Morgunblaðið - 22.01.1983, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.01.1983, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983 U mferðaröryggisárið eftir Þím) Halldórsson Ár „umferðarinnar" er runnið upp. Það heilsaði okkur í fyrstu vikunni með nokkrum aðilum á sjónvarpsskjánum, sem gældu mjög við það hugtak að vera nefndir yfirvöld umferðarmála. Við, sem höfum talsvert ritað um umferðarmál í dagblöð að und- anförnu, urðum hins vegar ekki fyrir yfirþyrmandi hrifningu af því sem þar var sýnt og þeim mun síður af því andlega fóðri er þar var framreitt. Það örlaði hvergi á neinum nýj- ungum sem gætu orðð til gagns í baráttunni við þann vágest, sem skapaður hefur verið hér á landi í umferðinni, sem skipulagslaust og stjórnlaust æðir áfram og skilur eftir sig fleiri lík og lemstraða til lífstíðar en mannfall stríðsþjóða á styrjaldartímum, miðað við höfða- tölu, eins og okkur er svo tamt að nota til samanburðar. Hvers vegna er þetta svona hér? Hvar er orsakanna að leita? Því er fljótsvarað. Það er framkvæmda- valdið, í þessu tilfelli dómsmála- ráðuneytið og lögreglustjóraemb- ættið í Reykjavík, sem hafa með öllu brugðist vonum manna. Eg er ekki einn um þessa skoðun og leyfi mér að kalla þar til nokk- ur vitni. Herbert Guðmundsson blaðamaður segir í DV 20. nóv. ’82: „Að mínu mati er það óumdeilan- legt að með lögum og reglugerðum og framkvæmd þeirra er ríkis- valdið í höfuðábyrgð fyrir afdrif- um í umferðinni. Ráðherrar og þingmenn hafa ekki almennt talað „sett sig inn í málið“ og fleyta þjóðinni sofandi að feigðarósi." Eftir að hafa rætt um fjár- framlög ríkisins til Umferðarráðs segir Herbert: „Þessi hækkun skýrist af 500 þúsund króna fjár- veitingu vegna norræns umferðar- öryggisárs á árinu 1983. Svo segir í fjárlagafrumvarpinu. í barátt- unni gegn þeim mannfórnum, ör- kumlum, sárum og því eignatjóni sem meta má í peningum, eru þessar tölur, þessi framlög og sér- framlög óskiljanleg fyrirbæri. Nema í samhengi við algert sam- bandsleysi við sögu og ástand ís- lenskra umferðarmála. — Það margþyngir síðan vissulega ábyrgð ríkisins að hér er ekki að- eins spilað með mikla peninga heldur einnig líf og limi fjölda fólks. Á meðan ekki er tekið á þessum málum af fullri alvöru jafngildir það opinberri yfirlýs- ingu um að umferðarmálin séu stjórnlaus og vegfarendur séu réttdræpir í stórum stíl. — En allt kemur fyrir ekki á meðan forustan grefur hausinn í sandinn." Yfirvaldið í Umferðarráði, Óli H. Þórðarson, segir í Tímanum þann 30. nóv. sl.: „Við erum að berjast við það hérna að koma á umferðarmenningu, sem því mið- ur er alltof sjaldgæf hér á landi. — Fólk hefur ekki verið alið upp, bæði af ökukennurum og öðrum, til þess að vera hæfir þátttakend- ur í umferðinni." Ingjaldur Tómasson skrifar í Velvakanda Morgunblaðsins 8. jan. ’83 um slælega framgöngu hins opinbera í umferðarmálum, að heyrst hafi að menn sem sviftir voru ökuleyfi vegna áfengisneyzlu, æskju eftir sem áður, án nokkurra athugasemda yfirvalda. Ég skrifaði grein í Morgunblað- ið þann 2. júní sl. Þar benti ég á margt sem mætti laga í umferð- inni með litlum tilkostnaði. I endi umræddrar greinar skoraði ég á aðila, sem með umferðarmál hefðu að gera, að efna til almenns borg- arafundar um þessi mál þar sem mættir yrðu dómsmálaráðherra og aðrir yfirmenn þessa mála- flokks. Það er með þessi mál eins og önnur opinber á Islandi, að engum gagnlegum ábendingum og tillög- um frá almenningi er hægt að koma í verk vegna hins landlæga embættishroka flestra yfirmanna opinberra stofnana. Þessir menn vita að æfiráðningin tryggir þeim sætið til dauðadags, þótt þeir séu í reynd með öllu óhæfir. Ég varð furðu lostinn að sjá Óskar Ölason, yfirmann umferðardeildar lög- reglunnar í Reykjavík, tvítaka það í sjónvarpsþættinum, að það væri eldra fólkið sem aðallega bryti umferðarreglur gangandi vegfar- enda í umferðinni. Hann hefur trúlega haft í huga að skjóta mætti á þennan aldursflokk frek- ar öðrum, þar sem ár aldraðra var um garð gengið. Það sem háir lögreglunni mest í starfi er hræðslan við almenn- ingsálitið, að gera sig ekki óvin- sæla meðal borgaranna með að- finnslum og sektum. Frá þessu er Gylfi Guðjónsson ökukennari ekk- ert feiminn að segja í útvarps- þætti 8. jan. 1983. Það er á þessum forsendum sem lögreglan í umferðareftirliti ekur um götur og útvegi á svo skraut- lega merktum bílum, bæði með lit- um og ljóskösturum, að ekki skuli framhjá neinum fara hverjir þar eru á ferð. Enda verða þá ökuböðl- arnir að hinum allra rólegustu í umferðinni á meðan „helv. löggan“ fer hjá. Lögreglan afsakar sig mikið með því að hún sé of fámenn og tækjasnauð. Þegar að henni sverfur og gagnrýni birtist í blöð- um vegna óstjórnlegra umferðar- óhappa, jafnvel hvað mest þá best er veður og ökuskilyrði, er eins og lögreglan rumski af svefni og grípur þá til fálmkenndra að- gerða, sem ekki eru í neinu sam- ræmi við vegaeftirlit eða eðlilegar lögrgegluaðgerðir. Um það vil ég nefna áberandi dæmi: Morgunblaðið, sunnudaginn 3. okt. sl.: 650 ökumenn kærðir á hálf- um mánuði. „Síðastliðinn hálfan mánuð hafa liðlega 650 ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akst- ur í Reykjavík. Lögreglan fékk nýlega nýja radara til viðbótar þeim sem fyrir voru til mælinga Þórður E. Halldórsson „Ökumenn hér á landi eru að stórum hluta ófærir til aksturs vegna kunnáttuleysis og hirðu- leysis um settar reglur. Um það má nefna mý- mörg dæmi. En allt ber þetta að sama brunni, aðhaldið í þessum mál- um er sáralítið og í mörgum tilfellum verra en ekki neitt.“ og hefur ökuhraði verið mældur daglega á helstu umferðaræðum borgarinnar." — „Lögreglan í Reykjavík hefur mælt hraða bif- reiða um nokkurt skeið og það er staðreynd að ökuhraðinn er of mikill og slysin verða alvarlegri í samræmi við það. Sem betur fer hefur ökuhraði minnkað að und- anförnu," segir Ásmundur Matthí- asson, varðstjóri í umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík, í sam- tali við Morgunblaðið." Hvað segir þessj frétt okkur? í fyrsta lagi er verið að læra á og reyna hæfni nýrra radara. í þriðja lagi segir varðstjóri í umferðardeild lögregl- unnar það staðreynd (leturbr. mín) að ökuhraðinn sé of mikill og slys- in alvarlegri í samræmi við það. Nú er á öllum tvöföldum aðal- götum og í nágrenni Reykjavíkur leyfður 50—60 km hámarkshraði samkvæmt umferðarmerkjum. Ég kem því að þeirri spurningu á hvaða hraða voru þessir 650 öku- menn teknir? Það er á allra vitorði, sem um þessar götur aka, að þær eru að jafnaði eknar með 70—80 km hraða og böðlarnir láta sig ekki muna um að fara vel yfir 100 km hraðann. I grein minni í Mbl. frá 2. júní lagði ég til að þessi öku- hraði yrði viðurkenndur á áður- nefndum götum, en aftur á móti tekið þeim mun harðar á þeim sem þau hraðamörk brytu. Það skiptir öllu máli á hvaða hraða lögreglan tók þessa 650 ök- umenn. Var hún að góma ökufanta með 90—100 km hraða eða sektaði hún þá sem óku fyrir neðan 70 km. Með fullu leyfi gat hún það, þar sem þarna eru uppi, eins og áður sagði, umferðarskilti merkt 60 km. Var kannski verið að kasta þarna út neti og veiða upp í vissa krónu- tölu á 14 dögum? Eða var þetta bara sýndarmennska til að sefa háværar raddir? Mér er sagt að að afstöðnum þessum fjórtán dögum hafi nánast allar mælingar dottið niður og umferðin sótt í sama horf með sínum vanabundnu ökufönt- um eins og áður. Svona „löggæzla" er verri en engin. Ég hef marghaldið því fram að það ástand sem Islendingar búa við í umferðarmálum verði aldrei læknað með kákaðferðum sem hér viðgangast, heldur með föstum tökum af löggæzlumönnum sem ekki dingla kraftlaust við störfin af ótta við borgarana. Það er ein- mitt í þágu borgaranna að á þess- um málum sé tekið með einurð og krafti en ekki hræðslu við óvin- sældir. Þeim, sem brjóta umferð- arreglur og ökuhraða við hvert hugsanlegt tækifæri verður ekki náð með skrautmerktum lögreglu- bílum. Ásmundur Matthíasson segir það staðreynd að ökuhraðinn sé of mikill og slysin verði alvarlegri í samræmi við það. Er það ekki slæ- legu eftirliti að kenna, Ásmundur? Síðan dregur hann í land og seg- ir ökuhraða hafa minnkað að und- Kvennaframboð og borgarstjórn eftir Guörúnu Jóns- dóttur borgarfulltrúa Agreiningur í borgarstjórn Undanfarna daga, allt frá því að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg- ar var samþykkt 7.1. sl., hef ég lesið Mbl. af óvenju mikilli kost- gæfni til þess að fylgjast með fréttaflutningi „blaðs allra lands- manna" (og þar af leiðandi allra Reykvíkinga) af þeim vettvangi. Þar sem mér hefur þótt mál- flutningur blaðsins all einhæfur um þetta efni, vil ég nú freista þess að bæta þar um. Af fréttum blaðsins um fjárhagsáætlun borg- arinnar og afdrif hennar hefðu lesendur nefnilega getað ímyndað sér að í borgarstjórn væru allir sammála um hvernig farið er með aurana, sem við greiðum til borg- arsjóðs með útsvörum, fasteign- agjöldum og ótal öðrum gjöldum. Auðvitað eru ekki allir sammála í borgarstjórn. Kvennaframboðið er t.d. ekki sammála meirihlutanum um að lækka fasteignagjöld. Við fluttum tillögu í borgarstjórn sem meiri- hlutinn felldi, um að fasteigna- gjöld yrðu lögð á í samræmi við heimildir laga og að miðað yrði við lægra fasteignamat en meirihlut- inn gerir. Ástæðan fyrir þessari afstöðu okkar er sú, að við teljum Guórún Jónsdóttir það ekki sanngjarnt að þeir sem eiga stærstar og mestar eignir fái flestar krónur í afslátt, á sama tíma og meirihlutinn samþykkir að hækka m.a. fargjöld í Strætó um 46,5% að meðaltali, aðgang að sundstöðum verulega og útláns- kortin í Borgarbókasafni um 233%. Við teljum það ekki réttlátt að sá, sem á stórt einbýlishús fái rösklega 2000 kr. í afslátt af fasteignagjaldi, en sá sem hvorki á bíl né íbúð og ferðast með Strætó verði að borga 4 kr. meira fyrir hvern farmiða. Við teljum það ekki réttlátt að sá sem á 2ja herbergja íbúð í blokk, fái tæplega 500 kr. afslátt af fasteignagjaldi en verði, eigi hann ekki bíl, að borga um 3000 kr. meira á ári vegna fargjaldahækkunarinnar fari hann 2svar á dag með Strætó alla daga ársins. Við mótmæltum hækkun fargjalda SVR og vildum nota helminginn af því tekjutapi sem lækkun fasteignagjalda hafði í för með sér fyrir borgarsjóð í rekstur Strætó. Við gerðum ýmsar fleiri tillögur um breytta for- gangsröðun verkefna borgarinnar og mun ég rekja þær helstu hér á eftir. Breytingatillögur Kvennaframboðs — málefni barna og unglinga Við lögðum til að hækka veru- lega framlag borgarinnar til bygg- ingar dagvistarstofnana eða úr 9 millj. kr. í 25 millj. kr. Bygging dagvistarheimila hefði orðið for- gangsverkefni hefði tillaga okkar náð fram að ganga. Á þessu ári er fyrirsjáanlegt að aðeins verður hafist handa um byggingu eins dagvistarheimilis og að húsnæði verði keypt fyrir eina skóladag- heimilisdeild. Við teljum þetta alltof litlar framkvæmdir vegna þess m.a. að sl., ár hefur dagvistarrými aðeins aukist um 18 pláss. Áð sjá vel fyrir gæslu barna og búa þeim sem æskilegust uppeldisskilyrði verður að okkar mati að vera for- gangsverkefni. Það skilar arði þó ekki sé hægt að telja hann í krón- um, því sú öryggiskennd sem góð dagvistarheimili veita bæði for- eldrum og börnum dregur úr kvíða, hræðslu og spennu og því álagi sem fylgir nútíma þjóðfélagi. í dag vinna 70% kvenna utan heimilis. Það ásamt því að mark- leysa er að tala um jafnrétti kynj- anna fyrr en foreldrar hafa raunhæfan valkost varðandi gæslu barna, vega þyngst að okkar mati þegar dagvistarmál eru rædd. Við eigum enn langt í land að ná þessu marki og því verður að herða róðurinn og minnka biðlist- ana við dagvistarheimilin. Við fluttum líka tillögu um að verja rösklega 1 millj. kr. til þess að tryggja að skóladagur 6, 7 og 8 ára barna yrði 4 klst. minnst næsta haust. Við erum ekki að tala um lengingu kennslunnar, en viljum að börnin geti átt öruggan stað í skólanum xk daginn undir umsjón uppeldisfræðilega mennt- aðs fólks. Vitað er að stór hluti barna á þessu reki verður að sjá um sig sjálfur meðan foreldrar eru fjarverandi vegna vinnu. Þessu er hægt að breyta, t.d. með fyrirkomulagi eins og við stungum uppá, og þessu verður að breyta. Við fluttum tillögu um að veitt yrði meira fé til tómstundastarfs í skólum, bæði á vegum skólanna sjálfra og Æskulýðsráðs. Tóm- stundastarf í skólum nær nú til barna frá 10—15 ára og nýtur sí- vaxandi vinsælda. Það er því full ástæða til að auka það. Við vildum einnig verja 4 millj. kr. til að koma á fót hverfamið- stöð í Seljahverfi, en þar er engin aðstaða fyrir unglingastarf utan skólatíma. Við gerðum tillögu um að komið yrði á næturferðum Strætó um helgar í þrjú úthverfi borgarinnar. Við gerðum ráð fyrir að á leiðunum Árþær, Breiðholt og Nes færu vagnar á klst. fresti frá kl. 1 eftir miðnætti til kl. 3 á föstudags- og laugardagsnóttum. Ástæðan fyrir þessari tillögu er sú, að um helgar safnast ungl- ingar talsvert saman niður í miðbæ. Þegar vagnar SVR hætta að ganga kl. 1 eru þessir unglingar oft vegalausir í miðbænum. Þeir reyna þá að ná sér í leigubíl, eigi þeir aur eða að „húkka" sér bíl. Slíkt hefur leitt til þess að vitað er um æðimörg tilvik þar sem ungl- ingsstúlkum hefur verið nauðgað eða þær beittar öðru ofbeldi. Þetta er alvarleg staðreynd, sem við verðum að horfast í augu við og koma í veg fyrir. Málefni aldraðra Við gerðum tillögu um að heim- ilishjálp væri hægt að veita öldr- uðum og sjúkum um helgar og á stórhátíðum, þurfi fólk á slíkri að- stoð að halda. Við vitum að í Reykjavík býr vaxandi hópur gamals fólks eitt sér og oft við þröngan kost og án tengsla við fjölskyldu eða vini. Enn er þetta ekki stór hópur, en hann á rétt á allri þeirri aðstoð sem samfélagið getur veitt. Við vöktum athygli á því að skv. upplýsingum ellimálafulltrúa borgarinnar, er talsvert áberandi að aldraðir, sem leigja íbúðir í húsnæði borgarinnar við Furu- gerði og Norðurbrún, einangrist í íbúðum sínum. Það er sem sagt ekki næg lausn á húsnæðisvanda aldraðra að setja þá alla saman í eina byggingu. í kjölfar slíkrar stefnu verða að koma aðgerðir sem miða að því að skapa sam- stöðu og góðan anda. Við gerðum tillögu um að starfsmenn yrðu ráðnir á þessa tvo staði og að starf þeirra verði að vinna með íbúun-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.