Morgunblaðið - 22.01.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983
3
Oryggislínan hef-
ur bjargað lífi
margra sjómanna
EINS og kom fram í Morgunbladinu í gær fékk skuttogarinn Snæfugl SU
20 á sig brotsjó á veiðum í „Rósagarði“ þegar verið var að taka inn
trollið. Við óhappið tók einn skipverjann fyrir borð en annar fékk högg á
höfuðið. Báðir siuppu þeir með skrekkinn og minni háttar meiðsli, og
þakka þeir það fyrst og fremst góðum öryggisútbúnaði, en þeir voru báðir
með öryggislinu og hjálm. Af þessu tilefni hafði Morgunblaðið samband
við Þórhall Hálfdánarson hjá sjóslysanefnd og spuröist fyrir um það
hvort notkun hjálma og öryggislína væri almenn og hvort vitað væri um
mörg tilfelli þar sem notkun þessa búnaðar hafi orðið mönnum til lífs.
Sagði Þórhallur að það væri
skylda samkvæmt lögum að hafa
slíkan útbúnað um borð, en hins
vegar væru sjómenn ekki skyld-
ugir til að nota öryggisbúnaðinn
nema skipstjórinn krefðist þess.
Samt sem áður hefði notkun ör-
yggislínanna a.m.k. færst í vöxt
á síðustu árum, og mætti heita
að menn notuðu þær alltaf í
vondu veðri þegar verið er að
taka inn vörpuna. „Sem betur fer
er hugsunarhátturinn — Ekkert
kemur fyrir mig — á undanhaldi
hjá sjómönnum," sagði Þórhall-
ur, „og menn eru hættir að líta á
það sem veikleikamerki að nota
öryggislínuna. Og ekki er þeirri
fyrirbáru til að dreifa að það sé
of mikið umstang að festa á sig
línuna, þetta er augnabliksverk,
og þvingar sjómenn ekki nokk-
urn hlut.“
Þórhallur sagðist vita um
mörg tilfelli þar sem öryggislína
og hjálmur hefðu bjargað lífi
sjómanna, eða forðað þeim frá
meiðslum. Hins vegar væri það
því miður svo, að í mörgum til-
fellum væri sjóslysanefndinni
ekki tilkynnt um slík atvik, sér-
staklega ef menn slyppu úr
háskanum án meiðsla. Þórhallur
minntist þó sjóprófa sem haldin
voru vegna manns sem hafði
slasast mikið og talið var sannað
að öryggislínan hefði orðið hon-
um til lífs.
„Síðan Sjóslysanefnd tók til
starfa árið 1971 hafa 9 manns
farið aftur úr rennu, þannig að
það ætti að vera hverjum manni
ljóst að línan er bráðnauðsynlegt
öry8gist*ki,“ sagði Þórhallur
ennfremur. „Sérstaklega þurfa
þeir tveir menn sem slá á trollið,
þegar verið er að hífa það inn, að
binda sig.“
En ef línan er svona nauðsyn-
leg, því eru sjómenn einfaldlega
ekki skyldaðir til að nota hana?
Hvers vegna að eftirláta skip-
stjóranum valdið í þessu efni?
„Það er nú kannski það æski-
lega að skylda sjómenn alfarið
til að nota þennan öryggisbúnað.
En þetta hangir þannig á spýt-
unni, að ef það væri gert þá
fengju sjómenn engar bætur ef
þeir yrðu fyrir slysi án þess að
vera með búnaðinn. En hvað sem
öllum boðum og bönnum líður er
aðalatriðið að sjómenn geri sér
grein fyrir því, að þessi öryggis-
búnaður er ekki upp á punt,
heldur beinlínis lífsbjörg þeirra í
mörgum tilfellum."
Línan bjargaði
lífi mínu
Sá sem féll útbyrðis heitir
Gunnar Bjarni Ólafsson, 26 ára
gamall Reyðfirðingur. Morgun-
blaðið náði sambandi við Gunn-
ar í gær, hann var þá staddur úti
á rúmsjó, en Snæfuglinn lagði
upp í söluferð til Þýskalands í
gærmorgun.
„Það er ágætt í sjóinn núna,
suðvestan 9 vindstig."
Þeir láta sér ekki allt fyrir
brjósti brenna, sjómennirnir.
Við spurðum Gunnar hvort áföll
af þessu tagi gerðu menn ekki
fráhverfa sjómennskunni.
J'Iei, nei, þetta fylgir því að
stunda sjóinn. Það þýðir ekkert
að láta bugast, annað hvort er
maður í þessu eða ekki. Ég hef
verið á sjó alla mína tíð, fór
mína fyrstu ferð 11 ára gamall,
og fer varla að hætta úr þessu.“
Varstu hræddur?
„Jú, víst var ég það. Mér brá
gífurlega. Það var haugasjór
þegar þetta gerðist, við vorum í
rennunni að láta út aumingja-
keðju og allir með taug í okkur.
En brotsjór gerir ekki boð á und-
an sér og brotið reið mjög óvænt
yfir.“
Heldurðu að taugin hafi
bj argað lífi þínu?
„Ég er ekki í nokkrum vafa um
það. Þetta er mikilvægt örygg-
istæki og sjálfsagt mál að nota
línuna. Enda hef ég ekki orðið
var við annað en að menn noti
öryggislínuna, hér um slóðir
allavega."
Listi Sjálf-
stæðisflokks-
ins á Vestfjörð-
um ákveðinn
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
flokksins i Vestfjarðakjördæmi hef-
ur verið ákveðinn. Listann skipa eft-
irtaldir:
1. Matthías Bjarnason, alþingis-
maður, Hafnarstræti 14, ísafirði.
2. Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, alþingismaður, Skildinganesi
48, Reykjavík.
3. Einar K. Guðfinnsson,
stjórnmálafræðingur, Skólastíg
21, Bolungarvík.
4. Hilmar Jónsson, sparisjóðs-
stjóri, Mýrum 4, Patreksfirði.
5. Engilbert Ingvarsson, bóndi,
Tirðilmýri, Snæfjallahreppi,
Norður-ísafj arðarsýslu.
6. Sigrún Halldórsdóttir,
skrifstofumaður, Hafraholti 28,
Isafirði.
7. Guðmundur Jónsson, bóndi,
Stóru-Avík, Arneshreppi,
Strandasýslu.
8. Anna Pálsdóttir, meinatækn-
ir, Fagraholti 9, ísafirði.
9. Sigríður Harðardóttir,
hreppsnefndarmaður, Hafnar-
stræti 3, Þingeyri.
10. Ásgeir Guðbjartsson, skip-
stjóri, Túngötu 9, Isafirði.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
Þorrinn J| cd n/ i höfum viö Jt
byrjaöi í V^Áfl Zrt — og i UJr \\R opiö til kl.
Þorrabakkinn okkar
með öllu þessu lost;
Urvals sviðasulta, svinasulta, lundabaggi, hrútspungar, bringukollar,
blóðmör, lyfrapylsa, súr-hvalur, úrvals hákarl, síld, flatkökur, seytt
rúgbrauð, hangikjöt, harðfiskur, smjör.
££110,00*
'w
▼
-
35
33
Veriu
ve/komin
MJÖR , SMIOR
,M)ÖR SMIÖR
«■4
Tt
/ KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2.s. 865II