Morgunblaðið - 22.01.1983, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983
7
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA í
NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA
Lárus Jónsson
alþingismaöur
Tryggjum honum efsta sæti á framboöslista
Sjálfstæöisflokksins og þar meö áframhald-
andi forystu í málefnum Norölendinga.
Studningsmenn
STÖÐVIÐ
LEKANN
NÚNA
THORITE
Framúrskarandi viðgerðar-
efni fyrir steypugalla.
Þannig sparar það bæði
tíma og fyrirhöfn við móta-
uppslátt ofl. Thorite er til-
valið til viðgerða á rennum ofl.
ACRYL60
Eftir blöndun hefur efnið
tvöfaldan þenslueiginleika,
tvöfaldan þrýstieiginleika,
þrefaldan sveigjanleika og
áttfalda viðloðun miðað við
venjulega steypu.
WATERPLUG
Sementsefni sem stöðvar
rennandi vatn. Þenst út við
hörnun og rýrnar ekki.
Þetta efni er talið alger bylt-
ing.
THOROGRIP
Thorogrip er sementsefni,
rýrnar ekki, fljótharðnandi.
Þenst út við þornun og er
ætlað til að festa ýmsa
málmhluti í stein og stein-
steypu.
IS steinprýði
0 Smiöshöföa 7 Gengiö inn frá Stórhöföa Sími 83340
Smiöshöföa 7. Gengiö inn frá Stórhöföa. Sími 83340.
Kjarnorku-
hættan og
ísland
f'yrir nokkrum misser-
um flutti l.conid Brezhnev
„friðarrræAu" og skömmu
sírtar skrifuðu þau María
Porsteinsdóttir og Haukur
Már llaraldsson, starfs-
menn sovésku áróðurs-
skrifstofunnar á íslandi,
greinar í blöð hér þar sem
lagt var út af þessari ræðu
Brezhnevs. Vakið var máls
á því, að þá væri ný „frið-
arlota" hafin að frumkvæði
Brezhnevs og Sovétvina á
V'esturlöndum og reyndist
það svo sannarlega rétt
Síðan hafa þau Maria og
Haukur Már ekki haft sig
jafn mikið í frammi og áð-
ur í „friðarskrifum" undir
eigin nafni, þótt þau láti
auðvitað bæði áfram til sín
taka í þágu hins sovéska
„friðar", María sem fastur
starfsmaður sovésku áróð-
ursskrifstofunnar og
llaukur Már í hlutastarfi
þar og sem formaður „ís-
lensku friðarnefndarinn-
ar“.
En það eru aðrir sem
skrifa fyrir þau Maríu
l>orsteinsdóttur og Hauk
Má Haraldsson og koma
sjónarmiðum húsbænda
þeirra á framfæri undir
eigin nafni. Einn þessara
manna er Jón Ásgeir Sig-
urðsson, blaðamaður á
Vikunni. Ilann ritar grein
um kjarnorkuvopn og ís-
land í Pjóðviljann í gær og
er þar við sama heygarðs-
horn og þau Maria og
Ilaukur Már.
Nú berast þær fréttir að
Almannavarnir hér á landi
hafi uppi sérstakan viðbún-
að vegna ótta manna við
það, að geislavirkur, ban-
vænn kjarnorkuhlutur
kunni að ógna íslending-
um. Ekki verður þess vart
að Maria Imrsteinsdóttir,
Haukur Már Haraldsson
eða Jón Ásgeir Sigurðsson
»
...4 /x’vs/i ári n'viiir á muin cin-
li'Han siyrk íridttrlin'xfiiiytiriniiiir
i l.vr<'>i>ti <>y Antcríku. Siiincliliii
itiiinu reyna ai) lialcla viyviciiiiiijiiiiiii
áfnuu cins oy ckkcri liafi i
sknrisi. svoiicfutlar alvi/jiiiiiuar-
vii)nct)ur /ijóiui Ivrsi oy frcmsl
/ivi hlulverki ac) aiii)vclilii />cim viy-
hiiiiaiiaru/ijibyiiijiiiyunii. Mciin ycla
valii) vojinin ci)a friiUnn. cn ckki
livornn cyyjn."
Ragnarök á
15 mínútum
Hrakspánum haldiö áfram
Hraeðsluáróðrinum er haldið áfram dag eftir
dag í Þjóðviljanum. Nú hefur einn sp>eking-
urinn reiknað það út að ragnarök eða
heimsslit taki 15 minútur og auðvitað eru
það lýðræðisríkin sem vilja óð og uppvæg
reyna þau sem allra fyrst. Þessi hrakspár-
maður minnist ekki einu oröi á stjórnlausa
kjarnorkuklumpinn sem getur dottiö af
himnum ofan á hvaða andartaki sem er.
Astæðan fyrir þögninni um þá hroðalegu
sendingu er auðskýrð: Hún er frá Sovétríkj-
unum.
sjái ástæðu til að efna til
mótmæja vegna þessarar
ógnar. Ástæðan fyrir því er
skiljanleg, hér er um sov-
éskt gervitungl að ræða
sem þýtur stjórnlaust með
kjarnorkuklump innan-
borðs og stefnir óðfluga til
jarðar. Gegn kjarnorku-
brölti Sovétmanna scgja
María, Haukur Már og
Jón Ásgeir aldrei aukatck-
ið orð — en með öryggi
okkar í huga sýnist þó nær-
tækara að krcfjast þess að
geimurinn verði gcrður
kjarnorkulaus en því verði
lýst yfir með einhverjum
þeim hætti sem þóknanleg-
ur er Sovétríkjunum, að
Norðurlöndin, sem eru
kjarnorkuvopnalaus, séu
kjarnorkuvopnalaust
svæði.
Flóttinn
frá Alþýðu-
bandalaginu
Konur lögðu á flótta frá
Alþýðubandalaginu fvrir
sveitarstjórnarkosn i ngam-
ar sl. vor og stofnuðu
Kvennaframboðið. Bent
hefur verið á það að ein-
hver hópur umhverfissinna
hafi hlaupið frá Alþýðu-
bandalaginu til Vilmundar
Gylfasonar. Siðast berast
fregnir um það, að forystu-
sveit í verkalýðshreyf-
ingunni íhugi flóttaleiðir
frá Alþýðubandalaginu og
rætt er um verkamanna-
framboð og verkalýðs-
flokk. Eini hópurinn sem
ætlar að vera eftir í kring-
um Svavar (íestsson eru
JEQjsIr
kerfiskallar Alþýðubanda-
lagsins úr „gáfumanna-
hópnum", sem fiykkjast í
kringum ráðhcrra flokks-
ins til að tryggja sér góðan
slað á rikisjötunni og í
óteljandi nefndum og ráð-
um. I*á munu auðvitað
gömlu kommúnistarnir og
Sovétvinirnir, eins þau
María l>orsteinsdóttir,
llaukur Már Haraldsson
og Jón Asgeir Sigurðsson,
halda áfram að berjast
undir merkjum Alþýðu-
bandalagsins fyrir „sjálf-
stæði" íslensku þjóðarinn-
ar — sjálfu þjóðfrelsinu.
Menn yfirgefa Alþýðu-
bandalagið með sama
hætti og ibúar kommún-
istarikja mótmæla ofstjórn-
inni og kúguninni heima
fyrir, þeir flýja. Sagt hefur
verið að einu réttindi
þegna í kommúnistalönd-
unum sé að geta grcitt at-
kvæði með fótunum — það
er að segja labhað sér yfir
landamæri sé þar einhvcr
smuga. Sömu sögu er að
segja um þá sem sætta sig
ekki við ofríkið í Alþýðu-
handalaginu — þeir eygja
enga leið til umbóta innan
flokksins og lcggja því á
flótta frá hinni pólitísku ör-
birgð.
Hver eru viðbrögð valda-
kliku Alþýðubandalagsins
við þessum fjöldafiótta?
Hún getur ekki reist múr í
bókstaflegri merkingu þess
orðs eins og skoðanabra'ð-
urnir í Austur-I>ýskalandi.
Á hinn bóginn hefur hún
valið þann kost sem henni
er kærastur innan flokks
sem utan, að þyrla upp
moldviðri í þeirri von að þá
rati menn ekki lengur út úr
Alþýðuhandalaginu. Til að
blekkja hinn almcnna
flokksmann hefur svoköll-
uð laga- og skipulagsnefnd
verið sett á fót í Alþýðu-
bandalaginu. Síðan er
mönnum talin trú um að
þar sé unnið að sjálfri bylt-
ingunni — en hver er for-
maður nefndarinnar? Auð-
vitað fiokksformaðurinn,
Svavar Gestsson, sem ætl-
ar að stjórna byltingunni
gegn Svavari Gestssyni!
Opið í dag
laugardag kl. 10—7
Verksmiöjuútsalan
Blossahúsinu, Ármúla 15.