Morgunblaðið - 22.01.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.01.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983 Rændu 53 milljónum Marseille, 21. januar. AP. SEX vopnaðir menn rændu í dag brynvarrtan bíl og bækistöðvar öryggisvörslufyrirtækis og kom- ust á braut með um 20 milljónir franka — sem jafngilda um 53 millj. íslcnzkum. Mikil leit stendur nú yfir um gervallt landið. Ræningjarnir slógu í rot nokkra starfsmenn fyrirtækisins, en þeir eru ekki í lífshættu. Auk fjármuna höfðu þeir á braut með sér all- mikið af byssum sem starfs- fólk fyrirtækisins hefur til umráða. Fjölda- morö Nairohi, 21. janúar. AP. ÁTJÁN menn voru drepnir í þorpinu Kibibi i Úganda að því er útvarpið í Kampala sagði frá í dag. I fréttinni er dregin sú ályktun, að skæruliðar hafi verið þarna að verki og í fljótu bragði verður ekki séð nein ástæða fyrir morðunum, en búizt við að stuðningsmenn fyrrverandi forseta, Idi Amins, hafi verið á ferðinni. Enn fauk þinghús- þakið Kaupmannahöfn, 21. janúar. AP. BRÁÐABIRGÐAÞAK, sem sett var á danska þinghúsið í sl. viku eftir að þakið sem fyrir var hafði svipzt upp i fárviðri, fauk líka í dag. En að þessu sinni urðu eng- in slys á mönnum. I hið fyrra skipti lentu þakplötur á nokkrum vegfar- endum og tvær konur biðu bana. Þessi atburður nú gerð- ist í dögun og fáir voru á ferli við Kristjánsborgarhöll. Vindhæðin í morgun var ekki mikil og dró úr henni nokkru síðar. Unnið var að viðgerðum í dag og mun nú reynt að ganga tryggilegar frá því hinu þriðja þaki. Tyrknesk vél neydd til lending- ar í Dam- askus \nkara, 21. janúar. AP. TYRKNESK Boeing 727-far þegavél var neydd til að lenda á Damaskusflugveili í Sýrlandi þegar hún var á leið frá Amman í Jórdaníu til Ankara, að því er talsmaður tyrkneska utanríkis- ráðuneytisins sagði frá í kvöld. Hann sagði að með vélinni hefðu verið 80 farþegar og sjö manna áhöfn. Vélinni var síð- an leyft að halda áfram, þegar flugmenn hefðu verið yfir- heyrðir. Talsmaðurinn sagði, að Sýrlendingar segi að vélin hafi villzt af leið og því hefðu sýrlenzkar vélar verið sendar á loft og skipað flugstjóranum að koma inn til lendingar í Damaskus. Tyrkir draga full- yrðingu Sýrlendinga í efa og hefur sýrlenzki sendiherrann í Ankara verið kvaddur á fund í ráðuneytinu til að skýra málið á viðhlítandi hátt. Móðirin gat ekki gefið nóga mjólk, svo að barnið tók að léttast. Gæzlumennirnir gripu þá til þess ráðs, að koma því fyrir í súrefniskassa og ala það á gervimjólk. Þegar þessi mynd var tekin fyrir skemmstu, sýndi vigtin, að þyngdin hafði aukizt og vonandi verður því bráðlega unnt að færa pönduungann aftur foreldrum sínum, móðurinni Huldu og fóðurnum Knut Holger, en þau komu upphaflega frá dýrafræði- deild háskólans i Vínarborg. Á meðan verður tuskubjörninn í baksýn að koma í stað móðurinnar. Mynd þessi var tekin í dýragarðinum í Stokkhólmi. Noregur: Aðgerðir stjórnarinnar hjá OECD gagnrýndar Ostó. 21. janúar. Frá Jan Krik Lauré. fréttaritara Murtíuniilaésins. FRUMKVÆÐI norsku stjórnarinnar gagnvart OECD, þar sem farið hefur verið fram á aukið alþjóðlegt samstarf til lausnar cfnahagskreppunni, hefur vakið mikla gremju hjá stjórnum hinna Norðurlandanna, þar á meðal þeirri íslenzku. „Arbeiderbladet", hið opinbera málgagn norska verkamanna- flokksins, segir, að það sé einkum forsætisráðherra Finnlands, sem brugðist hafi ókvæða við því, að hægri stjórnin, sem nú er við völd í Noregi, hafi kosið að hafa ein frumkvæði í þessu efni í stað þess að ræða það við stjórnir annarra Norðurlanda fyrst. Þá hafi stjórn- ir Islands og Svíþjóðar verið því andvígar, að norska stjórnin tók ekki tillit til norrænnar samvinnu, en sneri sér ein til OECD, án þess að ráðfæra sig við hin Norður- löndin. I orðsendingu norsku stjórnar- innar til OECD lýsir hægri flokk- urinn sig fylgjandi nánari sam- vinnu OECD-landanna í gjaldeyr- ismálum. Ekki verði fallist á, að gengislækkun verði notuð til þess að efla samkeppnisaðstöðu ein- stakra landa. Þá er því enn haldið fram, að það beri að gera að venju, að einstök lönd séu til þess skuld- bundin að ræða það fyrirfram, ef gengislækkun á að fara fram. Norska stjórnin er því einnig fylgjandi, að OECD vinni eins og frekast er unnt gegn hvers konar verndarstefnu. Slík stefna spilli fyrir möguleikum á því að draga úr atvinnuleysi. Þá verði ennfrem- ur að útvega þróunarlöndunum fjármagn til þess að hindra fjár- hagslegt hrun fátækustu þróun- arlandanna. Margir norskir stjórnmálamenn hafa gagnrýnt mjög, að norska stjórnin hafi ekki haft samráð við aðra og halda því fram, að það sé venja, að Norðurlönd ræði slík mál innbyrðis og standi sameig- inlega að aðgerðum. Stjórnir sumra Norðurlandanna eru þeirr- ar skoðunar, að hér sé á ferðinni hreint áróðursbragð af hálfu norsku stjórnarinnar fram komið til þess að hæna að sér kjósendur og að orðsendingin sé lítt til þess fallin að leysa efnahagskreppuna. Innan OECD ríkir einnig gremja og þá einkum vegna þess að innihald orðsendingarinnar barst út til norskra blaða. Af hálfu OECD er talið, að möguleik- arnir á því, að tillögur norsku stjórnarinnar verði teknar til meðferðar í alvöru séu minni fyrir bragðið. Verðbólgan 4,5% í USA Washington, 21. janúar. AP. VERÐBÓLGAN í Bandaríkjunum var um 4,5% á síðasta ári og var því minni en nokkru sinni síðustu tíu ár. Hækkun á neyzluvörum var aðeins 0,1—0,2% í desember sl., ef hún var þá nokkur. Hækkun á sams konar vörum var ekki heldur nema 0,1% í nóvember, en í október var hún 0,5%. Minnkandi verðbólga er fyrst og fremst talin eiga rót sína að rekja til efnahagskreppunnar, en jafn- framt eru góð uppskera og offramboð á olíu talin eiga sinn þátt í því, hve verðbólgan hefur hjaðnað í Bandaríkjunum. Verðbólgan á árinu 1980 nam 12,4% og 8,9% árið 1981. Sjö sænskir þingmenn tala máli Hvíta- sunnufólksins Stokkhólmi, 21. janúar. SJÖ sænskir þingmenn rituðu í des- ember bréf til Andropovs forsætis- ráðherra Sovétríkjanna, til stuðn- ings hvítasunnufólkinu sem hefur nú í fjögur og hálft ár hafzt við í sendiráði Bandaríkjanna í Moskvu og ekki fengið leyfi til að flytjast frá Sovétríkjunum. Andropov mun nú hafa sent það svar til þingmannanna að fólkið gæti sótt um formlegt leyfi til að flytjast úr landi, en að því tilskildu að það færi úr sendiráðinu og til heimkynna sinna í Síberíu. Það var í júní 1978 sem sjö manns úr tveimur fjölskyldum hvítasunnusafnaðar eins fóru í bandaríska sendiráðið til að freista þess að fá fyrirgreiðslu til að komast úr landi. Áttundi mað- urinn var handtekinn af sovézkum öryggisvörðum og ákváðu hvíta- sunnumennirnir þá að vera um kyrrt í sendiráðinu. Ein konan úr hópnum var flutt á sjúkrahús fyrir tæpu ári í sam- bandi við hungurverkfall sem hún fór í. Samkvæmt fréttum var mat- ur neyddur ofan í hana og síðan var hún send heim til Síberíu. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hef- ur hún ekki fengið að fylla út um- sókn um að fá að fara frá Sovét- ERLENT . Fagan: Gerði drottningu greiða með því að sýna fram á slakt öryggiskerfi l.ondon, 21. janúar. AP. MICHAEL Fagan, hinn frægi innbrotsmaður í Buckingham- höll, hvar hann tyllti sér á rúm- stokk Elísabetar II Bretadrottn- ingar og bað hana að gefa sér að reykja, sagði í dag, að hann hefði aldrei ætlað sér að valda drottningunni né neinum öðrum mæðu. Fagan hefur verið sleppt úr fangelsi og hefur það vakið mikla reiði í Bretlandi. Fagan sagði þetta í viðtali við Daily Star, hann vaeri bæði gæfur og vænn og hefði aldrei gert flugu mein og sízt hefði það nokkurn tíma hvarflað að honum að gera á hlut hennar hátignar. Fagan hefur sýnt ótvíræð merki um að hann þjáist af geðrænum kvillum og í dag lét Margaret Thatcher, forsætisráðherra í ljós áhyggjur í ræðu í neðri mál- stofunni, vegna þess að hann léki nú lausum hala, en sagði Fagan að ekkert væri hægt að gera í málinu. Fagan var aldrei ákærður Elísabeth II fyri heimsóknina í svefnher- bergi drottningar, en hins veg- ar fundinn sekur um bílastuld, þjófnað á hálfri hvítvínsflösku og talið var nauðsynlegt að hann sætti meðferð á geð- sjúkrahúsi. Fagan sagði í ofannefndu viðtali að ýmsar frásagnir um veru hans á rúmstokki drottningar væru fráleitar, Elísabet hefði hvorki verið með hárkollu, né heldur klædd baby-doll- náttflík, og þaðan af síður hefði hún hvíslað að sér ljúf- um orðum, eins og staðið hefði í fréttum ýmissa sorpblaða. Aftur á móti sagðist Fagan vera þess fullviss að hann hefði gert drottningu greiða, með því að sýna fram á hversu slakt öryggiskerfi Bucking- hamhallar væri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.