Morgunblaðið - 22.01.1983, Page 48

Morgunblaðið - 22.01.1983, Page 48
Jiig—iwm ggg—ggg x\skriftar- síminn er 830 33 ^/V^glýsinga- síminn er 2 24 80 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 1983 Verkamannabústaðir Reykjavíkur: Um 680 manns sóttu um íbúð — í mesta lagi 150 íbúðir til skiptanna Morgunblaðid/Rax. Hlákan undanfarna daga hefur gert mörgum erfitt fyrir í umferðinni, enda hafa viða myndast stöðuvötn og stórar elfur, þar sem áður voru breiðar götur — eða snjóskaflar öllu heldur síðustu vikur! Svartolía hækkar um 13,6% og gasolía um 13,7%: Halli útgerðar um 5% eftir hækkunina Utgjaldaaukinn tæplega 100 milljónir króna með 35% niðurgreiðslu VERÐLAGSRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gærdag að heimila 13,7% hækk- un á gasolíu, þannig að lítrinn hækkar úr 6,20 krónum i 7,05 krónur. Ráðið samþykkti ennfremur að heimila 13,6% hækkun á svartolíu, sem hefur það í för með sér, að hvert tonn hækkar úr 4.330 krónum í 4.920 krónur. UM 680 manns sóttu um íbúð í gegnum verkamannabústaðakerfið í Reykjavík, en umsóknarfrestur rann út þann II. des. sl. í mesta lagi 150 íbúðum verður úthlutað, en niður- stöðu um það hverjir hreppa hnossið er ekki að vænta fyrr en í mars i fyrsta lagi, að sögn Ríkarðs Stein- bergssonar, framkvæmdastjóra Verkamannabústaðanna í Reykja- vík. „Það tekur nokkra mánuði að fara í gegnum umsóknirnar, svo menn verða að bíða fram í mars að minnsta kosti eftir niðurstöðum úthlutunarnefndar," sagði Ríkarð- ur. „Það fyrsta sem nefndin gerir er að athuga hvort menn uppfylli skilyrði fyrir því að fá úthlutað íbúð á vegum Verkamannabústað- anna. Þessi skilyrði eru: í fyrsta lagi að eiga lögheimili í Reykjavík, í öðru lagi að vera undir ákveðnu tekjuhámarki, og í þriðja lagi að eiga ekki íbúð fyrir. Reynslan er hins vegar sú að um 90% umsækjenda uppfylla þessi skilyrði. Nefndin verður því að velja úr þessum 90%, og þá er fyrst og fremst stuðst við tvennt: annars vegar þá húsnæðisaðstöðu, sem fólk býr við, og hins vegar möguleika fólks á að útvega sér húsnæði eftir öðrum leiðum," sagði Ríkarður. Kjörin sem verkamannabústað- irnir bjóða upp á eru þau, að 20% Færð víðast mjög góð FÆRÐ er nú yfirleitt góð á vegum, til dæmis greiðfært í allar áttir frá Reykjavík: Um Reykjanes, upp í Hvalfjörð og vestur á Snæfellsnes og norður yfir Holtavörðuheiði, og um Hellisheiði um Suðurland og allt til Austurlands. Á Vestfjörðum er færð ekki eins góð, og í Húnaþingi mikill jafnfallinn snjór, sem gæti orðið erfiður ef hvessir. Frá Akureyri er greiðfært bæði um Eyjafjörð og austur í Þingeyjarþing. Víða er hálka á útvegum, og þar sem hláka er víða mikil, getur orðið hætta á að snjór stífli ræsi. íbúðarverðs eru borguð út, en hin 80% eru lánuð til 42 ára, verð- tryggð með xk% vöxtum. Þetta þýðir í raun að árleg útborgun er 2,7% af lánsupphæðinni, en um 2% af íbúðarverðinu. Það yrðu 14.000 krónur á ári miðað við íbúð sem kostar 700.000 kr. Rændur í mann- þröng á götu í Lundúnum SÍÐASTLIÐINN laugardag var ís- lenzkur maður rændur i mannþröng í Lundúnaborg. Hann var ásamt félaga sínum á Tottenham ('ourt Road þegar þrír menn réðust á hann og felldu. Hann náði að gripa í einn þeirra, en ræninginn náði að rífa sig lausan. Ræningjarnir náðu fé af íslendingn- um, 300 sterlingspundum og 250 doll- urum, eða sem nemur um 15 þúsund krónum, og lögðu á flótta. En sagan er ekki öll — íslending- urinn veitti þeim manninum eftir- för sem hafði féð, en þá höfðu fé- lagar mannsins varðað undan- komuleið hans. Fyrst var hlaupið á hann og gripið í handtösku manns- ins, sem þá sleppti henni. Skömmu síðar var aftur hlaupið á hann og hann felldur, en enn veitti hann ræningjanum eftirför. Þá hljóp þriðji maðurinn á hann og hindraði för hans svo hann missti sjónar af ræningjanum. Mikill mannfjöldi var þarna, „þetta var eins og Austurstræti á 17. júní“, eins og íslendingurinn komst að orði. Þrátt fyrir það hreyfði enginn legg né lið honum til hjálpar og enginn reyndi að stöðva flótta ræningjanna. Félagi hans varð árásarinnar ekki áskynja fyrr en ræningjarnir voru lagðir á fiótta. Ræningjarnir voru vel klæddir og á aldrinum 35—40 ára, að mati mannsins. Mbl. hefur fregnað að fieiri hafi verið rændir erlendis. Ljóst er, að ræningjarnir höfðu fylgzt með manninum um nokkurt skeið, en hann hafði gengið í nokkr- ar verzlanir og þeir því getað séð féð, sem hann bar á sér. Ástæða er til þess að vara fólk við að hafa of mikið fé á sér í stórborgum erlend- is. Að sögn mannsins má hann telj- ast heppinn að hafa sloppið óskadd- aður, því búast má við að ræningj- arnir hefðu beitt vopnum, hefði hann náð að halda þeim föstum. „Hækkunin hefur í för með sér um 150 milljóna króna útgjalda- auka á ári fyrir íslenzka fiskveiði- flotann, óniðurgreitt, en miðað við 35% niðurgreiðslu á olíu eru áhrifin um 98 milljónir króna," sagði Ágúst Einarsson, hagfræð- ingur Landssambands íslenzkra útvegsmanna, í samtali við Mbl. „Hækkunin hefur í för með sér tæplega 2% verri afkomu flotans, frá þeim tölum sem gengið var út frá að kæmu út eftir síðustu fisk- verðshækkun, þ.e.a.s. um 3% halla á útgerðinni. Hallinn eftir hækk- unina er því tæplega 5%,“ sagði Ágúst Einarsson ennfremur. Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, sagði í samtali við Mbl., að megin- ástæðan fyrir þessari hækkun væru gengisbreytingar frá síðustu hækkun, en ennfremur hefði verið ákveðið, að auka innstreymi inn á innkaupajöfnunarreikning og jafna þannig halla hans. Á síðasta ári hækkaði gasolía um 99,9%, en svartolían um 96,7%. Gasolía hefur því hækkað frá 30. janúar sl. um 117,3%, en svartolía á hinn bóginn um 113,5%. Borgarfjörður: Aligæsarækt sem aukabúgrein hjá nokkrum bændum BÆNDASKÓLINN á Hvanneyri hef- ur í samvinnu við nokkra borgfirska bændur staðið fyrir aligæsarækt nú um nokkurt skeið. Vorið 1981 voru flutt inn frá Noregi um 200 egg af þremur tegundum, „hvítum itölum“, „austfoldgæs" og „smálandsgæs". Á Hvanneyri eru staðsettar klak- og út- ungunarvélar. Þeir fuglar sem komust upp af þessum 200 eggjum verptu síð- an í vor og í vetur var slátrað um 150 gæsum og sett á jólamarkað og annað eins sett á. Að sögn Markúsar B. Jónssonar skólastjóra Bændaskólans á Hvann- eyri er hér enn um algera tilrauna- starfsemi að ræða en hún hefur lof- að góðu það sem af er. Góður mark- aður er fyrir framleiðsluna og verð- ið er gott. Magnús sagði að þyngd gæsanna hafði verið 3,9 kíló að með- altali og hefðu framleiðendur fengið 140—150 krónur fyrir hvert kíló. Hann sagði að í vor fengist talsverð- ur fjöldi af gæsarungum ef allt gengi vel og yrðu þeir boðnir bænd- um. Magnús sagði að hér væri ekki á ferðinni nein stóriðja en þetta gæti verið góð búbót fyrir bændur með öðrum búskap enda væri áhugi manna mikill fyrir þessu. Aðalvand- inn í þessari framleiðslu sagði Magnús vera að slátra gæsunum og markaðsfæra, tækist að leysa það án of mikils kostnaðar væri hann bjartsýnn á að þessi gæsarækt gæti átt nokkra framtíð fyrir sér sem góð búbót hjá þó nokkrum bændum. KOSMOS 1402: „En mjög ólíklegt, að einhverjir hlut- ar gervitunglsins lendi á íslandia segir Guðjón Petersen Kjarnorkuknúni rússneski njósnahnötturinn KÖSMOS 1402, sem bilaði á dögunum, er nú vænt- anlega á síðustu snúningum sínum umhverfis jörðu. Eins og komið hefur fram í fréttum eru skoðanir vísindamanna nokkuð skiptar um það hvort hnötturinn muni að öllu leyti brenna upp í gufuhvolfinu, eða hvort einhverjir hlutar hans muni falla til jarðar. Almannavarn- ir víða um heim eru nú í við- bragsstöðu, en búist er við að hnötturinn fari í gegnum gufu- hvolfið nú um helgina, eða í síð- asta lagi á mánudaginn. Morgun- blaðið hafði í gær samband við Guðjón Petersen, framkvæmda- stjóra Almannavarna á íslandi, og innti hann eftir viðbúnaði íslend- inga. Sagði Guðjón að Almanna- varnaráð hefði fyrir skömmu skipað sérstaka nefnd vísinda- manna til að ráðleggja Al- mannavarnaráði til hvaða við- búnaðarráðstafana ætti að grípa. í vísindanefndinni eiga sæti Ágúst Valfells prófessor, Sigurður Magnússon forstöðu- maður geislavarna ríkisins, Þorsteinn Sæmundsson stjarn- fræðingur, Þorbjörn Sigur- geirsson prófessor og Örn Bjarnason læknir. „Við höfum átt tvo fundi með þessari nefnd,“ sagði Guðjón, „þar sem nefndin hefur lagt fram tillögur um það hvernig taka skuli á málinu, ef svo ólík- lega skyldi vilja til að einhverjir hlutar gervitunglsins höfnuðu hér. Ég ítreka að það er mjög ólíklegt að hlutar hnattarins lendi hér, í fyrsta lagi vegna þess að hnötturinn gæti brunnið upp í gufuhvolfinu, og í öðru lagi af þeim sökum, að hnötturinn er aðeins yfir íslandi einu sinni til tvisvar á sólarhring. Umferð- arhraði hnattarins er nú um 88,6 mínútur, þ.e.a.s. tunglið fer einn hring í kring um jörðina á tæp- um einum og hálfum tíma. Við höfum ákveðna áætlun um það hvernig við munum bregðast við ef illa fer, en frá þeirri áætl- un verður ekki skýrt fyrr en ljóst er, að raunveruleg hætta sé á ferðum. Bandaríkjastjórn hefur boðist til að senda hingað sér- fræðinga umsvifalaust ef brot úr hnettinum lenda hér, og við höf- um þegið það boð. Sem stendur er viðbúnaður okkar ekki annar en sá, að það er vakt hér á skrifstofunni allan sólahringinn, auk þess sem menn á vegum Al- mannavarna munu vera á varð- bergi utandyra um helgina og rýna til himins. Þetta eru ekki annað en ofur eðlilegar varúð- arráðstafanir við hugsanlegri hættu, hversu lítil sem hún kann að vera,“ sagði Guðjón.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.