Morgunblaðið - 22.01.1983, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983
25
eftir málgögnum andstæðinganna, annaö hvort er ég ábyrgðarlaus trúöur eða
víö Oddsson, borgarstjóri.
samtals 91 breytingartillögu. Þeir
gátu ekki sameinast allir um eina
einustu af þessum tillögu, og voru
þó 8 þeirra af sama toga. Mér seg-
ir svo hugur um að þarna komi í
hnotskurn fram lýsing á samstarfi
þessara flokka í meirihluta og
menn geta rétt ímyndað sér niður-
stöðuna ef gagnstæð sjónarmið
þeirra hefðu verið brædd saman
með venjulegum hrossakaupum
þessara flokka.
— Vinstrimenn halda því nú fram,
að sjálfstæðismenn undir þinni for-
ystu standi fyrir aðför að borgar-
búum og þá helst þeim sem eru
minnimáttar. Hvert er þitt svar við
þessu?
„Þetta er fjarri öllu lagi. Hins
vegar höfum við horfið af vinstri
línunni og hætt að sækja æ meiri
skattpeninga í vasa borgaranna.
Okkur finnst á hinn bóginn rétt-
mætt, að neytendur greiði stærri
hluta af raunkostnaði við að inna
þá þjónustu af hendi, sem fyrir-
tæki borgarinnar láta í té, þó hún
sé og verði áfram ríflega niður-
greidd úr sameiginlegum sjóði.
Vinstrimenn vildu hækka skatta
takmarkalaust. Slíkar hækkanir
hafa ekki áhrif á vísitölubætur á
laun, þjónustugjöldin hafa hins
vegar áhrif á vísitölubæturnar og
samkvæmt því kerfi sem vinstri-
mönnum sýnist mjög kært, að
minnsta kosti þegar þeir snúa
andlitinu til launþega, eiga menn
að fá hækkun á þjónustugjöldum
borgarinnar bætta.
Þá er það pólitískt hugsjónamál
vinstrimanna að þeir sem til for-
ystu eru valdir eigi að hafa vit
fyrir fólki og til dæmis stýra
neysluháttum manna með því að
hrifsa af þeim aflaféð með skött-
um og niðurgreiða suma þjónustu
mun meira en eðlilegt getur talist.
Skattalækkanirnar sem við stönd-
um nú að og stefnum að í auknum
mæli verða til þess að auka frelsi
borgaranna til að fara með laun
sín og aðrar tekjur að eigin vild og
þennan ráðstöfunarrétt einstakl-
inganna á auðvitað að taka fram
yfir opinbera hagsmuni. Að sjálf-
sögðu teljum við eðlilegt að létta
undir með þeim sem erfiðast eiga í
bráð og lengd en hitt ber að varast
að ala á hugmyndum manna á
meðal um það, að opinber þjón-
usta sé gjöf á silfurbakka. Fjár-
mögnun hennar kemur ekki úr
neinum nægtabrunni stjórnenda
heldur geta þeir ekki aflað fjárins
nema með því að skerða á móti
þær tekjur sem almenningur fær
til eigin ráðstöfunar. Og ekki get-
ur sú stefna verið skynsamleg við
stjórn Reykjavíkur sem miðar að
því að falsa verðskyn almennings
með því að niðurgreiða þjónustu
með dýru fjármagni sem tekið er
að láni í útlöndum.
Ég býst við að hver sem hugsar
sitt ráð vilji heldur greiða rétt
verð fyrir þjónustu Hitaveitunnar
en eiga von á því að þurfa síðar að
þola tvöfaldan skell: annars vegar
að Hitaveitan hætti að geta annað
eftirspurn eftir vatni vegna þess
að leit og öflun þess hefur verið
stöðvuð og hins vegar að þola stór-
felldar kollsteypur í verðlagningu
á þjónustunni vegna krafna frá
erlendum lánardrottnum. Það er
hart fyrir höfuðborgina að þurfa
að sæta afarkostum í þessum efn-
um vegna þvermóðsku fjandsam-
legs ríkisvalds. í stjórnarráðinu
sýnast menn treysta á það, að
endalaust sé unnt að villa um fyrir
almenningi með moldviðri og
draga upp niðurtalningu á papp-
írnum um örfárra mánaða skeið
með því að gera arðbærasta fyrir-
tæki landsins að þurfaling, og
skipa því að draga fram lífið með
því að ganga með betlistaf fyrir
útlenda bankastjóra. Þetta er
ófögur lýsing en sönn þegar af-
staða ríkisstjórnarinnar til Hita-
veitu Reykjavíkur er skoðuð.
Þessi óheillavænlegu afskipti
sem eru þjóðhættuleg þegar til
lengdar lætur hafa kristallast í
framkomu ríkisvaldsins í garð öfl-
ugra reykvískra þjónustufyrir-
tækja: rafmagnsveitunnar, hita-
veitunnar og strætisvagnanna.
Reykvíkingar hafa falið forystu-
mönnum sínum að sjá hag þessara
fyrirtækja borgið og una því illa
eða alls ekki að þurfa að sæta af-
arkostum og hitta ofjarl sinn fyrir
hjá stjórnendum landsins sem eru
meira eða minna umboðslausir og
reyna aðeins að kaupa sér
skammgóðan vermi með alþekktri
aðferð."
— Hefur borgarstjórinn í Reykja-
vík sagt ríkisvaldinu stríð á hendur?
„Nei, alls ekki. Höfuðborgin
þarf að eiga náið og gott samstarf
við ríkisvaldið. Reykjavíkurborg
hefur sýnt, að hún er albúin til
þess. Sé um stríð að ræða, er ég
ekki í neinum vafa um það hver til
þess hefur stofnað. Augu æ fleiri
eru sem betur fer að opnast fyrir
því, hvernig málum er komið. Þá
er jafnframt vert að veita 4>ví at-
hygli, að vinstri flokkarnir í borg-
arstjórn leggja sitt lóð á vogarskál
ríkisvaldsins í þessum átökum í
stað þess að sinna því hlutverki,
sem þeir rétt eins og við eru kosn-
ir til að gegna, að slá skjaldborg
um hagsmuni Reykvíkinga. En
þessi staðreynd skýrir kannski
best hvers vegna svo mjög seig á
ógæfuhliðina fyrir Reykjavík
gagnvart ríkisvaldinu á tíma
vinstri meirihlutans 1978 til 1982.“
— Ráöuneytisstjóri menntamála-
ráðuneytisins sagði nýlega í Tíman-
um, að það væri „bull“ hjá borginni,
að hún hefði mikinn kostnað af
utanbæjarnemendum og ráðuneytið
væri að verja nemendur gegn
ágcngni borgaryfirvalda og fjárhags-
kröfum á hendur þeim.
„Þessi furðulegu ummæli ráðu-
neytisstjórans eiga rætur að rekja
til þess, að hinn 5. janúar sendi
Reykjavíkurborg menntamála-
ráðuneytinu bréf út af
námsvistargjöldum. Þessu bréfi
hefur ráðuneytið síðan svarað með
útúrsnúningi. Ráðuneytið á auð-
vitað að gæta þess að öll sveitar-
félög sitji við sama borð og njóti
jafnréttis í samræmi við gildandi
lög en ekki ástunda hnútukast
þegar þess er vinsamlega farið á
leit að það gegni þessari skyldu
sinni. Allir hljóta að sjá það —
fyrir utan ráðuneytisstjórann í
menntamálaráðuneytinu — að það
er ekki í verkahring Reykjavík-
urborgar að reiða í raun fram
hluta annarra sveitarfélaga. Að
snúa sjálfsögðum óskum um að
lög séu virt upp í aðför að skóla-
fólki er til vansæmdar fyrir sjálft
menntamálaráðuneytið. Ná-
grannasveitarfélög höfuðborgar-
innar hafa í verki viðurkennt þá
kostnaðarskiptingu sem hér er til
umræðu og standa í skilum sam-
kvæmt því.
Þá er það furðulegt að fyrir til-
stilli ráðuneytis og starfsmanna
þess sé tekið til við að ala á þeim
misskilningi, að borgin sé að
fjandskapast við íbúa landsbyggð-
arinnar. Ekkert slíkt vakir fyrir
okkur — fjarri því, en borgin á að
sæta sanngjarnri meðferð.
Auðvitað er það stolt höfuð-
borgarinnar og fagnaðarefni að
menningar- og þjónustustofnanir
landsins alls hafa hér aðsetur. Ef
við tökum upp peningalegu mæli-
stikuna, þá hefur borgin bæði
tekjur og gjöld af slíkum stofnun-
um. Ég vil að gefnu tilefni frá
ráðuneytisstjóra menntamála-
ráðuneytisins þó minna á það, að
margar stofnanir á starfssviði
þess eru undanþegnar fasteigna-
gjöldum og gatnagerðargjöldum."
— Nú er augljóst, að þú sætir
töluverðum persónulegum árásum
og ert meðal annars sakaöur um
ofríki. Hefur þetta komið þér í opna
skjöldu?
„Þessar árásir eru stundum
næsta hatrammar. Ég hef lítið
gert með þær og líklega ráða hin
sáru vonbrigði vinstrimanna yfir
útreiðinni í kosningunum mestu
hjá þeim. Þeir töldu jú sjálfir, að
1978 hefði þeim tekist í eitt skipti
fyrir öll að útiloka sjálfstæðis-
menn frá meirihlutastjórn í
Reykjavík. Nú vilja þeir ná hefnd-
um og sjást ekki fyrir. Lýsingar á
mér eru sveiflukenndar eftir mál-
gögnum andstæðinganna, annað
hvort er ég ábyrgðarlaus trúður
eða forstokkaður einræðisherra. í
þokkalega upplýstu þjóðfélagi eins
og okkar eru slík skrif ekki líkleg
til árangurs.
Raunar er alltof þröngt að ein-
blína á mig í þessu samhengi, því
að vinstrimenn sjá ofsjónum yfir
því að ég sit hér í umboði sam-
hents borgarstjórnarflokks sjálf-
stæðismanna sem glímir við úr-
lausnarefnin af einurð og festu og
auk þess hefur þegar tekist af-
burðagóð samvinna með okkur og
starfsmönnum Reykjavíkurborgar
svo ég nefni ekki þann ómetanlega
skilning sem borgarbúar sýna
okkur í átökum við hin erfiðu
verkefni sem við blöstu eftir fjög-
urra ára vinstri óstjórn.
Það er kannski von, að andstæð-
ingar Sjálfstæðisflokksins hafi
fengið það sem í daglegu tali er
kallað „blod pÁ tanden", því þeim
hefur með ómaklegum hætti tek-
ist að spúa eitri og óhróðri um
ýmsa forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins þannig að áhrifanna
gætir innan flokksins sjálfs. En ég
er sannfærður um að flokksmenn
eru farnir að bera kennsl á þau
vinnubrögð og eru smám saman
að verða ónæmir fyrir þessu eitri."
Bj.Bj.
Friðrik með
erfiða biðskák
gegn Andersson
Wijk aan Zee, frá Berry Withuis.
FRIÐRIK Ólafsson á biöskák við
Svíann Ulf Andersson og á Friðrik
undir högg að sækja. Friörik reyndi
mjög að tefla til vinnings, en litli
Svínn varðist mjög vel. Ulf Anders-
son er þekktur að því, að „gera ekk-
ert“ en ná frumkvæði engu að síður.
Úrslit í 6. umferð urðu:
Nunn — van der Wiel biðskák
Seirawan — Scheeren 1—0
Korschnoi — Browne V2 — V2
Hort — Kuligowski 1—0
Ribli — Ree '/2 — ‘/2
Hulak — Speelman biðskák
Staða efstu manna er nú: And-
ersson 4 og biðskák, Ribli og Seir-
awan 4, Hulak og Friðrik 3‘A og
biðskák, Hort 3*A, Browne 3, Nunn
2lA og biðskák.
Hér fylgir staðan í biðskák
Friðriks og Andersson. Friðrik
hefur hvítt, Andersson svart.
Stofnað
loðdýrarækt-
arfélag
STOFNAÐ hefur verið Loðdýra-
ræktarfélag Borgarfjarðar. Stofn-
endur eru 15, 3 á Mýrum, 6 í
Andakíl, 2 í Stafholtstungum og 4
í uppsveitum Borgarfjarðarsýslu.
Á stofnfundinn, sem haldinn var í
desember, mættu Sigurjón Blá-
feld, og Jón Árnason, ráðunautur
hjá Búnaðarfélagi íslands, og Jón
R. Björnsson, framkvæmdastjóri
Sambands íslenskra loðdýrarækt-
enda.
Borgarfjörður er eitt af fáum
héruðum landsins þar sem ekki
hafa enn verið stofnuð loðdýra-
bú þrátt fyrir tiltölulega góðan
aðgang að hráefni í fóður. Það
stafar af því að bændurnir vilja
eiga tryggan aðgang að tilbúnu
fóðri áður en þeir fara af stað.
Að sögn Magnúsar B. Jónssonar,
skólastjóra á Hvanneyri sem á
sæti í stjórn félagsins, verða
fóðurmálin fyrsta verkefni
stjórnarinnar. Sagði Magnús að
ýmislegt kæmi til greina í því
sambandi, en engar ákvarðanir
hefðu verið teknar um þau mál
enn. Flestir stofnendurnir
hugsa sér að hefjast handa þeg-
ar leyfi fást fyrir stofnun loð-
dýrabúanna.
Rekstur Stakfells-
ins gengur vel
RF.KSTl R Þórshafnartogarans Stak-
fells ÞII hefur gengið vel síðan skipið
hóf veiðar í ágúst á síðastliðnu ári. Að
sögn útgerðarstjórans, Páls Arnasonar,
aflaði skipió samtals unt 1.500 lesta til
síðustu áramóta og nam aflaverðmæti
um 9,5 milljónum.
Páll sagði ennfremur, að veiðarn-
ar hefðu gengið mjög vel, skipið væri
mjög gott og ekkert verið um bilanir
eða aðra erfiðleika. Nú væri skipið
búið að landa tvisvar á þessu ári, 80
lestum og rúmum 100 lestum. Sagði
hann tilkomu skipsins hafa verið
mikla lyftistöng fyrir Þórshöfn en
þar hefði það landað um 1.200 lest-
um og aukið atvinnu á staðuum
verulega.
Hvað fjárhagslegan rekstur skips-
ins varðaði, sagði hann að það væri
nýtt að afborganir og vextir af því
væru ekki komin á af fullum þunga
enn, en hingað til hefðu að sjálf-
sögðu farið 20% af aflaverðmæti
þess í stofnfjársjóð eins og lög gerðu
ráð fyrir.
MORGUNBLADID. flMMTltDACUR » MAl II
k
S JÁLFST ÆÐISM ANN A
Nú orðið hafa flestir skömm á kosningaloforðum — vegna þess að stjórn-
málaflokkarnir hafa komið á þau óorði — með vanefndum sínum.
En kosningaloforð er hægt að efna og þaö munum vlð sjálfstæöismenn í
borgarstjórn gera.
Hér á eftir fara nokkur skýr og ótvíræð kosningaloforð. Fyrir aftan hvert
loforö er reitur sem viö biðjum þig aö færa dagsetningar inn í þegar
loforðið hefur verið efnt. Þú skalt geyma þetta blaö til næstu kosninga og
þá mun það verða þér hjálp við aö gera upp hug þinn þá.
Efnt:
r
-
r-
Sjálfstœöismenn munu:
Lækka tastsignagjöldln svo þau vsrAI samtusrHsg
vlð þaA som gsrist f nágrannasveltarfAtögunum
Samþykkja aA takka borgarfutltrúum
Hætta vlA RauAavatnsbyggAlna og byggja moö-
fram stróndinni
Lsggja nldur tramkvsmdaráð
Fella úr gitdl ikvarAanlr msirihlutans um „sfldar-
ptsn" út f Rsykjavfkurt|örn
Leggja nldur punktakerftA i atongum og stsfna aA
pvf aA lóAnframboA fuflnagf lóAaeftlrspurn
Bolta sér fyrlr pvf aA hafin vsrAI bygglng bffrsiAa-
geymsluhúss f miAbanum
Sslja Ikarus-stratisvagnana
Fefla úr gfldl AkvórAun vinstri meirihlutans um
ibuðabyggA i Laugardalnum
£dex!80-
\5-0í'S^
Bfrta pessl loforð meA skyrslu um otndirnar I lok
næsta kjórtfmablls svo menn getl pa boriA saman
orA og sfndlr
Fyrir borgarstjórnarkosningarnar 22. maí 1982 birtu sjálfstæðismenn þessa
auglýsingu um kosningaloforð sin. Hér er hún endurbirt ásamt efndadagsetn-
ingum loforðanna.