Morgunblaðið - 25.01.1983, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983
Snjóflóðið á Bíldudal á laugardag:
Kraftaverk að við skyld-
um ekki enda úti á sjó
— segir Sonja Jónsdóttir og Jóhannes Ólafsson
þakkar röð af tilviljunum að hann skuli vera á lífi
«
„ÉG ÁTTI ekki að fara núna, því röð af tilviljunum gerði það að verkum,
að ég var ekki kominn í húsin til að gefa,“ sagði Jóhannes Olafsson á
Bildudal í samtali við Morgunblaðið í gær. Jóhannes missti á laugardag
33 kindur í snjóflóði úr Búðargili, en 17 kindum og einum hrút var
bjargað úr húsabrakinu.
„Þessi dagur byrjaði með þeim
endemum, að ég svaf yfir mig, en
ég man ekki til þess, að slíkt hafi
áður komið fyrir mig. Er ég ætl-
aði að fara í húsin, lenti ég á
kjaftatörn og hefði einhvern
tímann drifið mig í húsin að
slíkri vitleysu lokinni. Það gerði
ég þó ekki, heldur hugsaði sem
svo, að ég skyldi klára að flaka
þessa fiska sem ég átti eftir.
Þegar ég var búinn að því, fór
rafmagnið, og þá vissi ég að
snjóflóðið hafði hlaupið úr gil-
inu.
Annars var það svo skrýtið, að
úr öðru húsinu, þar sem voru 22
kindur, bjargaðist ein. Gullbrá
mín stendur alltaf frammi við
dyr og þegar snjóflóðið skall á
húsinu, lenti hún framan á því
og þeyttist síðan með því eins og
byssukúla þangað til flóðið
stöðvaðist. Þá tók hún á rás upp
í fjall. Það sá ekki á henni nema
hvað hún fékk blóðnasir. Já, hún
er seig, hún Gullbrá mín.
Fólkið á Litlu Eyri tók kind-
urnar og þar fá þær að vera til
vors. Þá fer ég með þær út í
Reykjafjörð og held áfram að
lifa mínu ævintýri þar,“ sagði
Jóhannes Ólafsson.
Jón Halldórsson sá snjóflóðið
steypast úr Búðargili ofan við
Bíldudal um hádegi á laugardag.
Hann sagði, að flóðið hefði ætt
yfir varnargarð neðan við gilið
og síðan yfir fjárhúsin tvö og
gamalt trésmíðaverkstæði. Við
að lenda á þessum húsum hefði
dregið nokkuð úr afli snjóflóðs-
ins og það hefði síðan staðnæmzt
nokkra metra ofan við húsin
Valhöll og Glaumbæ við Tjarn-
arbraut. „Það vakti athygli
mína, að þak þeyttist af öðru
fjárhúsinu þegar snjóflóðið átti
enn eftir nokkra metra að hús-
unum, svo mikill var loftþrýst-
ingurinn," sagði Jón Halldórs-
son.
Sonja Jónsdóttir á heima að
Glaumbæ eða Tjarnarbraut 19
og sagði hún, að það hefði aðeins
liðið örskammur tími frá því að
flóðið ruddist af stað þar til það
staðnæmdist nokkra metra fyrir
ofan húsið. „Menn höfðu búist
við snjóflóði í nokkurn tíma og
rétt áður en flóðið fór af stað,
varð mér litið upp í gilið og
hugsaði með sjálfri mér: „Skyldi
gilið fara að hlaupa." Ég ætlaði
síðan inn í búðina aftur, en þá
fóru ljósin og ég heyrði skruðn-
inga. Þegar ég horfði svo út aft-
ur, var flóðið að ryðjast yfir
fjárhúsin og síðan alla leið niður
undir húsin hérna. Annar snúru-
stauranna okkar fór og brakið úr
fjárhúsunum er hér niður alla
brekku. Það er í rauninni krafta-
verk, að við skyldum ekki enda
úti í sjó og í brekkunni hérna
fyrir ofan eru börn oft að leik.
Einnig er vinsælt hjá þeim að
fara í fjárhúsin og skoða kind-
urnar," sagði Sonja Jónsdóttir.
Una Elíasdóttir og Garðar
Jörundsson hafa búið í Glaumbæ
í yfir 30 ár. Una sagði í samtali
við Morgunblaðið, að þau myndu
ekki eftir öðrum eins snjó og
verið hefði í gilinu fyrir hlaupið.
„Ég var að tala í síma þegar
snjóflóðið hljóp. Þá allt í einu
komu eldglæringar eins og eld-
ing og rafmagnið fór. Flóðinu
fylgdi mikill gnýr, en annars
gerir maður sér ekki alveg grein
fyrir þessum sekúndum, því
þetta gerðist á augnabliki. Þegar
miklar fannir eru, má alltaf bú-
ast við snjóflóðum hér um slóðir
og ég hef séð snjóflóð, en þá var
liðið á vetur og frekar um krapa-
flóð að ræða en snjóflóð eins og
það, sem féll á laugardaginn.
Innan við 10 metrar eru frá hús-
inu upp að brakinu, sem flóðið
bar með sér,“ sagði Una Elías-
dóttir.
Páll Hannesson, fréttaritari
Morgunblaðsins á Bíldudal,
sagði, að öryggisvakt vegna
snjóflóðahættu hefði verið laug-
ardag og sunnudag og fólk hefði
verið flutt úr mörgum húsum,
einkum við Dalbraut. Þar sagði
Páll, að hefðu komið „nokkrar
smágusur" úr giljaskorningum,
en ekki alvarlegt flóð. Vatn
komst í kjallara nokkurra húsa í
hlákunni, en tjón varð ekki veru-
legt. Þó skemmdust tæki í kjall-
ara Rækjuvers. Tveir staurar
brotnuðu við spennistöð neðan
Búðargils og varð því plássið
rafmagnslaust um tíma. Fljót-
lega tók olíurafstöð að framleiða
rafmagn og samband við Mjólk-
árvirkjun komst á aðfaranótt
mánudags.
Olafur Gíslason og Sigurfinnur Sigurðsson starfsmenn Vegagerðar ríkisins
huga að vegarskemmdum við Stóru-Laxárbrúna, þar sem vatnsflóð og jaka-
burður rufu skarð í veginn. Ljósm: Sig.Sigm.
Hrunamannahreppur:
Mestu flóð í
manna minnum
Sydra-Lanffholti, 24. janúar 1983.
MIKIL flóð gerði hér um helgina
eins og svo víða anars staðar á land-
inu, i þeim ám sem hér umlykja
okkur; Stóru-Laxá, Hvítá og Litlu-
Laxá. Var þess raunar að vænta ef
gerði mikla hláku með hlýindum á
þann mikla snjó sem hér hefur ver-
ið. Flóðin eru líklega einhver þau
mestu sem elstu menn muna hér i
Hrunamannahreppi.
Eins og svo oft áður er mikið
flóð kemur í Stóru-Laxá, rofnaði
vegurinn við brúna, og varð því
vegasambandslaust hér frá hádegi
á laugardag til dagsins í dag. Á
laugardagskvöld var þó farið í að
opna veginn við Brúarhlöð, til þess
að sveitin einangraðist ekki alveg,
en þar var heldur torfarið, þótt
vegurinn opnaðist.
Ekki er vitað um skemmdir á
húsum, en vegaskemmdir eru all-
verulegar, svo og á girðingum og
trúlega eitthvað á ræktuðu landi.
Þá rauf Litla-Laxá hitavatns-
leiðslur í Grafarhverfi, þó ekki
alvarlega, og er búið að gera við
skemmdirnar. Vonandi fer veð-
urhamnum sem gengið hefur hér
yfir að linna, en hann hefur valdið
erfiðleikum í daglegum störfum
fólks hér í strjálbýlinu.
— Sig. Sigm.
Óshlíð og Súðavíkurvegur:
220—230 snjóflóð frá áramótum
Bolungarvík, 24. janúar.
GÍFIIRLEGA mikið hefur verið um
snjóflóð á Óshlíðarveg síðustu vikur
og vegurinn tíðum tepptur af þeim
sökum. Fréttaritari Mbl. í Bolungar-
vík ræddi við Kristin Jónsson rekstr-
arstjóra Vegagerðarinnar á ísafirði.
Hann sagði að frá áramótum hefðu
fallið á milli 220—230 snjóflóð á
Súðavíkurveg og Óshlíðarveg til sam-
ans. Óshlíðarvegur hefði þarna verið
nokkuð drýgri eins og ævinlega. Þó
hefði það verið einn daginn að Súða-
víkurvegur varð nánast undirlagður
einu samfelldu snjóflóði.
Sl. föstudag skapaðist mikið
hættuástand á Óshlíðarvegi vegna
snjóflóða. Veður var með bezta
móti og umferð um veginn allnokk-
ur, enda hafði lítið verið hægt að
fara um veginn aðra daga vikunnar.
Seinni part dagsins byrjaði mikil
snjókoma og lokaði snjóflóð vegin-
um fljótlega. Starfsmenn Vegagerð-
arinnar sem höfðu verið um daginn
að vinna við að breikka veginn hófu
þá strax að opna hann aftur til að
þeir sem á ferðinni væru kæmust
ferðar innar. Að sögn Kristins er
skemmst frá því að segja að því
verki var ekki lokið fyrr en kl. 21.30
og höfðu vegagerðarmenn þá mokað
37 skriður sem allar lokuðu vegin-
um. Má það teljast mikil mildi, að
ekki fór verr því menn voru þarna í
mikilli hættu. Til að mynda sagði
Kristinn að með snarræði tveggja
bílstjóra hefðu þeir getað forðað sér
undan einu snjóflóðinu, annar með
því að bakka bíl sínum og hinn með
því að gefa fullt áfram og féll
snjóflóðið á milli þeirra. Sjúkra-
bifreið úr Bolungarvík fór með slas-
aða konu á ísafjörð um þetta leyti
og tók ferðin 2 tíma hvora leið, sem
venjulega er farin á 15 mínútum.
I dag var reynt að opna veginn en
vegagerðarmenn sneru við í Selja-
dal vegna dimmviðris og höfðu þeir
þá rutt í gegnum sjö snjóflóð á þeim
vegarkafla sem er rúmur kílómetri.
Yfirleitt er reynt að senda út aðvar-
anir ef ástandið á veginum er
ótryggt, en benda mætti fólki á að
kynna sér útlitið með veginn t.d.
hjá Vegagerðinni eða lögreglu, áður
en lagt er á hlíðina, á meðan svona
mikill snjór er í fjallinu og þar af
leiðandi mikil snjóflóðahætta, eins
og einmitt er um þessar mundir.
Gunnar.
Spurt og svarað
um áfengismál
og önnur vímuefni
Hringiö í síma 10100
milli kl. lOog 11
MORGUNBLAÐIÐ gefur nú les-
endum sínum kost á að bera
fram fyrirspurnir er varða áfeng-
ismál og önnur vimuefni. Sam-
tökin SAÁ hafa tekið að sér að
afla svara við fyrirspurnunum
hjá sérfróðum aðilum og verða
svörin birt í blaðinu nokkrum
dögum síðar.
Æbkilegt er að fyrirspurn-
irnar.séu bornar fram undir
fullu nafni, en það er þó ekki
skilyrði. Fyrirspurnirnar geta
varðað hvað eina sem tengist
þessum málefnum, hvort sem
um er að ræða viðbrögð við að-
steðjandi vanda, fyrirbyggj-
andi aðgerðir eða annað sem
fyrirspyrjandi hefur áhuga á
að fá upplýsingar um.
Hringið í síma 10100 frá
klukkan 10—11 alla virka daga
nema laugardaga.
Seeberg fékk bók-
menntaverðlaunin
fyrir verk sitt „Om fjorten dage“
Kaupmannahöfn, 24. janúar AF.
DANSKA rithöfundinum Peter
Seeberg voru í dag veitt bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs árið 1983
fyrir smásagnasafn sitt: Eftir hálfan
mánuð (Om fjorten dage). Skýrði
sænski rithöfundurinn Per Olof
Sundmann, sem er formaður dóm-
nefndar Norðurlandaráðs, frá verð-
launaveitingunni á fundi með frétta-
mönnum í Kaupmannahöfn. Peter
Seeberg er safnvörður í bænum Vi-
borg á Mið-Jótlandi. Honum verða
úthlutuð bókmennaverðlaunin á
þingi Norðurlandaráðs í Oslo 22.
febrúar nk. en þau nema nú d. kr.
75.000.
í forsendum dómefndarinnar
fyrir verðlaunaveitingunni segir,
að Seeberg hafi með smásagna-
safni sínu „skapað af snilldarlegri
nákvæmni nýja vídd innan smá-
sögunnar". Þetta er í fjórða sinn,
sem dönskum manni eru veitt
bókmennaverðlaun Norðurlanda-
ráðs. Svíar hafa hlotið þessi verð-
laun 9 sinnum, Norðmenn þrisvar
og íslendingar og Finnar hafa
hlotið þau tvisvar.
Peter Seeberg gaf út sitt fyrsta
verk 1956 og hefur síðan gegnt
miklu hlutverki í dönskum bók-
menntum og menningarlífi. Skáld-
Per Olof Sundman (til hægri) óskar Peter Seeberg (til vinstri) til hamingju
með bókmenntaverðlaun Norðurlanda. Mynd þessi var tekin í Kaupmanna-
höfn í gær.