Morgunblaðið - 22.01.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983
Tilmæli útvarpsráðs:
Fulltrúi Alþýðuflokks
og Vilmundur komi
saman í sjónvarpsþátt
JÓN Baldvin Hannihal.sson alþingis-
maður hefur í bréfi til útvarpsráðs
gagnrýnt, að felldur var niður hluti
þáttarins Kastljóss i sjónvarpi í
gærkveldi, þar sem ræða átti við
hann og Vilmund Gylfason alþing-
ismann um efnið „Jafnaðarstefnan:
Tveir flokkar — hvers vegna?“ f
bréfi sínu segir Jón Baldvin að Guð-
jón Kinarsson stjórnandi þáttarins
Húsavík:
Gæftaleysi
og fiskleysi
á miðunum
Húsavík, 21. janúar.
GÆFTALEYSI og fiskleysi hefur
verið hér á nærliggjandi miðum síð-
an um áramót. Bátarnir aðeins farið
þrjá til fjóra róðra, og togararnir
hafa tafist frá veiðum vegna óveð-
urs, og því minna lagt á land af fiski
en eðlilegt væri.
Vinna hefur verið stopul í
frystihúsinu, og nú gilda þeir
kjarasamningar, að fastráðið fólk
er á kaupi þó ekki sé vinna fyrir
það svo þetta tíðarfar og aflaleysi
skapar Fiskiðjusamlagi Húsavík-
ur rekstrarerfiðleika.
— Fréttaritari.
hafi tjáð sér að V ilmundur hafi beð-
ist undan því að koma í þáttinn, og
þar sem vinnuregla sé að Kastljós
komi jafnan báðum sjónarmiðum að
í málum sem þessu, hafi verið
ákveðið að fella þáttinn niður.
Jón Baldvin bendir á það í bréfi
sínu, að sú vinnuregla, að Kastljós
hafi forgang umfram aðra þætti í
sjónvarpinu sama eðlis, sé ekki
virt, þar sem Vilmundur eigi að
sitja fyrir svörum um sama eða
svipað efni í þættinum á Hrað-
bergi á þriðjudagskvöldið. Gagn-
rýnivert sé að með því að Vil-
mundur neiti að mæta í Kastljósi,
sé honum gert kleift að ráða því
sem þar verði tekið fyrir, þar eð
sjónvarpið hafi ekki farið sömu
leið og oft er gert í slíkum tilvik-
um; að annar aðilinn mæti, en
þess sé getið að hinn hafi ekki vilj-
að koma. Gagnrýnir Jón Baldvin
þessi vinnubrögð sjónvarpsins, og
bendir einnig á að þar sem mál-
efni Bandalags jafnaðarmanna og
brottför Vilmundar úr Alþýðu-
flokknum snerti bæði Bandalagið
og Alþýðuflokkinn, þá sé eðlilegt
að fulltrúi Alþýðuflokksins verði
einnig í þættinum á þriðjudags-
kvöld.
Útvarpsráð fjallaði um bréf
Jóns Baldvins í gær, og var það
samþykkt að beina þeim ein-
dregnu tilmælum til stjórnenda
þáttarins Á hraðbergi, að fulltrúa
Alþýðuflokks verði boðið þangað
um leið og Vilmundi.
Fundur SVS og Varðbergs:
Breytingar á hern
aðarjafnvæginu
SAMTÖK um vestræna sam-
vinnu og Varðberg halda sam-
eiginlegan hádegisverðarfund í
Atthagasal Hótel Sögu (suður-
enda) í dag, laugardaginn 22.
janúar. Fundarsalur verður
opnaður kl. 12.
Á fundinum flytur Gilbert
M. Sauvage, aðstoðarforstöðu-
maður upplýsingadeildar
NATO, erindi um breytingar á
hernaðarjafnvægi í heiminum
um miðbik þessa áratugar.
Fundurinn er einungis
opinn félagsmönnum í Sam-
tökum um vestræna samvinnu
og Varðbergs og gestum
þeirra.
Frá slökkvistarfinu í Sædýrasafninu
Sædýrasafnið:
Eldur í apa- og ljónahúsinu
— en skepnur björguðust
ELDUR kom upp í svokölluðu apa-
og Ijónahúsi í Sædýrasafninu á
þriðja tímanum í gær. Þar voru ap-
ar og Ijón og einnig kjúklingar —
þegar slökkviliðsmenn bar að
garði voru aparnir lausir inni og
höfðu forðað sér á öruggan stað og
Ijónin ekki i hættu, en starfsmenn
höfðu náð að bjarga kjúklingun-
Mikill eldur var í vesturhluta
hússins þegar slökkviliðið kom á
vettvang. I fyrstu gekk erfiðlega
með vatnsöflun en að klukku-
stund liðinni hafði tekist að ráða
niðurlögum eldsins. Vesturhluti
hússins er gjörónýtur eftir
eldsvoðann. Eldsupptök eru
ókunn.
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ:
Eðlilegt að útflutnings-
gjaldið dragist frá aflaverð
mæti við löndun erlendis
„ÞAÐ er lagt á 4% útflutningsgjald
hér heima. Erlendis verður lagt á
útflutningsgjald, sem nemur 4% af
FOB-verðinu, sem er 75% af
brúttóverðinu. Þessi 4% verða því
um 3% af brúttósöluverði. Það er
því fullkomlega eðlilegt, aö þetta
dragist frá aflaverðmæti áður en
kemur til hlutaskipta, alvcg með
sama hætti þegar selt er erlendis
og þegar selt er heima,“ sagði
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenzkra út-
vegsmanna, í samtali við Mbl„ er
hann var inntur álits á ummælum
Óskars Vigfússonar, formanns Sjó-
mannasambands íslands, sem tel-
ur að gjaldið eigi ekki að dragast
frá erlendis.
„Mér er því nánast óskiljanleg
afstaða sjómannaforystu, sem
Utandagskrárumræður um lögbann á fargjaldahækkun SVR:
Alþýðubandalagiö tekur
þátt í að falsa laun í landinu
- segir Davíð Oddsson borgarstjóri
BORGARSTJÓRN staðfesti þá
ákvörðun að hætta að selja afslátt-
arfargjöld með Strætisvögnum
Reykjavíkur á borgarstjórnarfundi
sl. fimmtudag, en þessi ákvörðun
var tekin vegna lögbannsins sem
sett var á fargjaldahækkun strætis-
vagnanna. Þá var og samþykkt að
miða verð á farmiðaspjöldum aldr-
aðra við hálft fargjald fullorðinna.
Jafnframt var tillögu frá Alþýðu-
bandalaginu um að hefja sölu á af-
sláttarmiðum vísað frá.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði við umræður um lögbannið á
fargjaldahækkun SVR, sem fram
fóru utan dagskrár, að fyrrgreind
tillaga Alþýðubandalagsins kæmi
á óvart, því málið kristallaðist
ekki í fargjaldahækkuninni sem
slíkri, heldur í valdníðslu ríkis-
valdsins. Alþýðubandalagið ætti
að standa með Reykjavíkurborg í
varnarbaráttu hennar við ríkis-
valdið. Framkoma Alþýðubanda-
lagsins og málgagns þess, Þjóð-
viljans, undirstrikaði það, að um
væri að ræða deilu borgar og
ríkisvalds, sem Alþýðubandalagið
verði.
Davíð benti á að fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í stjórn SVR
hefði lagt það til á síðasta ári, að
fargjöld stæðu undir 75% af
rekstrarkostnaði fyrirtækisins, en
nú hefði verið við það miðað að
fargjöld stæðu undir 77,8% kostn-
aðar og væri það lítill munur.
Hins vegar tæki steininn úr þegar
Alþýðubandalagið segði að lækk-
un fasteignagjalda hefði leitt til
hækkunar á fargjöldum SVR, og
benti Davíð á að þegar vinstri
meirihlutinn hefði hækkað skatta,
hefði hann ekki lækkað fasteigna-
gjöld. Sagði Davíð fáránlegt að
tengja þetta saman.
Davíð sagði að menn ættu að
standa saman, en ekki að hlaupa í
skjól ríkisvaldsins í baráttu
Reykjavíkur við það. Alþýðu-
bandalagið tæki þátt í þeim leik
ríkisins að falsa laun í landinu og
slægi skjaldborg um óbilgjamt
ríkisvald, en stæði ekki með
Reykjavíkurborg.
telur að það eigi að beita öðrum
aðferðum, þegar selt er erlendis.
Þá væri aðeins verið að hygla
þeim sem selja erlendis, þegar
þetta er látið ganga yfir þá, sem
selja heima.
í þessu sambandi er rétt að
geta þess, að allar gengisbreyt-
ingar, sem orðið hafa, koma sem
tekjuaukning til þeirra sjó-
manna, sem landa erlendis, þar
sem það hefur áhrif á þeirra sölu-
verðmæti. Að okkar mati er því
fullkomlega eðlilegt, að það sama
gildi, þegar selt er erlendis og
þegar selt er heirna," sagði
Kristján Ragnarsson.
„í framhaldi af þessu gerum
við ráð fyrir að olía, sem keypt er
erlendis, verði greidd niður á
sama hátt og hér heima, þó þann-
ig að hvert skip, sem selur erlend-
is, fái ekki meiri niðurgreiðslu
heldur en þetta útflutningsgjald
gefur í hverri söluferð. Þannig að
skip, sem sigla, taki ekki meira úr
þessum sjóði, en þau leggja í
hann. Með þessu móti er náð fullu
samræmi gagnvart hagkvæmni
þess að kaupa olíu erlendis eins
og verið hefur, vegna þess að hún
hefur verið ódýrari en heima. Það
er þjóðhagslega hagkvæmt að
nýta þau olíukaup," sagði Krist-
ján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenzkra útvegs-
manna.