Morgunblaðið - 22.01.1983, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983
43
SALUR 1
Flóttinn
(Pursuit)
7
\
-/
Flóttinn er spennandi og jafn-
framt fyndin mynd sem sýnir
hvernig J.R. Meade sleppur
undan lögreglu og fylgisveln-
um hennar á stórkostlegan
hátt. Myndin er byggð i
sannsögulegum heimildum.
Aóalhlutverk: Robert Duvall,
Treat Williama, Kathryn Harr-
old. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Hækkað verð.
Sá sigrar sem þorir
(Who Dares, Wins)
r
/A
Þeir eru sérvaldir, allir sjálf-
boöalióar, svífast einskis, og
eru sérþjálfaðir. Þetta er um-
sögn um hina frægu SAS
(Special Air Service) þyrlu-
björgunarsveit. Liðsstyrkur j
þeirra var það eina sem hægt
var aö treysta á. Aðalhlv.:
Lewie Collins, Judy Davis, I
Richard Widmark, Robert |
Webber.
Sýnd kl. 2.45, 5, 7.30 og 10
Ath: breyttan sýningartíma
Bönnuð innan 14 ára.
Hækkað verð.
SALUR3
Litli lávarðurinn
(Little Lord Fauntleroy)
Stóri meistarinn (Alec Guinn-
ess) hittir litla meistarann
(Ricky Schroder). Þetta er
hreint frábær jólamynd fyri'
alla fjölskylduna. Aðalhlv.: Al-
ec Guinness, Ricky Schroder,
Eric Porter. Leikstj.: Jack
Gold.
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
Dularfullar
símhringingar
Spennumynd i algjörum sér-
flokki. Aöalhlv.: Charles Burn-
ing og Carol Kane.
Sýnd kl. 9 og 11.
SALUR4
Bílaþjófurinn
ttON ttOWMDxíYila m,VSlíw
ri.^sm
Bráöskemmtileg og fjörug
mynd meö hinum vinsæla leik-
ara úr American Graffiti, Ron
Howard, asamt Nancy Morg- |
an.
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
Konungur grínsins
(King of Comedy)
Einir af mestu listamönnum I
kvikmynda i dag, þeir Robert
De Niro og Martin Scorsese |
standa á bak við þessa mynd.
Framleiöandinn Arnon Milch- I
an segir: Myndin er bæöi fynd- |
in, dramatísk og spennandi.
Aöalhlutverk: Robert De Niro, |
Jerry Lewis, Sandra Bern-
hard. Leikstj : Martin Scors-1
e,e Hækkað verð.
Sýnd kl. 9 og 11.05
Being There
Sýnd kl. 5 og 9.
(11. sýningarmánuður)
Allar með ísl. texta.
Myndbandaleiga í anddyri
Spjall um útvarp og sjónvarp
Dagskrá ríkisfjölmiðlanna er í
föstum skorðum í janúarmánuði og
á það sérstaklega við um útvarpið
sem er eldri stofnun en sjónvarpið. í
útvarpi eru þættir eins og t.d. skák-
þátturinn og óskalög sjúklinga. Báð-
ir voru þeir á dagskrá fyrir um það
bil þrjátiu árum þegar ég var ungur
drengur og í þá daga álíka vinsælir
og vídeóið í dag. Friðrik Ólafsson
skákmeistari hóf sinn frægðarferil
snemma á sjötta áratugnum. Sigur-
skákir hans voru skýrðar í skák-
þættinum af Guðmundi Arnlaugs-
syni og Baldri Möller. Þá fannst
okkur strákunum sem höfðum tekið
skákbakteríuna að útvarpið væri
mikið undratæki og fleiri en einn úr
hópnum ætlaði sér að verða útvarps-
stjóri þegar hann hafði aldur til.
Fyrst man ég eftir óskalögum sjúkl-
inga þegar Haukur Morthens söng
„Bjössi á mjólkurbílnum" og varð
„heimsfrægur" á Islandi. Utvarps-
þáttur kominn á sextugsaldurinn er
t.d. „Um daginn og veginn". Það er
allt gott um það að segja að útvarps-
þættir verði þetta gamlir séu þeir
ekki staðnaðir, en það verður ekki
sagt um fyrrnefnda þætti. í útvarpi
byrja af og til nýir þættir, sumir
verða langlífir, aðrir hverfa fljót-
lega af dagskránni og enginn saknar
þeirra. Hlustendur halda svo tryggð
við einstaka þætti líkt og gamla
kunningja, allt fer það eftir áhuga-
málum hvers og eins.
Fimtntudagur 13. janúar:
Klukkan hálf níu um kvöldið byrj-
aði í útvarpi nýr þáttur, „Spilað og
spjallað". Umsjónarmaður Sigmar
B. Hauksson og gestur Sigmars
Sveinn Sæmundsson, forstöðumaður
kynningardeildar Flugleiða. Sveinn
rakti í stórum dráttum lífsferil sinn
frá því að hann stundaði sjó-
mennsku sem háseti um borð í skip-
um Eimskipafélagsins á árunum
eftir síðari heimsstyrjöld og fram á
þennan dag. Einkar hugljúf kvöld-
stund, lesin voru ljóð og spilaður
jazz á milli þess sem þeir félagar
spjölluðu saman.
Að loknum þætti Sigmars var
endurtekinn ágætur þáttur Jökuls
heitins Jakobssonar, „Við eld skal öl
drekka“. Af því tilefni langar mig að
beina því til útvarpsins að það
endurtaki fleiri þætti en Jökull
stjórnaði í útvarpi, margir þeirra
eru frábærir og ég veit að þeir eru
til á spólum.
Föstudagur 14. janúar:
Poppþátturinn „Skonrokk“ í um-
sjá Eddu Andrésdóttur og Þorgeirs
Astvaldssonar er á dagskrá sjón-
varpsins hálfsmánaðarlega á föstu-
dagskvöldum. Erlendar og innlendar
popphljómsveitir geysast fram á
sviðið og meðlimir þeirra erlendu
flestir þannig útlítandi að minnir
frekar á ófreskjur utan úr geimnum
en fólk af þessum heimi. Stundum
fáum við þó að sjá prúðbúið fólk og
viðurkcnnda listamenn eins og t.d.
The Rolling Stones og af innlendum
vettvangi nú í síðasta þætti, Stuð-
menn og Grýlurnar með Egil Ólafs-
son og Ragnhildi Gísladóttur i
fremstu víglínu.
Sælkerinn Sigmar B. Hauksson
matreiddi andlega fæðu í útvarpi
handa nátthröfnum til klukkan þrjú
um nóttina. Spilaði dægurlög og jazz
og spjallaði þess á milli við þá sem
enn vöktu, en þeir hafa tæplega ver-
ið margir í dagskrárlok. Þátturinn
verkaði á mig sem kröftugt svefn-
meðal. Þátturinn er miklu síðri
rokkþingi Stefáns J. Hafstein.
Laugardagur 15. janúar:
Eftir hádegi rifjaði Svavar Gests
upp tónlist áranna 1930—60 í fjör-
FRÆDAFUNDUR í Hinu íslenska
sjóréttarfélagi verður haldinn
laugardaginn 22. janúar 1983 kl.
14.00 í stofu 103 í Lögbergi, húsi
Lagadeildar lláskóla Islands.
A fundinum mun prófessor
Erling Selvig, forstöðumaður
Nordisk Institutt for Sjorett í
Osló, halda erindi um alþjóðlegt
ugum þætti, „í dægurlandi”. Svavar
leyfði hlustendum að heyra í
Millsbræðrum sem byrjuðu að
syngja inn á hljómplötur á kreppu-
árunum fyrir stríð. Tónlist frá þeim
árum þegar afi og amma voru ung
og heimurinn ekki sami hálfvitinn
og nú fimmtíu árum síðar.
Edda Björgvinsdóttir hringdi í
Helgu Thorberg klukkan hálf átta
og þá var á tali. Hún náði þó sam-
bandi fljótlega. Útvarpsþáttur
þeirra, „Á tali“ er saklaust grín,
skop um náungann í næsta húsi. Ég
sé þær Eddu og Helgu fyrir mér þar
sem þær sitja við símaborðið, með
hárrúllur á höfðinu, matarlyktin
berst inn í stofu úr eldhúsinu, þær
Aslaug Ragnars
eru afslappaðar og skopast að lífinu
og tilverunni.
Sunnudagur 16. janúar:
Sunnudagsmorgna er sendur út í
útvarpi ágætur þáttur Friðriks Páls
Jónssonar, „Út og suður". Þennan
sunnudagsmorgun sagði Rafn Jóns-
son, fréttamaður, frá Líbýu, ríki
Khadafys, en þar var Rafn staddur
sumarið 1981. Frásögn Rafns var
fróðleg og skemmtileg og margt kom
á óvart er hann greindi frá. I Líbíu
er t.d. áfengisbann sem er auðvitað
til fyrirmyndar á þeim tímum þegar
íslendingar eyða á einum degi fyrir
jól um átta milljónum króna í
áfengi.
„Það var og", þáttur Þráins Bert-
elssonar hófst í útvarpi klukkan sex
og ég vona að sem flestir hafi hlust-
að. Þráinn flutti mjög góða og brýna
hugvekju um ofbeldi í sjónvarpi og
kvikmyndum. Hann gagnrýndi
harðlega ofbeldi þar sem allt miðast
við að kvelja fólk og það síðan myrt
á hinn hryllilegasta hátt. Jafnvel
börn og unglingar telja að kvik-
myndir gangi eingöngu út á mann-
dráp. Fræg er sagan af drengnum
sem heyrði að amma hans væri látin
og spurði þá: Hver skaut hana?
„Glugginn", þáttur um listir og
menningarmál var á dagskrá sjón-
varpsins eftir kvöldfréttir. Stjórn-
andinn, Áslaug Ragnars, heimsótti
Iðnó og Þjóðleikhúsið og spjallaði
við Stefán Baldursson og Svein Ein-
arsson, leikhússtjóra, um næstu
verkefni. Árni Björnsson, þjóðhátta-
fræðingur, tók lagið og söng lög af
hljómplötu sem gefin hefur verið út
í tilefni af sjötugsafmæli Sigurðar
Þórarinssonar, jarðfræðings. Ing-
veldur Hjaltested söng einnig nokk-
ur lög við undirleik Jónínu Gísla-
dóttur á píanó. Að minu áliti er
þátturinn ekki sérlega áhugaverður
það sem af er, ég hef von um að
samstarf á sviði sjóréttar. I upp-
hafi fundarins kynnir hann
einnig stofnun þá, sem hann
stýrir.
Prófessor Selvig, sem er hinn
fyrsti erlendi gestur félagsins,
flytur erindi sitt á norsku. Á
fundinum er einnig gert ráð
hann fari batnandi þegar skamm-
deginu lýkur.
Mánudagur 17. janúar:
Nokkur orð um þáttinn „Gull í
mund“ í morgunútvarpi. Allt frá því
að ég heyrði fyrst í Stefáni J. Haf-
stein í útvarpi hef ég haft álit á
honum sem útvarpsmanni. Hann
stjórnaði næturútvarpinu á síðast-
liönu sumri þannig að minnti á
Wolfman Jack í Keflavíkurútvarp-
inu. Það er kraftur í Stefáni, óbeisl-
uð orka og í morgunútvarpinu hefur
sá kraftur áhrif á meðstjórnendur
hans í þættinum, Sigríði Árnadóttur
og Hildi Eiríksdóttur, sem eru báðar
ágætar.
Stefán Jón Hafstein
í upphafi morgunútvarps var leik-
ið lagið „Kátir voru karlar", ekki
veitti af því, úti við var átta stiga
frost og snjókoma. Jónína Bene-
diktsdóttir stjórnaði morgunleik-
fimi og las úr bréfi frá 75 ára konu
sem stundar reglulega morgunleik-
fimi og Jónína fór síðan með óð eftir
gömlu konuna um líkamsrækt. Gest-
ur í morgunútvarpi var 84 ára gam-
all skíðakappi, Gestur Indriðason,
sem stundar skíðaíþróttina og hefur
rennt sér á skíðum meira eða minna
þessa öld og er enn að. Gamli mað-
urinn er fastagestur í sundlaugun-
um, stundar göngur og útiveru og
það kæmi mér ekki á óvart að hann
yrði hundrað og tuttugu ára. Ég
óska honum gæfu og gengis og vona
að hann fái sem lengst notið áhuga-
mála sinna. „Þjóðarvagninn er fast-
ur í snjóskafli", sagði miðaldra
verkakona í morgunrabbi. Hvað með
ríkisstjórnina sem býr í lélegu snjó-
húsi? Ég spyr.
Nýr þáttur fór af stað í útvarpi
síðdegis, „Því ekki það“. Þáttur um
listir í umsjá Gunnars Gunnarsson-
ar, rithöfundar. Á bókin framtíð
fyrir sér í tæknivæddum heimi?
Gunnar hugleiddi spurninguna og
komst að þeirri niðurstöðu að ef
manneskjan á framtíð, þá einnig
bókin. „Bókin og myndsegulbandið
munu lifa í sátt og samlyndi þrátt
fyrir allt,“ sagði Gunnar og bætti
við: „En m.vndsegulbandið getur
aldrei tjáð allt það sem bókin getur
og kemur aldrei í stað bókarinnar.“
Góður þáttur sem byrjar vel. Gunn-
ar hefur þannig rödd að hann fær
húsmæðu til að leggja frá sér mat-
aruppskriftirnar og leggja við eyru.
„Maj“, ný dönsk sjónvarpskvik-
mynd, kom á sjónvarpsskerminum
klukkan tíu þetta mánudagskvöld.
Ung sveitastúlka um tvítugt fer til
höfuðborgarinnar Kaupmannahafn-
ar til að læra hárgreiðslu. Kvöld eitt
fer hún á dansleik, dansar við strák
fyrir fyrirspurnum og almenn-
um umræðum.
„Prófessor Selvig er kunnur
fyrir ritstörf sín um sjóréttarleg
málefni og í öðrum greinum
fjármunaréttar. Hann var um
skeið formaður norska sjórétt-
arfélagsins en er nú m.a. for-
maður nefndar, sem vinnur að
á svipuðum aldri og upp frá því er
tilveran í nýjum skærum litum. Þau
enda svo upp í rúmi eins og oft vill
verða í dönskum kvikmyndum og
búa saman um stund. Maj verður
barnshafandi og allt sýnist í ljóm-
andi góðu ástandi eða þar til þau
taka að deila um ólíklegustu hluti,
t.d. ilmvatnið sem hún ber á sig.
Pilturinn er sjálfselskur, tauga-
veiklaður og kemur ekki fram við
stúlkuna eins og honum ber. Hann
leggur á hana hendur og tekur að
misnota áfengi. í lok myndarinnar
kemur í ljós að pilturinn er kvæntur
og tveggja barna faðir. Allt fer þó
vel að lokum, Maj eignast heilbrigt
barn og er reynslunni ríkari. Frá-
Moammar Khadafy
bær mynd, góður leikur. Danir
kunna enn að búa til góðar sjón-
varpskvikmyndir. Ég var farinn að
efast um að frá þeim kæmi neitt
framvegis nema sæmilegt efni.
Driðjudagur 18. janúar:
„Útlegð" nefnist þýskur fram-
haldsmyndaflokkur í sjö þáttum
sem byrjaði í sjónvarpi þriðju-
dagskvöld klukkan rétt fyrir tíu.
Sagan gerist í París á árunum fyrir
síðari heimsstyrjöld og greinir frá
örlögum Þjóðverja sem þangað hafa
flúið undan brjálæði nasismans.
Fyrsti þáttur var spennandi frá
upphafi til enda og lýsir vel þeim
ótta og þeirri skelfingu sem nasism-
inn hafði í för með sér. Hér er á
ferðinni athyglisverður sjónvarps-
þáttur.
Miðvikudagur 19. janúar:
Eftir tilkynningalestur í útvarpi
kynnti Jón Gröndal létta tónlist og
spjallaði við útvarpshlustendur. Jón
Gröndal er ófeiminn við hljóðnem-
ann. Hann hefur góða þekkingu á
dægurlagamúsík frá fyrri árum, svo
góða að ég tel að hann hafi jafnvel
einhvern tíma spilað í dægurlaga-
hljómsveit á þessum árum.
í heild var dagskrá ríkisfjölmiðl-
anna dagana þrettánda til nítjánda
janúar fjölbreytt og áhugaverð.
Sjónvarpsdagskráin fer batnandi,
nýir framhaldsmyndaflokkar lofa
góðu, aðrir eins og „Dallas" og
„Fleksnes", sænsk-norski mynda-
flokkurinn, mættu hverfa mín
vegna. Útvarpsdagskráin fer einnig
batnandi að mínu áliti og ekki
margt sem hægt er að finna að ef
undan er skilinn tilkynningalestur-
inn í hádegi og á kvöldin sem er
einstaklega þreytandi á þessum
árstíma. Á sumrin lætur hann vel í
eyrum.
Ólafur Ormsson
endurskoðun norsku siglinga-
laganna í norrænu samstarfi (og
mun hann einnig fjalla um það
efni í erindi sínu). Hann hefur
látið mikið til sín taka í alþjóð-
legu samstarfi á sviði sjóréttar,
einkum varðandi undirbúning
ýmissa alþjóðlegra sáttmála,
bæði í tengslum við Alþjóðlegu
sjóréttarnefndina og Alþjóða-
siglingamálastofnunina," segir í
frétt frá Hinu íslenzka sjórétt-
arfélagi.
Erindi um alþjóðegt samstarf á sviði sjóréttar