tryggt er fyrir með öðrum hætti.
Á undanförnum árum hefur
stjórn sjóðsins notað þessar laga-
heimildir þegar um meiri háttar
tjón hefur verið að ræða vegna
óveðurs sem gengið hefur yfir
heila landshluta, s.s. í febrúar
1981. Þá gerði ríkið, að fengnu
samþykki Álþingis, ráðstafanir til
að útvega Bjargráðasjóði lánsfé
sem ríkissjóður stendur undir að
verulegu leyti.
Hins vegar gerði stjórn Bjarg-
ráðasjóðs samþykkt á fundi sínum
1. júní sl. um að „eftirleiðis yrði
ekki veitt fyrirgreiðsla úr sjóðnum
vegna tjóna á fasteignum og
lausafé af völdum óveðurs, þar eð
ráðstöfunarfé sjóðsins væri mjög
takmarkað og almennt væri unnt
að tryggja gegn slíkum tjónum
hjá tryggingafélögum".
Var samþykkt þessi auglýst
rækilega í öllum dagblöðum í júní-
mánuði sl.
2. Samkvæmt lögum nr. 55/1975,
um Viðlagatryggingu Islands,
bætti sú trygging tjón á bruna-
tryggðum fasteignum og lausa-
fé, m.a. af völdum skriðufalla.
Skv. lögum nr. 88/1982 um
breytingu á þeim lögum skal
Viðlagatrygging Islands frá og
með 1. jan. 1983, er lögin öðlast
gildi, vátryggja gegn beinu
tjóni af völdum eftirtalinna
náttúruhamfara: eldgosa,
jarðskjálfta, skriðufalla, snjó-
flóða og vatnaflóða.
Ennfremur er skylt að
tryggja viðlagatryggingu frá
sama tíma mannvirki hita-
veitna, vatnsveitna, skolp-
veitna, svo og hafnarmann-
virki, brýr, raforkuvirki o.fl.
3. Bjargráðasjóður er ekki í stakk
búinn til að veita fyrirgreiðslu
af eigin fé sjóðsins ef um er að
ræða mikil og almenn tjón, eins
og t.d. þau er urðu í febrúar
1981. Þá varð sjóðurinn að afla
sér fjár með lánum með fyrir-
greiðslu og ábyrgð ríkissjóðs.
Möguleikar Bjargráðasjóðs til
að veita fyrirgreiðslu vegna
tjóna, sem ekki er tryggt fyrir,
velta þess vegna á því, um hve
mikið tjón er að ræða hverju
sinni eða á hverju ári. Stjórn
Bjargráðasjóðs getur ekki sam-
þykkt fyrirgreiðslu, t.d. í formi
óverðtryggðra lána með
..byggðasjóðsvöxtum" eins og
var 1981, nema sjóðurinn njóti
til þess sérstaks stuðnings.
4 Lög um Viðlagatryggingu tóku
gildi 1. janúar 1983. Nauðsyn
þótti bera til þess að hafa all-
rúman aðlögunar- og undirbún-
ingstíma vegna framkvæmda
þessara laga.
5. Samkvæmt skattalögum er
heimilt að draga frá skatt-
skyldum tekjum sannanlegt
tjón sem skattþegn hefur beðið
af völdum náttúruhamfara á
tekjuárinu. Um slíkt þarf skatt-
þegn að sækja til skattstjóra á
sérstöku eyðublaði og láta
fylgja með gögn um tjónið.