Morgunblaðið - 22.01.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983
23
Látnir vinna
7 daga í viku
The Sun birtir bréf frá hermanni á Falklandseyjum
London, 21. janúar. AP.
BREZKIR hermenn á Falklandsevjum halda því fram afi þeir séu látnir
vinna sjö daga í viku, heilsugæzlu þeirra sé áfátt, þeir þjáist af matareitrun
og þeir fái ekki nógan bjór. Hefur Jerry Wiggin, aðstoóarvarnarmálaráð-
herra Bretlands, verið falið að athuga málið, en hann er nú staddur á
Falklandseyjum.
120 japanskir lögreglu-
menn fengu áminningu
Tókýó, 21. janúar. AP.
ÖRYGGISMÁLARÁÐ Japans og yfirmenn lögreglumála í Osaka í Japan
kunngerðu í dag, að eitt hundrað og tuttugu lögreglumenn hefðu fengið
misjafnlega alvarlegar áminningar í tengslum við alvarlegasta spillingarmál
sem komið hefur upp innan japönsku lögreglunnar.
Nú eru um 4000 brezkir her-
menn á Falklandseyjum. I bréfi til
blaðsins The Sun kvartar einn
þeirra undan 17 atriðum og eru
þau blaðinu tilefni greinar, sem
birtist undir fyrirsögninni:
Larfalákar
réðust að bú-
stað Sclhiiters
Lyngby, 21. janúar. AP.
ÞRJATÍU og fjögur ungmenni voru
úrskurðuð í gæzluvarðhald i dag, eft-
ir að nokkrir úr hópnum höfðu brot-
izt inn í embættisbústað Poul
Schlúters, forsætisráðherra, til að
láta í Ijósi reiði vegna skorts á ódýru
leiguhúsnæði, að því er talsmaður
lögreglunnar sagði.
Hann sagði að fimm ungmenn-
anna hefðu sagzt vera félagar í
samtökum BZ-samtökunum, en
þau hafa einkum á stefnuskrá
sinni að setjast að í auðum húsum,
sem ætluð eru til niðurrífs og mót-
mæla þannig húsnæðisskorti í
Danmörku. Aðferðir félaga í sam-
tökunum hafa iðulega orðið til
þess að óeirðir hafa brotizt út.
Fæstir þeirra sem hér um ræðir
stunda vinnu og margir eru fíknir
í eiturlyf.
„Hneyksli á Falklandseyjum —
Hvern fjandann er verið að gera
gagnvart piltunum okkar.“ Segir
blaðið, að því sé fullkunnugt um,
hver skrifað hafi bréfið, en af
augljósum ástæðum, þá muni nafn
bréfritarans ekki verða birt.
Hermaðurinn, sem bréfið ritar,
heldur því fram, að „villt sé um
fyrir almenningi varðandi stað-
reyndir um lífið á Falklandseyj-
um“. Kvartar hann m.a. yfir því,
að á einum stað sé aðeins til eitt
bað og ein sturta handa 56 manns,
að eggin, sem þeir borða, séu sjö
mánaða gömul. Þá hafi bréf um
aðbúnað hermanna á Falklands-
eyjum, sem sent hafi verið frú
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra, er hún heimsótti eyjarnar,
verið stöðvað í Port Stanley og
höfundur þess fengið ofanígjöf.
Af hálfu brezka
varnarmálaráðuneytisins hefur
því verið lýst yfir, að sá lélegi að-
búnaður, sem kvartað er yfir í
bréfinu, geti alls ekki talizt al-
gengur á Falklandseyjum og
harmar það, að The Sun skuli ekki
hafa haft samband við ráðuneytið
til þess að staðreyna það, hvort
kvartanir bréfritarans eigi við rök
að styðjast. Þá er því alfarið neit-
að af hálfu varnarmálaráðuneyt-
isins, að bréf hermanna á Falk-
landseyjum séu ritskoðuð.
Veður
víða um heim
Akureyri -5 snjókoma
Amsterdam 5 skýjaó
Aþena 8 heiöskírt
Barcelona 9 heióskirt
Berlín 6 skýjaó
Brussel 6 skýjað
Chicago +2 skýjaó
Dublin 10 skýjaö
Feneyjar 5 léttskýjaö
Frankfurt 4 skýjað
Genf 3 heiðskírt
Helsinki +7 heiöskírt
Hong Kong 14 skýjaó
Jerúsalem 12 heiðskírt
Jóhannesarborg 27 heióskírt
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Kairo 21 heiðskírt
Kanaríeyjar 20 mistur
Lissabon 12 heióskírt
London 8 skýjaó
Los Angeles 16heióskírt
Madrid 11 heióskírt
Mexíkóborg 20 heiðskirt
Miami 21 rigning
Mallorca 12 léttskýjaó
Malaga 12 hélfskýjaö
Moskva 2 heiðskírt
Nýja Delhi 21 heióskírt
New York +2 heióskírt
Ósló 9 heióskirt
París 6 skýjaó
Peking 1 heiðskírt
Perth 27 skýjaó
Reykjavik 5 rign. og súld
Rio de Janeiro 32 skýjaö
Róm 9 heiðskírt
San Francisco 12 skýjaö
Stokkhólmur +3 skýjaó
Tel Aviv 17 heiðskírt
Tókíó 8 heiöskirt
Vancouver 8 skýjaó
Vínarborg 2 snjókoma
í nóvember sl. var lögreglumað-
ur handtekinn fyrir að þiggja
mútur og þá fór skriðan af stað.
Lögreglumaðurinn leysti þá frá
skjóðunni og í ljós kom að fjöldi
japanskra lögreglumanna hafði
þegið mútur fyrir að hylma yfir
innbrot og fleiri saknæma verkn-
aði. Voru múturnar greiddar bæði
í peningum og gjöfum, dýrlegum
hádegisverðum og fleiru. í þeim
hópi 120 manna sem hér um ræðir
voru fimm háttsettir lög-
regluforingjar og var þeim öllum
sagt upp störfum, 40 voru kærðir
Með vélinni var 41 maður. Eftir
lendingu í Portland féllst maður-
inn á að láta nokkra farþeganna
lausa og síðan þustu lögreglumenn
inn í vélina og skutu manninn til
bana. Engin sprengja reyndist
vera í skókassanum. Maður þessi
rændi annarri vél frá sama flugfé-
lagi fyrir rúmum tveimur árum.
Hann hélt þá vél í tíu klukku-
fyrir ósæmilega hegðun i starfi en
hinir fengu siðan alvarlegar ofaní-
gjafir, kauplækkanir og allir voru
lækkaðir í tign. Með þeim verður
fylgzt sérstaklega. Þetta mál hef-
ur vakið mikla reiði japanskra
borgara og var áfall fyrir
lögreglulið landsins, sem naut
álits og trausts. Er trúlegt að
fleiri aðilum innan lögreglunnar
verði gefnar gætur vegna gruns
um að enn gætu einhverjir þeir
verið, sem þegið hafa mútur og
ekki hefur komizt upp um.
stundir á Seattle-flugvelli og stað-
hæfði að hann myndi sprengja
vélina í loft upp nema hann fengi
eitt hundrað þúsund dollara. Síð-
an breytti hann kröfu sinni, krafð-
ist hraðskreiðs bíls, öruggs for-
skots áður en leit væri hafin og
þriggja ostborgara. Hann komst
undan í það sinnið.
Flugræningi
skotinn til bana
Portland, Orojjon, 21. janúar. AP.
VANGEFINN maður, rændi flugveál frá Northwest Airlines í gærkvöldi
þegar vélin nálgaðist Portland frá Seattle. Maðurinn sem var tvítugur að
aldri sagðist vera með sprengiefni í skókassa, og krafðist þess að fá að fara
til Afganistan.
... -- A~
DRAUMAHUSIÐ
Á
KOSTA
BOÐI
Kynning á húsunum frá Trésmidju Þórdar
ásamt innfluttum húsum frá Götene-Hus í Sví-
þjód, fer fram á Hótel Esju, í dag, laugardag,
frá kl. 13—19 og á morgun, sunnudag, frá kl.
13—17.
Sérfræöingur frá Svfþjód
verdur á stadnum.
Trésmidja Þórdar, Vestmanna-
eyjum, kynnir timbureininga-
hús. Verksmidjubyggdar eining-
ar, hús sem þú getur rádid sjálf-
ur hvernig koma til med ad líta
út.
Vid veitum alla þjónustu og
adstod.
Trésmiöja Þóröar
V*stmanna«yjum • Simi 2040
BOX 164 - Nalnnúmar 8936-7034